Tíminn - 24.01.1978, Qupperneq 8

Tíminn - 24.01.1978, Qupperneq 8
8 Þriðjudagur 24. janúar 1978. Einar Ágústsson og Þórunn eiginkona hans fengu mörg heillaóskaskeyti í gær. Að loknu prófkjöri Einar Ágústsson: Þakka veittan stuðning JS — „Ég þakka minum stuðningsmönnum og er ánægður með mina útkomu. úrslitin liggja ekki endanlega fyrir og þvi tel ég rétt að biða með frekari yfir- lýsingar þar til svo verður.” Að áliðnum degi í gær var Ijóst í aðalatriðum hver úrslit yrðu í próf- kjöri Framsóknarmanna i Reykjavík. Tíminn sneri sér til nokkurra fram- bjóðenda í prófkjörinu og spurði þá álits. Svör þeirra birtast hér á síð- unni en á næstu síðu birt- ast atkvæðatölurnar og nokkrar svipmyndir frá talningu atkvæða að Rauðarárstíg 18 í fyrri- nótt. Guðmundur G. Þórarinsson: Flokkurinn í sókn — Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu, sagði Guð- mundur G. Þórarinsson.— Sér- staklega er ég ánægður með þátttökuna i prófkjörinu, sem bendir til að Framsóknar- flokkurinn sé I sókn. I síðustu al- þingiskosningum fékk Fram- sóknarflokkurinn rúm 8000 at- kvæöi, en þátttakendur í próf- kjörinu voru 6.200. Ef borið er saman viö Sjálfstæöisflokkinn, sem fékk um 24.000 atkvæði I siöustu kosningum, en aðeins 9- 10.000 þátttakendur i prófkjör- inu i vetur, sést að Framsóknar- flokkurinn kemur mjög vel út úr þessu prófkjöri. I öðru lagi er ég mjög ánægð- ur með mína niðurstöðu, ekki hvaðsízt vegna þess að ég hafði mjög sterkt afl á móti mér þar sem fjórir frambjóðendur höföu sameinazt I bandalag, sem mið- aði að því að halda okkur hinum frá þessum fjórum sætum.sem kosið var um. Þarna var um að ræða varaformann flokksins, aðalritstjóra Timans, varaþing- mann okkar I Reykjavfk og for- mann fulltrúaráðs Framsókn- arfélaganna I Reykjavik. Auk þess unnu með þeim formaður Framsóknarfélags Reykjavík- ur og formaður Félags ungra Framsóknarmanna I Reykja- vík, svo það má segja að ég hafi haft alla flokksvélina á móti mér I kosningunum. í ljósi þess er þetta náttúru- lega mikill sigur og hann vannst fyrst og fremst með mikilli skipulagningu og glfurlegri vinnu fjölmargra stuðnings- manna og vina. Ég er mjög þakklátur þeim fjölmörgu aðilum sem unnu að þessum sigri. 1 baráttu sem Guðmundur G. Þórarinsson á kosningaskrifstofu sinni I fyrradag. þessari kemur mjög glöggt I ljós unin. Framundan er mikil vinna hvar maður á vini. að undirbúningi kosninganna I Þetta er hins vegar bara byrj- sumar. Kristján Friöriksson Kristján Friðriksson: Nýjar hugmyndir eru að vinna fylgi JS -..Úrslitin sýna að nýjar hug- myndir eru að vinna fylgi. Þau sýna m.a. aö hagkeöjuhug- myndin og fleiri af kenningum minum njóta vaxandifylgis, þar sem ég, fulltrúi þeirra, skuli fá nánast jafnt fylgi og vel metinn og mætur maður, mikill gáfu- maður, Þórarinn Þórarinsson ritstjóri, sem skipað hefur þing- sæti i 20 ár, — að við skulum gera næstum þvl jafntefli. Ég held að ihaldssömustu öfl- um flokksins muni ekki takast lengur að þegja i hel bráðnauö- synlegar tillögur um nýskipan mála. Dægurmálastefna flokks- ins tel ég að sé úrelt. Flokkurinn hefur nú aðstöðu til aö ganga I endurnýjungu llf- daganna, mál er til komiö og þótt fyrr hefði verið. Ég fagna þvi úrslitunum þótt þau séu ekki I samræmi viö björtustu vonir. Þetta er allt I óvissu þegar þetta er sagt, svo að þessi skemmtun,sem ég met á viö sólarlandaferð framleng- ist eitthvaö — svona eins og þeg- ar sllkar ferðir framlengjast stundum vegna vélarbilunar.” Kristján á ráðstefnu um atvinnu mál höfuðborga JS — Ekki var unnt aö ná tali af Kristjáni Benediktssyni borgar- ráðsmanni I gær. Hann hélt utan snemma I gærmorgun á ráð- stefnu i Stokkhólmi um atvinnu- mál höfuðborga á Noröurlönd- unum. — Miðað við þá rógsherferð, sem verið hefur gegn mér und- anfarnar vikur má ég vel við una að hafa hlotið næstflest at- kvæði i fyrsta sætið á borgar- stjórnarlistanum, sagði Alfreö Þorsteinsson. — Almennt vil ég segja um þetta prófkjör að það var ekki framsóknarfólk sem réði úrslit um I þvi, hvorki I sambandi við borgarstjórnar- né þinglistann. Það er mjög miður, að einn ágætasti og mikilhæfasti þing- maður Framsóknarflokksins Þórarinn Þórarinsson, skuli hafa verið felldur I þessu próf- kjöri af fólki, sem kemur aldrei til með að kjósa flokkinn, og ég óttast að það muni bitna á flokknum I kosningunum I vor. Þessi úrslit I prófkjörinu breyta litlu fyrir mér. Ég hafði hvort eð er hugsaö mér að draga úr störfum minum að borgar- málum. Starf borgarfulltrúa er mjög erilssamt, og með þvl að losna undan þvl mun ég hafa betri tima til aö sinna öðrum hugðarefnum. Þrír borgarstj órnar- fulltrúar — Ég er mjög ánjegð að hafa hlotið annað sætið á framboðs- lista flokksins til borgarstjórn- arkosninga I þessu prófkjöri, sagði Gerður Steinþórsdóttir. Ég tel að góður árangur hafi verð af prófkjörinu fyrir borg- arstjórnarkosningarnar. Ég er einnig mjög ánægð með að Ei- rikur Tómasson verði I þriðja sæti og tel miklar llkur á að Framsóknarflokkurinn fái þrjá borgarstjórnarfulltrúa I kosn- ingunum I sumar. Ég vil gjarnan færa stuðn- ingsmönnum mlnum þakkir. Ég varð vör viö mikinn áhuga hjá fólki að styðja mig og það var góð uppörvun, ekki slzt unnu margar konur kappsamlega að þvi að éff næði kiöri. Mikið fylgi í Reykjavík — Ég er eftir atvikum ánægð- ur með þessi úrslit, sagði Eirik- ur Tómasson,— ég hafði að visu gert mér vonir um að hreppa annaö sætið, og það munaði litlu aö svo yrði, aöeins nokkr- um tugum atkvæða. Ég álit að úrslitin I heild séu hagstæð fyrir flokkinn út á við, þau boði viss timamót hér I Reykjavlk og nýja sókn sem vonandi veröur upphaf að nýrri fylgisaukningu flokksins. Ég tel að við eigum hiklaust að stefna að þvi, að ná þrem mönnum I borgarstjórn I Reykjavlk eins og náðist 1970, þegar Guðmundur G. Þórarins- son náði kjöri sem þriðji borg- arfulltrúi Framsóknarflokks- ír»o Ég tel, að þessi mikla þátt- taka i prófkjörinu nú sýni svo ekki verður um villzt,að Fram- soknarflokkurinn á miklu fylgi að fagna hér I Reykjavik, og ég álit að ef vel verður unnið til vors, þá eigi flokkurinn ekki að fá færri atkvæði en hann fékk siðast og eigi jafnvel að geta bætt við sig einhverju atkvæða- magni. Ég vil að lokum óska þeim sem náðu góðum árangri til hamingju, og sérstaklega Gerði Steinþórsdóttur, sem ég tel að muni skipa annað sætið á lista Framsóknarflokksins I borgar- stjórnarkosningunum með mik- illi prýði. Loks þakka ég kærlega öllum þeim sem studdu mig I þessu prófkjöri, sem margir hverjir lögðu á sig mikla vinnu I þvi skyni. Ég endurtek að ég tel að árangur minn sem nýliði á stjórnmálasviðinu hljóti að telj- ast mjög góður. Þessi mynd af Eiriki Tómassyni, Kristjáni Benediktssyni og Geröi Steinþórsdóttur var tekin I fyrrinótt meðan talning stóö sem hæst. Alfreð Þorsteinsson: Utanflokks- fólk réð úrslitum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.