Fréttablaðið - 31.07.2006, Page 48
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér á síðunni má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Ingibergsson
(frá Hjálmholti, Vestmannaeyjum)
Smárabarði 2b, Hafnarfirði,
sem lést á Landspítala Landakoti 21. júlí, verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn
2. ágúst kl. 13.00.
Eyrún Hulda Marinósdóttir
Guðjón Ingi Ólafsson Hildur Hauksdóttir
Birna Ólafsdóttir Sveinn Ingason
Viðar Ólafsson Heba Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
MERKISATBURÐIR
1556 Stofnandi Jesúíta, Ignatius de
Loyola, deyr í Róm.
1667 Breda-samningurinn batt
enda á annað ensk-
hollenska stríðið.
1919 Þýska þjóðþingið tekur upp
Weimar-stjórnarskrána.
1971 Geimfarar úr Apollo 15 geym-
ferjunni eru fyrstir til þess
að keyra um í „tunglflakk-
aranum“.
1991 Börn náttúrunnar er frumsýnd
í Reykjavík. Hún var sýnd
daglega í yfir ár og var síðar
tilnefnd til Óskarsverðlauna.
1992 Fyrsta barnið sem fæðist
eftir glasafrjógvun á Íslandi
kemur í heiminn.
1999 Rolling Stones-meðlimurinn
Mick Jagger spókar sig á
Ísafirði.
MILTON FRIEDMAN
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1912.
„Ríkisstjórnir læra aldrei, aðeins
fólk getur lært.“
Milton Friedman er bandarískur hagfræðingur.
Þýski nasistaflokkurinn komst til
valda í Þýskalandi árið 1933 og
stjórnaði landinu með alræðis-
valdi til loka seinni heimsstyrjald-
arinnar árið 1945.
Flokkurinn var stofnaður af
Anton Drexler árið 1919 sem
verkalýðsflokkur og sama ár hóf
Adolf Hitler að mæta á fundi.
Með mælsku sinni og krafti náði
Hitler fljótlega völdum innan
flokksins, breytti nafni hans og
kom á fót áætlun sem fólst í því að Þjóðverjar ykju
landsvæði sitt og sneru baki við Versalasamning-
unum.
Undir stjórn Hitlers jókst stuðningur við flokkinn
og árið 1923 gerðu flokksmenn uppreisn gegn
Weimar-lýðveldinu sem varð til í Þýskalandi þegar
fyrri heimsstyrjöldinni lauk. Uppreisnin mistókst,
flokkurinn var bannaður og Hitler var dæmdur
til fangelsisvistar.
Þegar að Hitler losnaði úr fangelsi árið 1924
hóf hann þegar að endurreisa flokkinn og
ákvað að að þessu sinni skyldi flokkurinn fara
að lögum og reglum og komast til valda með
kosningasigri, ekki valdaráni.
Vendipunkturinn í frama flokksins var krepp-
an mikla og atvinnuleysið og angistin sem fylgdi
henni á árunum í kringum 1930. Nasistaflokkur-
inn náði vel til atvinnulausra sem vildu breyting-
ar á stjórn landsins og fylgi flokksins jókst enn
frekar. Í kosningunum í júlí árið 1932 fékk flokkurinn
14 milljónir atkvæða eða 38 prósent fylgi og var þar
með orðinn stærsti flokkurinn á þýska ríkisþinginu.
Hitler var síðan kanslari tæpu ári síðar og tók
sér einræðisvald og í júlí árið 1933 gaf ríkisstjórnin
það út að Nasistaflokkurinn væri eini flokkurinn í
Þýskalandi.
ÞETTA GERÐIST 31. JÚLÍ 1932
Nasistar vinna kosningarnar
Skúli Sæland sagnfræðingur hefur
tekið saman rit um Ísleif biskup, sem
var fyrsti íslenski biskupinn og fyrst-
ur til þess að stofna biskupsdæmi hér
á landi. Skúli segir að ritið hafi komið
til vegna þess að ekki hafi verið til
neitt sérrit um Ísleif en í ár eru 950 ár
síðan hann var vígður til embættis.
„Ég tók saman það sem til er í
frumheimildum af Ísleifi og reyndi
að setja saman heillegt yfirlit um ævi
hans. Þar sem heimildir stönguðust á
þar bar ég saman skoðanir fræði-
manna og reyndi að setja fram frek-
ari hugmyndir af álitamálum sem upp
hafa komið,“ segir Skúli en Ísleifur
var bæði biskup yfir Íslandi og Græn-
landi.
„Hann er líka frumkvöðull, hann
er fyrsti íslenski maðurinn sem vitað
er með vissu að hafi farið út í nám og
sömuleiðis sá fyrsti sem kemur á fót
skóla hér á Íslandi,“ segir Skúli. Ísleif-
ur var líka einn af ættfeðrum helstu
valdaættar Íslendinga á sínum tíma,
Haukdælinga.
„Ég starfa í hlutastarfi sem
skjalavörður hjá Héraðsskjalasafni
Árnesinga og svo er ég að vinna við
skráningu menningarsögu uppsveita
Árnessýslu,“ segir Skúli og útilokar
ekki að fleiri rit eftir hann komi út.
Rit um Ísleif biskup kemur út
SKÚLI ÁSAMT SYNI SÍNUM, GÚSTAF Ísleifur biskup
var biskup yfir Íslandi og Grænlandi og frum-
kvöðull á sviði menntunar hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL BJARNASON.
AFMÆLI
KOLBRÚN
HALLDÓRS-
DÓTTIR
ÞINGKONA ER
51 ÁRS.
ÚTFARIR
11.00 Jóhanna Björg Th. Ingi-
mundardóttir frá Patreksfirði
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju.
13.00 Björn Lárusson, fyrrver-
andi bóndi á Auðunnarstöðum,
Sléttuvegi 15, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju.
13.00 Jón Pálsson, húsasmíða-
meistari, Fannafold 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju.
„Það er voða líkt með okkur, við eigum
báðir konu þó að hann hafi gifst fjór-
um árum seinna. Báðir eigum fjögur
börn og báðir eigum við ellefu barna-
börn hvor og ég á fjögur langafabörn
sem hann á ekki,“ segir Sæmundur
Pálsson og bætir við að þeir hafi sam-
band oftar en einu sinni á dag en tví-
burabræðurnir Magnús og Sæmund-
ur verða sjötugir í dag og ætla að
fagna deginum með fjölskyldum
sínum.
Bræðurnir hafa mikið yndi af því
að dansa og var Sæmundur meðal
annars Rokkkóngur Íslands og Rokk-
meistari Reykjavíkur á sínum tíma en
með árunum hefur danssporunum
fækkað. Sæmundur kenndi dans í
nokkurn tíma en dóttir hans og tengda-
sonur eiga í dag dansskólann Dans-
smiðjuna. „Þau hafa nú tekið við
krakkarnir þó ég hafi nú verið að sýna
þeim ýmislegt af þessu eldra sem er
ávallt klassískt, eins og rokkdans,“
segir Sæmi. Magnús hljóp stundum í
skarðið fyrir Sæma þegar hann var
upptekinn eða þegar hann var meidd-
ur. „Við unnum einu sinni stóra keppni
1980, ég og Didda á Spáni, með dans-
pörum frá öllum þjóðum,“ segir Sæmi
og bætir við að þau hafi verið með
þeim elstu sem tóku þátt.
Magnús lærði bæði raftækni og
kerfisfræði og vann í tæp fjörutíu ár
hjá Rafveitu ríkisins. „Það var ofsalega
gaman í gamla daga þegar maður var
að hanna spennuvirki og annað, þá var
tíminn svo fljótur að líða en þetta er
orðið meira þannig að menn eru í sér-
herbergjum núna,“ segir Magnús. Hann
á hús á Spáni þar sem hann dvelur jafn-
an á sumrin með fjölskyldu sinni og
þrátt fyrir nokkur óhöpp í ferðinni í
sumar þá finnst honum gott að vera á
Spáni. „Við eigum stóra fjölskyldu,
fjögur börn, tvo stráka og tvær stelpur
og ellefu barnabörn, tíu stráka og eina
dömu þannig að þetta er aldeilis hópur,“
segir Magnús. Ljóst er að nóg er að gera
við að sinna fjölskyldunni en Magnús
hefur líka verið að mála og dytta að
húsunum sínum tveimur á Spáni og hér
heima og lagði rafmagn í hús dóttur
sinnar. „Maður hefur haft mikið að gera
síðan maður hætti að vinna, það er ekk-
ert minna að gera,“ segir Magnús og
hlær. Hann ætlar líka að sinna golfinu
meira, en hann fékk sitt fyrsta sett í
fimmtugsafmælisgjöf. Hann segir að
þrátt fyrir að hann hafi lítið stundað
golf að undanförnu þá hafi hann unnið
mót á Leirunni sem fjölmargir kerfis-
fræðingar og tölvunarfræðingar tóku
þátt í.
Sæmundur starfaði hjá lögregl-
unni í 36 ár en hætti fyrir tveimur
árum síðan en hann er lærður tré-
smíðameistari. Þegar hann gekk í lög-
regluna hafði hann hugsað sér að vera
þar í aðeins skamman tíma á meðan
lítið var að gera í smíðunum en þegar
upp var staðið voru liðnir tæpir fjórir
áratugir.
Þeir eru báðir að dytta að húsunum
sínum í sumar og eru sammála um að
það sé nóg að gera þó þeir séu hættir
að vinna.
gudrun@frettabladid.is
TVÍBURABRÆÐURNIR SÆMUNDUR OG MAGNÚS: SJÖTUGIR Í DAG
Líkir í útliti en ólíkir í sér
TVÍBURABRÆÐURNIR MAGNÚS OG SÆMUNDUR Segjast tala saman að minnsta kosti einu sinni á dag og telja að það sé tími til kominn að þeir haldi upp
á afmælið saman og bjóði nánustu fjölskyldu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA.
Allar nýjustu upplýsingar
og fréttir á ensku á
vefnum reykjavik.com og
í blaðinu Reykjavikmag.
Allt um allt sem skiptir máli í Reykjavík