Tíminn - 08.03.1978, Page 4
4
Miðvikudagur 8. marz 1978
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
♦ ♦♦♦
í spegli tímans
Shetlandshesturinn
borgaði fyrir sig
Maður einn keypti af lóga hryssu af Shetlands-
kyniog bjargaði henni þar með frá sláturhúsinu.
Nýi eigandinn, Joseph Oeltscher, 68 ára gamall
svaf vært í húsinu sínu á bökkum Dónar í
nágrenni borgarinnar Passau, V-Þýzkalandi,
þegar árbakkarnir brustu i ofsalegu óveðri.
Smáhesturinn Freyja skynjaði að hætta var í að-
sigi. Enginn anzaði aðvörunarhneggi hennar í
hesthúsinu, svo að Freyja gamla fór á stúfana,
dró járnslána frá hurðinni og stökk til íbúðar-
hússins. Hún barði á dyrnar með framhófunum,
en ekki vaknaði gamli maðurinn svoað hún braut-
framhurðina með afturfótunum og skokkaði inn.
Joseph vaknaði á stundinni, henti yfir náttfötin
hlýjum fatnaði. Honum heppnaðist að komast
undan flóðinu með Freyju til næsta þorps. Næsta
morgun fór Joseph til baka til hússins síns og sá
þá hvernig hans eigin örlög hefðu getað orðið, ef
hann hefði ekki bjargað sér í burtu. Rúmið hans
var á bólakafi i hringiðu vatnsins.
Nýliði
1
gamalli
iðn
Eva Zubrenic á engan sinn líka. Hún er sem sé
eini kvenkyns neminn í sótaraiðninni F Austurríki
Aðdragandi þess, að hún valdi sér þessa óvenju-
legu iðn, var sá, að í veizlu nokkurri veðjaði hún
um, að hún væri ekki lofthrædd. Til að vinna veð-
málið slóst hún í för með sótara einum, þegar
hann fór að vinna verk sitt á húsaþökum Vínar-
borgar — og komst að raun um, að henni leizt
bærilega á starfið. Eva er nú 19 ára og hefur það
verkefni að hreinsa u.þ.b. 10 strompa á viku.
Starfið er hreint ekki áhættulaust, auk þess sem
það þykir ekki sem hreinlegast. Einu sinni þurfti
hún að hanga í þakrennu í f imm mínUtur,áður en
starfsfélagi hennar kom henni til bjargar. Það er
því mjög eðlilegt, að Evu þyki gott að slappa af
heima með vínglas, eða við píanóleik að loknum
erfiðum vinnudegi. A meðfylgjandi myndum má
sjá Evu að störfum og leik.
með morgunkaffinu
— Jagast þú viö Gumma þarna hinum megin viö
boröiö. Ég var að tapa þér til hans.
— Ég er viss um aö staöurinn er góöur fyrir ykkur
Húsið er aöeins steinsnar frá I skólanum.
KUBBUR