Tíminn - 05.01.1978, Síða 10

Tíminn - 05.01.1978, Síða 10
10 Fimmtudagur 5. janúar 1978 Jón Þórðarson: Samtöl við Jónas SVIPMESTA MANN SINNAR Jónsson, aö hann tæki þaö aö sér, aö rita minningargreinina, þvi aö ég var ekki nema aöeins mál- kunnugur Jóni Þorlákssyni. Stuttu áður vorum við i Actaprent smiöju búnir aö prénta bók eftir Jón Þorláksson. Jónas tók vel beiöni minni og minntist Jóns Þorlákssonar vel i Timanum. Þaö var greinin, sem Olafur Thors sagöi aö væru beztu eftirmælin eftir Jón Þorláksson.) Þú hefur bent á þaö áöur, segir Indriöi, aö i dag gangi illa aö koma fólki saman á fund. En ef þiö settust aö I túnfæti út á landi, þá varö úr þvi tólf eöa fjórtán tima fundur. Almennur áhugi á stjórnmálum hefur veriö gifur- legur á fyrstu tugum aldarinnar. Ahuginn var bara drepinn, sagöi Jónas nokl uö snöggt. Hann þurfti aldrei aö deyja. En hann var bara drepinn af þessum at vinnustjórnmálamönnum. Þeim dettur svo litið i hug. v — Nú fóruö þiö I feröalag um landiö, Jón Þorláksson og þú, sagöi ég. Já, og þar er toppúrinn, þegar viö fengum tólf hundruö manns á tólf tima fund á Sveins- stöðum um miöjan sláttinn. Fundurinn var haldinn utan viö túniö. Þetta var alveg eins og þingfundur, reglan var svo mikil. Fundarmenn sátu bara á þúf- unum. Þeir fóru ekki. Af okkar hálfu töluöu Guömundur I Asi, Tryggvi og ég. Og hinum megin voru Þórarinn á Hjaltabakka, sem var mjög góöur ræöumaöur, Magnús Guömundsson og Jón Þorláksson. Ég held nú aö þetta hafi haft töluverö áhrif. Viö unnum bæði kjördæmin á eftir. Eg álit, aö Jón Þorláksson hafi veriö dæmigeröur ihaldsmaöur. Ja, hugsaöu þér bara þetta. Krónan haföi lækkaö og hann hækkaöi hana aftur. Hann snerist aldrei, sagöi ég. Nei, hann snersit ekki, sagöi Jónas. Þú spyrö um Jörund (segir Jónas). Hann var efstur á lista Dagsbrúnar viö þingkosning- amar 1916. Þá munaöi tuttugu og fimm atkvæöum aö Dagsbrún fengi tvo þingmenn i Reykjavik. Svo vildihann fara austur og búa. Þá varö nokkurt hlé, en hann var kominn á þing 1923 fyrir Fram- sóknarflokkinn. Var þab I hléinu, sem þú sagöir honum aö snúast, en snúast hægt? Jónas lyftiglasi sinu og lét sem hann heyröi ekki spurninguna. Indriöi heldur áfram og segir: — Til er lýsing I Timanum á fimmtugsafmæli Jónasar áriö 1935. Þann dag kom blaöiö út i þrefaldri stærö. Fjörutíu og átta menn skrifuöu þar ýmist um Jónas sjálfan eöa einstök verk, sem hann hafði átt upptök aö eöa komið i framkvæmd. Þetta þre- falda blaö af Tímanum veitti nokkurt yfirlit yfir störf Jónasar, sem blaöiö kallaöi mikilvirkasta stjórnmálamann samtiðarinnar. Blaöiö staöhæföi aö 1. maí hafi staöiö fjölmennasta afmælis- veizla, sem nokkrum manni hafi veriö haldin hér á landi. Þaö voru ekki eingöngu Reykvikingar_sem sátu þessa veizlu. Allmaígir menn komu til hennar úr Ames- og Rangárvallasýslum og af Vesturlandi. Hermann Jónasson, þáverandi forsætisráöherra, stýröi samkvæminu og flutti abal- ræöuna fyrir minni heiöursgests- ins. Sigurður Nordal mælti fyrir minni Guörúnarog Ukti henni viö spænska senorltu. Indriöi Þor- kelsson á Fjalli flutti kvæöi, sem hann haföi ort til Jónasar. Heilla- óskaskeytin uröu alls um þrjú hundruö aö tölu. t þakkarræöu sinni rakti Jónas hver væru meginrök þess, aö frjálslyndir menn færu meö völd i landinu og hver væru höfuöskilyröi þess, aö svo yrði I framtiðinni... En þessa kvöldstund, hinn 1. mai 1935, sátu menn i fullum griðum og hylltu foringja, sem haföi átt manna mestan þátt i þvi að breyta stein- um kreppunnar i brauð. (Meðal þeirra 300 skeyta, sem Indriði segir aö Jónasi hafi borizt á hálfrar aldar afmælinu, sem dæmi um afköst og átök Jónasar, bera eftirfarandi stökur vitni, er Böövar Bjarkan sendi, af tilefni hálfar aldar afmælisins, árib 1935: Heill sé þér, sem hefir I kvöld hálfa öld aö baki. Og lyft á hálfri, hálfri öld heillar aldar taki. Jónas eldri, á öld sem leið, orti ljóöin fögur. En Jónas yngri um áraskeiö Islendingasögur.) Indriöi heldur þannig áfram frásögn sinni: Haldiö var upp á sextugsafmæli Jónasar aö Laugarvatni. Þaö var fjölmennthóf, þóttþaö bæri nokk- urn svip þeirra upskipta, sem höföu orðiö I pólitlsku Ufi Jónasar á flokksfundinum 1944. Bjarni Bjarnason, skólastjóri, stjórnaöi samsætinu. Egill Thorarensen. kaupfélagsstjóri á Selfossi, flutti aöalræöuna, en Sigurgeir Sigurösson, biskup, talaöi fyrir minni Guörúnar. Finnur Krist- jánsson, kaupfélagsstjóri á Sval- baröseyri, flutti ávarp frá Þingeyingum. Böövar Magnús- son, bóndi á Laugarvatni, ræddi um störf Jónasar fyrir bænda- stéttina og atorku hans I skdla- málum Sunnlendinga. Ríkaröur Jónsson talaöi fyrir hönd mynd- listarmannna. Aö lokum þakkaði Jónas fyrir sig og konu sína meö ræöu. (Um 500 skeyti bárust aö þessu sinni). Þótt forystuliö Framsóknar- manna á þessum tima sæti ekki afmælisveizluna, birtist nafnlaus grein um Jónas i Tlmanum, aö likindum rituö af Þórarni Þórarinssyni, ritstjóra. Tilvist þessarar greinar, sem er skrifuö I vinsemdar- og þakklætisskyni, bendir til þess aö ekki hafi komiö til fullra friöslita meö flokks- forustunni og Jónasi fyrren slöar, eöa við framboö til Alþingis áriö 1946, þegar Eysteinn Jónsson og Hermann Jónasson vildu fá þvi framgengt viö Þingeyinga, aö þeir féllu frá stuöningi viö Jdnas og kysu Björn Sigtryggsson á Brún. Auöséö er á skrifum Jónasar I Öfeigi, að þessu hefur hann reiözt ákaflega. Upp úr þvi fara þau aö haröna i garö tveggja helztu forustumanna flokksins og þeirra, sem I kringum þá stóöu... Óhætt er aö segja, aö aöförin aö Jónasi 1 heimahéraöi hans, undir yfirskyni flokksstjórnarsam- þykktar I Reykjvlk veröi aö teljast til meiriháttar skamm- sýni. Enda var henni svaraö á verðugan hátt, þótt nokkrir afar- kostir fylgdu. Vegtyllurnar sjálfar hafa aldrei stritt á þig, sagði ég. Almáttugur. Nei. Blindi maöurinn I Strandasýslu segir þá sögu eftir verkamanni, aö hann hafi, þegar ég var i stjórn, átt erindi viö mig, en verið bundinn á skrifstofutima. Hringir I mig og spyr hvort hann geti ekki náö i mig. Þá segi ég strax: ÞU getur komið klukkan sjö i fyrramálið. Svo kemur hann. Konan tekur á móti honum. Eg er ekki kominn á fætur. Svo setzt hann þar hjá rúminu og segir sitt erindi og viö drekkum kaffi. Svo fer hann og hefur fengiö lausn sinna mála. — Eg biö þig aö hafa þetta I huga: Mér er ljóst, aö annaö hvort verö- ur maöur aö láta hégómann vera og leggjast ekki eftir veizlustjórn eða fá engu áorkað af þvl sem máli skiptir. (Hérhleyp ég yfir langan kafla hjá Indriöa, þar sem hann ræöir um læknamálið og aöförina aö Jónasi. Svargrein Jónasar mun hafa birztl Tlmanum 26. febrúar 1930, undir nafninu „Stóra bomb- an”. Ég hef I afmælisriti Prentarafélagsins i ár ,,af tilefni 80ára afmælis félagsins”, aöeins minnzt á þetta mál, en vlsaö til Timans frá þeim tima. Hins veg- argat ég þess,aö aldreifyrr heföi selzt jafnmikiö I lausasölu af vikublaðisem þá. Þab var byrjaö aö prenta blaöið ab kvöldi til og prentaö alla nóttina. Strax meö morgninum varö eftirspurn blaösins svo mikil, aö halda varö áfram aö prenta Tlmann allan næsta dag. Lausasala á þessu tölublaöi reyndist um tvö þúsund eintök. Þá var ibúatala Reykja- vlkur um 28.300 manns. Af þessu erljóst, aö almenningurvarákaf- ur I aö fá vitneskju um, hvernig Jónas mundi meöhöndla þessa mótstöðumenn sina. — Ólafur Thors sagöi mér sföar, aö hann heföi haft mann 1 námunda viö prentsmiönina alla nóttina, til aö ná I eintak af blaðinu strax 1 morguns-áriö (ekki morgun-sár- iö, eins og iöulega er ritaö og sagt, jafnvell útvarpinu). ólafur sagö- ist hafa verið afarspenntur aö heyra hvernig Jónas svaraöi árásinni.) Indriöi heldur áfram og segir frá þvi þeéar Sjálfstæöisflokkur- inn bar fram vantraust á hina hreinu Framsóknarstjórn, meö nltján þingmenn aö baki, hafi Haraldur Guömundsson tilkynnt, aö hann og flokksmenn hans myndu verja stjórnina falli, en hlutleysiö væri dveg ótímabund- iö. Enginn málefnasamningur haföi verið geröur milli flokk- anna. Þannig stóöu þessi mál til vors 1939, þegar þrir flokkar mynduöu samsteypust jórn, Framsóknarflokkurinn, Sjálf- stæðisflokkurinn og Alþýöuflokk- ur. Samsteypa þessara þriggja flokka var nefnd þjóöstjórn. Indriöi segir ennfremur: I rauninni lauk linunni frá 1923 viö uppfyllingu málefnasamningsins 1936, þegar horföi til samvinnu- slita milli stjórnarflokkanna vegna kröfu um þjóðnýtingu. Formlega slitnaöi ekki upp úr þessu samstarfi fyrr en meö úr- sögn Haralds vegna átaka á þingi út af setningu geröardómslaga. Manni veröúr ósjálfrátt spurn: Hvar var Jónas frá Hriflu þessa örlagariku tima. Jónas sagöi sjálfur svo frá: Nú var sá timi kominn, sem ég haföi búizt viö að ekki væri langt undan. Eftir tutt- ugu ára samstarf voru umbóta- flokkarnir frá 1916 orönir óstarf- hæfir til samvinnu a.m.k. um stundarsakir. Kommúnisminn sótti fast á, en fyrir stafni var hiö fyrirheitna land: Lýöveldiö. Þá gekk ég á fund Ólafs Thors, sem lengi haföi veriö eindreginn og harösnúinn andstæöingur og lagöi til, aö tekiö yröi upp samstarf meö Alþýöu-, Framsóknar- og Morgunblaösflokkunum. Upp úr vopnahvild okkar Ólafs Thors spratt Þjóöstjórnin, sem starfaði I þrjú ár, 1939-42. Þessari stjóm var fengiö mikiö vegamesti. Aö sameina þjóöina um skilnaðinn viö Dani. (Jónas sagöi mér siöar, aö þaö hefbi tekiö sig þrjár vikur aö sannfæra Ólaf um nauösyn þjóöstjórnar.) Indriöi heldur áfram og segir: Komnir voru þjóöstjórnartim- ar. Ráöherrum hafði veriö fjölgaö úr þremur upp I fimm. Hermann var forsætisráðherra sem fyrr. Stefán Jóh. Stefánsson satístjórn fyrir Alþýöuflokkinn, en ráöherr- ar Sjálfstæöisflokksins voru Ólaf- ur Thors og Jakob Möller. Ey- steinn Jónsson gegndi embætti viðskiptamálaráðherra. Tvenn- ar kosningar uröu 1942, sem leiddu siöan til utanþingsstjórnar fram yfir lýðveldistökuna...... Timinn og Dagur urðu eins og hvellandi bjöllur I stjórnmálum. Samt var kjósendahópurinn aö nokkru leyti hinn sami. En eitt haföi breytzt. „Hugsjónalausir valdastreitumenn höföu meö lævlslegum undirróöri náö stjórn flokksins og blööum hans á vald sitt.. Og þessari stefnubreyt- ingu höföu fylgt svik viö unna eiöa.” Þannig þrumaöi gamla kempan yfir fyrri félögum slnum fyrstu árin eftir aö sótt haföi verib aö honum fyrir kosningarnar 1946. 1 ummælum (I þessum greinarflokki) vikur Jónas aö til- hneigingu til ritskoöunar (á greinum Jónasar.) Að hinu leyt- inu geröist þaö, þegar sýnt þtítti, aö Sveinn Björnsson yröi fyrsti forseti landsins, aö Jónas tók sig til og skrifaöi grein i Timann um Svein. Oörum forustumönnum flokksins varö svo mikiö um þetta, aö þeir héldu til Eddu- prentsmiöju, þar sem Timinn var prentaður, og létu brenna upplag- iö. (Hér er um algera missögn aö ræða. Um þetta hefur Indriöi fengiö rangar upplýsingar. For- ystumenn flokksins létu aldrei brenna upplagi af Tímanum. Hins er rétt aö geta, aö eins konar „sensor” var látinn yfirfara greinar Jónasar. Hann átti svo vitanlega aö láta blaöstjórnina vita, ef eitthvaö þaö væri i grein- unum, sem hann áliti aö gæti skaöaö flokkinn. Ég býst viö aö honum hafi gengið heldur bág- lega aö komast fram úr handriti Jónasar. Aö minnsta kosti kom greinin óbreytt til min til setning- ar. Helgi Sæmundsson haföi lesið ' Rikisstjórn Framsóknarmanna, sem mynduð var 1927. Lengst til vinstri er Magnús Kristjánsson, f miöiö Tryggvi Þórhallsson og þá Jónas Jónsson. Siðari hluti SAMTÍÐ próförk af greininni. Ég var búinn aö brjóta um innforminn, og prentarinn, Kristján Karl Kristjánsson var byrjaöur aö penta blaöiö, innri form. Samtim- is mun hafa staöið yfir, uppi á lofti, sameiginlegur fundur miö- stjórnar flokksins og blaöstjóm- ar. Prentarinn sagöi mér, aö sex eintök af innforminum heföu komiztúttil manna, sem komu til hans, þar sem hann var aö prenta blaðiö. Vel má vera aö einhver þeirra hafi boriö innforminn upp á fundinn.A þessum fundi hafði veriö samþykkt aö láta Jónas hætta að skrifa i blaðið. Þó greiddu ekki allir atkvæöi meö þvi. Jónasskrifaði alltaf J.J. und- ir slnar greinar, eöa jafnvel fullt nafn. Þaö var ekki fyrr búiö aö samþykkja þetta á fundinum, en einhver, er þar var staddur, mun hafa simaö til Jónasar og sagt honum hvaö samþykkt heföi ver- iö. Jónas brá hart viö, slmæöi til min og baö mig að taka greinina úr blaöinu og brenna þaö sem bú- iö væri aö prenta. Þetta geröi ég þegar i staö. Niöurlagið var óum- brotið . Ég þrykkti þrjú eintök af niöurlaginu, skar siöan af þvi, sem búiö var aö prenta, þrjú ein- tök. Hitt fór þegar i ofninn. Þetta er sú eina brenna, sem fram hef- ur farið af Timanum. Af þessum þrem eintökum, sem til voru af greininni, fékk Jónas eitt, prentarinn eitt. Hiö þriöja lagði égtil geymslu i Landsbókasafni, i samráöi viö Jónas. Skráð var á umslagið, aö það mætti ekki opna fyrr en aö tuttugu og fimm árum liðnum. Nú munu þó vera liðin um 30 ár. Þaö einkennilegasta er þó, aö umslagiö, meö innihaldi greinarinnar, finnst þó ekki i Landsbókasafninu. Engu aö siöur man ég nokkurn veginn greinina. Aö visu voru i hfenni fremur hóg- værar tituprjónastungur til Sveins, I sambandi viö fisksöluna til Spánar. Aö ööru leyti snerist greinin um klessumálarana og kommúnista.) , \ Indriöi hefur enn oröiö: Jónas varö sjötugur 1. mal 1955. Þá var þeim hjónum haldiö slö- asta opinbera hófiö aö Hótel Borg. Þangaö komu gamlirvinir og nemendur, og nú haföi hópur- inn elzt töluvert. Hann liföi i minningumumfyrri tlma. Slöasti pólitiski blossinn var hjaðnaöur meö samningum rikisstjórnar borgaraflokkanna og atkvæöum þingmanna borgaranna viö Bandarikin um varnarliöiö á Is- landi, eftir aö gengiö haföi veriö i Atlantshafsbandalagiö 1949. — Is- landi var tryggöur sess I sam- félagi frjálsra þjóöa, þótt meö öörum hætti væri en Jónas vildi. (I þessu hófi var hinn þjóökunni knattspyrnumaöur, Albert Guðmundsson heildsali, bæöi forystumaöur og veizlustjóri, þá fyrir skömmu kominn til heima- byggðarinnar eftir frægðarferil i Englandi, Frakklandi og Itallu. Hann stjórnaði veizlunni með þeirri prúðmennsku og snilli, sem honum var i blóð borin.) Indriði segir: A sjötúgfeafmælinu var skrifað um hann I blööin. Itarlegustu afmælisgreinina rit- aöi Sverrir Kristjánsson sagn- fræðingur... Þeirhöföu ekki veriö neinir vinir, Jónas og hann. Þeg- ar Sverrir kom frá námi i Kaup- mannahöfn skrifaöi hann töluvert um Framsókn. Hann gat veriö hvassyrtur og meinyrtur, en hon- um varsvaraö fullum hálsi I Tim- anum... A rin liöu og þegar kom aö sjötugsafmæli Jónasar finnst Sverri ástæöa til aö gera nokkra úttekt á gömlum andstæöingi. Fór svo, aö þar stýrði sagnfræö- ingurinn pennanum. Sverrir lýsti Jónasi þannig: Hann var gæddur óbilandi starfsorku og pólitiskri vinnugleöi, haföi geysilega mannþekkingu til aö bera, og mannfyrirlitning hans óx I réttu hlutfalli viö aukin kynni af sam- herjumogandstæöingum... Undir lok greinar sinnar gaf Sverrir afmælisbarninu vottorð um borg- aralegar dyggöfr og hélt þvi fram, aö enginn pólitiskur aöili

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.