Tíminn - 10.02.1978, Page 5
Föstudagur 10. febrúar 1978
5
Myndin er frá afhendingu verölaunaskjalanna. Frá vinstri: Emil Guö-
mundsson aðstoðarhótelstjóri, David C. Dorf framkvæmdastjóri hjá
„Hotel Sales Management Association” og GIsli B. Björnsson frá Aug-
iýsingastofunni hf. Lágmúla.
Auglýsingar
Hótel Loftleiða
vinna til
verðlauna
Hótel Loftleiðir vann nýlega til
tveggja verðlauna i auglýsinga-
keppni á vegum H .S.M ,A., alþjóð-
legra samtaka i hótelrekstri,
Hotel Sales Management
A^sociation. Hótelið vann 2. verð-
laun i flokki herbergjaauglýsinga
og 2. verðlaun I flokki auglýsinga
fyrir fundi og ráðstefnur. Fleiri
hundruð aðilar, hótel og hótel-
hringir viðsvegar úr heiminum
sendu auglýsingar sinar i keppni
þessa, en úrslitin voru birt fyrir
skömmu.
Hótel Loftleiðir sendi i keppn-
ina 4 auglýsingar af þeim sem
gerðar voru á siðasta ári, til
kynningar Islandsferðum og dvöl
á hótelinu. Hafaauglýsingar þess-
ar birzt i blöðum og timaritum,
hérlendis sem erlendis, og veriö
liður i skipulögðu auglýsinga-
starfi hótelsins.
Auglýsingarnar voru gerðar i
Auglýsingastofunni hf. Lágmúla,
sem hefur undanfarin ár séð um
gerð auglýsinga og skipulagningu
auglýsingastarfsemi fyrir hótel-
ið. Keppni eins og sú sem Hótel
Loftleiðir tók nú þátt i hefur verið
haldin árlega frá þvi 1955.
Stefnt að skerðingxi
á réttindum
iðnaðarmanna með
iðnlagafrumvarpinu
JB — Blaðinu hefur borizt álykt-
anir, sem gerðar voru á sam-
bandsstjórnarfundi Rafiðnaðar-
sambands tslands fjórða febrúar
sl. Fjalla samþykktirnar um lif-
eyrissjóðsmál og iðnlöggjöf. I
fyrrgreindri ályktun segir:
— Sambandsstjórnarfundur
R.S.I.: mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun Alþingis að skylda lif-
eyrissjóði stéttarfélaganna með
lögum til þess að kaupa verð-
tryggð skuldabréf fjárfestingar-
lánasjóðs fyrir 40% af ráðstöf-
unarfé sjóðanna. Telur sam-
bandsstjórnin slika ihlutun
stjórnvalda um málefni lifeyris-
sjóðanna, sem stofnaðir eru með
frjálsu samkomulagi aðila vinnu-
markaðarins með öllu óviðunandi
og jafnast á við hreina upptöku á
fjármunum sjóðanna. —
Bendir fundurinn á, að
Li'feyrissjóð félagsins verði
ókleyft að standa við eðlilegar
skuldbindingar vegna slikrar
lagaþvingunar og hvetur til þess
að gripiö verði til aðgerða til að
rétta hlut lifeyrissjóðanna gagn-
vart þessari freklegu ihlutun
ríkisvaldsins i fjármálum, — eins
og það er orðað.
Vegna framkomins frumvarps
tiliðnaðarlaga ályktaði fundurinn
eftirfarandi: — Rafiðnaðarsam-
band Islands hefur frá stofnun
sambandsins barizt fyrir aukinni
verkmenntun, svo og þvi að gildi
verklegra starfa sé metið að
verðleikum. Sambandsstjórnin
telur það ekki i samræmi við
þessa meginstefnu aðdregið sé úr
gildismati verklegra starfa með
skerðingu á réttindum iðnaðar-
manna svo sem stefnt er að með
frumvarpi þessu. Sérstaklega
bendir sambandsstjórnin á, að
þegar fjallað er um iðnréttindi og
iðnaðarstörf verður að taka tillit
til mikilvægis löggiltra iðngreina
hverrar um sig, þar sem mjög
mismunandi kröfur eru i raun
gerðar til hinna ýmsu greina bæði
hvað þekkingu snertir og ábyrgð.
Þá er varað við þvi, að gerðar
verði breytingar á núverandi lög-
um sem stefnt geti gildi verk-
menntunar og framtið iðnaðar i
voða, og að siðustu lýstyfir and-
stöðuvið8. gr. frumvarpsins svo
og það ákvæði um að fella niður
heimild gildandi laga til að
áskilja próf frá Meistaraskóla
sem skilyrði fyrir meistararétt-
indum.
Bændur - Verktakar
Höfum stóraukið varahlutalager okkar,
og höfum fyrirliggjandi flestalla varahluti
i Perkingsmotora og Massey Ferguson
dráttarvélar og traktor gröfur.
Vélar og þjónusta h.f.
Smiðshöfða 21, simi 8-32-66.
IJTSALA
TORGSINS
í Iðnaðarhúsinu
Hallveigarstíg 1
NÆST SlÐASTI DAGUR
Vlikið úrvai fra
öHum dei/dum
TORGSINS
Opið til hádegis á morgun
simi: 27211
Austurstræti 10
1 p
■ M m