Tíminn - 14.03.1978, Side 8
8
Þriöjudagur 14. marz 1978.
Siðasta flokksþing var háð
nokkrum mánuðum eftir að nii-
verandi stjórn var mynduð eða
um miöjan nóvember 1974. Þá
var þvi lftil reynsla fengin af
stjórnarsamstarfinu, og eigi séð
hversu til mundi takast um fram-
kvæmd þess stjórnarmyndunar-
samnings sem gerður var sið-
sumars 1974. Mér þykir þvi rétt
að byr ja á þvi að rif ja hann stutt-
lega upp og athuga hvernig
reynslan hefur orðið.
Eins og oft vill verða hefur eigi
tekizt að ná öllum þeim mark-
miöum sem stefnt var að. En ekki
verður véfengt að margt hefur
verið framkvæmt samkvæmt
áætlun og margt hefur þokazt i
rétta átt.
1 stefnuyf irlýsingu rikis-
stjórnarinnar frá 29. ágúst 1974er
megináherzla lögð á atvinnu-
öryggi, byggðastefnu, bætta
gjaldeyrisstöðu, fjármál rikis og
fjárfestingars jóða, orkumál,
utanríkis- og öryggismál hemlun
verðbólgu og góð lifskjör almenn-
ings, að ógleymdri landhelgisút-
færslunni sem var auðvitað eitt
aðalstefnumark rikisstjórnarinn-
ar.
Skal nú i örstuttu máli vikið að
hverja þessara stefnuatriða fyrir
sig og kannað hver árangur hefur
náðst. Ég nefni fyrst stærsta mál-
ið — stækkun landhelginnar.
Landhelgismálið
— afrek tveggja
rikisstjórna
1 stefnuyfirlýsingunni segir svo
um landhelgismáliö:
„Rikisstjórnin mun fylgja fram
ályktun Alþingis frá 15. febrúar
1972 um útfærslu landhelginnar i
50 sjómilur.
Stefna rikisstjórnarinnar er að
færafiskveiðilandhelgi Islands Ut
i 200 sjómilur á árinu 1975 og hefja
þegar nauðsynlegan undirbúning
þeirrar útfærslu. Jafnframt verði
áherzla lögð á nauðsynlega friðun
fiskimiða og fiskistofna meö
skynsamlega nýtingu veiðisvæða
fyrir augum.”
Þar af er skemmst að segja að i
þessu lifshagsmunamáli þjóðar-
innar hefur settu marki verið náð.
Landhelgismálið er nú komið 1
höfn og að öllu leyti hefur verið
staðið við þau fyrirheit, sem gefin
voru i stjórnarsáttmálanum. Is-
lendingar hafa nú fengiö full for-
ráð á 200 sjómilna fiskveiðiland-
helgi og geta nýtt hana á þann
hátt sem skynsamlegastur er tal-
inn. Stækkun landhelginnar mun
skipta sköpum um framtið þess-
arar þjóðar um ókomin ár —
verða grundvöllur tilveru hennar
og sjálfstæðis. Maður hugsar til
þess með skelfingu hvað gerzt
heföi ef fyrrverandi rikisstjórn
hefði ekki hafizt handa og fært út i
50milur. Þá hefðu fiskimiðin ver-
ið gersamlega eyöilögð. Ot-
færslan mátti þvi sannarlega ekki
dragast lengur. Stækkun fisk-
veiðilandhelginnar kostaði mikla
baráttuennúersigur unninn. Ég
hygg, að landhelgismálið verði
óbrotgjarn minnisvarði bæöi
þessarar. og fyrrverandi rikis-
stjórnar. Þaö vegur þungt við út-
tekt á starfi núverandi rikis-
stjórnar og Framsóknarflokkur-
inn getur verið stoltur af skiptum
sinum af þvi máli bæði fyrr og
siðar. Og þaö mætti segja mér að
afrek Islendinga i landhelgismál-
inu yrðu i mannkynssögunni
nefnd sem dæmi um þau áhrif,
sem smáþjóð getur haft á fram-
vindu alþjóöamála.
Næg vinna og
byggöaþróun
Rikisstjórnin settisérþað mark
að koma í veg fyrir stöövun at-
vinnuvega og tryggja atvinnu-
öryggi og það má segja að það
hafi verið markmið númer tvö.
Þvi marki hefur veriö náð. Það
hefurtil þessa ekki veriö hægt að
tala um atvinnuleysi, þó að aldrei
verði girtfyrir það, að timabund-
inn og staðbundinn atvinnuskort-
ur getiáttsér stað. Það ernokkuð
ínnur mynd en blasir við hjá
lestum nágrannaþjóðum okkar
g reyndar hjá flestum Evrópu-
’ikjum, þar sem varanlegt og
verulegt atvinnuleysi hefur átt
sér stað, jafnvel upp i 8-10%.
Þetta er ekkert smáatriði þegar
borin eru saman efndir og fyrir-
heit stjórnarsáttmálans.
ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, flytur skýrslu sfna við upphaf flokksþingsins i fyrradag. Fremst á myndinni situr
þingritari, Jónas Gestsson i ólafsvik, næst honum þingforsetar, þau Agúst Þorvaldsson fyrrum alþingismaður á Brúnastöðum og Dagbjört
Höskuldsdóttir frá Stykkishólmi. Fjær sjást þeir Tómas Arnason alþingismaður, gjaldkeriFramsóknarflokksins, Eysteinn Jónsson, fyrr-
um formaöur fiokksins, og Þórarinn Þórarinsson ritstjóri.
Flokksþingsræöa Ólafs Jóhannessonar, formanr
Afrek Islendinga í landb
dæmi í mannkynssögun
Byggöaþróunin, sem hófst
árið 1971, árangur mark-
vissrar stefnu og ákveðins
vilja, er síðan hefur verið
fylgt fram
Hvað er að segja um boðaða
byggðaþróunarstefnu? Það vil ég
segja að hafi verið markmið nr.
þrjú. Um það efni segir m.a. svo i
stefnuyfirlýsingunni frá 29. ágúst
1974: „Byggðasjóður veröi efldur
og verkefni hans endurskoðuð i
þvi skyni að samræma aðgerðir i
byggðamálum og sett verði
heildarlöggjöf um þau efni.
Framlag til sjóðsins nemi 2% af
útgjöldum fjárlagafrumvarps.”
Það má i stuttu máli segja að
það hafi verið haldið áfram þeirri
byggðastefnu sem hafin var og
mótuð i tið fyrrverandi stjórnar
og hún efld og aukin I samræmi
við stjórnarsáttmálann m.a.
varðandi tekjuöflun til byggða-
sjóðs. Um árangur þessarar
stefnu þarfekki að fjölyrða. Hann
hafa mennfyriraugum,hvarsem
þeir fara um landið, ekki hvað
sizt i þéttbýlisstöðum viö sjávar-
siðuna. Sú breytingsem þar hefur
átt sér stað, er ævintýri likust.
Þar hefur straumnum verið snúið
við. Ég ætla ekki að fara um það
fleiri orðum en menn mega ekki
gleyma þvi, sem var; og þvi, sem
er. Menn mega ekki lita á það
sem átt hefur sér staö, sem sjálf-
sagðan hlut er gerzt hafi af sjálfu
sér. Nei, það er árangur mark-
vissrar stefnu og ákveðins vilja
og það er á engan hallað, þó að
sagtsé, að þar hafi Framsóknar-
menn verið i fylkingarbrjósti. Þvi
ættu menn ekki að gleyma.
Hitt er annað mál, að i þessu
efni verður aldrei náð neinu loka-
marki, þannig að menn geti
framvegis lagt hendur i skaut.
Það verður þvert á móti að vera
sifellt á verði og gripa inn i þar
sem atvinnuástand krefst að-
gerða. Það er þvi framvegis i
fullu gildi og á við er segir i
stjórnarsáttmálanum, að mörkuð
skuli stefna um það hvernig
hagað skuli áætlanagerð og fram-
kvæmdum, m.a. i eftirtöldum
greinum: Endurnýjun fiskiskipa-
flotans, endurbótum hraðfrysti-
húsanna, uppbyggingu vinnslu-
stöðva landbúnaðarins, þróun
iðnaðar, skipan ferðamála, opin-
berum framkvæmdum og
byggðaþróun i samráði við
sveitarfélög og samtök þeirra.”
Að þessum málum hefur verið
unnið en á þvi sviði er enn mikið
verk að vinna. Ég vil leggja
áherzlu á það af þvi að það má
ekki og á ekki að gleymast að i
þessum málum urðu svo alger
þáttaskil 1971 að lengi má eftir
svipuðu leita.
Erlendar skuldir
orðnar of miklar
Að þvi er varðar það markmið
að bæta gjaldeyrisstöðu má segja
að þokazt hafi i rétta átt, að þvi er
varðar minnkandi viöskiptahalla
i hlutfafii viö gjaldeyristekjur.
Samt hefur þar ekki verið náð
fullum jöfnuði. Þar þarf þvi að
gerabetur. Hinu er ekkiað leyna
að erlendar skuldir hafa hækkað
mjög á þessu timabili og meira en
hóf er á. Að visu verður aö taka
tillit til þess, að hækkun skuld-
anna i islenzkum krónum á að
nokkru rætur að rekja til gengis-
breytinga. En lántökur hafa verið
miklar. Þeim lánum hefur að visu
að langmestu leyti verið varið til
þarflegra framkvæmda, sem
margar hverjar verða ýmist
gjaldeyrisaflandi eða gjaldeyris-
sparandi og koma þvi væntanlega
til með að standa undir sér. En
erlendu skuldirnar eru orðnar of
háar og greiðslubyrði. þeirra
vegna verður þung næstu árin.
Þessvegna markaði rikisstjórnin
þá stefnu fyrir síðustu áramót að
á þessu ári skyldu erlendar
skuldir alls ekki hækka, þ.e.a.s.
að nýjar lántökur skyldu ekki
nema hærri fjárhæð en svaraði til
afborgana og vaxta eldri lána.
Þetta er spor i rétta átt. En vita-
skuld verður markvisst að stefna
að þvi að minnka skuldirnar og
draga úr greiðslubyrðinni.
Rikisbúskapur,
skattamál,
lánamál,
kjaramál
Að þvi er varðar hin ýmáu
ákvæði stjórnarsáttmálans um
fjármál rikisins og fjárfestingar-
sjóða, verður hreinskilnislega að
játa að það hefur ekki tekizt að ná
þeim meginmarkmiðum sem
stefnt var að. Þó hefur nokkuð
verið að þvi unnið i sumum tilfell-
um. Þau málefni sem i stjórnar-
sáttmálanum eru nefnd sérstak-
lega i' þessu sambandi eru m.a.
þessi: Hallalaus rekstur rikis og
annarra opinberra aðila, skipan
kjaramála, tekjuöflun rikis og
sveitarfélaga, lánamál og verð-
lagsmál.
Um skattamál segir m.a., að
tekinn skuli upp virðisaukaskatt-
ur og stefnt að staðgreiðslukerfi
skatta svo fljótt sem verða má.
Nú hefur verið tekin ákvörðun um
að stefnt skuli að þessum
breytingum innan tiltekinna
timamarka.
Um skipan lánamála segir
m.a.: Endurskoðað sé skipulag
og starfsemi fjárfestingarsjóða
og lánastofnana i þvi skyni að
tryggja eðlilega samræmda
starfsemi þeirra og hagkvæmni i
rekstri. 1 þvi sambandi komi
notkun verðtrygginga og vaxta til
athugunar m.a. i þvi skyni að
auka fjáröflun innanlands jafn-
framt þvi sem dregið verði úr er-
lendum lántökum. Segja má að
það sé í samræmi við þetta að
teknir hafa verið upp svokallaðir
vaxtaaukareikningar og verð-
trygging á nokkrum hluta vaxta,
svokölluðum verðbötaþætti, bæöi
á sparisjóðsinnistæðum og útlán-
um.
Um skipan kjaramála segir að
þar komi m.a. til skoðunar fyrir-
komulag á greiðslu visitöluupp-
bötar og vinnuaðferðir við gerð
kjarasamninga. Þessi stefnuat-
riði hafa ekki komið til fram-
kvæmda.
Um verðlagsmál var ákveðið
að undirbúin skyldi löggjöf um
verðmyndun viðskiptahætti og
verðgæzlu. Frumvarp um það
efni hefur verið samið, en ekki
verður á þessu stigi fullyrt hvort
það nær afgreiðslu á þessu stigi.
Stefna og
framkvæmdir
i orkumálum
Við þær aðstæður sem riktu
fyrir fjórum árum, þegar hin
gifurlega hækkun oliuverðs hafði
nýlega riðið yfir, var eðlilegt að i