Tíminn - 04.02.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.02.1978, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. febrúar 1978 5 Camilla Söderberg blokkflautuleikari og Snorri örn Snorrason gftar- og lútuleikari Háskólatónleikar: Camilla Söderberg og Snorri Örn Snorrason A Háskólatónleikum laugar- daginn 4. febrúar leika saman Camilla Söderberg blokkflautu- leikari og Snorri örn Snorrason gitar- og lútuleikari. A efnisskrá eru renaissance dansar fyrir blokkflautu og lútu eftir Bossin- ensis, Jacob van Eyck, Caroso og Dowland, fantasia fyrir blokk- flautu eftir Telemann og sónasta fyrir blokkflautu og gitar eftir sama. Einnig verða flutt Noc- urnal op. 70 eftir Benjamin Britt- en og Musica da Camera eftir Hans Murtin Linde. Camilla Söderberg og Snorri örn Snorrason stunda framhalds- nám í Basel. Þau komu fram nokkrum sinnum á tónleikum i Skálholtskirkju i fyrrasumar og vakti leikur þeirra mikla athygli. Tónleikarnir verða haldnir i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut og hefjast kl. 17. Rauno Velling í Norræna húsinu Timanum hefur borizt svolát- andifréttatilkynning frá Norræna húsinu: Finnski bókmenntafræöingurinn Hauno Velling Finnski bókmenntafræðingur- inn Hauno Vellingíf. 1937) heldur fyrirlestur á sunnudaginn kemur, 5. febrúar — Runebergsdaginn —. Fyrirlesturinn nefnir hann „Fran skogen till stan, — Ný finsk prosa söker eftir sig sjálv.” Þar mun hann leitast við að skýra hvað það er i finnskum nú- timabókmenntum, sem er sér- finnskt og hvað alþjóðlegt. Þetta samspil milli hins þjóðlega og hins alþjóðlega I bókmenntum lit- illa málsvæða er i raun svo við- tækt viðfangsefni, að Rauno Vell- ing, sem er deildarstjóri og ráðu- nautur við Werner Söderströms bókaforlag, eitt stærsta og virt- asta bókaforlag Finnlands, er hér að fást við atriði, sem verður einnig að telja að eigi við um Is- land. Fyrirlesturinn hefst klukk- an 16:00 á sunnudag, 5. febrúar.” Gunnar S. Hólm bólstrari á verkstæöi sfnu á Njálsgötu 5 en þar varö milljónatjón af völdum elds fyrr I vikunni. Tónleikar á Akranesi G.B. Akranesi — Þriðjudaginn 7. febrúar nk. kl. 20.30 verða pianó- tónleikar i sal Fjölbrautaskólans á Akranesi á vegum Tónlistar- félagsins. Brezkipianóleikarinn Philip Jenkins leikur á tónleikunum verkeftir m.a. Mozart, Chopin og Fauré. Philip Jenkins er islenzkum tónlistarunnendum að góðu kunn- ur en þetta er i fyrsta skipti sem hann heldur tónleika á Akranesi. Tónleikarnir eru aðrir tónleikar Tónlistarfélags Akraness á þessu starfsári. Sinfóníuhljómsveitin: Óperutónleikar 16 Nú er að hefjast siðara misseri þessa starfsárs Sinfóniuhljóm- sveitar Islands, og eru fyrstu tón- leikarnir fimmtudaginn 9. febrú- ar. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og til hennar vandað. Tónleikun- um þ. 9. fegrúar mun bandariskur hljómsveitarstjóri, George Trautwein, stjórna og einleikari er Gunnar Kvaran cellóleikari. Tónleikarnir hefjast á islensku verki, Gamanforleik eftir Victor Urbancic, þá er cellókonsert eftir Shumann og að lokum tvö banda- risk verk, Sonata eftir Stokes og Sinfónia nr. 2 eftir Howard Han- sen. Aðrir stjórnendur á þessu miss- eri verða Páll P. Pálsson, Adam Fischer, Wilhelm Bruckner- Ruggeberg, Karsten Andersen og Marteinn Hunger Friðriksson. Einleikarar verða þessir: Anna Aslaug Ragnarsdóttir, Györy Pauk, Hans Ricter-Haaser, Unn- ur Sveinbjarnardóttir og á loka- tónleikunum 18. mai rússneski pi- anósnillingurinn Emil Giles. A tónleikunum 27. april kemur Söngsveitin Filharmónia fram undir stjórn Marteins Hunger Jón Nordal. Friðrikssonar og á óperutónleik- um þ. 16. mars Karlakór Reykja- vikur. Sérstök ástæða er til að geta óperutónleikanna þ. 16. mars undir stjórn Wilhelms Bruckner- Ruggeberg, sem er einn af aðal- hljómsveitarstjórum óperunnar i Hamborg. A þessum tónleikum koma fram tveir þýskir söngvar- ar, sópransöngkonan Astrid Schirmer og tenórsöngvarinn Heribert Steinbach. Þessir söngvarar eru meðal eftirsóttustu söngvara i Þýskalandi i dag og syngja sem gestir við öll stærstu óperuhús i Evrópu. Það sem flutt verður á þessum óperutónleikum eru forleikir, ariur og dúettar úr óperum Fidelio eftir Beethoven, Meistarsöngvurunum. Tristan og Isolde, Hollendingnum fljúgandi og Valkyrjunum eftir Wagner. Karlakór Reykjavikur mun syngja tvo kóra úr óperunum Fidelio og Hollendingnum fljúg- andi. Að lokum skal þess getið, að á þessu misseri verða flutt verk eft- ir fjögur islensk tónskáld auk Victors Urbancics: Jón Norðdal, Snorra Birgisson, Sigursvein D. Snorri Birgisson. Samkomuhús Votta Jehóva aö Sogavegi 71, Heykjavlk Mót Votta Jehóva um helgina HH —Nú um helgina halda Vott- ar Jehóva tveggja daga mót i samkomuhúsi sinu að Sogavegi 71, Reykjavik. Slik mót eru haldin tvisvar á ári auk fjögurra daga móta, er haldin eru árlega. Guðmundur H. Guðmundsson, er fundarstjóri þessa móts og aðalræðumaður þess. Kvað hann tilgang mótsins vera, að sýna fram á hagnýtt gildi bibliunnar i hinu daglega lifi Mót þessi eru liður i alþjóðlegri fræðslustarfsemi Votta Jehóva sem fram fer i 216 löndum. Verða á þessu ári haldin alþjóðamót viða um heim þar sem saman koma Vottar Jehóva frá öllum löndum heims. Eru slik mót hald- in á nokkurra ára fresti. Einn liður i þessari alþjóðlegu starfsemi, er námskeið fyrir um- sjónarmenn safnaðanna. Eru þeim þá gefnar leiðbeiningar um kennslu i söfnuðum og leiðir til að veita meðlimum þeirra persónu- lega aðstoð. Langstærsti þáttur- inn i starfsemi safnaðanna er þó trúboðsstarf og byggist það á þátttöku allra safnaðarmeðlima. 1 janúar var haldið trúboðsnám- skeið, en slik námskeið eru haidin um svipað leyti i flestum löndum heims. A mótinu um helgina verður einu kvöldi varið til að fjalla um málefni ungs fólks og til að hjálpa þvi að sjá hvernig biblian gæti mótað lif þess og framtið. Gera Vottar Jehóva sér grein fyrir þeim margvislegu vandamálum er ungt fólk þarf að horfast i augu við, og reynir söfnuðurinn þvi að yfirstiga þau, svo og að hjálpa þvi að stefna markvisst að heiðarlegu lifi og verða dugandi þjóðfélagsþegnar. Segja tals- menn Votta Jehóva þetta bera góðan árangur. Allir eru velkomnir á þetta mót, en aðalræðan verður flutt sunnu- daginn 5. febr. kl. 14.00. Nefnist hún,,Gangið veginn til lifs”. Að- gangur er ókeypis. . marz Kristinsson og Guðmund Haf- steinsson, og er það frumflutn- ingur á verkum hinna þriggja sið- astnefndu. Sala áskriftarskirteina að sið- ara misseri hljómsveitarinnar er hafin á skrifstofunni að Lauga- vegi 120. Dr. Victor Urbancic. Sigursveinn D. Kristinsson. Útför Jóns frá Loftsstöðum Jón Jónsson Jón Jónsson fyrrverandi bóndi á Vestri-Loftsstöðum i Flóa sem andaðist nýlega i verður jarð- settur að Gaulverjabæjarkirkju i dag, en húskveðja hefst heima á Loftsstööum klukkan 1,15. Jón fæddist á Loftsstöðum og ólst þar upp og bjó þar langa tið. Fyrir allmörgum árum settist hann að á Selfossi og fylgdist það- an með búskap niðja sinna á Loftsstöðum. Jón var orðinn nær hálf-niræð- ur, er hann lézt. Hann var manna viðræðuglaðastur og mikill fróð- leiksmaður. Nýr yfirþýðandi sjónvarps Pálmi H. Jóhannesson hefur nýlega verið ráðinn yfirþýðandi hjá islenzka sjónvarpinu. Pálmi er 26 ára, stúdent frá Akureyri 1969. Hann tók B.A.-próf frá Há- skóla Islands 1973 og lauk há- skólaprófi frá háskólanum i Tours i Frakklandi 1976, en hann hafði á háskólaárunum lagt stund á frönsku, sagnfræði, ensku og latnesku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.