Tíminn - 14.03.1978, Síða 19

Tíminn - 14.03.1978, Síða 19
Þriðjudagur 14. marz 1978. 1 19 _________IlÉI______________ Viðhorf aust- firzkra bænda Samþykktir fjölmenns bændafundar að Staðarborg og úthaldi, þegar þess þarf. í stuttu máli að temja sér fram- kvæmd þess, sem við köllum lýð- ræði sem með öllum sinum ágöll- um er samt fjöregg frelsisins. Menn verða að þjálfa sig i stjórn- málaflokkunum, þvi að flokkarn- irverða aö starfa. Með öðru móti er ekki hægt að framkvæmda lýð- ræðið. Þingmannsefni verða að temja sér að hugsa meira um al- mannahag og annarra manna vanda, en sinn eigin og sjá sér samt farborða, og það er höfuð- kostur hvers þingmannsefnis og þingmannsað vera alltaf að læra. Mikilsvert er að þekkja sögu landsins og bókmenntir þjóöar- innar, þvi að annars erhæpið, að menn hafi þá kjölfestu, sem þarf til þess að standa fyrir málum jafnlitillar þjóðar i jafnstórum heimi. Þá er ekki siður þýðingar- mikið að kynnast landinu sem best má verða”. Þetta er góð forskrift, sem ýmsir þingmenn mættu lesa sér til sáluhjálpar kvölds og morgna. Fróðlegt er að lesa ræðukafla, sem Eysteinn flutti á þingi 1941 við umræðu fjárlaga, þar sem hann leggur á boröið skýr rSt um nauðsyn þess að striðsgróðinn verði festur til þess að unnt sé að verja honum i þágu almennings og framfara að striði loknu. Svo fór, að striðsgróðanum var að mestu sóað i braskvindinn, þótt þessi skilriku varnaðarorð Ey- steins væru mælt i tima. Þvi mið- ur fól þjóðin honum ekki að fylgja þeim fram i verki. Eysteinn hefur alla tið verið bæði einlægur og áhugasamur samvinnumaður og jafnframt ötull baráttumaður, og þess hefur viða mátt sjá merki, bæði i lifs- háttum hans og ræðum. Hann beitti sér ötullega fyrir stofnun og starfi Kaupfélags Reykjavikur og var formaður þess. Hann hefur verið varaformaður og formaður stjórnar SIS i þrjá áratugi. Byggingasamvinnufélög voru einnig hugsjónamál hans, og hann hefur talið sjálfum sér vel hæfa þann húsnæöiskost eins og hann var á fyrstu árum þeirra. Freistandi væri að vitna tÚ fleiri greina i bók þessari, þar sem hinn skýri og glöggi málflutningur, sem Eysteinn hefur á valdi sinu, talar sinu máli. Hér skal þó að- eins að lokum bent á nokkrar setningar úr stuttri ræðu um samvinnuhreyfinguna: „Við vitum af reynslunni, að kröftugt samvinnustarf er bezta tryggingin fyrir farsæld ein- stakra byggðarlaga I landi okkar. A sama hátt mætti okkur vera ljóst, að öflugt samvinnustarf i landinu öllu er þýöingarmeira en flestannaðtilað tryggja farsælan þjóðarbúskap og raunverulegt sjálfstæöi smáþjóöar nú á dögum hins alþjóðlega auðhringavalds, sem fléttar sig inn i atvinnu- og viðskiptalif margra landa.” Efni bókarinnar er bæði ræður og greinar, og eru þó ræðurnar fleiri. Við lesturinn verður maöur þó varla eöa ekki var við mun á grein og ræðu i máli eða fram- setningu. Þetta stafar af þvi, að ræðustlller Eysteini Jónssyni svo inngróin tjáningaraðferð að hann mótar alveg túlkun hans, hvort sem hann talar eða ritar. Hann er alltaf að flytja ræðu. Þetta er eðlilegt og siður en svo ókostur. 1 lok bókarinnar eru birt tvö mannaminnium nána samstarfs- menn, þá Jónas Jónsson og Her- mann Jónasson. Minnið um Jónas er ræða flutt til að minnast starfs hans i Samvinnuskólanum, en um Hermanngrein úr Timanum. Það er mikill fengur að þvi, að þessi minni geymist i bók svo heimilda- mikil sem þau eru, ekki aðeins um mennina sem þau fjalla um, heldur og ekki siöur um viðhorf Eysteins til náinna samstarfs- manna og þá hófstillingu i notkun orða, sem hann tamdi sér. Hann gri'pur hvorki tiltilfinningahita né háspenntraorða, en þó tekst hon- um að koma hugblæ sinum og að- dáun til fullra skila, án allra sýni- legra átaka, með látlausu oröa- fari i einlægri og vafningalausri frásögn. Af hálfu útgefanda er vel frá þessari bók gengið og hún er all- mikið rit, rúmar 300 blaðsiður, þó að hún geymi aðeins brotabrot af þvi máli, sem Eysteinn hefur flutt þjóðsinni áhálfriöld. Þó hygg ég, að mörgum, sem þekkja Eystein allvel, finnist eins og mér; að teikningin framan á kápu sýni tæplega eiginlegasta yfirbragð mannsins. Bændur á svæðinu frá Lóns- heiði að Reyöarfirði efndu til al- menns fundar að Staðarborg i Breiðdal nokkru fyrir jólin, og var þar fjallaö um margvisleg mál, er varða bændastéttina, en þó einkum verðlagsmál. Fundar- stjóri var Sigurður Lárusson, bóndi á Gilsá. Fundurinn var fjölsóttur, og samþykkti hann margar ályktan- ir að loknum miklum umræðum. Samþykktir hans fara hér á eftir: 1. Fundurinn telur algerlega óviðunandi að tekjur bænda séu aðeins 2/3 af tekjum viðmiöunar- stéttanna og krefst þess að farið verði að lögum um að kaup bænda sé i sem nánustu samræmi við kaup verkamanna, iðnaðar- manna og sjómanna. Fundurinn telur brýna nauðsyn bera til að kjaramál bændastéttarinnar verði lögð fyrir Alþingi strax að loknu jólaleyfi þingmanna og lát- ið reyna á það þar hvernig hinir einstöku þingmenn vilja snúast við þessum vanda. 2. Fundurinn vitir harðlega úr- skurð yfirnefndar, sem birtur var nú nýlega. Telur fundurinn það skýlaust brot á lögum um sömu laun karla og kvenna, að yfir- nefnd ætlar bændakonum mun lægri laun en bændum fyrir sömu störf. Þá telur fundurinn að fjár- magns- og vaxtakostnaður visi- tölubúsins sé stórlega vantalinn I sama úrskurði. 3. Fundurinn krefst þess að söluskattur af kjöti og kjötvörum verði tafarlaust felldur niður, enda virðist það likleg leið til að auka kjötsöluna i landinu veru- lega. 4. Fundurinn fagnar þvi að stéttarsambandið hefur ákveðið að verja nokkurri fjárhæð til markaðsleitar fyrir landbúnaðar- afurðir erlendis, i samvinnu viö S.l.S. og rikisvaldið, en telur þá upphæð of lága og að rikinu beri skylda til að leggja fram eigi lægri upphæð i sama. skyni, þar sem það sé stórt hagsmunamál fyriralla þjóðina, að góðurmark- aður finnist fyrir þessa ágætu og sérstæðu vöru. 5. Fundurinn fagnar þvi að loks skuli eftir langa baráttu hafa náðst samkomulag um það á fundum stéttarsambandsins að leggja niður sexmannanefndina og samið verði beint við rikis- stjórn um búvöruverðið. Jafn- framt þakkar fundurinn fulltrú- um bænda i nefndinni fyrir mikið og gott starf i þágu bænda þó þeir hafi ekki alltaf haft erindi sem erfiði. 6. Fundurinn telur að endurtek- in vilyrði landbúnaöarráðherra um aukningu á rekstrar- og af- urðalánum til bænda, svo að slát- urleyfishafar geti greitt 90% af verði sauðfjárafurða við móttöku, verði að vera meira en orðin tóm. Telur fundurinn að rikisstjórnin verði að knýja Seðlabankann til þeirrar fyrirgreiðslu. 7. Fundurinn telur sjálfsagt jafnréttismál bænda að þeir greiði jafn hátt verð fyrir fóður- vörur hvar sem er á landinu á sama hátt og nú er um áburðinn. 8. Fundurinn skorar á rikis- stjórn og Alþingi, að búa þannig að graskögglaverksmiðjum landsins, að þær séu samkeppnis- færar um fóðurframleiðslu og bendir i þvi skyni á að sanngjarnt virðist að orkuverð til þeirra sé ekki hærra en til stóriðju, og f jár- magnskostnaður þeirra veröi gerður viðráðanlegur. 9. Fundurinn telur brýna nauð- syn á að einhvers konar jöfnuði verði komið á i sambandi viö byggingar- og fjármagnskostnað sláturhúsa og mjólkurbúa, sem nú eru i byggingu, eða byggð verða á næstu árum. Bendir fundurinn á að Byggðasjóður ætti að veita þeim fyrirtækjum sér- stök rekstrarlán með góðum kjör- um, svo að bændur á þeim svæðum þurfi ekki að búa við lægra afurðaverð en hinir sem fengu að byggja vinnslustöðvar sinar á ódýrari tima og á meðan stofnlán voru með miklu betri kjörum en nú. 10. Fundurinn telur að eitt brýnasta hagsmunamál margra bænda séað lausaskuldum þeirra verði breytt i föst lán nú i vetur. Sérstakiega vill fundurinn undir- strika, að þeir sem hafa byrjað búskap eftir 1970 fái sem fyrst úr- lausn i þessum efnum, enda er ekki annað sýnilegt en þeir flasni upp af jörðum sinum á næsta vori, vegna hinna óheyrilegu háu vaxta, sem eru á ölium lausa- skuldum. Væri slikt óbætanleg bióðtaka fyrir ýmis byggðarlög, þar sem þarna er um yngsta hluta bændastéttarinnar að ræða. 11. Fundurinn telur það óviðun- andi ranglæti, að bændakonur fá ekki fæðingarorlof eins og nú tiðkast hjá öðrum stéttum, og beinir þvi til stjórnar Stéttarsam- bandsins að vinna að þvi að svo verði sem allra fyrst. Ennfremur viljum við vekja athygli á, að húsfreyjur i sveitum sæta öðrum og lakari kjörum i skattamálum en aörar kynsystur þeirra. 12. Fundurinn mótmælir harð- lega frumvarpi alþýðuflokks- þingmanna um eignarráö rikisins á öllu landinu og telur slika eignaupptöku hreint gerræöi viö bændur. 13. Fundurinn skorar á land- búnaðarráðherra að beita sér fyr- ir að afnema innflutningsgjöld, tolla og söluskatt af vélum og varahlutum til landbúnaðarins. 14. Fundurinn skorar á stjórn stéttarsambands bænda aö beita sér fyrir þvi, aö tekin verði upp veruleg niðurgreiðsla á tiibúnum áburði, þvi fundurinn álitur að með lækkuðu áburðarverði mundi draga verulega úr kjarnfóður- notkun og framleiðslukostnaður jafnframt lækka. 15. Fundurinn gerir sér ljósan þann vanda, sem skapazt hefur i framleiðslu- og sölumálum land- búnaðarins, en telur algert neyð- arúrræði að bændur þurfi aö taka á sig kjaraskerðingu i formi kjarnfóðurgjalds eða á annan hátt, þar sem viðurkennt er að þeir eru tekjulægsta stétt þjóðfé- lagsins. 16. Fundurinn skorar á út- varpsráð að taka að nýju upp þáttinn: „Spjallað við bændur”. Þá vitir fundurinn harðlega þá hlutdrægni sem gætir i frétta- flutningi af málefnum bænda- stéttarinnar i hljóðvarpi og sjón- varpi, eins og nýliðin dæmi um verðbreytingar á landbúnaðaraf- ruðum sanna. Allar ályktanirnar voru sam- þykktar samhljóöa. lesendur segja Helgi Benónýsson: Frystihúsin á íslandi Verðbóigan virðist vera að sliga alla framleiðslu á Islandi, eða stefnir i þá átt. Margir vilja samt, aðhún haldist áfram, þótt almenningur sjái að slikt er sizt til bóta þjóðarbúinu i heild. Henni fy lgir sá kostur, að vegna hennar geti gengið taprekstur á landi hér, vegna hækkandi verðs fasteigna og annarra verðmæta. íslendingar hafa haft þar for- ystu i hihum vestræna heimi. Þó margar þjóðir berjist viö hana meö mismunandi árangri, þá hefur engin þjóð gengið eins langt á þvi sviöi og landar vorir. Fjármálamenn þjóðarinnar hafa haft forystuna. Þeir hleyptu yfir þjóðina verðbólgu- draugnum með stórhækkaðri vaxtabyrði, og rikisstjórnin með stórum sölusköttum, sem mjög hafa ýtt undir hana. Hraðfrystihúsaeigendur hóta stöðvun og aðrir fiskverkendur hinu sama. Erfiðleikar þeirra eru vöntun á fjármagni vegna vaxandi veröbólgu, og þar af leiðir meira fjármagn til rekst- rarins. En yfirleitt er ekki kvartað um reksturstap ennþá, svo neinu nemi. Fiskverkunin hefur verið aöaluppistaöan i atvinnu- og gjaldeyrisöflun þjóöarinnar, og þvi þýöingarmikill hluti af þjóö- arbúskapnum, og hefur svo ver- ið um langan aldur. Hraðfrysti- húsin eru nýrri aðili i fiskiðn- aðinum. Þau eru ekki nema 30-40 ára gömul, en tilkoma þeirra hefur haft gifurleg áhrif á lif þjóðarinnar i heild. Starf- semi þeirra hafa vaxið hröðum skrefum, og afurðir þeirra átt vaxandi vinsældum að fagna i viöskiptalöndum okkar. Yfir- leitt er hátt verð á afurðunum. En starfsemi þeirra hefur tekið allmiklum breytingum frá fyrstu tið. Aöur áttu útgerðar- menn þau en i vaxandi mæli hefur eignarrétturinn færzt til annarra aðila með mismunandi þekkingu, og þvi ekki nægjan- legur kunnugleiki á starfsem- inni. Framan af, eða fyrstu 20 árin, byggöust upp i flestum ver- stöðvum landsinsfrystihús, sem gátu tekið á móti miklum fiski, og gekk starfsemi þeirra yfir- leitt vel. T.d. i Vestmannaeyj- um höfðu þrir ungir menn byggt hraðfrystihús og drifið það meö miklum dugnaði i 8 ár. Þeir komu til tals við mig, báðu mig að útvega sér lán til þess að koma upp bræðslu á feit- fiski, sem þá var karfi og sild. Ég var mjög fylgjandi þvi, og hefði helzt viljað að Lifrarsam- lag Vestmannaeyja hefði for- göngu i þvi máli. Þá heíði þetta orðið almenningseign, en þeir voruekki á þeim nótum þá. Ég tók að mér að útvega þeim lán til fræðslustarfsemi, fór til Reykjavikur um áramótin 1958 með veðbókarvottorð fra frá Fiskiðjunni, hún var þá þá nærri-fullgerð eins og hún er nú'Þaðhvildi á henni lán allt að 1,8 milljónir, og var matsverð hennar um 20 milljónir i þá daga, svo hér voru engir aum- ingjar að verki eftir 8 ára starf-' rækslu. Ég næ i 5 milljón króna lán fyrir þá félaga, það mundi vera i dag ekki minna en 250 milljónir. Með þessu láni var hafin bygging að einhverju stærsta og arðbærasta fyrirtæki landsins, sem undir forstjórn hins ágætasta manns, húsa- smiðsins Þorsteins Sigurðsson- ar, hefur malað gull fyrir Vest- mannaeyinga hin siöari ár, eða siðan loðnubræðslan hófst. Nú fyrir nokkrum mánuðum keypti hún eitthvert dýrasta fiskiskip, sem til var á Islandi, fyrir um 1 millja rð k róna og þa ð án þess a ð leita til banka. Það var ekki sama heppni yfir frystihúsunum um áramótin 1960, er breytt var um stefnu i fiskkaupum hjá hraðfrystihúsa- eigendum. 1 þeim málum kenndi allmikillar vanþekking- ar, þó það kæmi ekki fram strax, heldur siöar, er fiskverð hækkaði og útgerðarmenn og sjómenn heimtuðu hærra verð fýrir afuröir sinar, það er hærra fiskverð. Þá komu vankantarnir i ljós. Sá háttur var á hafður fram að þeim tima, að fiskurinn var keyptur slægður, og lifur og hrogn reiknuð út eftir sýnis- hornum, sem daglega voru tek- in við fiskaðgerö, og haföi svo veriðum nær lOára bil i Eyjum. Meðfiskkaupasamningum, sem þá voru gerðir, var fiskurinn seldur óslægður upp úr sjó, og var það mjög óhagstætt fyrir fiskkaupendur, sérstaklega á Suðvesturlandi. Þegar mikil loönugengnd er, sem oftast er i marz og april, ét- ur stórfiskurinn svo mikið af loðnu, að þyngdarhlutföll á að- gerðum og óaðgerðum fiski raskast verulega og það i svo stórum stil, að um 10% munur er á þeim fiski og hliðstæðum, ætislausum fiski. Ég hafði tilraunir um 10 ára bil, 1950-1960, tók vigtarsýnis- horn nær daglega og var reynsla min sú, að linufiskur var með um 20% innvols, netafiskur með 24-27% og handfæra- og nóta- Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.