Tíminn - 24.01.1978, Side 24

Tíminn - 24.01.1978, Side 24
--------— 1 Þriðjudagur 24. janúar 1978. - ____________________________ Auglýsingadeild Tímans. HREVFILL Sfmi 8 55 22 Sýrð éik er sigild /eign MUftCiÖGiit TRÉSMIDJAN MÍIDUR SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 Hagur atvinnu- veganna fór versnandi 1977 — verzlunin ein hélt öllu sínu Þaft er ekki verið að draga fram í dagsljósið sumarmynd frá suörænum löndum, þótt myndin sýnist bera þess merki, heldur er hún — hversu fáránlegt sem það kann að virðast — tekin viö heita iækinn fræga i Nauthólsvik i gær, 23. janúar 1978. Timamynd: Róbert Um 1700 Vestmanna- eyingar hafa ekki snúið heim aftur — eftir gosiö 1973 AÞ — Fimm ár eru liðin frá því að eldsumbrot hóf- ustá Heimaey. Þaðvarað- faranótt 23. janúar/ að rúmlega 5.000 manns neyddust til að yfirgefa Vestmannaeyjar. Ibúar með lögheimili í Vest- mannaeyjum voru í árslok 1976 um 750 færri en var í árslok 1972. Um 1.700 manns/ sem bjuggu þá í Vestmannaeyjum hafa ekki snúið aftur, en 900 til 1000 komið í þeirra stað. Allmikil vinna hefur veriö lögö i spá um þróun ibúafjölda I Vest- mannaeyjum. Hún byggist ekki nema að litlu leyti á fræðilegum útreikningum, heldur annars vegar á mati á möguleikum kaupstaðarins og hins vegar markmiöum. Annars vegar var höfð hliðsjón af ibúafjölgun i öðrum kaupstöö- um og i landinu i heild. Hins veg- ar var tekið mið af þeirri stefnu bæjaryfirvalda, að Vestmanna- eyjar næöu aftur fyrri Ibúafjölda sem fyrst. í aðalskipulagi Vest- mannaeyja 1975-1995 eru tvær spár. Báðar gera ráð fyrir að ibúafjöldinn verði orðinn 5.300 manns I árslok 1977. Auk þeirrar breytingar, sem orðið hefur á ibúafjölda i Vest- mannaeyjum, hefur orðiö mjög mikii breyting á aldursskiptingu frá þvi fyrir eldsumbrotin 1973. Þaö fólk, sem flutt hefur til Eyja, er á öðrum aldri en það fólk sem SKJ — Þrátt fyrir hækkun markaðsverös og aukinn afla hef- ur hagur sjávarútvegsins I heiid ekkibatnaðá árinu 1977, og veld- ur þar mestu gifurlegar kostnaðarhækkanir innanlands. Staða iðnaöar hefur versnað til muna, en einkum á það þó við um útflutningsgreinar iðnaðarins. Framleiðsluaukning i landbúnaði var 3 1/2% á s.l. ári, en vegna þess að sala landbúnaðarafuröa hefur dregizt saman, njóta bænd- ur ekki tekna af hluta aukinnar framleiðslu. Samkvæmt skýrslu þjóðhagsstofnunar er verzlunin eini atvinnuvegurinn sem bjó við betri hag 1977 en áður. Vergur hagnaöur verzlunar mun nema um 3% af heildartekjunum og fól mikil veltuaukning I sér nokkuð bætta afkomu. Útfiutningsverðmæti sjávar- afurða 1977 mun hafa verið um 81 milljarður króna I heild. Er það 50% meira i krónum talið en 1976. Þessu veldur að framleiöslan hef- ur aukizt vegna góðrar loðnuveiði og aukins þorskafla, verð á er- lendum markaði fór hækkandi og gengissig krónunnar olli 10% hækkun verðs erlends gjald- miðils. Hagur sjávarútvegsins var svipaður og árið á undan, en eftir þvisem á árið leið, versnaði staða fiskvinnslunnar, vegna hækkunar innlends kostnaðar og Nýtt fisk- verð í dag? AÞ — Búizt er við að yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins taki ákvörðun um nýtt fiskverö i dag. Yfirnefndin hélt fúnd slðast- liðinn iaugardag og miðaöi veru- lega f samkomulagsátt á fúndin- um. Horfur eru taldar á að verðið verðiákveðið með atkvæöum sjó- manna, útvegsmanna og odda- manns. bjó þar áður. Fækkað hefur i flest öllum aldursflokkum beggja kynja milli 35 ára og sextugs. Sömuleiðis hefur fækkað i aldurs- flokknum 5-19 ára. Þetta eru börn foreldra I eldri aldursflokkum. Fólk milli 20-34 ára er nú u.þ.b. jafnmargt og það var fyrir gosið. Sömu sögu er að segja um flokk 0- 4 ára. Framangreint má lesa I Fram- kvæmda- og byggðaáætlun Vest- mannaeyja 1977-1986. Aætluninni veröur siðar gerð nánar skil i blaðinu. að heldur dró út hækkun afurða- verðs erlendis. Búvörubirgðir hafa aukizt verulega á siðasta ári, en fram- leiðsluaukning var talsverð og sala hefur dregizt saman vegna verðhækkana landbúnaðarvara og rýrnunar kaupmáttar, sem hefur átt þátt i breyttum neyzlu- venjum. Bændureiga nú við vax- andi rekstrarfjárörðugleika að etja vegna aukins birgðahalds, óþurrka og sölutregðu. Hefur tekjuþróun bænda orðið lakari en viðmiðunarstétta. Hag útflutningsiðnaðar hefur hrakað vegna litilla verðhækkana á erlendum markaði og mikilla innlendra kostnaðarhækkana, en afkoma útflutningsfyrirtækja er ákaflega misjöfn. Svipað er að segja um ullar- og fataiðnað, kisilgúrvinnslu og niðursuðuiðn- að,þar sem hagur þessaragreina hefur versnað frá 1976. Horfur i álvinnslu eru þó vænlegar á næsta ári. Endanlegar tölur um afkomu verzlunar 1977 liggja ekki fyrir, en hagur hennar mun þó hafa vænkazt, samkvæmt bráða- birgðatölum. Eitthvað er þetta misjafnt eftir greinum, en smá- söluverzlunin hefur bætt stöðu sina nokkuð. í verzlunargreinum var kostnaðaraukningu mætt með álagningarhækkun og veltuaukn- ingu. Timann vantar fólk til blaðburðar i eftirtalini hverfi: Háteigsvegur Hátún Miðtún Skúlagata Laugavegur Hverfisgata SIMI 86-300

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.