Fréttablaðið - 31.07.2006, Síða 62
31. júlí 2006 MÁNUDAGUR34
Fréttablaðið birti nú um helgina
hverjir væru tilnefndir sem
eftirminnilegustu sjónvarpsmenn
landsins og hvert væru eftirminni-
legustu atvikin í íslensku sjón-
varpi. Í dag verður hleypt af
stokkunum kosningu á síðunni
www.visir.is þar sem þjóðinni
gefst kostur á að segja sitt álit.
Niðurstöðurnar verða birtar í
laugardagsblaðinu eftir viku en
tilefnið var að fjörutíu ár eru liðin
síðan Ríkissjónvarpið fór fyrst í
loftið og tuttugu ár síðan Stöð 2
birtist fyrst á skjám lands-
manna. Báðar þessar
stöðvar eiga það
reyndar sameigin-
legt að byrjunin
fór heldur brösu-
lega af stað. Prufuútsending RÚV
fór óvart í loftið degi áður en upp-
haf- lega var gert ráð fyrir
og eins og margir
muna var Stöð 2
hljóðlaus í
fyrsta skipti.
Fimmtán val-
inkunnir ein-
staklingar
sátu í dóm-
nefndinni og
gáfu þeir allir
álit nafnlaust.
Ómar
Ragnarsson, Bryndís Schram,
Gísli Marteinn Baldursson, Magn-
ús Bjarnfreðsson, Hermann Gunn-
arsson og Ólafur Ragnar Gríms-
son eru þau sex sem eru tilnefnd
sem eftirminnilegasti sjónvarps-
maður Íslands.
Atvikin þegar Bubbi Morthens
gefur fingurinn í áramótaþætti
árið 1980, Skeiðarárhlaupið 1996,
þegar Gísli á Uppsölum birtist í
fyrsta skipti, þegar Hemmi Gunn
týnist í beinni útsendingu og
þegar stjórninni slitið á Stöð 2
árið 1988 koma öll til greina sem
eftirminnilegasta atvikið í
íslensku sjónvarpi.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Kínverskur
2 Grundarfirði
3 Grænland
LÁRÉTT
2 teikning af ferli 6 hljóta 8 fisk-
ur 9 suss 11 hætta 12 seytla 14
lúkar 16 í röð 17 niður 18 ennþá
20 guð 21 velta.
LÓÐRÉTT
1 ákaflega 3 slá 4 veit allt 5 ham-
fletta 7 áleitinn 10 rá 13 tangi 15
hástétt 16 húðpoki 19 núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 graf, 6 fá, 8 áll, 9 uss, 11
vá, 12 rælni, 14 káeta, 16 hi, 17 suð,
18 enn, 20 ra, 21 snúa.
LÓÐRÉTT: 1 ofur, 3 rá, 4 alvitur, 5
flá, 7 ásækinn, 10 slá, 13 nes, 15
aðal, 16 hes, 19 nú.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Verið er að klippa kvikmyndina Kalda slóð sem Saga Film framleiðir en
Björn Brynjólfur Björnsson leikstýrir.
Þau Þröstur Leó Gunnarsson og Elva
Ósk Ólafsdóttir leika aðalhlutverkin en
hún segir frá harðsvíruðum blaðamanni
sem heldur upp að hálendisvirkjun og
rannsakar þar dularfullt morð. Áætlað
er að frumsýna myndina um jólin og
því er ljóst að íslenskir krimmaaðdá-
endur fá sitthvað fyrir sinn snúð þegar
sól fer að lækka á lofti því Mýrin hans
Baltasars Kormáks verður einnig frum-
sýnd um svipað leyti. Verið er að leita
eftir tónskáldi fyrir kvikmyndatónlistina
í Kaldri slóð og samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins verður tilkynnt eftir helgi
hver hreppir hnossið. Nokkrir valin-
kunnir tónlistarmenn hafa að undan-
förnu reynt fyrir sér í þessari tegund
tónlistar og má þar nefna Jóhann G.
Jóhannsson, sem gerði tónlistina fyrir
Blóðbönd, og Mugi-
son, sem samdi
hina mögnuðu
tónlist fyrir A
Little Trip to
Heaven og er
nú á fullu við að
klára tónlistina við
Mýrina.
Miklar getgátur og sögusagnir eru uppi um það hverjir standi að baki
Orðinu á götunni, ordid.blog.is, vinsælli
bloggsíðu um stjórnmál og fjölmiðla.
Nafn Andrésar Jónssonar, almanna-
tengils og frambjóðanda í prófkjöri
Samfylkingarinnar, er gjarnan nefnt í
sömu andrá og bloggsíðan en vitað er
að fleiri koma að skrifunum. Einn þeirra
sem talið er að skrifi
reglulega inn á Orðið
er Jakob Hrafnsson,
forystumaður
meðal ungra
framsóknarmanna
og bróðir Björns
Inga Hrafnssonar
borgarfulltrúa. Ef
rétt reynist
á Andrés
þar góðan
bandamann
enda er
Jakob vel
tengdur
inn í
stjórn-
málalíf-
ið. - fgg
„Maður þarf virkilega að vilja
hanna föt til þess að geta komist af
í þessum fallvalta bransa sem
tískuheimurinn er,“ segir Eygló
Margrét Lárusdóttir fatahönnuð-
ur. Hún er nýbyrjuð að selja hönn-
un sína undir nafninu EYGLÓ í
búðinni Kronkron á horni Lauga-
vegs og Vitastígs.
Eygló er útskrifuð úr fatahönn-
unardeild Listaháskóla Íslands og
eftir námið þar hélt hún beint út
til Los Angeles þar sem hún var í
læri hjá hinum virta hönnuði
Jeremy Scott. „Það var alveg frá-
bært að komast út strax eftir
útskrift og þá slapp ég til allrar
hamingju við valkvíðann sem fylg-
ir því að vera búinn með námið
sitt og vita ekkert hvað má á að
taka sér fyrir hendur. Þetta var
mjög lærdómsríkur tími og ég
kynntist fullt af skemmtilegu
fólki.“ Eygló vann hjá Scott í þrjá
mánuði og gerðist hún meðal ann-
ars svo fræg að sauma búning
fyrir Madonnu, „Ég veit ekki hvort
hún sé búin að klæðast honum ein-
hverntímann en mér var sagt að
hún væri mjög ánægð með hann
og ég sá mynd af henni í búningn-
um. Það var mjög skemmtilegt
upplifun,“ segir Eygló og hlær.
Eygló
hannar
fötin sín í
litlu vinnu-
herbergi á
heimili sínu
og segir að
það sé nú
stundum
mjög þröngt
en sættir
sig þó við
vinnuað-
stöðuna enn
sem komið
er. Hún við-
urkennir að
fatahönnun
sé mikið
hark og að
þetta sé
mjög erfitt.
„Þetta er
eiginlega bara spurning um að duga
eða drepast þegar kemur að fata-
hönnun og ég held að ég þrái þetta
nógu mikið til þess að geta harkað
þetta í þó nokkurn tíma í viðbót. Það
þýðir ekkert að gera þetta fyrir
peninga enda koma þeir síðar.“
Eygló reynir að eyða sem mestum
tíma í saumaskap og hönnun en
vinnur með í ljósmyndaraverslun-
inni Hans Petersen.
Eygló kaupir öll efnin í gegn-
um netið eða hér heima og segist
vera byrjuð að leggja mikinn
metnað í gæðaefni. Margir af
kjólunum og flíkunum sem eru til
sölu í Kronkron eru úr 100% silki.
Nýja línan hennar Eyglóar ber
keim af útskriftarverkefni henn-
ar en hún segist þó vera búin að
róast mikið og hún sé ekki eins
flippuð og hún var einu sinni.
„Línan mín einkennist af kven-
leika og einfaldleika. Flíkurnar
eru fyrir fólk sem vill klæðast
bæði hversdags og fínt. Ég held
að það sé parturinn af því að eld-
ast sem hönnuður. Þá fer maður
að meta vandaðan saumaskap og
gæðaefni betur, en það einkennir
mína hönnun,“ segir Eygló.
alfrun@frettabladid.is
EYGLÓ MARGRÉT LÁRUSDÓTTIR: SELUR HÖNNUN SÍNA Í KRONKRON
Saumaði búning fyrir
poppdívuna Madonnu
EYGLÓ MARGRÉT LÁRUSDÓTTIR Ungur og upprennandi fatahönnuður sem var í læri hjá
snillingnum Jeremy Scott og selur nú fatnað sinn í Kronkron undir merkinu EYGLÓ.
FRÉTTBLAÐIÐ/HARI
GULLLITAÐUR KJÓLL
Hér er glæsilegur kjóll úr
smiðju Eyglóar.
„Það eru nýdottnar inn spár fyrir
þessa mestu ferðahelgi sumars-
ins,“ segir Sigurður Þ. Ragnars-
son, gjarnan kallaður Siggi
stormur, veðurfræðingur frétta-
stofu NFS. Hann segir að það séu
komnar reiknaðar tölvuspár sem
spá mildu veðri um verslunar-
mannahelgina með hita á milli
12 til 20 stiga. „Það verður þó ekki
sólríkt en skýjað með köflum,“
segir Sigurður og bætir því við að
það sé flökt á úrkomuspám en
blástur úr suðri sem þýðir að það
verði heitt og gott veður.
Sigurður segir að oft hafi verið
verri spá en núna fyrir verslunar-
mannahelgina og geta því tjald-
ferðalangar og útihátíðarsinnar
haldið út á land án þess að óttast
kaldar og blautar nætur og elting-
arleiki á eftir tjaldinu í miklu roki.
„Þessa spá ber samt að varast og
gæti hún breyst en þó leggur hún
línurnar fyrir næstu helgi,“ segir
Sigurður að lokum.
Milt veður um versl-
unarmannahelgina
SIGGI STORMUR Spáir mildu og almennt
góðu veðri um verslunarmannhelgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sjónvarpskönnunin hafin á Vísi.is
GÍSLI MARTEINN BALDURSSON
Er einn þeirra sem er tilnefndur sem eftir-
minnilegasti sjónvarpsmaður landsins.
BUBBI SÝNIR FINGURINN Bubbi Morthens
lét sitt ekki eftir liggja í áramótaþætti
sjónvarpsins árið 1980 og sýndi þjóðinni
fingurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/RÚV
HRÓSIÐ
... fær Dorrit Moussaieff sem
verður íslenskur ríkisborgari í
dag.
��������
��� ���� ��� ��� ���
��� ��� ��� ��� ������
����� �� �� �
�� �� �� �� ��
�� �� �� �� �
���������
�
�
��
���������
�
�