Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 55

Fréttablaðið - 31.07.2006, Side 55
Lindsay Lohan og elskhugi hennar Harry Morton hafa fengið sér ný húðflúr. Leikkonan úr Mean Girls heimsótti húðflúrstofu í Vestur- Hollywood síðla kvölds, eftir að hafa setið að sumbli á skemmti- stað, og og lét húðflúra hvítt hjarta á milli þumals og vísifingurs. Morton á víst að hafa fengið sér svipað húðflúr á ónefndum stað. Hvíta hjartað er ekki fyrsta húðflúrið sem hin tvítuga Lohan fær sér. Hún hafði áður fengið orðið „breathe“ á hægri rist og stjörnu á þá vinstri. Rauðhærða kvendið er einnig með ítölsku setninguna La Belle Vita (hið ljúfa líf) húðflúraða á bakið. Lohan er nýkomin af spítala en hún var lögð inn á miðvikudaginn var eftir að hún féll í yfirlið við tökur á myndinni „Georgia Rule“. Talskona Lohan sagði að veðrið hefði leikið leikkonuna svo illa en sumir miðlar vilja meina að hún hafi verið á útstáelsi með Morton kvöldið áður og hafi því verið orðin orkulaus. Lohan með hvítt hjarta á hendinni LINDSAY LOHAN Rauðhærða leikkonan er komin með enn eitt húðflúrið. Gítarinn sem Paul McCartney lærði sín fyrstu gítargrip á verður seldur á uppboði í hinu goðsagna- kennda upptökuveri Bítlanna, Abbey Road Studios, en talið er að hann verði seldur fyrir meira en hundrað þúsund pund sem sam- svarar þrettán milljónum íslenskra króna. Gítarinn hefur mikið gildi fyrir sögu Bítlanna því sagan segir að það hafi verið í gegnum gripinn sem Paul fékk góðvin sinn, John Lennon, til að ganga til liðs við hljómsveitina The Quarrymen árið 1957 en hún varð seinna upphafið að vinsælustu og áhrifamestu hljómsveit heims, Bítlunum. Með gítarnum fylgir handskrif- að bréf frá Paul þar sem stendur að umrætt hljóðfæri sé gítarinn sem hann lærði fyrst á og hafi í fyrstu verið í eigu góðvinar hans, Ian James, en það var einmitt James sem kenndi John Lennon nokkur grip til viðbótar við það sem Bítillinn sálugi kunni þegar. Ómetanlegur gítar PAUL OG REX Gítarinn hefur mikið gildi fyrir sögu Bítlanna en hann leiddi til þess að John Lennon gekk til liðs við The Quarrymen. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Bíómyndirnar um njósnara henn- ar hátignar, James Bond, njóta mikilla vinsælda áhorfenda og er kvikmyndanna alltaf beðið með eftirvæntingu. Í nóvember verð- ur 25. kvikmyndin um James Bond frumsýnd og ber hún nafnið Casino Royale. Af því tilefni ákvað kvikmyndatímaritið Empire Maga- zine að halda kosningu meðal les- enda sinn um hvaða leikkona væri flott- ust af öllum þeim kvennafans sem hefur umvafið njósnarann gegn- um tíðina. Kvenkyns per- sónur hafa nefnilega alltaf haft mikið að segja í James Bond myndun- um og venjulega eru tvær aðal- konur í hverri mynd, ein sæt og góð og önnur illmenni sem tælir njósn- ara hennar hátignar og kemur honum fyrir kattarnef. Það kemur ekki mörgum á óvart að það var þokkagyðjan Ursula Andress sem vann þessa kosningu enda sem fáir geta gleymt atriðinu fræga þegar hún stíg- ur upp úr sjónum í bikiní einum klæða í myndinni Dr. No. Annað sætið hlaut Famke Jansen fyrir frammistöðu sína í Goldeneye með Pier- ce Brosnan og hin fagra Jane Seym- our hreppti þriðja sætið en hún lék í mynd- inni Live and Let Die. Feg- urðardísin Halle Berry vermdi fjórða sætið en hún lék mynd- inni Die Another Day sem tekin var upp að að hluta hér á landi. Fimmta sætið samkvæmt lesendum tímarits- ins fór svo til Lois Chile en hún lék í myndinni Moonraker með Rooger Moore í hlut- verki James Bond frá árinu 1979. Þokkagyðjur Bond FIMMTA SÆTIÐ Nafn Lois Chiles hefur lítið borið á góma síðan hún lék í í Bond-mynd- inni Moonraker með Rooger Moore en þar sló hún í gegn. ANNAÐ SÆTIÐ Famke Jansen var valinn í annað sætið en hún lék með Pierce Brosnan í myndinni Goldeneye. KVENNALJÓMI Rooger Moore sést hér umkringdur fallegu kvenfólki eins og sönnum njósnurum hennar hátignar sæmir. FRÉTTABLAÐIÐ/APPHOTOS FYRSTA SÆTIÐ Ursula Andress vakti mjög mikla athygli í kvikmyndinni Dr. No en þetta var í fyrsta skiptið í sögunni sem einhver kom fram í kvikmynd í bikiní einu klæða. ÞRIÐJA SÆTIÐ Jane Seymour var náttúrulega falleg í myndinni Live and Let Die. FJÓRÐA SÆTIÐ Halle Berry var flott í myndinni Die Another Day.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.