Fréttablaðið - 31.07.2006, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
����������
�������������������
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
7
5
4
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00
Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði.
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7942
NISSAN PATHFINDER
Nissan Pathfinder SE sjálfskiptur
Verð aðeins 4.590.000 kr.
Verð áður 5.090.000 kr.
Það hefur líklega aldrei verið hagstæðara að kaupa sér alvöru jeppa.
Nissan Pathfinder blandar skemmtilega saman krafti fjallajeppa eins
og þeir gerast bestir og lipurð flottustu götubíla. Útkoman hefur slegið
eftirminnilega í gegn enda er sama hvaða samanburð þú gerir,
Pathfinder hefur vinninginn!
Líttu inn og berðu hetjuna augum!
VERÐLÆKKUN!
500.000KR.
BORGAÐU MINNA FYRIR MEIRI LÚXUS
SUMARTILBOÐ NISSAN
Hann: Búenas dias, senjór. Afgreiðslumaðurinn: Hola.
Hann (við hana): Hvað eru aftur
handklæði á spænsku? Hún: Það
veit ég ekki. Biddu bara um
„towels“. Hann: Tiene távelas por
el chambre numero díesesíete?
Afgreiðslumaðurinn: How many
towels do you need? Hann: Tres
eða kannski cuatros. Afgreiðslu-
maðurinn: Four towels, apart-
ment seventeen, is it? Hann: Sí,
muchas gracias. Afgreiðslumað-
urinn: Don’t mention it. Hann:
You speak very good English.
You must have excellent schools
here in Mallorca. Afgreiðslumað-
urinn: I wouldn’t know, sir, I’m
from Birmingham, I’ve only been
here since May.
BAÐSTRÖNDIN hérna í Cala
d’Or á Majorku er hrífandi dæmi
um friðsamlega sambúð þjóða.
Fólksfjöldinn á ströndinni er
svipaður og á fjölsóttri útihátíð
um verslunarmannahelgi á
Íslandi. Yfir alla fólksmergðina
gnæfir einn lífvörður sem situr í
hásæti og fylgist með að enginn
drukkni. Sumum vagga bárurnar
í svefn þar sem þeir liggja
á vindsængum og þá ber lífvörð-
urinn ábyrgð á því að þeir vakni
aftur í sama landi og þeir lögðu
frá, en ekki einhvers staðar á
ströndum Blálands, berrassaðir,
peninga- og passalausir. Síðan ég
kom hingað hef ég aðeins séð
einn lögregluþjón, sem leið eftir
götunni hálfsofandi á gamalli
vespu.
FÓLKIÐ kemur hingað í leit að
sólskini og friði og hver og einn
gerir ekki tilkall til meira land-
rýmis en hægt er að þekja með
einu baðhandklæði. Verði manni
á að sparka sandi yfir nýsmurð-
an sóldýrkanda nægir að snúa
lófunum vandræðalega að við-
komandi og segja: Verzeihung,
sorry, scusi, pardon! Og við-
komandi brosir af ótakmörkuðu
umburðarlyndi og segir: Is hókey,
no problema!
Í FRIÐSÆLDINNI hér er erfitt
að skilja að handan Miðjarðar-
hafsins, snertispöl héðan, eru
samskipti fólks með öðrum hætti.
Ég var að lesa í ensku blaði grein
um ungan ísraelskan mann sem
fer á fætur og drífur sig í vinn-
una, sem felst í því að fljúga
orustuþotu inn fyrir landamæri
Líbanons og varpa sprengjum.
Svo flýgur hann heim. Og ef hann
hefur hraðan á nær hann að kom-
ast á ströndina í sólbað með konu
sinni og dætrum fyrir kvöldmat.
Manneskjurnar eru skrýtnar.
Friðsamleg
sambúð