Tíminn - 08.03.1978, Side 15
Miövikudagur 8. marz 1978
15
[Iþróttir
Ellert B. Schram farinn til Svibióöar
Halmía krefst 2
millj. króna fyrir
Matthías
SOS-Reykjavík. Ellert B. Schram, formaður K.S.Í., er
nú staddur í Svíþjóð og mun hann nota tækifærið til að
ræða við forráðamenn sænska 2. deildarliðsins Halmía,
en með því liði lék Skagamaðurinn Matthías Hallgríms-
son sl. sumar. Ástæðan fyrir því að Ellert mun ætla að
ræða við forráðamenn félagsins er sú, að þeir hafa kraf-
izt 2 millj. kr. af Skagamönnum — fyrir Matthías, sem
hefur ákveðið að leika með Akranes-liðinu í sumar.
Halmía telur að Matthías sé skuldbundinn félaginu.
Ellert mun freistast til aö fá
forráðamenn Halmia ofan af
þessum kröfum, sem eru vægast
sagt afar einkennilegar. Þess má
geta, að ekki greiddi Halmia
Akranesi neina peningaupphæð
þegar Matthfas hóf að leika með
þvi félagi.
Jón Pétursson
Framarar neita að skrifa
undir
Forráðamenn Fram hafa skrif-
að K.S.Í. bréf, þar sem þeir til-
kynna sambandinu, að þeir ætli
ekki að skrifa undir félagsskipti
þeirra Jóns Péturssonar og Arna
Arni Stefánsson
Neita Fram-
arar að skrifa
undir félags-
skipti Jóns
og Árna?
Stefánssonar til Jönköping i Svi-
þjóð, nema að það verði getið um
það i félagsskiptum þeirra, að
þeim sé frjálst að leika með is-
lenzkum félagsliðum þegar þeir
koma heim aftur, án þess að.
peningakröfur verði settar.
Þarna eru Framarar að koma i
veg fyrir að Jönköping leiki sama
leikinn og Halmia er að leika
gagnvart Skagamönnum og
Matthiasi Hallgrimssyni.
Landsliðið hefur forgang
Þá hefur K.S.Í. tilkynnt Jön-
köping, aö það sé krafa frá sam-
bandinu,aðþeir Jónog Arni geti
komið til Islands og leikið með is-
lenzka landsliðinu þegar þess er
óskað. Þarna er stjórn K.S.Í. að
reyna að koma i veg fyrir sams-
konar framkomu stjórnar Jön-
köping og sl. keppnistimabil, þeg-
ar félagið neitaði Teiti Þórðar-
syni að leika með islenzka lands-
liðinu.
ÍR réð ekki við
varnarleik FH . .
— og Hafnarfjarðarliðið sló ÍR-inga
út úr bikarkeppninni í gærkvöldi — 17:14
FH-ingar slógu IR-inga út
úr bikarkeppninni í hand-
knattleik í gærkvöldi, þeg-
ar þeir mættust í 16-liða úr-
slitunum í Hafnarfirði í
gærkvöldi. IR-ingar börð-
ust grimmt, en þeir urðu að
gefa eftir á lokasprettin-
um — FH-ingar voru þá
sterkari og tryggðu sér sig-
ur, 17:14.
Það var sterkur varnarleikur
FH-liðsins sem skóp sigur þeirra
— þeir léku 4-2 i vörninni og áttu
IR-ingar erfitt að finna svar við
þeirri leikaðferð. FH-ingar byrj-
uðu leikinn mjög vel og náðu
fimm marka forskoti fyrir leik-
hlé, 9:4. IR-ingar mættu aftur á
móti ákveönir til leiks i siðari
hálfleik og náðu að jafna 13:13 og
var staðan þannig um langan
tima.
FH-ingar náðu sér þó aftur á
strik undir lokin og tryggðu sér
sigur — 17:14. Magnús Ólafsson
lék i nr.arki FH-liðsins loka-
minúturnar, eftir að hafa þurft að
fara út af i byrjun leiksins —-
meiddur. Hann varði hvað eftir
annað mjög vel, og lagði grunninn
að sigri FH-liðsins.
Geir Hallsteinsson átti mjög
góðan leik i gærkvöldi — hann
skoraði 5 mörk, þrátt fyrir að 1R-
ingar hefðu sett mann honum til
höfuðs allan leikinn. Þá var
Þórarinn Ragnarsson góður —
sérstaklega i vörninni, þar sem
hann lék stórt hlutverk. Jón Gest-
ur Viggósson lék að nýju með FH-
liðinu — skoraði 2 mörk, en ann-
ars skoruðu þessir leikmenn FH-
liðsins mörkin: Geir 5, Þórarinn 5
(2), Guðmundur Magnússon 3,
Tómas 2 og Jón Gestur 2. Janus
Guðlaugsson átti ekki góðan leik
— er greinilega i öldudal um þess-
ar mundir.
IR-ingar áttu allir jafnan leik —
þeir börðust vel, en réðu ekki við
varnarleik FH-liðsins. Jens
Einarsson átti enn einn stórleik-
inn i markinu — varði stórkost-
lega á köflum og sannaði að hann
er okkar bezti markvörður. Mörk
IR-liðsins skoruðu: — Vilhjálmur
5(3), Bjarni B. 2, Sigurður Gisla-
son 2, Jóhann Ingi 2, Brynjólfur 1,
Asgeir 1 og Arni 1.
GEIR...átti góðan leik gegn IR I
gærkvöidi.
Matthias Hallgrimsson
Þessar kröfur K.S.l. og Fram
eru skiljanlegar — þvi að með
þeim er verið að koma i veg fyrir
að sama sagan endurtaki sig,
þ.e.a.s. að Jönköping geti neitað
aö gefa þeim Jóni og Arna fri til
að leika með landsliðinu og aö
komiö verði i veg fyrir að félagið
geti farið fram á peningakröfur
fyrir þá, þegar þeir snúa heim
aftur.
> >
Stúdent-
ar unnu
Þróttara
— og endur-
heimtu
meistaratitil
sinn í blaki
Stúdentar endurheimtu ís-
landsmeistaratitil sinn i blaki
um helgina, með þvi að vinna
öruggan sigur (3:1) yfir
Þrótti, sem stöðvaði hina
frækilegur sigurgöngu Stúd-
cnta i fyrra. Þetta var i
fimmta sinn siðan 1971 aö
Stúdentar tryggja sér tslands-
meistaratitilinn i blaki.
Þróttarar byriiuðu af mikl-
um krafti gegn Stúdentum —
unnu sigur 15:9 i fyrstu hrin-
unni, eneftir það fóruStúdent-
ar i gang — þeir léku vel og
unnu næstu tvær hrinurnar
15:11, og i lokahrinunni komu
yfirburöir þeirra bezt i ljós, en
þar unnu þeir stórsigur yfir
Þrótturum — 15:8.
-
Halldór og
Gísli éru
’ * í
ósigrandi
Urðu öruggir meistarar á
Meistaramóti Islands í júdó
Júdókapparnir Halldór Guð-
björnsson og Gisli Þorsteinsson
úr JFR eruósigrahdi í júdó — það
sýndu þeir á tslandsmeistar-
amótinu i júdó, sem fór fram um
sl. helgi. Halldór vann sigur yfir
ómari Sigurðssyni frá Keflavik i
71 kg flokknum, eftir spennandi
og harða viðureign.
Gisli varð öruggur sigurvegari i
95 kg flokknum. — Hann lagði
Benedikt Pálsson i úrslitaglim-
unni og hafði Gisli yfirburði, og er
greinilega okkar sterkasti júdó-
maöur.
Annars urðu þessir sigurvegar-
ar i hinum ýmsu ftokkum:
78 kg fl.: Kári Jakobsson, JFR
86 kg fl.: Bjarni Friðriksson, Ar-
mannai
60 kg f 1.: Þórarinn Ólafsson,
UMFK
65 kg fl.: Sigurður Pálsson, JFR
95 kg og þyngri: Sigurður Jó-
hannsson, JFR
Svavar Carlsen gat ekki tekið
þátt i keppninni, þar sem hann
meiddist á æfingu i sl. viku.
Meistaramótið heldur áfram
um næstu h elgi — þá veröur keppt
i opnum flokki karla og kvenna og
unglingaflokkum.
Heppnin ekki
með N aumann
— sem missti af sínum fyrsta
landsleik. V-Þjóðverjar mæta
Hússum í kvöld
Herbert Naumann hinn efnilegi
leikmaður 1. FC Köin hafði
heppnina ekki með sér — þvi að-
cins sólarhring eftir að hann var
valinn til að leika sinn fyrsta
landsleik i knattspyrnu fyrir
V-Þýzkaland þá meidsist hann
— og mun hann ekki leika með
heimsmeisturunum vináttu-
landsleik gegn Rússum i Frank-
furt I kvöld.
Helmut Schön einvaldur
v-þýzka liðsins valdi Bernd
Hölsenbein frá Frankfurt i hans
stað. Schön er greinilegaað leita
fyrir sér með v-þýzka liðið —
hann lætur Manfreð Kaltz, sem
hefur leikið miðvörð með góöum
árangri i stöðu bakvarðar og
Bernhard Dietz tekur stöðu
hans sem miðvörður.
Annars er v-þýzka liðið skipaö
þessum leikmönnum:
Maier (Bayern) Kaltz (Ham-
burger SV), Vogts (Mönchen-
gladbach) Ruessmann (Schalke
04), Dietz (Duisburg) Bonhof
(Mönchengladbach) Flohe
(Köln), Hilzenbein (Frankfurt)
Abramczik (Schalke 04) Fisch-
er (Schalke 04) og Rummenigge
(Bayern).