Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 11
MiOvikudagur 29. marz 1978
11
KR-ingar íslands
meistarar
oooooooo
Gömlu kapparnir beztir
„Stjörnulið” Bobby Charlton kemur aftur
„Hlakka til að
fara til íslands”
_ t /
— sagði Bobby Charlton i
sj ónvarpsviðtali í Englandi
SOS—Reykjavík. — /,Ég
hlakka tilað fara aftur til
islands. Við kunnum
mjög vel við okkur, þegar
við lékum þar sl. sumar,
en þá máttum við þola tap
gegn skemmtilegu
íslenzku landsliði — 2 :3 í
Reykjavík", sagði knatt-
spyrnukappinn Bobby
Charlton i sjónvarpsvið-
tali fyrir páskana.
Charlton sagöi i sjónvarps-
viötalinu aö þetta væri i þriöja
skiptiö sem hann færi til
íslands. — „Islendingar eru
mjög gestrisnir. bvi miöur hef
ég ekki fengið tækifæri til aö
skoöa fegurð landsins á fyrri
ferðum minum, en ég hef hug á
að feröast um landið i sumar,
þegar ég fer þangað”, sagði
Charlton.
bess má geta i framhaldi af
þessu, að Bobby Charlton og
„Stjörnuliö” hans er væntanlegt
til Islands i lok mai i boði KR-
inga, og mun Charlton, ásamt
öðrum frægum köppum úr
ensku knattspyrnunni, leika hér
á Laugardalsvellinum 29. mai —
væntanlega gegn islénzka
landsliöinu.
Bobby og félagar hans fara i
hnattreisu i lok mai og hefst sú
reisa i Kaupmannahöfn, þar
sem „Stjörnuliðið” leikur 27.
mai. baðan heldur liðið hingað
og leikur einn leik á Laugar-
dalsvellinum 29. mai.
bar veröa frægir kappar, sem
koma hingað með Charlton, en
enn er ekki vitað hverjir þeir
verða, þar sem keppnistimabil-
ið er ekki búið i Englandi.
Bobby og félagar hans hafa ósk-
aö eftir þvi a&fá tækifæri til að
ferðast um landið — til Vest-
mannaeyja og Mývatns, meðan
þeir dveljast hér.
KR-ingar unnu sigur 96:88 yfir Njarðyikingum
i Laugardalshöllinni í gærkvöldi
KR-ingar tryggðu sér islands-
meistaratitilinn i körfuknattleik i
Laugardalshöllinni i gærkvöldi,
þegar þeir unnu sigur 96:88 yfir
Njarðvikingum i geysilega fjör-
ugum úrslitaleik að viðstöddum
um 2 þús. áhorfendum. KR-ingar
gerðu út um ieikinn fljótlega I
seinni hálfleik, þegar þeir náðu 18
stiga forskoti — það var nokkuð
sem Njarðvikingar réðu ekkert
við, þó að þeir hefðu keyrt á fullu
undir lokin og náð að minnka
muninn i 6 stig — 94:88.
baö var Jón Sigurösson, sem
opnaði leikinn — og höfðu KR-ing-
ar frumkvæðið til að byrja með,
en Njarðvikingar náðu þó að
komast yfir 23:22 og 25:24. bað
var i einu skiptin sem Njarðvik-
ingar komust yfir, þvi að KR-ing-
ar, sem nöfðu yfir 45:41 i leikhléi,
fengu óskabyrjun i seinni hálfleik
— byrjun sem lagði grunninn að
sigri þeirra.
beir Kristinn Stefánsson,
Andrew Piazza og Jón Sigurðsson
voru það iðnir við kolann — skor-
uðu saman 14 stig gegn aðeins
tveimur stigum Njarðvikinga,
fyrstu 4 mi'n. seinni hálfleiksins
ognáðu 16stigastiga (59:43) for-
skoti og þegar 9 min. voru til
leiksloka var forskot þeirra orðið
19 stig — 80:61. A þessum lima
Stórtöp hjá
Leicester og
West Ham
Fallið blasir nú við West Ham og
Leicester, sem fengu stóran skell
iensku 1. deildarkeppninni í gær-
kvöldi. Leicester mátti þola stór-
tap (1:5) á Elland Road, þar sem
leikmenn Leeds létu móöan
mása. Skozki landsliösmaöurinn
Eddie Gray skoraði þrjú af mörk-
um — „Hat-trick” Leeds.
Úrslit i ensku knattspyrnunni
urðu þessi i gærkvöldi:
1. DEILD:
Birmingham - West Ham....3:0
Coventry - Wolves........4:0
Leeds - Leicester........5:1
2.DEILD
Blackpool - Burnley .....1:1
Charlton -Stoke..........3:1
Trevor Francis átti stórleik
meö Birmingham - skoraði 2
mörk.
heppnaðist allt hjá KR-ingum, en
aftur á móti gekk allt á afturfót-
unum hjá Njarðvikingum, sem
hitti körfuna illa i dauðafærum.
Njarðvikingar settu á fulla ferð
undir lokin og söxuðu þeir þá
jafnt og þétt á forskot KR-inga —
en þeir réðu þó ekki við hið góða
forskot Vesturbæjarliðsins. Leik-
menn KR fóru sér að einu óðslega
— þeir reyndu hvað sem þeir gátu
til að tefja leikinn undir lokin og
halda knettinum. Sú leikaðferð
heppnaðist — og sigurinn varð
þeirra 96:88.
bað sem réði úrslitum i þessum
fjöruga leik, var hvað Njarðvik-
ingar voru taugaóstyrkir og flest-
ir leikmenn liðsins léku langt
undir getu. Kári Marisson átti
þó snilldarleik —■ leikmaður sem
er mjög leikinn og gefst ekki upp
fyrir en i fulla hnefana. Kári
sýndi það i Laugardalshöllinni i
gærkvöldi, að hann er nú okkar
bezti körfuknattleiksmaður —
maður sem berst fyrir liðið. bor-‘
steinn Bjarnason átti góða spretti
— það var þó ekki fyrr en undir
lokin, að hann fór að láta að sér
kveða, enþá var þaðorðið of seint
— þvi miður fyrir Njarðvikinga.
KR-liðið er skipað reyndum
leikmönnum, sem vita hvað þeir
eiga að gera á þýðingarmiklum
augnablikum, leikmönnum, sem
hafa leikið marga spennandi úr-
slitaleiki — þessir sjóuðu leik-
menn skópu sigur KR-liðsins. Jón
Sigurðsson áttu mjög góðan leik
og einnig Bandarikjamaðurinn
Piazza. bá voru gömlu baráttu-
hestarnir Einar Bollason og
Kristinn Stefánsson ljóndrjúgir —
þeir kunnu greinilega bezt við sig,
þegar æsingurinn var mestur. bá
ljómuöu þeir af gleði, þegar þeir
ANDREW PIAZZA...þjáIfari KR-
inga, var trylltur af gleöi eftir
sigurinn yfir Njarövikingum. Hér
á myndinni sést hann skera netið
af körfunni og síðan setti hann
það um háls sér.
lumuðu knettinum ofan i körfu
Njarðvikinga.
beir sem skoruðu stigin i gær-
kvöldi voru: KR: Jón Sigurðsson
24, Piazza 20, Bjarni 14, Kristinn
14, Einar 10, Gunnar 6, Arni 2,
Agúst 2 og Kolbeinn 2.
Njarðvik: borsteinn 22, Kári 21,
Geir 13, Gunnar 11, Stefán 6,
Brynjar 6, Asmundur 5, Jón 4.
Maður leiksins: Kári Maris-
son, sem lék hreint snilldarlega.
Hann hefði svo sannarlega átti
skilið að vera i sigurliði.
—SOS.
KARI MARISSON hinn snjalli leikmaður Njarðvikinga, sem hefur
ákveðið að ieggja skóna á hilluna, sést hér skora gegn KR-ingum í gær-
kvöldi. (Timamynd Róbert)
— þegar mest á reyndi