Tíminn - 10.02.1978, Síða 11
Föstudagur 10. febrúar 1978
11
Augnlækningatæki í
heilsugæzlustöð Kópavogs
— frá Kiwanisklúbbnum Eldey
A myndinni sést, er forseti Eldeyjar þetta starfsár, Arnór Pálsson af-
hendir bæjarstjóra Kópavogs Björgvin Sæmundssyni gjafabréf yfir
augnlækningatækin, sem brátt veröa tekin i notkun i nýju húsnæöi
heilsugæzlustöövar Kópavogs aö Fannborg 7.
FI — A almennum fundi í Kiwan-
isklúbbnum Eldey i Kópavogi á
miövikudagskvöldiö 18. febrúar
fór fram afhending auglýsinga-
tækja til augnlækningadeildar
heilsugæzlustöövar Kópavogs.
Tæki þessi munu gera augnlækn
ingadeild heilsugæzlustöövarinn-
ar möguiegt aö veita alla augn-
lækningaþjónustu til Kópavogs-
búa, aöra en þá,sem krefst upp-
skuröa á augum. Tækin munu
gera heilsugæzlustöö Kópavogs
aö einni af bezt búnu stöö sinnar
tegundar á landinu og er þetta
mikilvægt, þar sem mjög erfitt er
aö komast aö hjá augnlæknum og
biötimi er mjög langur.
Tækin, sem hér um ræöir eru
sjóngler og öll tæki til gler-
augnamælinga. Tæki til gláku
greiningar og til aö fylgjast meö
gláku og meöhöndlunar gláku-
sjúklinga. Svokallaður rauf-
lampi, sem er tæki til eins konar
smásjárskoðunar á augum.
Tæki til aðgeröa á augnlokum og
til að fjarlægja aðskotahluti úr
augum. Tæki til aðgerða á tára-
göngum augna og skoðana á tára-
göngum. Tæki til athugunar á
litaskyni eða athugun varðandi
litblindu.
Fyrir þrem árum valdi Kiwan-
isklúbburinn Eldey kaup á augn-
lækningatækjum sem sérstakt
styrktarverkefni fyrir klúbbinn.
Til öflunar fjárins safna Kiwanis-
menn i Eldey fé meðal Kópavogs-
búa og annarra með sölu kerta
fyrir hver jól. Þannig eiga Kópa-
vogsbúar mikinn heiður af fram-
gangi þessa máls. Verðmæti
augnlækningatækjanna er sam-
tals um fjórar milljónir króna.
„Fréttir um heildarbílainn-
flutning til landsins villandi”
— segir Bílgreinasambandið
JB — Bilgreinasambandið hefur
sent frá sér fréttatilkynningu, þar
sem það vill koma á framfæri
nokkrum atriðum varðandi bila-
innflutning til landsins á siðasta
ári. í fréttatilkynningunni segir:
— Heildarbifreiðainnflutningur
er 7776bifreiðar árið 1977 sem er
rétt yfir meðaltal áranna
1971-1977, sem er 7041 bifreið. Inn-
flutningurinn á enn langt i land
meðaðnáþeim fjölda sem fluttur
var inn árið 1974 sem var metár.
Bifreiðainnflutningur var i lág-
marki árið 1975 eða tæpar 3500
bifreiðar. Siðan þá hefur verið
eðlileg stigandi i bifreiðainnflutn-
ingi. Bilgreinasambandið telur
eðlilegt miðað við það að i landinu
eru tæplega 80 þús. bifreiðar að
meðalinnflutningur sé 8-10 þús.
bilar á ári. Þá er þvi mótmælt i
fréttatilkynningunni sem komið
hefur fram að aukning á innflutn-
ingi vörubifreiða hafi verið mikil,
og bent á með vörubifreiðum séu
taldir ,,pick-up bilar”, sem ekki
séhægt að telja til vörubifreiða —
Iiinflutningur vörubila 1977 er að-
eins 122 bílar en meðaltal áranna
1971-1977 var 188 bilar sem er allt-
of litið, þar sem 60% vörubíla nú
eru eldri en 10 ára, en árið 1969
varekki nema 44% vörubila eldri
en 10 ára. 1 dag er meðalaldur
vörubila tæp 13 ár — segir i
fréttatilkynningunni.
Þá segir að ástæðan fyrir þessu
sé sú, að vörubill i dag er dýrt
tæki og stór hluti bilverðs renni
beint i rikiskassann auk þess sem
verðbólga undanfarinna ára hafi
einnig gert mönnum nær ókleift
að fjárfesta i slikum tækjum þar
sem lánafyrirgreiðsla og aðstoð
við þá, sem kaupa og reka þá,
hefur nánast ekki verið til. Að sið-
ustu segir:
„Þess má geta að tollur af
vörubifreiðum er 30% auk þess
25% innflutningsgjald auk sölu-
skatts og rennur til rikisins yfir
40% af útsöluverði. Af fólksbif-
reiðum er tollur90% og innflutn-
ingsgjald 50% og fara tæp 60% af
útsöluverði þeirra beint til rikis-
ins sbr. meðfylgjandi teikningu.
atlantic SS5TRK
B3ÖRNSSON
Orðsending
til viðskiptavina
Vegna flutninga á fyrirtæki voru i nýtt
húsnæði að
Bíldshöfða 16
verður varahlutaverzlun, bilasala og
skrifstofur lokaðar dagana 13.-16. febrúar.
Opnum aftur 17. febrúar að Bildshöfða 16.
BJÖRNSSONACo.
Tek að mér
að leysa út vörur fyrir innflytjendur, með
l-2ja mánaða greiðslufresti.
Þeir sem hafa áhuga, leggi tilboð inn á
afgreiðslu blaðsins, merkt, Fyrirgreiðsla.
FLUTNÍNGUR
RÍKIÐ
uíkíumr.
V6RKSMIOJAN
28.5°!
INNFtYTJANOi
Ala^nins og i
HEILDARVERO Tll KAUPANDA 100«
Mynd þessi sýnir hvernig andvirði bilsins skiptist. Þar kemur fram að
rikið hirðir meginhlutann eða 58.9%. 28.5% innkaupsverö bllsins er-
iendis,6.1% er flutningsgjaid og innflytjendi fær 6.5%
hrelntt