Tíminn - 11.01.1978, Side 7
Miðvikudagur 11. janúar 1978
7
Siðasta fórnardýrið borið til grafar. Demantsalar fjöimenntu við útförina eins og sjá má.
New York:
Sjöundi
drepinn
Demantsalar á Manhattan i
New York mega vara sig um
þessar mundir. Maður gengur
laus, sem vill þá feiga, hvað
sem það kostar. Hefur hann
þegar drepið sjö á þremur ár-
um. Nú siðast ungan Gyðing
Pinchos Jaroslawicz aðeins 25
demant s salinn
á Manhattan
ára gamlan. Sá fannst ofan i
kassa, snúinn úr hálsliðnum.
Erdemantsölum nú eins innan
brjósts og negrastrákunum tiu
isögu Agötu Christie— enginn
veit hver verður næstur.
Lögreglan telur að morðing-
inn komi frá Porto-Rico, sem
orðin er eitt mesta demant-
smyglarabæli i heiminum.
Eru tollayfirvöld sögð hygla
undir með smyglurunum. Og
meðan ekkert er klárt i málinu
halda demantasalar i New
York áfram að skjálfa af
hræðslu.
Siglfirðmgar:
Vilja ekki að Norglobal verði
leigt á komandi loðnuvertíð
A fundi bæjarráðs Siglufjarðar
fyrir skömmu lögðu tveir bæjar-
ráðsmanna, þeir Bogi Sigur-
björnsson og Sigurjón Sæmunds-
son, fram eftirfarandi tillögu um
leigu og starfrækslu á bræðslu-
skipinu Norglobal á komandi
loðnuvertið: „Vegna þeirrar
heimildar, sem rikisstjórnin hef-
ur veitt til leigu og starfrækslu á
bræðsluskipinu Norglobal á kom-
andi loðnuvertið innan Islenzkrar
landhelgi vill bæjarráð Siglu-
fjarðar taka eftirfarandi fram:
1. Loðnubræðsla er vaxandi, og
er orðin afgerandi þáttur i at-
vinnulifi meira en 20 sveitarfé-
laga um land allt. Arið 1977 var
allur loðnuafli landsmanna unn-
inn i verksmiðjum i landi, sam-
tals rúmlega 800 þús. tonn, að út-
flutningsverömæti um 15 millj-
arðar króna og gekk sú vinnsla
vel, þó ekki hafi þá verið um er-
lendar verksmiðjur að ræða.
Bæjarráð Siglufjaröar telur
þjóðhagslega rétt, að allur loðnu-
afli landsmanna verði áfram unn-
inn I Islenzkum verksmiðjum og
af islenzku verkafólki, og að afla-
geta loðnuveiðiflotans veröi frek-
ar tryggð með flutningi aflans
þegar þess er þörf frá miðunum
til þeirra verksmiðja, sem til eru
á landinu, en með leigu á erlend-
um verksmiðjum.
2. Bæjarráð Siglufjarðar vill
vekja athygli á þvi, að ekki verð-
ur annaö séð en hráefnisnýting
bræðsluskipsins Norglobal sé
óvenjulega léleg og jafnvel óeðli-
leg, og af þeirri ástæðu sé það
þjóðhagslega nauðsynlegt að
loðnuaflinn veröi allur unninn i
landi þar sem hráefnisnýting hef-
ur orðið mun betri.
A vetrarvertiðinni 1976 var
lýsisnýting hráefnisins hjá S.R. á
Reyðarfirði 6,4%, en lýsisnýting
um borð i Norglobal aðeins 2,5%.
Mjölnýting hjá S.R. á Reyðarfirði
var 16,4%, en mjölnýting i Nor-
global 14,6%.
Af framangreindum ástæðum
telur bæjarráö Siglufjarðar alveg
fráleitt aö Alþingi veiti samþykki
sitt til starfrækslu bræðsluskips-
ins Norglobal innan Islenzkrar
landhelgi.
Þessi tillaga var samþykkt með
þrem atkvæðum.
Áskorun til Almannavarna ríkisins
Nýja neyðartalstöð að
Lindarbrekku í Kelduhverfi
Austurgörðum I Kelduhverfi I
samtali við Tfmann I gær, en
Keldhverfingar finna mjög fyrir
því nú I jaröskjálftahrinunni að
neyðartalstöðin I Lindarbrekku
var fjarlægð í nóvember sl. og
flutt, að þvi er sagt var upp I Mý-
vatnssveit.
Talstöð þessari var komið fyrir
I Lindarbrekku i jarðskjálftahrin-
unni fyrir tveimur árum eða I des.
1975, og hefði hún að sögn Þórar-
ins átt að standa óhreyfð. — Leyfi
ég mér að skora á Almannavarnir
ríkisins að setja stöðina upp aftur
eða útvega nýja. Þetta eru
óafsakanleg vinnubrögö, sagöi
Þórarinn Björnsson.
FI — Varnarkerfi hér hjá okkur
hefur verið véikt meö því að taka
niður neyöartalstöðina, og eru
pessi vinnuDrogð Almannavari
rlkisins fyrir neðan allar helli
sagði Þórarinn Björnsson
Keflavík
Blaðbera vantar.
Upplýsingar í sima 1373.
Akstur í myrkri III.
Sálræn blinda er hættulegust
Ef það á sér stað að öku-
maður blindast aflgjörlega
af sterkum ljósum er aðeins
um eitt að velja. Það er að
reyna að stöðva ökutækið og
aka ekki lengra fyrr en hann
sér aftur.
UMFERÐARRÁÐ
Viljofostur og othugull ökumofiur
reynir oÖ hafa vald ó gerðum sínum
meÖ því a6 sporna gegn utanofikom-
andi truflun, svo a6 hún raski ekki
oksturshæfni hans og gerfium.
Oft finnst ökumanni honn blindast ón
þess að svo sé í raun og veru. Þessi
sólræna eða imyndaöa blinda gerir
vart við sig er maður hefur ekið góða
stund í myrkri og mætt stöðugt öku-
tækjum meö Ijósum. Þessi óumflýjan-
lega, en sem þó mætti segja, ómerki-
lega truflun — einnig fró lógum Ijós-
um, getur valdið öryggisleysistilfinn-
Só viljalausi og óathuguli stillir sig
ekki, en æsist smótt og smótt í skapi,
svo að truflunin verkar þannig ó
hann, aÖ aksturinn verÖur krampa-
kenndur, og óyfirvegaðar skyndiat-
hafnir taka við af rólegum og ó-
kveðnum handbrögðum.
incfu og þar meÖ raskað sólarlegu
jafnvægi. Og því meira sem menn
þvingast af þessari truflun fró Ijósum
onnarra, því frekar hættir mönnum til
að gera einmitt þaÖ, sem þeir skyldu
ekki gera, — þ.e. að horfa beint í
Ijós ökutækja, sem ó móti koma. En
við það, að horfa beint í Ijósin, magn-
ast oð sjólfsögðu truflunin.
Fyrstu tónleikar
Sinf óníuhlj óms veitar-
innar á árinu verða á
fimmtudag
Næstu tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitar Islands, sem eru hinir
fyrstu á þessu ári, verða i Há-
skólabiói næstk. fimmtudag kl.
20.30, og verða þar flutt eftirtalin
verk:
Bartok: Tvær myndir
Chopin: Pianókonsert nr. 2
Brahms: Sinfónia nr. 4
Stjórnandi er VLADIMIR
ASHKENAZY, einleikari
JOSEPH KALICHSTEIN.
Vladimir Ashkenazy er þegar
orðinn Islenzkúm tónleikagestum
kunnur sem afbragös stjórnandi
ekki siöur en pianósnillingur.
Hann er nýkominn úr langri tón-
leikaferö sem náði yfir hálfan
hnöttinn: Skandinaviu, England,
Honolulu, Japan, Kóreu, Hong-
kong, Astraliu og Suður-Afriku.
Auk þess hefur hann fengizt viö
hljómsveitarstjórn til plötuupp-
töku. í desember siðastl. stjórn-
aði hann flutningi Philharmonic
hljómsveitarinnar á Sinfóniu nr. 5
eftir Tsjaikovsky fyrir Decca, og
ennfremur 2 Mozart konsertum
þar sem hann var bæði einleikari
og stjórnandi, og fleiri slikar upp-
tökur eru I undirbúningi. Ariö
1979 er fyrirhuguð tónleikaferö
The Philharmonic um Þýzkaland
meö Ashkenazy sem stjórnanda.
Pianóleikarinn Joseph Kalich-
stein fæddist I Tel Aviv 1946, en
fluttist til Bandarikjanna árið
1962. Eftir að hafa unnið tvær
píanókeppnir þar, fór hann I slna
fyrstu tónleikaferð til Evrópu ár-
ið 1970 og hélt tónleika I helztu
borgum i Bretlandi, Þýzkalandi,
Frakklandi og Austurriki og var
jafnframt einleikari með Fil-
harmóniuhljómsveit Israels á
listahátiö I Flandern. Siðan hefur
frami hans farið sivaxandi jafnt I
Evrópu sem Bandarikjunum, og
hann hefur farið tvisvar á ári
hverju til tónleikahalds i Evrópu.
Hljómplötur hans hafa einnig
hlotiö einróma lof tónlistargagn-
rýnenda.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla