Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 29. marz 1978
15
Vestfirðir:
Góður rækjuafli
Svaya Sigriður Gestsdóttir sýnir verk sin i Safnhúsi Arnessýslu. A
sýningunni eru 24 málverk og 23 rekaviðarmyndir. Svava Sigrlður hef-
ur haldið þrjár einkasýningar og tekið þátt i samsýningum. Sýning
Svövu stendur yfir frá 23. marz tii 3. apríl og er opin 14-22 helga daga og
16-21 virka daga.
— Inndjúpinu lokað vegna
smárækju
GV — Rækjuafli var yfirleitt
góður á þeim þrem veiðisvæðum,
þar sem rækjuveiði var stunduð í
febrúar. 55 bátar stunduðu veiðar
og nam heildarafli þeirra 908'lest-
um, en i fyrra var afli 65 báta i
febrúar 1.111 lestir.
Vart hefur orðið við mikið af
smárækju innarlega á Isaf jarðar-
djúpi og hefur Inndjúpinu þvi
verið lokað fyrir rækjuveiðum.
Leyfilegur aflakvóti við Isa-
fjarðardjúp voru 2500 lestir til
skamms tima en hefur nú verið
hækkaður um 100 lestir. Nokkur
óánægja hafði verið með kvóta-
skiptinguna á staði og fóru þvi
bæði Bolvikingar og Súövikingar
fram á 50 lesta kvótaaukningu.
Frá Bildudal réru nú 7 bátar og
öfluðu 71 lest en i fyrra var afli 10
báta sem réru frá Bildudal 176
lestir. Aflahæstu bátarnir voru
Helgi Magnússon með 15,5 lestir,
Visir 14,1 lest og Höfrungur 11,4
lestir. Leyfilegur afli á vertiöinni
er 600 lestir en af þvi magni er
eftir að veiða 258 lestir.
Frá verstöðvunum við ísa-
fjarðardjúp réru 38 bátar og öfl-
uðu 645 lestir en i fyrra var afli 42
báta 743 lestir i febrúar. Gert er
ráð fyrir að rækjuvertiö ljúki i
april frá flestum verstöðvunum
við ísafjarðardjúp, þar sem lang-
leiðina er komið að veiða leyfilegt
afiamagn.
Frá Hólmavik og Drangsnesi
réru 10 bátar og ölfuðu 192 lestir,
en i fyrra öfluðu 13 bátar einnig
192 lestir i febrúar. Aflahæstu
bátarnir voru Hilmir með 21,0
lestir, Grimsey 20,8 lestir og As-
björg 20,3 lestir.
Fyrirhuguð breyting á
rekstri húss Jóns
Sigurðssonar
tslendingafélag — Námsmanna-
félag i Kaupmannahöfn hefur
sent frá sér fréttatilkyningu, þar
sem greint er frá dagskrá Húss
Jóns Sigurðssonar i marzmánuði.
Þar segir einnigað fyrirhuguð sé
breyting á rekstri hússins.
Er hún fólgin i þvi að húsið
verður lokað mánudags- og
þriðjudagskvöld nema annað sé
auglýst sérstaklega. Samtimis
þvi segir, að annar rekstraraðili
hússins muni hætta i byrjun april.
Aðalfundur Námsmannafé-
lagsins var haldinn 10. febrúar sl.
og voru eftirfarandi kosnir i
stjórn þess: Jón Þór Jóhannsson,
formaður, Ingimundur Pálsson
gjaldkeri, PáO Sólnes ritari, Guð-
rún Valdimarsdóttir meðstjórn-
andi og Sigurbjörn Hallsson með-
stjórnandi.
Thor Thos Thors sjóðurinn
stóreflist
I tilefni 1100 ára afmælis ís-
landsbyggðar lét Bandarikja-
stjórn af hendi rakna upphæð sem
nemur $30.000,- til námsstyrkja
islenzkra námsmanna i Banda-
rikjunum. Rikisstjórn tslands
hefur ákveðið að fé þetta skuli
renna i Thor Thors sjóðinn, sem
starfræktur er á vegum Ameri-
can Scandinavian Foundation i
New York, og er tilgangur hans
að styrkja islenzka námsmenn til
náms i Bandarikjunum og
Bandarikjamenn til náms á ts-
landi. tslenzk-Ameriska félagið
fjallar um styrkveitingar úr sjóöi
þessum. Thor Thors sjóðurinn
hefureflztmjög á undangengnum
mánuðum eins og kunnugt er af
fréttatilkynningum. Frá dánar-
búi Einars Þorkelssonar bárust
nýlega $48.500.-, sem samsvaraði
11 millj. isl. króna á þeim tima.
Einnig barst sjóðnum framlag að
upphæö $60.000 i tilefni af 200 ára
afmæli Bandarikjamanna. A
stuttum tima hefur þvi sjóðurinn
eflzt um $138.500.- sem samsvar-
ar kr. 35.276.000,- á gengi dagsins
i dag.
Kattavinafélagsmenn ánægðir
með starfsemina
Aðalfundur Kattavinafélags ís-
lands var haldinn i Vikingasal
Hótels Loftleiða 12. þ.m. Fjöl-
menni vará fundinum og ahnenn
ánægja rikjandi með starfsemi
féla gsins. Litils háttar breytingar
urðu á félagsstjórn og er hún nú
þannig skipuð: Svanlaug Löve,
form. Margrét Hjálmarsdóttir,
Guðrún A. Simonar, Eyþór Er-
lendsson, Gunnar Pétursson og
Hörður B. Arnason.
, Að fundi loknum hófst kaffisala
og voru þá fram bornar heima-
bakaðar kökur, sem konur i
Kattavinafélaginu gáfu til styrkt-
ar félaginu.
A fundinum var Kattavina-
félaginu færð höfðingleg gjöf 70
þúsund kr. Gefendur eru mæðgur
sem fyrr á árinu gáfu félaginu 50
þúsund kr. Aðrar gjafir og áheit
sem félaginu hafa nýlega borizt
erufrá Grimu 15 þúsund. S.E. 10
þúsund H“L. 1500 H.S. 500 V.K.
500. S og G 1000. G.P. 1000. A.K.
1000 R.N. 5000
Erling Ólafsson:
„Útrýming á dýrategundum
er mér ekki að skapi”
— Athugasemd vegna skrifa um svartbakinn
1 grein, sem ESE skrifar á
forsiðu Timans 7. marz siðast-
liðinn eru rifjaðar upp gamlar
og margtuggnar vangaveltur
um svartbakinn og skaðsemi
hans. Þar er vitnað i simáviðtal,
sem greinarhöf. átti við undir-
ritaðan. Eru þar eftir mér höfð
þessi orð: ,,Hvað eitrun varð-
aði, þá sagði Eriing það skoðun
sina að eitra þyrfti miklu meira
en nú tiðkaðist’\ — Þetta er
alrangt eftir mér haft. Ég sagð-
ist eiga von á þvi, að farið yrði
til þess i framtiðinni að eitra i
stærri stil en tiðkast hefði hing-
að til, þvi að eflaust mætti
fækka svartbak að nokkru
marki með þeirri aðgerð. En
það þyrfti að framfylgja slikri
herferð með endurteknum eitr-
unum i langan tima, ef aðrar
nauðsynlegar hliðarráðstafanir
yrðu ekki gerðar. Hins vegar
mun ég aldrei mæla með notkun
eiturefna úti i náttúrunni sizt af
öllu, þegar til eru skynsamlegri
aðferðir til að halda i skefjum
vargi sem þessum. Ef farið yrði
út i það að beita eiturefnum
gegn svartbaknum, þá myndi ég
mælast til þesS, að einungis
yrðu notuð svefnlyf svo að
öðrum tegundum yrði ekki
meint af.
ESE hefur það eftir Pétri
Ilannessyni hjá Hreinsunar-
deild Revkjavikurborgar, aö i
fyrra hefðu verið skotnir' 2300
svartbakar. 'Þar eru eflaust
fleiri máfategundir meðtaldar)
á vegum deildarinnar. Ég leyfi
mér að halda þvi fram, að það
sé mikil sóun á blýi, en til að
eyðing svartbaks með skot-
vopnum hafi einhver varanleg
áhrif á stærð þess stofns, sem
mætir til varps á vorin, þarf að
skjóta margfalt þann fjölda.
Við getum sjálfum okkur um
kennt, hvernig komið er með
svartbakinn. Við erum óttalega
kærulaus með flestan úrgang,
bæði lifrænan og ólifrænan, sem
við i flestum tilfellum fleygjum
bara út um bakdyrnar. Á ég þar
ekki sizt við fiskvinnslu-
stöðvarnar, sem eru
aðaluppeldisstöðvar máfa yfir
vetrarmánuðina. Ef máfum
yrði gert erfiðara fyrir við öflun
matar á þeim árstima. er ekki
að efa. að þeim myndi stór-
fækka og skaðsemi þeirra
minnka að sama skapi A sorp-
haugunum i Gufunesi hefur ver-
ið tekið til þess ráðs að urða
sorpið jafnóðum og það berst,
og er það mjög til fyrirmyndar.
En enn er viða pottur brotinn i'
hreinlætisvenjum okkar Is-
lendinga og á meðan svo er
verðum við bara að sætta okkur
við skaðsemi vargfugla.
Ég vil taka það fram, að það
er ekki eftir mér haft, að gripa
þurfi til ógeðfelldra aðferða til
að útrýma svartbak. Ef nokkrar
likur væru til þess, að hægt væri
að útrýma svartbaknum, þá
myndi ég beita minum kröftum
honum til bjargar, þvi að út-
rýming á'dýrategundum er mér
ekki að skapi. Þá vil ég einnig
taka það fram, að hugmyndin
um hugsanlegt samband á milli
fæðar á rjúpu hér sunnanlands
og svartbaks er ekki frá mér
komin.
Fjölþætt starfsemi KÍM á sl. ári
JB — Starfsemi Kinverska-is-
lenzka menningarfélagsins
(KtM) var með mesta móti á siö-
ast ári. Hingaö til lands kom kin-
versk sendinefnd á vegum þess,
kvikmyndasýningar voru haldn-
ar, listamenn frá Kina héldu hér
fjölsótta tónleika, islensk sendi-
nefnd fór á vegum félagsins til
Kina og efnt var til almennra
ferða þangað; sem þátt tóku i
tæplega fimmtiu manns. Þá voru
haldnfr fundir um kinversk mál-
efni og blaöaútgáfa var nokkur á
vegum félagsins. Kom framan-
greint fram i ræðu formanns KIM
á aðalfundi félagsins þ. 20. marz
sl.
A fundinum var drepið á frétta-
flutning islenzkra fjölmiðla um
kinversk málefni, sem talinn var
ærið misjafn. Þá minntist for-
maður á það, að ísland heföi
alloft verið getið i kinverskum
fjölmiðlum undanfarið og væri
það að nokkru leyti að tilhlutan
félagsins.
Félagsmenn i KIM, sem er 25
ára i haust eru rúmlega 300 tals-
ins. A fundinum var stjórn félags-
ins öll endurkjörin en hún er
þannig skipuð:
Arnþór Helgason, formaður, Dr.
Jakob Benediktsson, varafor-
maður, Anna Einarsdóttir, ritari,
Olafur Elinmundarson, gjaldkeri
og Kristján Jónsson, meðstjórn-
andi.
DAIHATSU
JAPANSKUR GÆÐINGUR
SJON ER SOGU RIKARI
□AIHATSU
ÁRMÚLA 23 sími 81733