Tíminn - 04.02.1978, Qupperneq 1
Kristján Benediktsson i borgarráði:
Alvarlegar
veilur í
stjórnkerfi
borgarinnar
JB — A borgarráðsfundi i gær,
þar sem mál borgarlögmanns
var tekið til meðferðar, lét
Kristján Benediktsson bóka
það, að hann vildi láta utanað-
komandi aðila rannsaka málið.
Blaðið hafði samband við
Kristján Benediktsson og sagði
hann:
,,Ég lét gera bókun á þessum
fundi þar sem ég taldi að mál
hefðu þróaðzt þannig að eðlilegt
sé að hlutlaus utanaðkomandi
aðili rannsaki málið og taldi þvi
eðlilegt að rannsóknarlögreglu-
stjóri tæki að sér rannsóknina.
Hins vegar hefur þetta leitt i
ljós alvarlegar veilur I stjórn-
kerfi borgarinnar sem nauðsyn-
legt er að ráða bót á nú þegar.
I þvi sambandi minnti ég á ó-
tal tillögur minar og félaga
minna um nauðsyn á úttekt og
um að tillögur væru fengnar frá
utanaðkomandi aðilum um bætt
stjórnkerfi borgarinnar.”
Þá lét Björgvin Guðmundsson
bóka það eftir sér, að mál þetta
sýndi slappleika i endurskoðun,
og sagði hann að það að slikt
sem þetta gæti viðgengizt svo
lengi sem raun var, sýndi að
kerfið væri mjög ótryggt, þar
sem einum manni væri falið svo
mikið vald á fjármunum
borgarinnar.
Danska herskipið Fylla liggur hér við festar við Ægisgarð í Reykjavík. Skipið
kom við í svokallaða kurteisisheimsókn á leið til Danmerkur en það hef ur verið
við gæzlu undan ströndum Grænlands undanfarinn tvo og hálfan mánuð. Það
mun algengt að dönsk herskip komi við á (slandi á ferðum sínum til og frá
Grænlandi. Fylla kom hingað árdegis í fyrradag og mun leggja úr höf n klukkan
níu f.h. í dag. Tímamynd: Róbert
Reykj avíkurskákmótið:
DREGIÐ UM
TÖFLURÖÐ
/
SSt — Þessar myndir voru tekn-
ar á Hótel Loftleiðum I gær-
kveldi, en þar voru saman-
komnir keppendur á mótinu til
að draga um töfluröð og sjást
Guðmundur Sigurjónsson og
Hort frá Tékkóslóvakiu draga
sér númer úr hendi Guðmundar
Arnlaugssonar, en fyrsta um-
ferð á mótinu hefst i dag eins og
kunnugt er ki. 14.
Töfluröð er þessi: 1. Helgi
Olafsson 2. William Lombardy
3. Bent Larsen 4. Hort 5. Leif
Ogaard 6. Browne 7. Jón L.
Arnason. 8. Miles 9. Poluga-
evsky 10. Smejkal 11. Margeir
12. Kuzmin 13. Friðrik 14. Guö-
mundur.
Þessir tefla þá saman i fyrstu
umferð: Lombardy og Friðrik,
Larsen og Kuzmin, Hort og
Margeir, Browne og Poluga-
evsky, Jón L. og Miles, Helgi
Ólafsson og Guðmundur, Sigur-
jónsson. Einni skák hefur þegar
verið frestaðy en það er skák
þeirra Ogaards frá Noregi og
Smejkals frá Tékkóslóvakiu, en
hann er ei enn kominn til lands-
ins og kemur ekki fyrr en i dag.
Skák þeirra verður tefld á mið-
vikudaginn, sem er fridagur hjá
keppendum. Útlit er fyrir
margar spennandi skákir i dag
og ekki gott að segja um hver
verður skák dagsins, en ekki er
óliklegt að mikil barátta verði i
skák þeirra Larsens og Kuzmin
frá Sovétrikjunum, sem teflir
nú i fyrsta sinn hér á landi.
Hægt á gjaldeyrisafgreiðslu:
Gerzt áður
fyrir gengis-
breytingar
GV — Það er ekki hægt að neita
þvi að það hefur verið gripið til
þess áður fyrir gengisbreytingar
að hægja á gjaldeyrisafgreiðslu,
sagði Björgvin Guömundsson
fulltrúi viðskiptaráðuneytisins i
gjaldeyrisdeild bankanna i viðtali
við Timann i gær. Björgvin sagöi
þó, að ekki væri þetta eingöngu
bundið við sérstakar ráðstafanir
t.d. hefði núá annað ár verið hæg-
gengi i gjaldeyrisafgreiðslu á inn-
fluttum bilum og vegna hús-
gagnakaupa erlendis frá.
Meginhluti vöruinnflutnings er
á frilista og er gjaldeyrir vegna
vörukaupa afgreiddur sam-
dægurs i gjaldeyrisdeildum bank-
anna sagði Björgvin. Nú er
breytingin sú að leggja þarf allar
gjaldeyrisumsóknir vegna inn-
flutnings á öllum frilistavörum
fyrir fund hjá gjaldeyrisdeild
bankanna. Umsóknirnar eru sett-
ar fyrir fundinn eins og um leyfis-
bundna vöru væri að ræöa. Að
sögn Björgvins stafar hæggengi
gjaldeyrisafgreiöslunnar frá þvi
á hádegi á fimmtudag af þvi að
frllistavörurnarsæta nú sérstakri
meðferð. Ýms mál hafa forgang
um afgreiðslu s.s. hráefni til
iðnaðar, lyf og aðrar nauðsynjar.
Bilar hljómflutningstæki og
heimilistæki eru ekki afgreidd
þessa dagana.
Þorsteinn Friöriksson deildar-
stjóri i' gjaldeyrisdeild Útvegs-
bankans sagði i viðtali við blaðiö
aö það væri mesta furða hvað fólk
tækiþessum ráðstöfunum rólega.
Þó var mikil ös i bankanum I gær
og sagði Þorsteinn að fólk reyndi
að leysa út allan þann gjaldeyri
sem það mögulega gæti. Einnig
herjaumboðin eins og þau geta á
að fá gjaldeyrisafgreiöslu.
Hafrún dregin
upp í f jöru
vegna veöurs
SJ — Vélbáturinn Hafrún, sem
strandaði i Arnarfirði aðfaranótt
fimmtudags náðist á flot 1 fyrri-
nótt og var siðan dreginn að
bryggju á Bildudal. Mikill sjór
var i skipinu og var unnið að þvi
aö dæla úr því. Talsvert miklar
botnskemmdir urðu á skipinu og
einnig þarfnast vél þess og raf-
kerfi viðgerðar. Siðdegis I gær
var orðið mjög hvasst og þótti
ekki óhætt að hafa skipiö við
bryggju og var það dregiö upp i
fjöru.
Fiskvinnslan h.f. er eigandi
Hafrúnar 1S 400.
Mennirnir tveir sem slösuðust
voru Óli Valur Sigurðsson stýri-
maður sem var fluttur til Reykja-
vikur,marðist hann illa á fæti en
brotnaði ekki og Heiðar Baldurs-
son stýrimaður á Hafrúnu sem
maröist á baki er hann f pr frá
Bildu dal.
I