Tíminn - 15.01.1978, Blaðsíða 18
18
Sunnudagur 15. janúar 1978
Gissur Gissurarson. Timamynd: Gunnar.
,, Allt
mitt
ráð við
búskap
binda...”
— Rætt við Gissur
Gissurarson,
bónda og hrepp-
stjóra í Selkoti
undir Eyjafjöllum
Flestir sem eru kunnugir á
SuBurlandi eða hafa ferðazt þar
eitthvað aö ráði munu róma
náttúrufegurðina undir Eyjafjöll-
um. En erindi þessa greinarstúfs
er nú samt ekki að fjalla um vfð-
fræga náttúrufegurð þessarar
sveitar, heldur veröur hér minzt
stuttlega á búskap og bjargræöis-
vegi undir Eyjafjöllum eins og
þeir voru áður fyrr og eins og þeir
eru nú. Og jafnframt verður
hugaö að mannlffinu á þeim slóö-
um, þar sem einna skemmst er á
milli hafs og jökla á landi hér.
Hvar er Selkot?
Tilefnið er þaö að hingað er
kominn til okkar aldinn bóndi
undan Eyjafjöllum, Gissur
Gissurarson i Selkoti 1 Austur-
Eyjafjallahreppi. Gissur er nú
kominn langt á sjötugasta og ni-
unda æviár sitt, en hress og
glaöur eins og hann hefur jafnan
verið um dagana. Viö skulum
heyra hvaö hann hefur aö segja.
— Þó aö margir eigi leiö um
Suöurland, er ekki vist aö menn
þekki nöfn á ölium bæjum. Og
þess vegna langar mig aö spyrja
þig fyrst, Gissur: Hvar er Selkot?
— Selkot er nokkurn veginn
miösvæðis i Austur-Eyjafjalla-
hreppi uppi undir fjalli. Þeir sem
einhvern tima hafa lagt leið sina i
Seijavallalaug, hafa séð bæinn
S blasa viö I hliðinni á hægri hönd
Iþegar ekið er inn aö lauginni.
— Ert þú ekki Eyfellingur að
■ uppruna?
— Jú, ég fæddist i Eystri-Skóg-
um austasta bæ i hreppnum, og
jafnframt austasta bæ f Rangár-
vallasýslu. Þar bjuggu afi minn
og amma og foreldrar minir áttu
þar heima fyrstu tvö árin eftir aö
þau gengu I hjónaband. En árið
1901 þegar ég var tveggja ára
gamall fluttust þau að Drangshlfð
undir Eyjafjöllum og þar ólst ég
upp eftir það og átti þar heima
þangað til ég kvæntist árið 1928.
— Fórst þú þá aö búa i Selkosti?
— Nei ekki alveg strax. Ég bjó
aö Felli I Mýrdal fardagaáriö
1929-30 en vorið 1930 fluttumst við
hjónin að Selkoti og þar hef ég bú-
ið siðan. Selkot var föðurleifð eig-
inkonu minnar, Gróu Sveinsdótt-
ur bónda i Selkoti og mér hefur
veriðsagtað Selkot sé eina jörðin
á þessum slóöum, þar sem sami
ættbálkurinn hefur búiö samfellt i
meira en þrjú hundruð ár.
Sjósókn og fuglatekja
— Þó aö fagurt sé undir Eyja-
fjöllum þá hefur ekki alltaf veriö
þar eins búsældarlegt og nú á öld
tækni og ræktunarbúskapar.
— Nei, þaö hefur oröiö gifurleg
bylting þar eins og allsstaöar
annars staöar á landinu. Ég man
vel þá daga þegar ég var að alast
upp að sultur var i búi á mörgum
hinna fátækari heimila undir
Eyjafjöllum. Or þvf rættist ekki
fyrr en fiskur fór að ganga meö
suðurströndinni siöari hluta vétr-
ar og gaf á sjó. Búin voru svo lftil
að þau hrukku ekki til þess að
framfleyta heimilunum en fólk
var tiltölulega margt á flestum
bæjum.
— Rerir þú kannski til fiskjar á
æskuárum þfnum?
— Já bessaöur vertu!
Fermingaráriö mitt reri ég sem
hálfdrættingur frá Jökulá eins og
það var kallað en þá var lending f
ósi Jökulsár á Sólheimasandi. Ég
man vel eftir því aö einn veturinn
fórum við alla góuna á hverjum
einasta degi austur við Jökulsá en
reyndar var ekki róiö alveg alla
daga. Það var bæöi seinlegt og
kaldsamt að rorra þetta á hesti á
hverjum morgni — og alls ekki
neitt upplifgandi!
— Hvaö var þetta lengi fariö á
hestum?
— Við vorum fulla tvo klukku-
tima, þvi aö aldrei var hægt að
fara nema lestagang. Hestarnir
voru mikiö notaðir og þvi lúnir.
Þeim var ekki aðeins riðið þetta á
hverjum degi heldur var aflinn
lika fluttur heim á þeim að kveldi,
og siöan ýmist saltaöur eða
hertur, þegar heim koma.
Ég vil taka þaö fram að þótt
þetta sjávarfang væri helzti
bjargræðisvegur margra heimila
siðari hluta vetrar þá var ekki þvi
til að dreifa um foreldra mina,
þvi að þau voru dável efnum búin
eftir þvi sem þá gerðist.
— Var ekki llka mikil björg I
fuglinum?
— Jú, aö vfsu en ekki nema á
mjög takmörkuðu svæöi. Það
voru aöallega nokkrir bæir sem
nutu þeirra hlunninda og einn
þeirra var heimili mitt. Við veidd
um alltaf fýl, og sigum eftir hon-
um. Ég seig eftir fýl i mörg ár.
— Þú hefur ekki verið loft-
hræddur?
— Nei, ekki svo mjög,' mér þótti
alltaf gaman að sfga en með þvi
er ég þó ekki að segja að ég hafi
verið neinn garpur á þvi sviði.
Mikil samskipti viö Vest-
mannaeyjar
— En svo viö vikjum aö bú-
skapnum aftur: Var ekki ein-
göngu sauöfjárbúskapur undir
Eyjafjöllum á uppvaxtarárum
þlnum?
— Nei, búskapurinn var
blandaður og til dæmis heima hjá
foreldrum mfnum voru kýr meira
en til heimilisnota. Það var alltaf
safnaö sméri og þaö siðan selt.
En þó voru þau heimili miklu
færri sem gátu selt smér. Faðir
minn átti alltaf fasta viöskipta-
menn i Vestmannaeyjum sem
keyptu af honum smérið. Ég man
til dæmis eftir ólafi Jónssyni
póstmeistara f Eyjum hann
keypti alltaf smér af pabba og
sömuleiöis nokkrir útgerðarmenn,
þeirra á meöal Arsæll Sveinsson.
Vöruskipti voru llka tfð. Pabbi
fékk oft fisk fyrir afurðir sínar og
enn fremur mjölvöru. En á upp-
vaxtarárum mfnum áttu Ey-
fellingar mjög veruleg verzlunar-
viðskipti við Vestmannaeyjar.
— Þiö átt.uö annars langt aö
sækja i kaupstaö
— Já, ekki er þvi að neita.
Verzlaö var i Vik^en þangað voru
á milli þrjátiu og fjörutiu kfló-
metrar að heiman frá mér. En
svo breyttist þetta þegar kaup-
félögin komu til sögunnar. fyrst
Kaupfélaga Hallgeirseyjar, svo
Kaupfél. Rangæinga og loks
Hella.
— Verzluöuö þiö lengi viö Vest-
mannaeyjar?
— Já sú verzlun hélzt allt fram
undir 1920.
Heita mátti að hver einasti
maður undir Eyjafjöllum, sem
gat losað sig frá heimili færi á
vertiö til Eyja. Þannig sköpuðust
mikil kynni og viðskipti og alltaf
var það vfst, að um vertiöarlokin
kæmi bátur frá Vestmannaeyjum
hlaöinn vörum.
— Var verzlunin þá mest tengd
vertiöarmönnunum, eöa fóruö þiö
Eyfellingar skipulegar
kaupstaðarferöir til Eyja?
— Ekki man ég eftir skipuleg-
um kaupstaðarferöum, þær hafa
þá veriö af lagðar fyrir mitt
minni.
— Nú hefur löngum þótt brima-
samt við suöurströnd Islands.
Uröu ekki slys 1 sambandi viö
þessa miklu sjósókn og feröir á
milli lands og Eyja?
— Jú, þvi miður hefur slikt
gerzt. Vorið 1901 þegar ég var
aöeins tveggja ára og tæplega þó
fórst bátur út við Eyjar með
tuttugu og átta manneskjum, en
allar voru undan Eyjafjöllum.
Þetta hefur sennilega verið
kaupstaðarferö farin I þeim til-
gangi aö verzla. Formaöur var
Björn Sigurðsson f SkarðshlIB
undir Eyjafjöllum.
Þótt sumum kunni aö þykja það