Tíminn - 14.03.1978, Page 15

Tíminn - 14.03.1978, Page 15
Þriðjudagur 14. marz 1978. 15 STEINGRIMUR HERMANNSSON Á FLOKKSPINGI FRAMSÓKNARMANNA: Áfram þarf að tryggja samstarf launþega, atvinnurekenda og ríkis- valds um stefnuna í efnahagsmálum Á flokksþinginu flutti ritari Framsóknarflokksins, Stein- grímur Hermannsson, skýrslu um flokksstarfið. Hann rakti störf framkvæmda- stjórnar og hinnar almennu skrif- stofu flokksins. Þakkaði ritarinn hinu fámenna starfsliði mikil og ágæt störf. Fundarhöld hafa verið mjög mikil á vegum flokksins, bæði þingmanna, flokksfélaga og ráð- stefnur á vegum flokksins. Steingrimur Hermannsson rakti siðan störf nefnda og starfs- hópa, sem unnið hafa ötullega að undirbúningi þessa flokksþings og kosninganna. Hann gat þess, að þátttaka í nefndum hefði verið mjög mikil. Þær væru opnar og hafa komið til starfa fjölmargir einstaklingar, sem áður hafa ekki starfað með Framsóknarflokkn- um. Nefndi Steingrimur eftir- greinda starfshópa: Efnahagsmál, undir forustu Halldórs Asgrimssonar. Landbúnaðarmál, undirforustu Hákons Sigurgrimssonar. Sjávarútvegsmál, undirforustu Steingri'ms Hermannssonar. Iðnaðarmál, undir forustu Helga Bergs. Mennta- og fræðslumál, undir forustu Hauks Ingibergssonar. Félags-og heilbrigðismál, und- ir forustu Guðmundar Gunnars- sonar. Samgöigumál, undir forustu Halldórs E. Sigurðssonar. Flugmál, undir forustu Péturs Guðmundssonar. Markmiðanefnd undir forustu Steingri'ms Hermannssonar og Markúsar A. Einarssonar. Flestallir hafa þessir hópar skilað itarlegu áliti, sem liggja fyrir þinginu. Sérstaklega ræddi Steingrimur Hermannsson um álit markmiða- nefndar. Sú nefndu hefur starfað af miklum krafti i 1 1/2 ári. Hefur nefndin leitazt við að draga fram á skýran máta grundvallarstefnu flokksins, Framsóknarstefnuna, og tengt það viðhorfi ftokksins til nokkurra meginmálaflokka. Kvað Steingrimur Hermannsson mikinn áhuga hjá ungu fólki fyrir þessu starfi. Þá gat Steingrimur þess, að á vegum flokksins starfaði útgáfu- nefnd og skipulagsnefnd, sem vinnur að undirbúningi kosninga- starfsins. * Steingrimur Hermannsson ræddi siðan um störf flokksþings- ins og um starfsemi SUF, sem verður 40ára iár. Kvað hann þess verða vel minnzt. Ritarinn ræddi siðan um Tim- ann, sem hann kvaö eiga í nokkr- um erfiðleikum eins og dagblöðin flest. Taldi hann nauðsynlegt að fá samstilltari og ferskari forustu og opna blaðið meira fyrir mál- efnalegri þjóðfélagsgagnrýni og aðsendum kjallaragreinum. Að lokum ræddi Steingrimur Hermannsson um ýmsa mikil- væga áfanga sem náöst hafa i þjóðmálum á kjörtimabilinu og sagði m.a.: Landhelgismálið Ég vil fyrst nefnd langhelgis- málið. Með sigri i þvi náðist ein- hver stærsti áfanginn i sjálf- stæðisbaráttu þessarar þjóðar. Það er jafnframt rétt sem for- maður Alþýðuflokksins sagði i sjónvarpi i hitteðfyrra, sem var eitthvað á þá leiö, að samning- arnir, sem gerðir voru heföu sannarlega orðiö stórum lakari ef Sjálfstæðisflokkurinn einn hefði ráðið og Framsóknarmenn hefðu ekki haft þar hönd i bagga. Það var rétt. Við settum markið hátt Við kröföumst fullrar viðurkenn- ingar. Vil vildum fullan sigur, og hann náðjst, þótt ýmsir efuðust um að shkt væri unnt þá hrikti stundum i stjórnarsamstarfinu, en við Framsóknarmenn hvikuð- um hvergi frá sannfæringu okkar. Byggðamálin Ég vil einnig nefna byggðamál- in. Þar hefur verið haldið áfram á sömu braut og vinstri stjórnin markaði. Ber það augljósan vott um forustu okkar Framsóknar- manna. Þar hefur náðstgóður ár- angur. Dömsmálin. Fleira mætti tiunda, og vil ég vekja athygli manna á miklum umbótum i dómsmalum. Þetta virðist haía farið fram hjá ýms- um. Staðreyndin er sú, að dóms- málaráðherra okkar, Ólafur Jó- hannesson, hefur gert á þvi sviði slikt átak, að einsdæmi er. Efnahagsmál Ekki hefur tekizt að ráða viö verðbólguna, þótt sæmilega horfði i byrjun stjórnarsam- starfsins. Verðbólgan fór úr böndum og hefur undanfarna mánuði stefnt i mikinn voða, jafn- vel stöðvun og atvinnuleysi. Efnahagsmálin verða eflaust eitt meginviðfangsefni þessa þings. Við Framsóknarmenn verðum að marka okkur þar skýra stefnu. Draga verður verulega úr verö- bólguhraðanum og losna við hina ýmsu fylgikvilla hennar. Annars er hætt við að ann að sé unnið fyrir gýg i okkar þjóðfélagi. Ég ætla ekki að ræða efnahags- máhn almennt. Til þess gefst tækifæri siðar. Þó vil ég lýsa þeirri skoðun minni að við höfum fyrst og fremst brugðizt i þvi að grgia ekki nægilega snemma og kröftuglega i taumana þegar við sáum að i óefni stefni. Ég legg rika áherzlu á það að haldið verði áfram i þeirri viðleitni að tryggja samstarf launþega, atvinnurek- enda og riksivalds um stefnuna i efnahagsmálum. Hins vegar er Steingrfmur Hermannsson ritari Framsóknarflokksins, flytur skýrslu sina. Til vinstri við hann situr þingforseti Dagbjört Höskuldsdóttir frá Stykkishólmi. það óbifanleg skoðun min, að sér- hvert rikisvald verði að vera reiðubáið til þess að taka á sig þá ábyrgðað ákveða hvaða hækkan- ir launa og verðlags þjóðfél. þoli án óþolandi verðbólgu. Við höfum treyst um of á frjálsa samninga án þess að setja slikt hámark. Min skoðun er sú, að rikisvaldið verði jafnframt að vera reiðubú- ið til þess að gripa í taumana, jafnvel með lagasetningu, ef frjálsir samningar leiða til verð- bólgu umfram markmið. Þetta þarf öllum að vera ljóst áður en samningar eru gerðir. Á þessu sviði er ástandið orðið slikt i okk- ar þjóðfélagi, að ekki verður lengur haldið áfram á sömu braut. Róttækar aðgerðir og ákveðnar eru orðnar nauðsynleg- ar, sérstaklega ef við viljum forð- ast atvinnuleysi og rata hinn gullna meðalveg nægilegrar at- vinnu. Góðir Framsóknarmenn. Þótt margt sé markvert verður sið asta kjörtimabil ef tii vill mörg- um minnisstæðast fyrir þá rógs- herferð, sem hafin var af and stæðingum okkar gegn forustu mönnum Framsóknarflokksins. Þetta gerðu sjálfskipaðir siðferð- ispostular. Þeir hafa reynzt brot- hættir, en forustumenn okkar hafa staðið þessar árásir af sér með ágætum. Ég leyfi mér að fullyrða að i þeirri óhugnanlegu fjármálaspillingu, sem gengur yfir þjóðina og er eflaust einn af fylgifiskum verðbólgunnar, stendur Framsóknarftokkurinn upp úr. Þannig á það að vera. Annað samræmist ekki hugsjón samvinnu-og félagshyggju. Fjár- málabraskarar og spekúlantar eiga ekkert erindi i röðum okkar Framsóknarmanna. A þvi erenginn vafi, að veruleg börf er á vissri endurreisn, heið- arleika og drengskap. Stærstur hluti þjóðarinnar krefst þess, sem betur fer. Ég er sannfærður um það, að Framsóknarflokkurinn á á þvi sviði mjög stóru hlutverki að gegna. Hann er flokkur hins skynsamlega jafnvægis á milli öfganna. Það er hans hugsjón að meta vinnuna meira en auð- magnið, aö einstaklingarnir standi saman um sin stærri verk- efni, en hann vill þó varðveita einstaklinginn sjálfan. Við skulum ganga fram undir sliku merki drengskapar. Þá er ég sannfærður um, að kosningaúr- slitin næstu munu verða okkur hliðholl. Þá erég sannfærður um, að Framsóknarflokkurinn mun eiga vaxandi fylgi að fagna i is- lenzku þjóðfélagi. Að þvi munum við öll vinna. Flugfreyjur — Flugþjónar Aðalfundur Flugfreyjufélags íslands verður haldinn að Hótel Loftleiðum — Kristalsal þriðjudaginn 21. marz kl. 20. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin BILAPARTA- SALAN auglýsir NYKOMNIR VARAHLUTIR í: Land Rover Volvo Amason Vo/kswagen 1600 Playmouth Belvdedere Singer Vogue BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97 Jeppadekk H-78-15 og 1-78-15 Mjög hagstætt verð. HJÓLBARÐAR BORGARTÚNI 29 SÍMAR 16740 OG 38900 New Holland heybindivél árgerð 1975, til sölu. Upplýsingar, Hvitadal, Saurbæjarhreppi, Dalasýslu, simi um Neðri-Brunná. ÚTBOÐ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum i lagningu dreifikerfis i Keflavik 4. áfanga. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut 10A, Keflavik og á verkfræðistofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri9, Reykjavik gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Hita- veitu Suðurnesja miðvikudaginn 29. marz kl. 14.00.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.