Tíminn - 08.03.1978, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 8. marz 1978
Landssmiðjan
SöLVHÓLSGÖTU-101 REYKJAVIK-SlMI 20680 TELEX 1307
METALOCK
Mjög góö aðferð, þegar gera skal við sprungur eða
brotna vélahluti úr járnsteypu, stáli og áli.
Höfuðkostir METALOCK viðgerðar eru þeir að hana
má jafnan framkvæma á skömmum tima og
á staðnum. Reynslan hefur sýnt að aðferðin hefur orðið
til mikils gagns hér á landi, þar sem oft vantar vara-
hluti í stærri vélar og tæki.
IÉ M-i gÉii
Bila-, skipa- og vinnuvélablokkir, trésmíðavélar, rennibekkir, dælur,
túrbinur, jarðýtur og fleira.
Nemendur
Samvinnuskólans
útskrifaðir 1923, 1933, 1943, 1953, 1963, 1973
Þar sem Árbók IV er nú að fara i prentun
eru nemendur úr þessum bekkjum, sem
þurfa að koma að leiðréttingum eða viðbót
við upplýsingar þær sem þeir hafa sent i
bókina, beðnir að gera það fyri
15. marz, n.k. i sima 2-19-44 i Hamragörð-
um eða til ritstjóra i sima 3-31-42.
Nemendasamband Samvinnuskólans.
Laus staða
Staöa deildarstjóra dýrafræöideildar Náttúrufræöistofn-
unar tslands er laus til umsóknar.
Samkvæmt lögum nr. 48/1965, um almennar náttúrufræöi-
rannsóknir og Náttúrufræðistofnun tslands, skal deildar-
stjóri dýrafræöideildar vera sérfræðingur I einhverri
þeirra aöalgreina, sem undir deildina falla og hafa lokiö
doktorsprófi, meistaraprófi eöa ööru hliöstæðu háskóla-
prófi i fræðigrein sinni.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir sendist menntamálaráöuneytinu fyrir 8. apríl
1978, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Menntamálaráðuneytið,
6. mars 1978.
Uppboð
Eftir kröfu Hestamannafél. Fáks fer fram opinbert upp-
boð fimmtudag 16. marz 1978 kl. 17.00 viö efri hesthús
Fáks að Viðivöllum viö nýja Skeiövöllin og veröa eftirtalin
hross seld:
1. Rauðblesóttur hestur ca 3 vetra, mark: fjööur aftan
hægra.
2. Hvitur hestur, gamall.
3. Brúnn hestur 8—9 vetra, mark: heilrifað hægra.
4. Leirljós hestur, ungur, með langri stjörnu.
5. Leirljós hestur ca 5 vetra, mark: stig framan hægra.
6. Dökkjarpur hestur, styggur.
7. Jarpur hestur ca 3 vetra.
8. Jarpur hestur ca 10—12 vetra.
9. Jarpt mertryppi með stjörnu.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn I Reykjavik.
EINANGRUNARDEILD VINNUHÆLISINS AÐ LITLA-HRAUNI
L - —-
GÆZLUVARÐHALDSFANGELSl VIÐ TUNGUHÁLS
Dómsmálaráðuneytið tek-
ur allar ákvarðanir um
fullnustu refsidóma
Að unöanförnu hefur
verið unnið að þvi á vegum
dómsmálaráðuneytisins að gera
nokkrar skipulagsbreytingar á
sviði fangelsismála hér á landi.
Skipta má þessum breytingum i
þrennt og eru þessar helztar:
Tekin er til starfa fangelsis-
máladeild dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins. Jafnframt
flyzt fullnusta á refsidómum til
ráðuneytisins.
Hafin er bygging 10 manna
einangrunardeildar að
Litla-Hrauni og bygging nýs
gæzluvarðhaldsfangelsis viö
Tunguháls i Reykjavik. Er áætl-
að framkvæmdafé á þessu ári
um 260 milljónir.
Þá hafa og verið gerðar ýms-
ar skipulagsbreytingar á rekstri
fangelsanna i Reykjavik.
1. Yfirstjórn
Hinn 9. nóvember sl. voru
staðfestar starfsreglur fyrir
fangelsismáladeild dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins, sem
tók til starfa 1. marz sl. Deild
þess á að fara með yfirstjórn
fangelsismála i landinu.
Jafnframt er gerð sú breyt-
ing með setningu reglna
þessara, að fullnusta á refsi-
dómum (öðrum en varðhalds-
dómum fyrir ölvunarakstur)
flyzt frá yfirsakadómara i
Reykjavik, bæjarfógetum og
sýslumönnum, til ráðuneytisins,
þannig að framvegis tekur
ráðuneytið sjálft aUar ákvarð-
anir, er varða fullnustu þessara
dóma. Markmiðið með þessari
breytingu er einkum það að
samræma fullnustu á fangelsis-
dómum og öðrum refsivistar-
dómum, en hin siðari ár hefur
það orðið æ algengara að dómar
áeinn og sama mann hafi verið
til fullnustu hjá fleiri en einu
embætti og hefur af þvf hlotizt
nokkurt óhagræði og jafnvel
ósamræmi.
DeUdarstjóri fangelsismála-
deildar verður Jón Thors.
1 starfsreglum fangelsismála-
deUdarinnar er að finna annað
nýmæli. Það er stofnun nefndar,
sem ætlað er að láta i ljós álit á
öUum umsóknum um reynslu-
lausn, náðun á refsingu og upp-
reisn æru. Ráðherra skipar I
nefnd þessa þrjá menn til
tveggja ára i senn. Hlutverk
nefndarinnar er að meta það,
hvort umsækjendur teljist hæfir
tilaðfá reynslulausn,náðun eða
uppreisn æru. Gert er ráð fyrir
þvi aðstarfsmenn fangelsismála-
deildar leggi fyrir nefndina öll
tiltæk gögn varðandi umsækj-
endur, svo að nefndin geti látið i
té rökstutt álit. Umsögn nefnd-
arinnar skal vera skrifleg, en er
ekki bindandi, heldur einungis
ráðgefandi fyrir ráðherra.
Nefnd þessi hefur nú nýlega
verið skipuð og eiga sæti i
henni: Jónatan Þórmundsson,
prófessor, sem jafnframt er for-
maðui nefndarinnar, Ólafur
Ólafsson landlæknir og Jónas
Jónsson, lögregluvarðstjóri og
formaður Landssambands is-
lenzkra lögreglumanna.
2. By ggingafram-
kvæmdir
1 haust var hafin bygging ein-
angrunardeildar við Vinnuhælið
að Litla-Hrauni. Er um að ræða
viðbyggingu sem rúma á 10
fanga i tveimur aðskildum álm-
um. Deild þessi er einkum ætluð
erfiðum föngum, sem brotið
hafa gegn reglum vinnuhælisins
svo og föngum sem öryggis
vegna er talið nauösynlegt aö
hafa i strangari gæzlu en ella.
Aætlað er að bygging þessi kosti
u.þ.b. 80-90 millj. kr., en reynt
verður að draga úr byggingar-
kostnaði með þvi að nýta að ein-
hverju leyti vinnuafl þeirra
vistmanna sem dvelja á hælinu.
Nú á næstunni verður boðin
út vinna viö grunn og botnplötu
nýs gæzluvarðhaldsfangelsis
sem risa á viö Tunguháls i
Reykjavik. Sú bygging á að
leysa af hólmi Hegningarhúsið
við Skólavörðustig og fangelsið
að Siðumúla 28 og gegna hlut-
verki sem aðalgæzluvarðhalds-
fangelsi landsins. Stærö hússins
er um 13 þús. rúmmetrar og á
það að rúma 52 fanga. Bygging
þessa fangelsis er orðin mjög
brýn, þar sem Hegningarhúsið
og Siðumúlafangelsið uppfylla
hvergi nærri þær kröfur sem
gera verður til gæzluvarðhalds-
fangelsa nú á dögum. Hér er um
að ræða langstærstu fram-
kvæmd á sviði fangelsismála
siðan Hegningarhúsið var reist
fyrir liðlega 100 árum. Unnið
hefur verið að undirbúningi að
byggingu hins nýja gæzlu-
varðhaldsfangelsis siðan á
árinu 1971.
A síðastliðnu ári var lokið við
að ganga frá þeim hluta lög-
reglustöðvarinnar á Akureyri
sem ætlaður er afplánunarföng-
um. Þesser vænzt að deild þessi
verði tekin i notkun innan
skamms, en þar verður rúm
fyrir 5-6 fanga.
Þá var reistur vinnuskálii við
Vinnuhælið á Kviabryggju á
siðastliðnuári. Iþeimskálaá að
geyma hluta af framleiðslu
vinnuhælisins einkum neta-
steina og gangstéttarhellur.
Til framkvæmda i fangelsis-
málum eru á fjárlögum yfir-
standandi árs veittar alls 100
millj. kr., en auk þess eru
væntanlega til ráðstöfunar 60-70
millj., sem ekki voru nýttar af
fjárveitingu á f járlögum siðasta
árs. Þá er i fjárlögum yfirstand-
andiárs veitt heimild til að taka
að láni allt að 100 millj. kr. til
framkvæmda á þessu sviði.
3. Skipulag og rekstur
Skipulag og rekstur fangelsa
og vinnuhæla hefur að mestu
leyti verið i sömu skorðum und-
anfarin ár. Á siðastliðnu sumri
voru þó settar reglur um nýt-
ingu fangelsanna i Reykjavik.
Samkvæmt þeim reglum á
fangelsið að Siðumúla 28 að
gegna hlutverki gæzlu-
varðhaldsfangelsis en i
Hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustig skal vista þá sem eru
að hefja afplánun refsingar og
þá sem afplána varðhaldsdóma
til skemmri tima svo og gæzlu-
varðhaldsfanga sem vista þarf
um lengri tíma en ekki þurfa
einangrunar við og á sama hátt
og tiðast er um gæzlu fanga. t
fangageyslunni i lögreglu-
stöðinni við Hverfisgötu á aftur
á móti að vista þá sem hand-
teknir eru vegna brota á
áfengis- eða fikniefnalöggjöf
eða fjarlægja þarf vegna
óspekta á almannafæri eða af
öðrum ástæðum.
Auglýsið í TÍMANUM