Tíminn - 05.01.1978, Síða 15

Tíminn - 05.01.1978, Síða 15
Fimmtudagur 5. janúar 1978 15 lesendur segja Er tillitssemin á undanhaldi? Siðustu átta til tiu árin hefur sá, er þetta ritar, haft bæði gagn og gaman af þvi að leggja eyru við hinum mörgu ágætu erind- um, sem oft eru flutt I hljóð- varpið, og þá einkum á kvöldin, þegar aðrir horfa á sjönvarp, sem ég get ekki notið. En — þar sem ég e'r kominn langleiðina eftir áttunda áratugnum er svefninn orðinn mér sá ofjarl, þegar liður á tiunda tlmann á kvöldin, að ég verð oftast að láta i minni pokann, hve leitt, sem mér þykir það. Svo miskunn- samur er hann þö að losa oft um fangbrögðin eftir litla stund.Læt ég þá venjulega verða mitt fyrsta verk að seilast eftir við- tækinu, sem er rétt við bólið mitt, og vita, hvort erindið, sem ég hafði mestan áhuga á að heyra, væri byrjað, eða máske búið. Svo fór lika oft á siðast liðnum vetri, að ég tapaði af þvi sem ég ætlaði mér að heyra, en það voru hinir stórfróðlegu minningaþættir séra Matthias- ar og frásögn Þorvalds Thor- oddsens um ferðir sinar um ís- land. Lestur þeirra hófst ekki fyrr en á ellefta timanum, eða á eftir siðari fréttum. Oft óskaði ég eftir þvi, að þessir þættir hefðu verið fluttir á undansiðari fréttum, eða á þeim tima, sem oft voru lesnar skáldsögur, sem ætla mátti að öldruðu fólki þætti minni missir að en unga fólkið vakti, hvort sem var, langleið- ina þar til útvarpi lauk. Um þetta er auðvelt að deila, eins og flest annað, þvi „sinum augum litur hver á silfrið”, og svo mun lengst af verða. Nú bar svo við, fimmtudags- kvöldið, fyrsta des. s.l., að svefninn flutti mig, fyrr en varði, inn i draumalöndin, eftir viðburðarikan dag. Ég vissi þá heldur ekki hvað eftir var á dag- skrá útvarpsins. Nokkru siðar vaknaði ég og varð þá fyrst fyrir að vita, hvort ekki væri eitthvað eftir af dagskránni. Jú! Það var hvorki meira ne minna en verið að ræða um málefni aldraðs fólks. Ég glaðvaknaði og lagði eyru við eftir megni, ef verða mætti til þess að festa I minni eitthvað af þvi, er þarna bar á góma. Það var sannarlega þess vert, þvi valdir menn voru þarna að verki. Ég dauðsá eftir þvi að hafa tapað sumu af þessu spjalli, sem lauk ekki fyrr en nálægt miðnætti. Og ekki get ég neitað þvi að mér sárgramdist að þessi timi skyldi vera valinn fyrir þetta efni, sem allt aldrað fólk hefði haft svo mikla ánægju af að geta notið. Og eftirfarandi spurning ásótti mig hvað eftir annað: Skyldu það nú vera margir jafnaldrar minir, sem heyra þetta? Og einhver rödd tók undir, dimmum tómi og al- vöruþrungnum: ,,0-o, nei — nei. Ég efast um að það sé einn á móti hverjum niu, sem eru steinsofnaðir, þvi svefninn er öldruðum sætari en flest annað”, Þá kvað við önnur hjá- róma rödd, þvi háðið og glettnin leyndi sér ekki: „Þau virðast ekki syfjuð þessi.Og það er ekki einu sinni að þeim verði það á að geispa”. Um samtal þeirra ágætu manna, sem þarna birtu skoð- anir sinar, væri margt gott hægt að segja, þó ekki verði gert bér. Eitt af þvi, sem allir þátttak- endur voru sammála um, varð mér svo kært, að ég stenzt ekki mátið að minnast á það hér. Það var skoðun þeirra að taka hönd- um saman og leggja þvi lið — eftir mætti — að aldurhnigið fólk fengi aðstöðu til þess að dvelja siðustu ár ævi sinnar sem næst heimabyggð sinni, svo lif- rænt samband þess við ættingja og vini og æskustöðvar gæti fremur haldizt, þar til yfir lyki. Slikyfirlýsing, af vörum þeirra, sem af heilum hug mæla, hefur svipuð áhrif á hugarlendur aldraðs fólks og sólskinið á blómin, eftir svala nótt, þvi tvisvar verður gamall maður barn. Tillitssemin er æðsti vörð- ur i allri sambúð. Hún er ljós- berinn i riki sannrar menning- ar. Frá henni stafar ávallt yl og birtu. Það tignarheiti, er einnig að finna i riki jurtanna, þvi ljós- berinn heillar .alla með fegurö’ sinni og hugljúfum ilmi. Það var ekki fjárri Tagi að llka tillitsseminni við sólskinið, enda fann ég ekki betri samlikingu. Bæði hafa þau sömu áhrif. Hér mæli ég lika af eigin reynslu. Þegar ég legg leið mina um fjöl- farnar götur i þéttbýli, henda mig oft smáóhöpp, þvi sjón- depran er slysinn ferðafélagi. Fyrr en varir hafa þá borið að vegfarandur, sem fúslega rétta mér hjálparhönd. Á hina hlið hefur það oft vakið undrun mina og gremju hvað fullorðið fólk, sem vissulega er réttmætt að gera meiri kröfur til — veldur oft óþægindum, með óþarfa hávaða — um miðjar nætur — með hrópum og hrað- knúnum ökutækjum og svo með tóbaksreyknum, en fjölmiðlar eiga mikið hrós skilið fyrir það, hve oft þeir vara við skaðsemi hans og áreiðanlega með vax- andiávinningi. Það er vissulega gleðiefni. Af þessu tagi er það ekki ætlun min að minnast á fleira, þótt ös sé fyrir dyrum. Aftur á móti var það áform mitt — með þessum linum — að biðja þig bónar, lesandi minn. Hún er sú að hugleiða þessi þankabrot sem urðu svo áleitin þegar ég lagði eyru við orðaskiptunum fyrrnefndu i dagskrárlok út- varpsins 1. des. 1977. Hún krefst að visu talsverðar umhugsunar, og helzt i næði, þvi að svo mörgu er að hyggja. Það er þó bót i máli, að sjálfur er ég sannfærð- ur um, að þær stundir færa meira til betri vegar, en flest annað. Húsavik 2. des. 1977 Theodór Gunnlaugsson — frá — Bjarmalandi. Skeyti svarað Góðvinur minn sendi mér úr- klippu úr Dagblaðinu frá 24/11 s.l. Einhver Páll Danielsson hefur fundið köllun sina og sent mér skeyti út af smágrein frá mér sem Timinn birti. Undanfari greinarkornsins var þessi: Þeir sem hlustuðu á lestur úr forustugreinum dagblaöanna (þeirra á meðal ég) máttu heyra dag eftir dag þennan boðskap ritstjóra Dagblaðsins: Beita verður öllum tiltækum ráðum til að útrýma bændum. Ég snillingurinn, hefi tilbúna snjalla lausn á þessu máli og þar meö lausn á fjárhagsvanda þjóðar.innar. — A næstu 5 árum verði 2000 bændum Utrýmt. Hin- ir2000koma á eftir án þess sér- stakar ráöstafanir aörar þurfi til. A þeirri lausn einni saman græðir þjóðin þúsundir mill- jarða. Þar að auki sparast út- gjöld við vegi út um sveitir landsinsrskóla út um land, auk margs annars sem af þessari útrýmingu leiðir, o.s.frv., o.s.frv. Lengra verður þetta ekki rak- ið þó af nógu jafn hugvitsam- legu sé að taka. Verður það aö nægja Páli Danielssyni og öðrum sem lesið hafa grein mlna með sama hugarfari og hann til skýringar og umhugs- unar. Úr þvi þessi Páll Danielsson tók grein mina til umfjöllunar og „tók þaö upp alveg af eigin höndum” aö svara fyrir Jónas Kristjánsson get ég ekki annað en dáöst að prúðmennsku hans og það munu fleiri gera og þakkað honum fyrir að hafa stillt sig um aö nota stóru orðin. — Það er ekki á hverjum degi sem slik prúðmenni láta vita um tilveru sina. Ég daist lika að i hversu dásamlegu samræmi svarið er við önnur skrif Dag- blaðsins þó einkum um land- búnaöarmál og bændur. Það sýnir ennfremur hve háttvis og prúö sú hirö er sem Jónas Kristjánsson safnar um sig. Með slikrihirð er hægt að vinna hylli og þjóð sinni ómetanlegt gagn!! Bæ, 11/12 1977 Guðmundur P. Valgeirsson Bridgefélag Borgamess sigursælt í Færeyjum Aðalfundur Bridgefélags Borgarness var haldinn 13. október sl. A fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf og hefur áður verið greint frá Urslitum helztu móta inn á við sem út á við á liðnu starfsári. Da'gana 1. —7. júli heimsótti 26 manna hópur úr félaginu Fuglafjörð I Færeyjum, en samskipti þessara bæja i bridge og knattspyrnu hófust fyrirtveimur árum. IFuglafirði sigruðu Borgnesingar bæjarkeppnina en auk þess var spiluð „parkapping” og hraðsveitakeppni en I henni sigraði sveit heiðursfélagans okkar, ólafar Sigvaldadóttur, og voru með henni i sveit þrir synir hennar, Guðmundur, Hólmsteinn og Unn- steinn Arasynir. Allar móttökur i Færeyjum voru> frábærar og ferðin i heild ógleymanleg þátttakendum. A aðalfundinum var vetrarstarfið skipulagt og kjörin stjórn og var Guðjón Pálsson endurkosinn formaður félagsins. Fyrsta keppni vetrarins var einmenningskeppni félagsins og voru spilaðar 3 umferðir. Úrsht urðu þessi: -2. Hólmsteinn Arason 169 stig Magnús Valsson 169 stig 3. GuðjónPálsson 161 stig 4. JónGuðmundsson 159 stig 5. Agúst Guðmundsson 155 stig 6. FriðgeirFriðjónsson 153 stig Jafnhliða var spiluð hin árlega firmkeppni og tóku þátt I henni 55 fyr- irtæki og færir félagið þeim öllum sérstakar þakkir fyrir þátttökuna. Úrslit urðu þessi: 1. Rafveita Borgarness 64 stig 2. Málningarsala Einars Ingimundarsonar 62stig 3. Trésmiðja Sigurgeirs Ingimarssonar 60 stig 4. Vatnsveita Borgarness 60 stig 5. Virnet H/F 57 stig 6. Klukkuborg 57 stig Fimm kvölda tvimenningskeppni hófst 17. nóvember og lauk 15. desember. Þátttakendur voru 16 pör. Úrslit urðu þessi: 1. Guðjón Stefánsson og JónÞ. Björnsson 1267stig 2. BaldurBjarnasonog JónEinarsson 1243stig 3. GuðjónPálsson og Jón Guðmundsson 1223 stig 4. Hólmsteinn ArasonogUnnsteinn Arason 1190 stig 5. Eyjólfur Magnússon og JenniR. Ólason 1168 stig 6. GuðjónKarlssonogMagnúsÞórðarson 1077 stig Meðalstig voru 1050 stig. Aðalsveitakeppni félagsins hefst 19. janúar, en næsta fimmtudag verðurspilaðurlandstvimenningur. Hinn 12. janúar verður frjáls spila- mennska og eru nýliðar þá sérstaklega boðnir velkomnir. Spilað er I Hótel Borgarnesi kl. 20 á fimmtudagskvöldum. Flugmenn óskast Flugleiðir h.f. vegna Flugfélags íslands h.f. og Loftleiða h.f. óska eftir að ráða flugmenn til starfa. Að öðru jöfnu munu umsækjendur sem uppfylla eftirtalin skilyrði ganga fyrir um starf: 1. Hafa atvinnuflugmannsskirteini með blindf lugsréttindum. 2. Vera á aldrinum 21-30 ára. 3. Hafa lókið: a) a.m.k. eins árs almennu námi að loknum grunnskóla með full- nægjandi árangri að mati skólans, eða öðru hliðstæðu námi. b) stúdentsprófi stærðfræðideildar i ensku. c) stúdents- prófi máladeildar i stærðfræði og eðlis- fræði. 4. Hafa óflekkað mannorð. Skriflegar umsóknir óskast sendar starfsmannahaldi Reykjavíkurflugvelli fyrir 15. þ.m. Eldriumsóknir með sama hætti endurnýj- aðar fyrir 15. þ.m. Flugleiðir h.f.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.