Tíminn - 16.02.1978, Blaðsíða 11

Tíminn - 16.02.1978, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 16. febrúar 1978 11 SEYÐISFJÖRÐUR Geysimikil uppbygg ing síðustu árin Hér hefur veriö geysileg upp- bygging siðustu árin, sagði Jónas Hallgrimsson bæjarstjóri i samtali við Timann. Á siðasta ári bættist nýr skuttogari i flot- ann, en áður voru hér tvö tog- skip og einn togari, sem sáu um hráefnisöflunina. Teljum við að nú sé búiðað sjá velfyrir undir- stöðunni, sem er hráefnisöflun Hér eru tvö frystihús vel búin tækjum og tvær bræðslur. Af- köst Hafsildar hafa nú verið aukin um helming og geymslu- rými verksmiðju S.R. hér á Seyðisfirði hafa verið aukin um 6 til 7 þúsund lestir. A þessari vertið er ráðgert að reyna að geyma loðnuna i allt að tvo mánuði, og takist það má lengja vinnslutima verksmiðjunnar verulega. Norðmenn hafa af þessunokkrareynslu og teljaað unnt sé að geyma hráefnið þetta lengi. Hér höfum við fleiri fram- leiðslufyrirtæki. T.d. eru starf- ræktar tvær vélsmiðjur á Seyðisfirði. b.e. Vélsmiðja Seyðisfjarðar og Vélsmiðjan Stál. Báðar þessar vélsmiðjur hafa verið i gjaldeyrissparandi nýsmiði, t.d. bátasmiði. Auk þessa eru hér trésmiðjur. Það má þvi segja að atvinnu- lif á Seyðisfirði sé fjölbreytt og orðið tryggt. Enda er það liðin tið, að fólk flykktist héðan burt i atvinnuleit. Hingað til hefur fólksfjöldinn þó staðið i stað, en nú þegar atvinna er orðin örugg og samgöngur að batna er ég fullviss um að fólksfjölgun fer að eiga sér stað. MÓ. Jónas Hallgrímsson bæjarstjóri Stórkostlegar umbætur í stjórnartíð Framsóknar — segir Baldvin Trausti Stefánsson á Seyðisfirði bað eru alveg stórkostlegar umbæturnar, sem orðið hafa i félags- og atvinnumálum okkar Austfirðinga siðustu fimm til sjö árin, eða allt frá þvi að Fram- sóknarflokkurinn komst á ný i rikisstjórn að toknu 12 ára niðurlægingartimabili við- reisnarstjórnarinnar sálugu, sagði Baldvin Trausti Stefáns- son á Seyðisfirði i samtali við blaðamann Timans á dögunum. Sem dæmi um þessa miklu uppbyggingu get ég nefnt fjöl- margt og skal fátt eitt talið. A Hornafirði hefur frystihús verið byggt upp sem skapar gifurleg verðmæti og mjög stöðuga at- vinnu. A Djúpavogi er nýtt fisk- iðjuver i byggingu, og nýbyggt frystihús er á Stöðvarfirði. Þangað er lika kominn nýr skut- togari eins og til svo margra staða annarra, og hafa þessi skip gjörbreytt öllum afkomu- möguleikum fólksins. Þá hefur verið unnið að endurbyggingu atvinnulífsins á Breiðdalsvik, og þar er nýtt frystihús að taka til starfa, og stutt er siðan nýtt frystihús fór i gang á Fáskrúðsfirði. Þá hafa þingmenn Framsóknarflokks- ins og ráðherrar staðið af full- um krafti að endurbyggingunni á Norðfirði eftir stóráföllin sem þar urðu i snjóflóðunum. Hér á Seyðisfirði hafa verulegar endurbætur og vélvæðing farið fram i fiskvinnslustöðvunum og tveir skuttogarar eru nú gerðir út héðan. Þá hefur verið mikil starfsemi i skipa- og vélsmiði hér á staðnum og miklar stækkanir hafa verið gerðar á fiskimjölsverksmiðjunni. A Borgarfirði var ráðizt i byggingu á nýju bátalægi og stórkostlegar hafnarbætur eru nú að komast i gagnið á Vopna- firði. Þótt ekki sé fleira talið sést vel að gjörbylting hefur orðið hér á Austurlandi á þessum sjö árum, sem framsóknarmenn hafa verið við stjórnvöl hér i þessu landi. Og sé þetta borið saman við aðgerða- og úrræða- leysið i tið viðreisnarstjórnar- innar er þetta sem svart og hvitt. Það er þvi alger fásinna, sem Alþýðubandalagsmenn eru að reyna að koma inn hjá fólki, að hér hafi ekkert verið vel gert. Og þessi uppbygging kemur ekki aðeins Austfirðingum til góða, heldur færa þessi nýju at- vinnutæki stórkostlega björg i þjóðarbúið i heild. Samhliða þessari uppbygg- ingu i atvinnumálunum hefur Baldvin Trausti Stefánsson. verið gert stórátak i eflingu félagslegrar þjónustu hér á Austurlandi. T.d. er nú verið að hef jast handa um byggingu nýs sjúkrahúss hér á Seyðisfirði og stórfelldar endurbætur hafa verið gerðar á veginum yfir Fjarðarheiði og áfram verður haldið við það verk i sumar. Það er þvi ekki skrýtið, þegar allt þetta er skoðað, að okkur finnisthálf kynlegt, þótt ekki sé meira sagt, þegar gamanvisna- söngvarinn góðkunni, Helgi F. Seljan, er að hringja i menn og senda þeim skeyti um að hann hafi nú „reddað hinu eða þessu” eða ,,sér hafi tekizt að knýja fram fjármagn i þessa eða hina framkvæmdina”. Og dæmi höf- um við um að skeyti hafi borizt frá Helga um „mikilfenglegan framgang hans” i máli, sem við vitum að hann átti engan þátt i aðleysa. Hans hlutur var aðeins sá að fylgjast með hvaða dag málið fékk afgreiðslu og senda þá skeytið, sagði Baldvin Trausti að lokum. MÓ. Valgarður L. Jónsson frá Eystra-Miðfelli: Heilsuhæli N.L.F.Í. Hveragerði Getum þess góða Athygli okkar allra vekur um- ræða á opinberum vettvangi um það sem fólki likar miður. Hins er sjaldnar getið, sem gott telst. Það er víst orð að sönnu, að þeir hafa orðið, sem telja sig þurfa að kvarta, þeir ánægðu þegja þunnu hljóði. En væri ekki heillavænlegra að báðir hóparn- ir létu til sin heyra, eða þessar tvær hliðar málanna væru ræddar jörnum höndum yrði þá ekki meira tillit til málflutn- ings tekið og meiri árangur af umræðunni? Erindi mitt með þessum fáu linum, er að lýsa kynnum min- um af Heilsuhæii N.L.F.t. i Hverageröi. Þeir, sem hafa áhuga á fyrirmyndarstarfsemi i einu og öllu, ættu að koma hér. Mér hefur oft dottið i hug, að hingað ættu erindi fréttamenn fjölmiðla t.d. sjónvarps, með upptökutæki til að taka fólk tali, bæði starfsfólk og dvalargesti, myndatökutæki til að festa á filmu þá aðstöðu, sem hér er, ibúðir, borðsal, kapellu o.fl. Þetta stóra heimili er athygl- isvert fyrir frábærlega góöa þjónustu við dvalargesti i einu og öllu. Það fer ekki á milli mála, að hér ræður húsum það húsbóndavald, sem ræður vel við hlutverk sitt. Það yfirvald, sem nýtur fullrar hylli allra þeirra sem hér vinna, eöa svo hljótum við gestir að álita, þvi það er sama á hvaða starfeþátt heimilisins er litið alls staðar er umhyggjan fram úr skarandi vel af hendi leyst. Hér virðist rikja einhugur allra.um að gera alla hluti vel. Fleira vekur eftirtekt, það er þetta alúðlega viðmót allra, sem hér vinna. Eftir þau kynni, sem ég hefi af þessu góða fólki, hlýt ég að álita þessi mál á þann veg, að hér ráði foringi rikjum, san nýtur fullrar virðingar og vináttu starfsfólks, mikið má sá maður vera hamingjusamur, vonandi væri að sem flestir mættu við slikt atlæti búa. Það fer ekki fram hjá augum okkar dvalargesta hér, að hver maður er starfa sinum vaxinn á heimil- inu, i fljótu bragði séö. Eitt er það, sem sannar að svo muni vera, það er þetta glaða hlýja viðmót allra, þaö leiðir svo af sér að gestir verða glaðir og góðir i umgengni og allri við- kynningu, svoþað aðöllum llður hér vel. Hér er vel fyrir öllu séð: margþættri læknisþjónusta til að likna þreyttum, lækna gigt, æf- ingar eftir stórar aðgerðir, böð, sund, nudd, ljós og margt fleira. En það er einnig séð fyrir sálar- heilsu: yfirlæknir gáfaður fjöl- hæfur maður, flytur okkur fróð- leik á hverju miðvikudags- kvöldi, oft athyglisverð erindi, sem ber að virða og þakka, þá sezt hann sjálfur við hljóðfærin, til skiptis, því hann er vel hlut- gengur listamaður, hefur gleð- ina á loft með því að fá glaða gesti til að syngja fögur lög við ættjarðarljóö og sálma. Þannig skilur hann við dvalargesti lífs- gla ða o g á nægða a ð kvöldi dags. Á fimmtudögum eru svo hinar vinsælu kvöldvökur meö fjöl- breyttu efni, oft frá dvalargest- um, en stundum hljómar hinn fagri söngur stjórnandans, Ingi- bjarts Bjarnasonar, sem allra hylli nýtur fyrir drengskap við alla og frábæra hæfileika við að gleðja aðra. Hann gerir öllum kvöldið ljúft og létt. Clt kom á siðasta áriplata með hans fagra söng. Hún varð aufúsugestur margra þeirra sem hér þekkja til og hafa góös af notið dvalar á þessum dýrðlega stað. A6 krist- inna manna sið lýkur gleöi kvöldsins með guðsorði og sálmasöng. Fer vel á þvi og ber það vitni þvi hugarfari, sem hér rikir innan veggja — afleiðing mannkærleika, sem við öll fáum af notið, á þessum friðhelga stað. Hér er séð fyrir flestu, bóka- safn, verzlun, aðstaða er lil að tefla og spila á spil, svo eitthvað sé nefnt. Samkomusalurinn er haganlega gerður, þar er að- staða til kirkjulegra athafna, reyndar er hér oft messað. Bænastofa er, sem nefnd er „ÞOGN”. Þeir sem eiga við sorg að striða geta þangað leit- að og fengið áheyrn. Annað „verelsi” er kallað „SYND”, — þangað leitar fólk með syndir sinar og brennir þeim i tóbaks- svælu. Enginn skyldi halda aö hér héngju uppi heiftugar fyrir- skipanir, þvert á móti, allt lát- laust. Það má h'ta tilkynningu, sem orðuð er svo „HÉR ER EKKI REYKT”, Þetta virða allir. Matur er hér mikill og fjöl- breyttur, vel framreiddur, smekklegur og góður, fýrir minn smekk og margra fleiri. Þeir sem ekki undir það taka, ef einhverjir eru, skulu hafa það hugfast aö við erum hér á heilsuhæli, þar sem vissar regl- ur gilda og þærber að virða. Viö skulum vera minnug þess, að hér eru góðar reglur I hásæti hafðar, það ber að þakka. Mér hefur fundizt leynd- ar-þögn hvila yfir þessari stofn- un, jafnvel gætir misskilnings sumra manna en þetta er af þekkingarleysi. Þegar við kynn- umst öllu betur hér, verður okk- ur lotning og þökk efst i huga. Og það sem eftirtekt vekur er hversu dvalarkostnaður hér er ótrúlega lágur, miðað við önnur dvalarheimili, sjúkrahús, svo ekki sé talað um hótel. Fólk hér, gestir, hafa~ sagt i min eyru, að það hafi prófað dvöl á hinum sólfögru suðrænu ströndum og svo hér, og það er ekki i nokkr- um vafa um i hvorn staðinn það fer — þessi verður fyrir valinu. Það sannast hér, að hægt er að gera stórt verk og fjölþætt fyrir mjög lágt gjald, hvort heldur er átt við dvalargjald, að hluta greitt af tryggingum eða án þeirra. Mér verður á að hugsa. Væri þetta ekki góð fyr- irmynd fyrir þjóðarheimilið okkar tslendinga, sem talað er um að sé að kollsteypast vegna skipulagsleysis? Væri ekki allur vandi leystur þar ef allt yrði vel skipulagt, öllu vel fyrir komið á látlausan og hógværan hátt, i engan ausið of miklu, en allir fengju nóg svo öllum gæti vel farnazt: Ætli verðbólgugrýlan gengiekki fljótt úr vistinni, þeg- ar búið væri að taka upp holla heimiíishætti? Það held ég. Hér eru allir sem vinir, starfsfólk og gestir, sem ofteru þeir sömu ár eftir ár og mér sýnist litil skipti i starfsliöi, þvi likar vist vistin. Já, hér svifur góður andi yfir vötnunum, þannig þyrfti það að vera á öll- um islenzkum heimilum. Við viljum heita friðelskandi fólk, eigum ekki i útistööum viö neinn, vopnlausir og höfum ekk- ertillt ihuga. Viö skulum vona, að þann góða manndóm megum við efla og varðveita um alla framtið. Ef þið eigið erfitt með að láta þær óskir rætast, leitið þá til N.L.F.I. i Hveragerði þar er góö fyrirmynd fyrir stóra sem smáa og öllum jafnvel tek- ið. Beztu þökk færi ég ykkur, elskulega fólk, fyrir góðu kynn- in frá okkur hjónum. Hveragerði 14. janúar 1978. Valgaröur L. Jónsson frá Eystra-Miðfelli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.