Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 52
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR24
LOGI BERGMANN EIÐSSON
Logi líkist töffaranum Anthony Hopkins, en er þó aðeins meiri skóla-
strákur í samanburði við mannætuna úr Silence of the lambs.
UNNUR BIRNA
VILHJÁLMSDÓTTIR
Unnur og Miranda Otto sem lék Eowyn
í Lord of the Rings eru með svipaða
andlitsbyggingu, en Unnur er samt gerólík
Miröndu enda með dökkt hár og væna
brúnku.
Nú geta netverjar skemmt sér yfir
forriti sem sérhæfir sig í að finna
tvífara. Hægt er að mata forritið
með mynd af hverjum sem er og
fá úr skorið hvaða stjörnu úti í
heimi maður líkist, en forritið
reiknar út andlitsföllin og ber þau
saman við fræga fólkið. Greini-
legt er að ekki er tekið tillit til
litarafts, hárlitar og aldurs, því
frumniðurstöður Fréttablaðsins
eru nokkuð skrautlegar. Bubbi
breytist í François Mitterand,
fyrrverandi Frakklandsforseta,
og Logi Bergmann Eiðsson er tví-
fari Anthony Hopkins, en forritið
virðist vera glöggara á kven-
mannsandlit. Auðvelt er að rugla
forritið með því að gefa upp nokkr-
ar myndir af viðkomandi og fá
mismunandi niðurstöður og gerir
það leikinn enn skemmtilegri.
Hægt er að nálgast tvífaraforritið
á myheritage.com.
ELÍSABET
DAVÍÐSDÓTTIR
Fallegasta fyrir-
sæta landsins
er tvífari Mischu
Barton úr The
OC, en hún er
einmitt þekkt
fyrir mikinn
sjarma og fegurð.
Tvífarar fræga fólksins á Íslandi
BUBBI
Þó Bubbi sé ekkert unglamb lengur er hann heldur
yngri en François Mitterand, sem lést 1996.
ÁSDÍS RÁN
GUNNARS-
DÓTTIR
Ásdís er
samkvæmt
forritinu tvífari Gwen
Stefani.
50%
AFSLÁTTUR
20.000
AFSLÁTTUR
kr.
20.000
AFSLÁTTUR
kr.
UMFJÖLLUN
[TÓNLIST]
Aðdragandinn að þessari fyrstu
sólóplötu Thom Yorke, söngvara
Radiohead, var svolítið undarleg-
ur. Fyrr á þessu ári fengum við
þær fréttir að hljómsveitin væri
við það að klára nýja plötu og
útgáfudagurinn væri innan seil-
ingar. Flestum kom því á óvart
þegar tilkynning barst þess efnis
að búið væri að fresta Radiohead-
plötunni en söngvarinn Thom
Yorke ætlaði í staðinn að gefa út
sólóplötu.
Það hefur svo sem ekki verið
neitt leyndarmál að seinni ár hafa
menn innan Radiohead verið nokk-
uð ósammála um það hvaða stefnu
sveitin eigi að taka. Thom og Jonny
Greenwood fannst Kid A ekki
nægilega tilraunakennd og vildu
sökkva sér dýpra í tilraunabrunn-
inn á meðan gítarleikarinn risa-
vaxni Ed O´Brien hefur viljað
halda fastar í rokkrætur sveitar-
innar. Það ætti því ekki að koma
neinum á óvart að sólóplata Thom
Yorke skuli öll vera í sama stíl og
lagið Idioteque af áðurnefndu
meistarastykki Radiohead.
Platan hljómar öll eins og Thom
hafi verið í kjallaranum heima hjá
sér að fikta í nýja trommuheilan-
um sínum og hljóðgerflum og svo
raulað ofan á. Lagasmíðarnar eru
svo þannig að ef platan væri ekki
gefin út undir nafni Thom þá væri
engin leið að vita að þetta væri
ekki Radiohead. Töluverðrar
naumhyggju gætir í útsetningum
og fáir hlutir í gangi, oft bara tvær
hljómborðslínur, hljóðlátir tölvu-
taktar og sveimandi raddir eða
annars konar stafræn hljóðfæri.
Thom gerir engar tilraunir til að
semja grípandi popplög. Hann
hefur kannski ákveðið að skilja
það verkefni eftir í höndunum á
hljómsveitinni sinni sem þýðir þó
ekki að hér séu ekki frambærileg
lög. Öll mjög keimlík en eitt og eitt
festist betur í manni en annað. Til
dæmis lögin Harrowdown hill,
Black Swan auk hins frábæra titil-
lags The Eraser.
Platan kemur varla á óvart. Ég
vissi svo sem alveg við hverju ég
ætti að búast frá Thom. Ég átti
hins vegar ekki von á því að platan
yrði svo mikið á jaðrinum að marg-
ar hlustanir þyrfti til að melta
hana. Við fyrstu tvö rennslin renn-
ur ýmislegt saman en kannski er
það vegna þess að hún er svona
lágstemmd. Ég er vanari því að
heyra Thom syngja ofan á beittari
takta eða við urrandi gítarspil.
Hann hefur aldrei hljómað jafn
afslappaður og öruggur og hér.
Tilfinningin af plötunni er eins
og manni hafi verið boðið í te hjá
Thom. Í fyrstu verður maður svolít-
ið órólegur og veit ekki alveg hvern-
ig maður á að vera. Svo þegar hann
kemur loksins með tebakkann úr
eldhúsinu og sest niður kemur í ljós
að þetta er gæðablóð og hinn besti
gestgjafi. Þetta er því bara spurn-
ing um að sökkva aðeins niður í sóf-
ann, hlusta á það sem Thom Yorke
hefur að segja því þó þetta hljómi
örlítið kunnuglega þá leynast þarna
fróðleiksmolar sem þið viljið ekki
missa af. Birgir Örn Steinarsson
Í te hjá Thom Yorke
THOM YORKE: THE ERASER
Niðurstaða: Fyrsta sólóplata Thom Yorke
kemur lítið sem ekkert á óvart en er engu að
síður vandað og fallegt verk sem vinnur á við
hverja hlustun. Englasöngur yfir lágstemmdum
krúttlegum töktum við sveimandi hljómborð
og gítarlínur.