Tíminn - 04.02.1978, Qupperneq 3

Tíminn - 04.02.1978, Qupperneq 3
Laugardagur 4. febrúar 1978 3 Verður Egilsstaðakauptún gert að kaupstað? Óeðlilegt og rýfur tengsl við sveitirnar — segir Magnús Einarsson hrepps- nefndarmaður Nauðsyn að setja hér upp umboðsskrifstofu sýslumanna Mó — Ég tel það mjög óeðlilegt að gera Egilsstaði að kaupstað sagði Magnús Einarsson hrepps- nefndarmaður á Egilsstöðum i samtali við Timann, en eins og sagt var frá i blaðinu i gær verður um þaðalmenn atkvæðagreiðsla i hreppnum hvort leita eigi eftir — Nú fer meginhlutinn af þeim fjármunum sem við greiðum i sýslusjöð tíl að byggja upp og reka ýmisskonar aðstöðu, sem sýslan á hér á Egilsstöðum. Þar má nefna dvalarheimili fyrir vangefnasem nú er ibyggingu og einnig er hér héraðsskjalasafn kaupstaðarréttindum fyrir Egils- sem er eign sýslusjóðs. staði. Fjárhagslega skiptir það ekki máli fyrir sveitarfélagið hvort það er hreppur eða kaupstaður sagði Magnús en ýmis samvinna við sveitirnar i kring yrði erfiðari ef þorpið fengi kaupstaðaréttindi. Talsmenn kaupstaðaréttinda hafa það helztá oddinum, að með þvi' að gera Egilsstaði að kaupstað fengist hingað meiri opinber þjónusta en nú er eins og t.d. sérstakur bæjarfógeti. Dæmi eru þó um.að slik þjónusta sé veitt með umboðsskrifstofum i kaupstöðum. Ég tel þvi eðlilegast að við höfn- um þvi að gera Egilsstaði að kaupstað en leggjum hins vegar áherzlu á að hér verði sett upp umboðsskrifstof a frá sýslu- mannsembættinu i Suður- og Norður-Múlasýslum. Þannig gætum við fengið aukna þjónustu og slikt yrði til mikilla hagsbóta fyrir þá ibúa Norður-Múlasýslu sem nú þurfa að fara gegnum Egilsstaði niður á Seyðisfjörð til þess að hitta sýslumann sagði Magnús Einarsson. Langferða- bifreið fór út af í Hvalfirði — Sjö manns voru fluttir í sjúkrahúsið á Akranesi ESE — Um kl. 13.30 i gærdag fór langferðabifreið út af veginum við Hrafnabjörg i Hvalfirði, ekki langt frá Ferstiklu. Mikil hálka var á veginum og mun ökumaður bif reiðarinnar hafa misst stjórn á henni, með þeim afleiðingum að hún steyptist fram af allháum vegkantinum. Nokkur slys urðu á mönnum og þurftiað flvtja 7 manns á sjúkra- húsið á Akranesi, en eftir að gert haföi verið að sárum þeirra, fengu allir nema einn að fara heim til sin, en hann mun þurfa að dveljast nokkra daga á skjúkra- húsinu. Tilboð í Hraun eyjarfossvirkjun opnuð í gær — alls bárust 17 tilboð Kílóið af 1. fl. þorski hækkað um 12 krónur GV — Stjórn Verðjöfnunarsjóðs gekk nýlega frá ákvörðun um nýtt og hærra viðmiðunarverð freð- fisks. Þvi hefur Verðlagsráð sjávarútvegsins nú tilkynnt um nýtt fiskverð. Lágmarksverð á kiló af 1. flokks þorski er 110 krónur, en var áður 98 krónur. Verð fyrir kiló af meðalstórum þorski í 1. flokki er 89 krónur en var áður kr. 78. Stór ýsa i 1. flokki var áður seld á 86 krónur kilóið en er nú á 100 krónur. Verð fyrir kilóið á smá- ýsu i 1. flokki er nú kr. 48, en var 42 krónur. Stór ufsi i 1. flokki hefur hækkað um 16 krónur. Verð fyrir kilóið i fyrsta flokki er nú 72 kr. en var 56 kr. per kiló. Fyrir ufsa af millistærð eru nú greiddar 48 krónur en áður 42 krónur. Kilóið af hrognum kostar nú 190 krónur. Hæsta verð sem nú er greitt fyrirhvertkgaf fiski er fyrir 1. fl. lúðu 10 kg eða þyngri slægða og með haus kr. 344. Um kassafisk segir i til- kynningu Verðlagsráðs að „þegar slægður fiskur eða óslægður karfi er isaður i kassa i veiðiskipi og fullnægir gæðum i 1. flokki greiðist 12% hærra verð en að framan greinir enda sé ekki meira en 60 kg af fiski isað i 90 litra kassa 45 kg i 70 litra kassa og tilsvarandi fyrir aðrar stærðir af kössum.” t gær voru opnuð tilboð hjá Landsvirkjun i vélar og rafbúnað Hrauneyjafossvirkjunar. Alls bárust 17 tilboð og virðast fimm lægstu tilboðin vera þessi miðað við niðurstöðutölur tilboðanna og skráð gengi islenzku krónunnar hinn 3. febrúar 1978: Millj. kr. 1. ASEASviþjóð 2.875 2. AEG-TELEFUNKEN-VEVEY V-Þýzkal. 3.128 3. AEG-TELEFUNKEN, V- Þýzkal. 3.129 4. TOSHIBA, Japan 3.226 5. SOBERl-ACEC-VEVEY, Belgia 3.228 Samtimis voru opnuð tilboð i lokur, þrýstivatnspipur og stöðvarhúskrana virkjunarinnar. Alls bárust 11 tilboð og virðast þrjú lægstu tilboðin vera þessi á sömu forsendum og að framan getur: Millj. kr. 1. MAGRINI GALILEO, Italia 1.273 2. VÖEST ALPINE, Austur- riki 1.314 3. TAMPELLA,Finnland 1.335 Kefla- víkur, vill annast um þjóðhátíð — æfingar hafnar á „Herbergi 213” eftir Jökul Jakobsson ESE — Leikfélag Keflavikur hefur sentbæjarstjórn Keflavikur bréf, þar sem kemur fram að fé- lagið lýsir sig fúst til þess að sjá um þjóðhátiðarhald i Keflavik á næstu þjóðhátið 17. júni að fullu og öllu leyti og vera i þvi sam- bandi ábyrgöaraðili fyrir allri dagskrá. Vegna þessa máls var haft samband við Hilmar Jónsson for- mann leikfélagsins, og var hann fyrst spurður að þvi.hvers vegna leikfélagið vildi ráðast I slikt fyrirtæki. Hilmar svaraði þvi tíl að á fjöl- Hilmar Jónsson, formaður Leikfélags Keflavíkur. mennum fundi innan leikfélags- ins hefðu komið upp þær hug- myndir að sjá um þjóðhátiðar- haldið og væri ástæðan fyrst og fremst sú, að félagsmönnum hefði fundizt að þjóðhátiðin und- anfarin ár heföi veriö á það „lágu plani”, að bráö þörf væri á að bæta þar úr. Hilmar sagði að leikfélagið væriá móti þeirri stefnu, að hafa ■ utan að komandi skemmtíkrafta á þjóðhátiöinni, en viidi þess i stað reynda að tjalda þvi sem til væri af „innlendum” skemmti- kröftum. Hiimar kvaðst ekki i vafa um að Keflavíkingar gætu leyst þessi mál sjálfir og nefndi sem dæmi að hjá leikfélaginu væru það margir virkir félagar, að ekki væru næg verkefni fyrir þá alla innan félagsins og þvi kjörið að nýta krafta þeirra i þágu þjóðhátiðar. Arið 1974 var haldin hér Kefla- vikurhátíð og önnuðust bæjarbú- ar dagskrá að öllu leyti sjálfir og tókst sú hátið mjög vel. Því er það von okkar að við fá- um tækifæri til þess að spreyta okkur á þessu verkefni og með þvi að reyna að færa hátiðina á hærra og menningarlegra stig, sagði Hilmar Jónsson að lokum. Nú á næstunni verður tekið til við æf- ingar á næsta verkefni Leikfé- lagsins, en það er „Herbergi 213” eftir Jökul Jakobsson. Hlutverk eru sex talsins en leikstjóri verður Þórunn Sigurðardóttir. Borgarráð vísai máli borgarlögmanns til rann- sóknarlögreglustj óra Skil vantar á rúmum þrem milljónum i borgarsjóð JB — 1 gær barst Timanum greinargerð frá skrifstofu borgarstjóra varðandi rannsókn endurskoðunardeildar á skilum Páls Llndals fyrrverandi borg- arlögmanns á innheimtum bif- reiðastæðagjöldum og sam- þykkt borgarráðs um meðferð málsins. Jafnframt fylgdi skýrslla stjórnar endurskoðun- ardeildar borgarinnar svo og bréf borgarendurskoöanda með áritun kjörinna endurskoðenda. Borgarráð hefur nú ákveðið að visa málinu til frekari meðferð- ar rannsóknarlögreglustjóra rikisins. I greinargerðinni er staðfest- ur grunur, sem upp kom i byr j- un desember á fyrra ári um að i ákveðnum tilvikum hafi ekki verið gerð skil til borgarsjóðs á ínnheimtum bifreiðastæða- gjöldum, sem Páll Lindal þáv. borgarlögmaður hafði veitt móttöku i marz og október 1977. En frekari athugun á þessumáli leiddi til þess aö Páll Lindal sagði starfi sinu lausu þ. 12. desember sl. eins og kunnugt er. í greinargerðinni segir m.a.: „Rannsókn endurskoðunar- deildar, sem nær allt til ársins 1965, hefur leitt i ljós aö á árun- um 1971-1977 hefur PáU Lindal veitt móttöku bifreiöastæða- gjöldum að fjárhæð samtals kr. • 5.069.729 sem ekki verðurséð að skilað hafi verið i borgarsjóð. Inn á þessa fjárhæð greiddi Páll Lindal 9., 14. og 15. des. sl. sam- tals kr. 1.973.704. Skýrslu endur- skoðunardeildar fékk Páll Lfn- dal 31. janúar, en hefur siðan ekki sinnt tiimælum endurskóð- unardeildar um að koma og gera grein fyrir málinu af sinni hálfu.” 1 skýrslu stjórnar endurskoð- unardeildar, sem undirrituð er af Bjarna Bjarnasyni Hrafni Magnússyni og Berg Tómas- syni, eru sundurliðaðar greiðsl- ur, sem ekki hefur verið skilað til borgarsjóðs, og samkvæmt þeim gögnum kemur fram að þann 30. janúar sl. vantar skil i borgarsjóð að upphæð kr. 3.096.025, en þá hafði Páll Lindal greitt tæpar tvær milljónir upp I þær. 5.069.729, kr. sem i borgar- sjóð vantaði þ. 8. desember 1977. Eins og fyrr segir hefur borgarráð ákveðiö að visa mál- inu til frekari meöferðar rann- sóknarlögreglustjóra rikisins. Páll Líndal kærir uppbrot á hirzlum Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi bréf sem Páll Lindal fyrr- verandi borgarlögmaður sendi rannsóknarlögreglustjóra rikis- ins i gær: Til rannsóknarlögreglustjóra rikisins. Hér með fer ég þess á leit við yður herra rannsóknarlögreglu- stjóri að þér látið rannsaka hvort Bergur Tómasson borgar- endurskoðandi hafi gerzt sekur um refsivert atferli með þvi að brjóta upp læstar hirzlur i skrif- stofu minni Austurstræti 16, hinn 12des. s.l., þ.e. á þeim tima sem ég gegndi starfi borgarlög- manns. Virðist mér að atferli Bergs brjóti í bága við 228 gr. 1. mgr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 66. gr. stjórnar- skrárinnar nr. 33/1944. Enginn dómsúrskurður skv. 48. sbr. 51. gr. laga um meðferð opinberra mála hefur verið kveðinn upp, svo að mér sé kunnugt þannig að veitt geti honum eöa öðrum heimild til að leita i hirzlum minum hvað þá að brjóta þær upp. Eins og fram kemur i hjá- lagðri greinargerð var ekki einu sinni farið fram á það viö mig af borgarendurskoðanda að ég af- henti lykla að skrifborðinu sem brotið var upp. Fæ ég þvi ekki séð á hvaða heimild umrætt at- ferli hefur byggzt. Ég álit að svonefnd „stjórn endurskoðunardeildar” sem ég tel, að varla sé til að lögum sbr. lög nr. 58/1961 og samþykkt um stjórn borgarmálefna Reykja- vfkur 10. ág. /1964 gr. 35 beri ábyrgð á þessu, þar sem hún hefur látið þetta óátalið svo og borgarstjórinn i Reykjavik svo og aðrir viðstaddir borgarfull- trúar er samþykktu þetta hátta- lag með þögn sinni á borgar- stjórnarfundi 2. febrúar s.l. Ljósrit af greinargerð minni til borgarráðs frá 31. janúar 1978 fylgir hér með. Virðingarfyllst, Páll Líndal i

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.