Tíminn - 16.02.1978, Blaðsíða 7

Tíminn - 16.02.1978, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 16. febrúar 1978 7 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á mánuði. ... . . . - Blaðaprent h.f. Fordæmin 25 Óhætt er að fullyrða. að stjórnarandstaðan hafi ekki riðið feitum hesti frá útvarpsumræðunum i neðrideild Alþingis i fyrrakvöld. Tilgangur hennar með þvi að óska eftir þessum umræðum hefur vafalaust verið sá að æsa launþega gegn efnahags- frumvarpi rikisstjórnarinnar með þeim full- yrðingum, að hér væru á ferð óvenjulegar aðgerðir og þvi yrðu launþegasamtökin að bregðast hart við. Annars yrði skapað hættulegt fordæmi. Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra benti á að hér væri sannarlega ekki um neitt ný- mæli að ræða. Alþingi hefur ekki sjaldnar en 25 sinnum siðan 1956 talið sig knúið til að gripa inn i launasamninga með einum eða öðrum hætti. Lúð- vik Jósefsson formaður Alþýðubandalagsins hefði hafið ráðherraferil sinn i vinstri stjórninni sem fór með völd á árunum 1956-1958 með þvi að binda verðbætur á laun i þrjá mánuði. Ráðherraferli sin- um i vinstri stjórninni, sem fór með völd á árunum 1971-1974 lauk Lúðvik með þvi að fella niður verð- bætur á laun i marga mánuði. Þó þolir hann ekki samjöfnuð við Gylfa Þ. Gislason i þessum efnum. Árið 1959 lét minnihlutastjórn Alþýðuflokksins, en Gylfi var einn af ráðherrum hennar, lögfesta veru- lega launalækkun. Einu ári siðar lét viðreisnar- stjórnin.en Gylfi var einn af ráðherrum hennar lögbanna visitölubætur á laun. Rétt er að geta þess að Benedikt Gröndal núv. formaður Alþýðuflokks- ins greiddi atkvæði með umræddum lögbinding- um, en hann átti sæti á þingi i bæði skiptin. Þannig mætti rekja þetta áfram. Efnahags- frumvarp rikisstjórnarinnar er þvi ekki neitt ný- mæli, heldur hafa leiðtogar núverandi stjórnarand- stöðu margsinnis stutt hliðstæðar ráðstafanir þegar þeir hafa metið það nauðsynlegt eins og rikisstjórnin gerir nú til að hindra atvinnuleysi og enn meiri kjaraskerðingu, sem ella kæmi til sögu. Osammála um flest Þótt helztu stjórnarandstöðuflokkarnir, Alþýðu- bandalagið og Alþýðuflokkurinn hafi reynt að hafa samstöðu gegn efnahagsfrumvarpi rikisstjórnar- innar hefur eigi að siður komið i ljós, að þeir eru ósammála um flesta hluti. Tómas Árnason rifjaði þetta upp i útvarpsumræðunum i fyrrakvöld. Tómas sagði: ,,Gylfi Þ. Gislason hefur lýst yfir að gengislækk- un hafi verið óumflýjanleg eins og ástatt er. Lúð- vik Jósepsson fordæmir hins vegar gengislækkun- ina og telur hana ekki koma til greina. Lúðvik Jósepsson telur það hrein fjörráða við launþega að taka óbeina skatta út úr visitölunni og hefur um það stór orð. Um það atriði sagði Gylfi Þ. Gislason i þingræðu sem jafnframt var útvarpað i nóvem- ber s.l.: ,,Hlutdeild launþega i vaxandi þjóðartekj- um mætti tryggja með þvi að tengja laun þeirri visitölu um þróun þjóðartekna.” Hér kemur fram að Gylfi Þ. Gislason er i grundvallaratriðum sam- mála þeirri stefnu að taka óbeina skatta út úr visi- tölunni og meira en það.” Fleiri dæmi mætti nefna þessu lik að utanrikis- málunum ógleymdum. Það yrði þvi meira en skrýtin sambúð ef Alþýðubandalagið og Alþýðu- flokkurinn reyndu að vinna saman. Hua Kuo-feng skipta. Margt bendi til að hann sé snjallari baktjaldamaöur en Teng. Þær ágizkanir, að Tengveiti þó beturi valdatafl- inu, eins og er, byggjast eink- um á veggspjöldum, sem oft þykja fyrirboði þess, sem er i vændum. Þannig hafa tveir menn, sem hófust til valda i menningarbyltingunni og voru um skeið nánir samstarfs- menn "óþokkanna fjögurra”, orðið fyrir hörðum ádeilum á veggspjöldum að undanförnu. Þessir menn eru þeir Wu Teh borgarstjóri i Peking, og Chen Hsi-lien, sem er yfirmaður hersins i Pekingumdæminu. Teng er talinn vantreysta þeim báðum. Hua er hins veg- ar talinn halda verndarhendi yfir þeim. Þriðji maðurinn sem einnig hefur verið gagn- rýndur á veggspjöldum er Wang Tung-hsing en Hua virð- iststyöja hann. Wang var yfir- maður öryggissveita Maos og margir eiga honum það að Hua bar sigur úr býtum i lokaátökunum við „þorparana fjóra”. Wang lét fangelsa „þorparana fjóra” áður en þeir áttu sér sliks von. Fyrir þetta er Hua honum þakklátur og lét kjósa hann einn af fjór- um varaformönnum flokksins á þingi Kommúnistaflokksins siðastl. sumar. Teng hefur hins vegar ekki gleymt þvi að það var Wang sem lét fangelsa hann og ýmsa félaga hans sem féllu i ónáð á dögum menningarbyltingarinnar. SÉNNÍLEGA skýrast þessi mál ekki til fulls fyrr en þjóð- ingið kemur saman. Gert er ráð fyrir, að þar verði sam- þykktar itarlegar ályktanir, sem marki verulega stefnu- breytingu bæði i efnahagsmál- um og menningarmálum. Lík- legt þykir að þær verði i anda Tengs. Þá er þvi spáð, að for- setaembættið verði endur- reist, en ekki hefur verið skip- að i það siöan Liu Chao-chi féll i ónáð lijá Maó og var vikið úr þvi. Liu hafði reynt aö koma Maó frá völdum og haföi Maó þvi svo illan bifur á forseta- embættinu að hann lét þaö óskipað. Sumir fréttaskýrend- ur gizka á, að Teng ætli sér forsetaembættið og mun Hua getaö samykkt það, ef það verður ekki valdamikið. Aðrir telja, að Teng hafi meiri áhuga á forsætisráöherra- embættinu, en þaö reyndist mjög valdamikið meöan Chou En-lai gegndi þvi. Hua gegnir þvi nú, ásamt starfi flokks- formanns. Margir telja það of- vaxið einum manni að gegna báðum þessum störfum, en Huaertalinn vilja gegna þeim báðum, unz hann hefur treyst völd sin betur. Teng hefur, sið- an hann var endurreistur i annað sinn i júli siðastl. gegnt embætti fyrsta varaforsætis- ráðherra og talið er, aö hann hafi raunverulega gegnt forsætisráðherraembættinu, þvi Hua hefur haft nóg að gera sem flokksformaður. Þessa aðstööu er Teng talinn hafa notfært sér vel til þess að koma fylgismönnum sinum i ’ veigamikil embætti. ÞAÐ ER talið liklegt, að þjóðþing Kína verði hvatt saman á þessu ári. Frétta- skýrendur hafa átt von á að búið væri að boða til þingsins fyrir nokkru, en það hefur dregizt og virðast ástæður ekki augljósar. Skýring sumra fréttaskýrenda er sú, að drátt- urinn stafi af valdabaráttu, sem fari fram bak við tjöldin. Sennilegasta skýringin þykir sú, að barátta þessi standi milli þeirra sem féllu i ónáð á dögum menningarbyltingar- innar svonefndu, en hafa nú hafizt til valda aftur, oghinna, sem hófust til aukinna áhrifa i skjóli menningarbyltingarinn- ar og studdu "óþokkana fjóra” til siðustu stundar, eða þangað til þeir snerust á sveif meðHua formanni og réðu þvi endanlega, að hann varð hlut- skarpari i valdataflinu en "óþokkarnir fjórir”. Teng er forustumaður þeirra, sem féUu i ónáð á dögum menning- arbyltingarinnar,. Þeir eru taldir vilja ryðja úr vegi sem flestum þeirra, sem þá hófust til valda og voru um skeið bandamenn "óþokkanna fjög- urra”. Hua er hins vegar tal- inn beita sér gegn þessu, enda á hann sumum þessara manna það að þakka, að hann valdist tiltölulega ungur og óvænt til forustu, þvi að þeir töldu hann standa heldur sin megin. Hann virðist frekar telja sig hafa styrk af þeim en hið gagn- stæða. Teng telur sig hins veg- ar ekki öruggan i sessi meðan þessir menn gegna áhrifa- stöðum. Hann minnist þess að þessir menn áttu þátt i þvi ásamt „óþokkunum fjórum”, að hann féll i annað sinn i ónáð hjá Maó vorið 1976, þegar al- mennt hafði verið búizt við þvi að hann yrði eftirmaður Chou En-lais sem forsætisráðherra og annar mesti valdamaður Kina. Teng vill ekki eiga á hættu að slik saga endurtaki sig. SITT HVAÐ þykir benda til þess, að Teng veiti betur eins og er. Hann hefur það fram yfir Hua að vera meiri hugs- uður. Þær breytingar sem nú eru að verða á stefnumálum rikisstjórnarinnar, virðast flestar komnar frá Teng og mótaðar af honum. En Hua virðist laginn samningamaöur og tækifærissinni, ef þvi er aö Teng Hsiao-ping ERLENT YFIRLIT Valdabarátta háð bak við tjöldin í Peking Teng virðist styrkja sig á kostnað Hua Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.