Tíminn - 04.02.1978, Side 6

Tíminn - 04.02.1978, Side 6
6 Laugardagur 4. febrúar 1978 Stórhækkuð framlög til vegamála — Ræða Halldórs E. Sigurðssonar samgöngu- ráðherra um frumvarp um breytingu á vegaáætlun 1978 alþingi Herra forseti. A þingskjali 280 er tillaga til vegaáætlunar fyrir áriö 1978. Viö afgreiöslu vegaáætlunar 1977-’80, þann 29. marz 1977, geröi ég grein fyrir þvi, aö of skammt væri gengiö um fjárveitingu til vega- mála 1977. bingsályktunartillag- angerði ráöfyrir, að f járveiting á vegaáætlun hækkaöi úr 5.650 millj. 1977 i 7.000 millj. 1978. Þrátt fyrir þetta var mér ljóst, aö of lit- iö var að gert meö þessari hækk- un fjárveitingar til vegamála á árinu 1978, m.a. vegna verðbólgu, sem var áætluð ca 30%. Enn fremur hnigu allar umræður hér á hv. Alþingi i þessa átt. Þess vegna var þaö við siöari umræöu um vegaáætlun hér á hv. Alþingi 28. marz, aö ég flutti svo- hljóðandi yfirlýsingu f.h. rikis- stjórnarinnar: „Enda þótt vegaáætlun sé gerö til fjögurra ára og endurskoðun samkvæmt vegalögum ekki ráö- gerö fyrr en á Alþingi 1978-1979 hefur rikisstjórnin ákveöið aö láta endurskoða fjárframlög til vegamála á Alþingi þegar á næsta hausti. Mun það gert i tengslum við fjárlagagerð og lánsfjáráætlun, þannig aö þaö fé, sem til vegamála er ætlað áriö 1978, verði aukiö. Rikisstjórnin mun einnig beita sér fyrir þvi, aö lög um happdrættislán vegna Norðurvegar og Austurvegar nái tilgangi sinum, þó aö nokkru seinna veröi en ætlaö var. Verða samkvæmt þessari yfirlýsingu vegamálin tekin á ný til af- greiösluhérá hv. Alþingi á hausti komanda.” Samkvæmt 10. gr. vegalaga ber að endurskoða vegaáætlun, er hún hefur gilt i tvö ár og bæta þá tveimur nýjum árum við. Sam- kvæmt þessu lagaákvæði á að endurskoða gildandi vegaáætlun áhaustþinginu 1978. Þviertillaga sú, er hér er til umræðu aö formi til stiluö sem breyting á gildandi vegaáætlun og varöar aðeins áriö 1978. Skal nú vikiö að almennum og einstökum atriðum f tillögunni. í heild má segja að tillagan feli i sér mjög verulega hækkun á ráö- stöfunarfé árið 1978 frá gildandi áætlun, hvort sem miðað er viö fjárupphæð eða framkvæmda- magn. 65% hækkun Um útgjöldin er þaö að segja, aö heildarútgjöld samkvæmt til- lögunni eru 9300 millj. kr. á móti 5650 millj. kr. 1977. Hækkun i krónutölu er þvl 3650 millj. kr. eöa 65%. Magnaukning frá árinu 1977 er hins vegar 26%, ef gert er ráö fyrir aö verölag hækki um 30% milli áranna 1977 og 1978. Magnaukningin kemur fram á flestum liöum og hækka helstu liöir hlutfallslega sem hér segir: Viöhald a) sumarviöhald 31% b) vetrarviöhald 26% Nýbyggingar vega og brúa 18% Sýsluvegir 100% Vegir Ikaupst.ogkaupt. 37% Samanburður við gildandi vegaáætlun Heildarútgjöld I gildandi vega- áætlun 1978 eru 7000 millj. kr. 1 þeirri tölu var við gerö vegaáætl- unar sl. vetur reiknaö meö áætluðum verðhækkunum til árs- ins 1978, sbr. stafliö 2.0 á bls. 4 i athugasemd við tillöguna. HEl — Félag Sameinuðu þjóð- anna á Islandi hefur ákveðiö aö standa fyrir ráöstefnu um Al- þjóðabankann og starfsemi hans mánudaginn 13. febrúar nk. aö Hótel Sögu kl. 14-18. Jón Sigurðsson forstjóri fyrrum fulltrúi Noröurlanda i stjórn Al- Skal fyrst vikiö að fjáröflun, þ.e. kafia I I tillögunni. Heildarfjáröflun samkvæmt til- lögunni er 9300 millj. kr. I stað 7000 millj.kr. I gildandi vegaáætl- un. Hækkun er 2300 millj. kr. eða 33%. Mest munar þar um hækkun markaðra tekjustofna, en þeir hækka um 1500 millj. kr. (úr 4300 millj. kr. i 5800 millj. kr.). Bensingjald er nú 36.50 kr. pr. litra og er hluti benslngjaldsins af útsöluverði bensins 32%, og hefur aukizt hlutfallslega með ný sam- þykktum lögum nr. 78/1977, um breyting á lögum um fjáröflun til vegagerðar. Lægst varð þetta hlutfall um 25% á sl. ári. Bensin- sala var á sl. ári rúmlega 114 milljónir lltra, og er gert ráð fyrir að hún aukist um 7% á þessu ári. Rikisframlag hækkar um 400 millj. kr., og jafngildir þaö sölu- skattstekjum af hækkun bensin- gjaldsins. Lánsfjáröflun til Norður- og Austurvegar hækkar um 300 millj. kr. (úr 500 millj. kr. I 800 millj. kr.) og önnur fjáröflun um 100 millj. kr. (úr 1300 millj. kr. I 1400 mOlj. kr.) Hefur hlutdeild markaöra tekna og rikisframlags 1 heildar- fjáröflun aukizt meö þessu og llt- ur samanburður siöustu ára þannig út. 197g 1976 1977 samkv. Markaöir till. tekjustofnar 54.8% 57.9% 62.4% Rikisframlag 11.2% 13.8% 14.0% Lánsfé 34.0% 28.3% 23.6% Nánari sundurliöun er I athuga- semdum við tillöguna, bls. 3„staf- liöir 1.1 og 1.2 Við breytingartillögu við vega- áætlun nú eru veröhækkanir til 1978 áætlaöar aö nýju. Sú áætlun er sýnd I athugasemdum við tO- löguna sbr.einsogégsagði bls. 4 I athugasemdum staflið 2.0 og eru þar veröhækkanir áætlaðar meiri en var viö gerö gildandi vega- áætlunar sl. ár. Til aö ná sama framkvæmda- magni og þá var ráö fyrir gert aö næöist með7000millj. kr. útgjöld- um í gOdandi vegáætlun. þyrfti 8240 millj. kr. samkvæmt hinni endurskoðuðu áætlun um verö- hækkanir. Magnaukning heildarútgjalda er því 1060 millj. kr. eða 13%, frá þvi sem er I gildandi vegaáætlun. Þessi magnaukning kemur nærri öll fram á tveimur liöum, þ.e. nýbyggingum vega og brúa, sem hækka um 930 mOlj. kr. eða 27% og vegum I kaupstööum og kauptúnum (vegna aukinna markaðra tekna) 96millj. kr. eöa 16%. þjóðabankans verður stjórnandi ráðstefnunnar. En meginviö- fangsefni hennar er að ræöa hlut- verk og möguleika Norðurlanda I starfi Alþjóðabankans. Ráðstefnan er haldinaöósk Al- þjóöabankans I framhaldi af Einstakir málaflokkar Um kafla 2.3, útgjöld til ein- stakra málaflokka, er eftirfar- andi að segja: Liðurinn Stjórn og undirbúningur hækkar einungis sem kostnaðarhækkun nemur. 1 gildandi vegaáætlun var gert ráð fyrfr aö fjölgaö yrði föstum starfsmönnum á rikiskjörum um þrjá menn, tvo tæknifræöinga og Halldór E. Sigurðsson. einn mælingarmann, ,,á áætlunartimabilinu”, þ.e. 1977-1980. í raun mun þó Vega- gerð rOcisins hafa treyst þvi, að þessi starfsliðsfjölgun kæmi á fyrri hluta tlmabilsins, þ.e. einn 1977og tveir áriö 1978. Kostnaður- innmunláta nærri lOmOlj. króna og eru viökomandi sérfræöingar starfandi lausráönir nú þegar hluta ársins og ekki annaö sjáan- legt ensvo veröi áfram. Á slöasta ári viö gerö vegáætlunar 1977-1980 sótti vegageröin um 11 ný jar stöö- ur, en samgönguráöuneytiö féllst aöeins á 3, eins og fyrr er sagt. Vegna tölvuvinnslu á bókhalds- gögnum hefur ekki reynzt nauð- synlegtaö manna allar heimilað- ar stööur á vegamálaskrifstof- unni og eru þar nokkrar ómannaðar stöður nú. Ef heimild réttraaðila fæsttilaö færa þessar ónotuöu stööur skrifstofumanna til þannig aö tæknimenn kæmu i þeirra staö, yröi heildartalan óbreytt. í árslok 1976 voru heimOaðar stööur 136, en ársstarfsmenn alls $77, aö meðtöldum þeim, sem taka kaup samkvæmt kjörum stéttarfélaga. 1 viöhaldi þjóövega er hér lagt sams konar ráöstefnum i höfuö- borgum hinna Norðurlandanna. A vegum Alþjóðabankans kemur á ráðstefnuna Einar Magnussen fulltrúi Norðurlanda I stjórn bankans. í för með honum eru Odd Myhrer, en hann stjórnar upplýsingadeild bankans fvrir tO, að sú breyting verði gerð, aö vegmerkingar, sem nú eru i gild- andi vegaáætlun sjálfstæður lið- ur, verði felldar inn I sumarvið- hald og viðhaldið skiptist einungis itvennt, sumarviðhald og vetrar- vibhald. Viðhalds- kostnaður í athugasemdum með tillögu aö vegaáætlun 1977-1980 var gerð itarleg grein fyrir þörf á auknu fjármagni til viðhalds. Var og lögð áherzla á þetta I framsögu- ræðu fyrir tillögunni. 1 meðferö Alþingis voru fjár- veitingar til viðhalds 1977 lækkað- ar nokkuð (95 millj. kr.), og þar við bættist að verðhækkanir urðu meiri en áætlað hafði verið. OOi þetta hvort tveggja þvi, að fjár- veiting til viðhalds varð að raun- gildi lægri en gert var ráð fyrir. 1 gildandi vegaáætlun var gert ráð fyrir umtalsverðri hækkun við- haldsfjár áriö 1978, og er þeirri stefnu naldið viö þessa endur- skoðun nú, þannig að viðhaldsfé er hækkað I samræmi við breytt verðlag. Tillagan hér um fjárveitingu 1978 er 72% af þvi, er vegagerð telur að þörf væri á og er mj ög brýntaðhaldiðverðiáfram næstu ár aö auka viðhaldsfé aö þvl marki aö halda megi vegakerfinu i sem beztu ástandi. Um vetrarviðhald er það aö segja, að nýjar snjómoksturs- reglur tóku gildi I ársbyrjun 1977. Var áætlað, að hinar nýju reglur hefðu I för með sér um 25% aukn- ingu útgjalda til þessa liðar og við það miðað i tOlögu að gildandi vegaáætlun fyrir árið 1977. í meðferð Alþingis var þessi fjárveiting lækkuð um 65 millj. kr. 1977 (úr 445 miUj. kr. I 380 millj. kr.). Raunkostnaður 1977 bendir til þess að upphafleg áætl- un hafi verið nærri lagi, og er i til- lögunni nú miðað við upphaflega tiUögu að gildandi áætlun, reikn- aða tO verðlags 1978. Nýir vegir og brýr Til nýrra þjóðvega og brúa, svo og fjallvega, eru áætlaðar sam- kvæmt tOlögunni 4315 mOlj. kr. Er það hækkun um 1368 miUj. kr. eða 46% I krónutölu frá fjárveit- ingu 1978 i gildandi vegaáætlun. Sé tekið tUlit til verðhækkana er Noröurlönd og Leif Christoffer- son. Inngangserindi flytur Einar Magnussen en gert er ráð fyrir að meðal þátttakenda verði al- þingismenn, embættismenn, blaðamenn, stúdentar og menn tengdir atvinnulífinu i landinu. magnaukning 930 millj. kr. I þess- um liðum eða 27%. Þetta við- bótarfjármagn skiptist hlutfaUs- lega nokkuð jafnt til stofnbrauta, þjóðbrauta og brúa. Þó er hlutur brúnna drýgstur og stafar það af þvi, að margar hinna eldri brúa á aðalleiðum vegakerfisins lýjast mjög undan sivaxandi þungaum- ferð, og öryggi þeirra er stefnt i hættu. Hin nýju ákvæði um sýsluvegi, sem samþykkt voru með vega- lagabreytingunni nr. 113/1976 koma nú I fyrsta sinn fram i rikis- framlagi tO sýsluvega. Eru þann- ig áætlaðar 340 mUlj. kr. til sýslu- vega samkvæmt tUlögunni nú, en voru 129 millj. kr. 1977. Fjárveiting til vega I kaupstöð- um og kauptúnum er i tillögunni hækkuð og verður 706 millj. kr., en var 396 millj. kr. 1977, I sam- ræmi við markaða tekjustofna. Halli á vegaáætlun 1976 varð endanlega 106 millj. kr., og haUi 1977 er áætlaður 130 millj. kr., og er meiri hluti hans vegna kostnaðar við vetrarviðhald um- fram áætlun, eins og skýrt er i lið 2.10á bls. 6-7 i athugasemdum við tillöguna. HeUdarhalli I árslok 1977 var þvl 236 mUlj. kr. Af þessum halla er lagt til að greiða 60 millj. kr. 1978en yfirfærðar verði 176 millj. kr. til 1979. Um lán til vegagerðar Auk þeirra útgjalda sem koma fram i vegáætlun, greiðir rikis- sjóður beint vexti og afborganir af lánum, sem tekin hafa verið til vegagerðar á undanförnum ár- um. Aætlað er að þessar greiðslur 1978 verði sem hér segir: Vextir og verðbætur 1046 miUj.kr Afborganir 723miUj.kr Samtals 1769m01j.kr Sé vöxtum og verðbótum bætt við útgjaldatölu vegáætlunar verða heildarútgjöld ríkisins tO vegamála 10.346 millj. kr. Sam- bærilegar tölur fyrir næstu ár á undan eru 5.487 millj. kr. 1976 og 7.340 mUlj. kr. 1977. Betur má ef duga skal Verkin, sem þarf að ljúka: 1) Oddsskarð. 2) Holtavörðuheiði að vissu marki. 3) Hvalnesskriður. 4) Borgarfjarðarbrú — Brú á ölfusá. 5) Oliuborið slitlag áfr'am Austur- veg. 6) Þingvallavegur. 7) Vesturlandsvegur hjá Kiðafelli á Kjalarnes. Herraforseti, ég legg svo tO, aö lokinni þessari umræðu verði tU- lögunni visað til siðari umræðu og hæstvirtrar fjárveitinganefndar. Leiðrétting Sú missögn varð I Timanum 28. janúar, þar sem getið var bókar Skúla Skúlasonar, Hraunkotsætt- arinnar, að Hallgrlmur Helgason og Arnfríður Þorsteinsdóttir og ættmenn þeirra hefðu búið að Hraunkoti i Aðaldal frá siðustu aldamótum. Þar átti að sjálf- sögðu að standa frá næstsiðustu aldamótum — aldamótunum 1800. Þetta leiðréttist hér með. Háðstefna að ósk Alþj óðabankans

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.