Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 50
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR
Klámkynslóðin
hefur verið mikið í
umræðunni undan-
farin misseri og sjálf
hef ég hneykslast á
kynlífsvæðingunni
sem ríður yfir heim-
inn. Ég hef setið
kúrsa í Háskólanum þar sem klám-
væðingin er í brennidepli og hef
prísað mig sæla að hafa fæðst nógu
snemma til að losna undan því að
tilheyra klámkynslóðinni.
Um daginn renndi ég í gegnum
tíu ára gamalt myndaalbúm hjá
vinkonu minni og varð dálítið
brugðið. Ég minnist þess ekki að
hugtakið klámvæðing hafi átt upp á
pallborðið þegar ég var unglingur
en miðað við tískuna á þessum tíma
hefðu foreldrar okkar svo sannar-
lega átt að vera áhyggjufullir.
Þarna var mynd af okkur, þremur
15 ára bekkjarsystrum á leið á
skólaball. Við brostum okkar breið-
asta brosi (því á þessum tíma var
enn til siðs að brosa framan í
myndavélar en ekki setja upp stút),
klæddar í fatnað sem hefði sómt
sér vel í þrjiðja flokks klámmynd.
Pilsið mitt náði varla niður fyrir
rasskinnar og þröngur hlýrabolur-
inn var óhugnanlega fleginn. Við
þessa múnderingu var ég í húðlit-
um háglans eróbikksokkabuxum og
svörtum lakkskóm, með 11 cm hæl
og 5 cm þykkum sóla – skóm sem
voru svo klámfengnir að jafnvel
fatafellur létu varla bjóða sér þá nú
til dags. Klæðnaður vinkvenna
minna var ekki skárri. Önnur í
magabol með vafasamri áletrun og
hin klædd í stutta bláa plastkápu og
skó með himinháum hælum. Hún
minnti einna helst á barnungan
strippara á leið í steggjapartí. Ein-
hversstaðar í bakgrunninn ímynda
ég mér að lagið „Wannabe“ með
Spice girls hafi hljómað: „If you
wanna be my lover, you gotta, you
gotta.“
Líklega vorum við á barmi þess
að tilheyra klámkynslóðinni og
þrátt fyrir það hefur ræst furðu vel
úr okkur í dag. Með það í huga og
minnug þess að mjaðmahnykkir
Elvis Presley þóttu argasta klám
þegar mamma var unglingur leyfi
ég mér að fullyrða að klámkynslóð-
in sé afar afstætt hugtak.
STUÐ MILLI STRÍÐA: Hefur klámkynslóðin kannski alltaf verið til?
ÞÓRGUNNUR ODDSDÓTTIR VEIT EKKI HVORT HÚN TILHEYRIR KLÁMKYNSLÓÐINNI EÐA EKKI.
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
■ Pondus Eftir Frode Øverli
Vertu
heiðarlegur
við mig
herra T.!
Ljúga þessi augu
að þér? Þú skalt
fá sannleikann,
Raggi!
Skódinn er listaverk og hann
er þinn fyrir aðeins 2 millur!
Af hverju? Af því að ég kann
vel við þig, Raggi.
Ég var meira
að hugsa um...
seríuna!
Ah. Jæja?
Lastu greinina í blaðinu
um daginn um eiturefni í
tússpennum? Myndasöguhöf-
undar fá snemmbæran skalla,
verða rangeygðir, getulausir,
dýrhneigðir, ha?
Gott
augnsamband...
Halla aðeins
höfði... ... lyfta
brúnum
til að sýna
áhuga.
... er það á
hreinu, ungi
maður?
Kinka kolli...
... og brosa
örlítið.
Ég hlusta sjaldan, en
ég er eftirtektarsamur
áheyrandi.
Já
mamma.
Þar sem ég
ætla að verða
vélvirki þegar ég
verð stór, myndirðu þá
sætta þig við lauslega
áætlun?
HVUT
TI
sleik sleik
sleik
Lít ég kannski
út fyrir að vera
sleikjó?!
Klapp-stapp! Klapp-stapp!
Klapp-stapp! Klapp-stapp! Klapp-
stapp! Klapp-stapp!
Klapp-stapp!
Klapp-stapp!
Klapp-stapp!
Gettu í
hverju
við
erum!
Klapp-
stöppurum?
Neeii...
Gúmmí-
sandölum. Hvaðan fær hann
þessi skrýtnu orð?
Hef ekki
hugmynd!
Klapp-stapp! Klapp-stapp! Klapp-
stapp! Klapp-stapp! Klapp-stapp!
Klapp-stapp! Klapp-stapp!