Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 12

Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 12
12 Mi&vikudagur 29. marz 1978 Ólafsfirðing-ar unnu signr i öllum norrænu greinunum: Haukur hélt upp á 22 ára afmælið Haukur Sigurðsson, skíðagöngumaðurinn knái frá ólafsfirði, sem vann á svo skemmtilegan hátt sigur í 15 km göngunni, var í sviðsljósinu i Hamragili á páskadag — þar varð hann einnig öruggur sigurvegari í 30 km göngunni. Haukur, sem hélt þá upp á 22 ára afmælisdag- inn sinn, gat ekki fengið betri afmælisgjöf — hann tryggði sér f jóra gullpeninga á Skíðamóti islands, með því að sigra í 15 og 30 km göngu og þar með i tvíkeppninni í göngu. Þá var hann í sigursveit ólafsfirðinga í boð- göngunni. Ólafsfiröingar voru mjög sigursælir i norrænum greinum — göngu og skiðastökki, en þeir tryggðu sér alla 9 gullpening- ana, sem . hægt var aö vinna i nærrænum greinum. Það er greinilegt að ólafsfirðingar hafa uppskorið rikulega það sem þeir hafa lagt mikið kapp á aö koma sér upp öflugum skiða- göngu- og skiöastökkmönnum. „Gull-Björninn" Sá maður, sem á mestan þátt i hinum miklu sigrum Ólafsfirð- inga, er tvimælalaust gamla kempan Björn Þór Ólafsson, iþróttakennari á Ólafsfiröi. Björn Þór, sem margir kalla nú „Gull- Björninn”, var sjálfur I sviðsljós- inu á Skfðalandsmótinu — hann varð öruggur siigurvegari I skiöa- stökki — stökk 46.05 m og endur- heimti þar með tslandsmeistara- titil sinn, sem Siglfirðingurinn Marteinn Kristjánsson vann af honum á Siglufirði 1977. Marteinn sem er háseti á skuttogaranum Dagnýju, gat ekki tekið þátt i keppninni vegna meiðsla. Mar- teinn tók sér mánaðarfri fyrir landsmótið, en varö fyrir þvi óhappi á æfingu á Akureyri fyrir stuttu að detta illa i stökki og brjóta rifbein i sér. Björn Þór varð einnig sigur- vegari i norrænu tvikeppninni —■ skiðastökki og göngu, og tryggði sér þar með tvo gullpeninga. Björn Þór hefur þar með tryggt sér alls 15 gullpeninga á skiða- landsmóti slðan 1970. Hann hefur 7 sinnum orðið sigurvegari i stökki, en alls 8 sinnum orðið sigurvegari i norrænu tvikeppn- inni frá 1970. Vel gert Björn Þór! Annars urðu úrslit þessi i nor- rænu greinunum á Sklðamóti Is- lands: 15 km skiðaganga: min: Haukur Sigurðsson. Ó.......63.09 Halldór Matthiass., R......63.15 Ingólfur Jónsson, R........66.19 30 km skiðaganga: min: Haukur Sigurösson, ó.......96.28 Halldór Matthiasson, R.....99.25 Þröstur Jóhannsson, I ....1:04.41 Skiðastökk — 20 ára og eidri: min: Björn Þór Ólafsson, Ó......46.05 Þorsteinn Þorvaldsson, Ó, ..45.00 Björn Þór varð sigurvegari i norrænu tvlkeppninni — stökki og Framhald á bls. 23 — með því að tryggja sér sigxir í 30 km göngu og göngutvikeppninni á páskadag ★ „Gull-Björninn,, fékk tvo gullpeninga í glæsilegt safn sitt Ólafsfirðingar fengu 22 verðlaunapeninga ólafsfirðingar voru mjög sigur- sæiir á Skiöamóti tslands, sem fór fram um páskana. Þeir unnu 9 gull I norrænum greinum — fjögur silfur og 7 brons. Reykvíkingar fengu 13 verð- launapeninga — þrjú gull, sex silfur og fjögur brons. lsfiröing- ar komu næstir — meö 11 verð- launapeninga. Annars skiptust verölaunin þannig — gulÍT-silf- ur—brons: Ólafsfjörður.............11 4 7 Reykjavik................ 3 6 4 tsafjörður.............. 36 2 Akureyri................. 2 1 4 Húsavik.................. 0 1 0 Næsta skiöalandsmót verður háö á Isafirði 1979 — um pásk- ana. Hákon ólafsson, sem hefur verið formaður Skiðasambands Islands undanfarin ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs á skiða- þingi, sem var haldiö á föstu- daginn langa. Sæmundur ósk- arsson, Reykjavik, var kjörinn formaöur, en hann er faðir systranna Steinunnar og Asu Hrannar. Guömundur og Haukur Ólafsfirðingarnir Haukur Sigurðsson og Gu&mundur Garðarsson tryggðu sér fern gullver&laun á Skiðamóti ts- lands. Ilaukur varð sigurveg- ari í 15 og 30 km göngu, tvi- keppninni i göngu og boögöng- unni. Guðmundur varð sigur- vegari I 10 km ski&agöngu, skiöastökki, norrænni tvi- keppni (stökk og ganga) og bo&göngunni. Siguröur Jónsson frá tsa- hlutu f jóra gullpeninga firði hlaut þrjú gull — i svigi, stórsvigi og Atpatvikeppni. Steinunn Sæmundsdóttir frá Reykjavik hlaut þrjú gull — i svigi, stórsvigi og Alpatvl- keppni. ólafsfirðingarnir Björn Þór Ólafsson (stökk og norræn tvi- keppni) og Jón Konráösson (boðganga og 15 km skiða- ganga) (17-19 ára), hlutu tvenn gullverðlaun hvor. SIGURÐUR JÓNSSON STEINUNN SÆMUNDSDÓTTIR Fyllingarefni Húsbyggjendur Verktakar Húseigendur Höfum til afgreiðslu alla virka daga fyrsta flokks sjávarefni til fyllingar i grunna, brautir og skurði, bæði harpað og óharpað. Efnið er ófrosið, hreint og þjöppunareiginleikar hinir ákjósanlegustu. Efnið, sem engan svíkur BJÖRGUN H/F Sævarhöfða 13, simi 81833. SIGURÐUR Jónsson, skiöakappinn snjalli frá Isafiröi, varö sigursæll í Alpagreinunum á Skíðamóti Islands. — Þessi ungi og efnilegi skíðamaður tryggöi sér þrjá gull- peninga, og það gerði einnig skíðadrottningin frá Reykjavík, Steinunn Sæmundsdóttir, sem sigraði í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppninni, eins og Sigurður. Þu höfðu mikla yfirburði — keyrðu brautirnar mjög vel og af miklu öryggi. Sigurður hefur átt við meiðsli að striða — vöðvabólgu eða togn- un i baki. Hann varð þó öruggur sigurvegari I stórsviginu, sem fór fram i Skálafelli. Sigurður náði beztum tima i fyrri umferðinni — 65.65 og einnig i siðari umferðinni — 55.32 og hlaut samanlagðan tima — 120.97. Björn Olgeirsson — 15 ára stór- efnilegur unglingur frá Húsavik, skaut mörgum kunnum skiða- köppum ref fyrir rass og tryggði sér annað sætið — 122.12 (66.06 — 56.06). Þessi efnilegi Húsvikingur á örugglega eftir að láta mikið að sér kveða I framtiðinni. Akureyr- ingurinn Haukur Jóhannsson varð þriðji — 122.59 (66.06 — 56.53), en íslandsmeistarinn frá Siglufirði 1977, Einar Valur Kristjánsson frá Isafirði, varð aö sætta sig við fjórða sætiö, eftir að hafa náð ö&rum bezta timanum i fyrri umferðinni. Einar Valur fékk timann 122.93 (66.02—56.91). A þessu sést að keppnin var geysilega hörð I stórsviginu. Sigurður varð einnig sigurveg- ari I svigi, sem fór fram I Hamra- gili — 69.75. Félagi hans frá Isa- 1 firði, Hafþór Júliusson varð ann- ar — 74.17 og Arni Óðinsson frá Akureyri varð þriðji — 75.59. Hús- vikingurinn ungi Björn Olgeirs- son hætti keppni — hlekktist á I fyrri umferðinni. Sigurður sigraði örugglega i alpatvikeppninni — Haukur varð annar, en Hafþór Júliusson þriðji. Systurnar Steinunn Sæmunds- dóttir og Asa Hrönn Sæmunds- dóttir voru i sviðsljósinu. Stein- unn varð öruggur sigurvegari i svigi — 87.52 (43.53 — 43.99). Hin 15 ára Reykjavikurmær, Asdis Alfreðsdóttir, varð önnur — 92.20 (45.71 — 46.49), en Asa Hrönn varð þriðja — 92.86. Þarna var þrefaldur sigur Reykvikinga. Steinunn varð einnig yfirburð- arsigurvegari i stórsviginu — keyrði brautina af mikilli mýkt og öryggi og hlaut timann 130.88. Kristin Úlfsdóttir frá Isafirði varð önnur — 137.56 og Akureyr- ingurinn Margrét Baldursdóttir varð þriöja — 138.26. Steinunn varð öruggur sigur- vegari I alpatvikeppninni. Systir hennar, Asa Hrönn varð önnur, en Margrét Baldursdóttir þriðja.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.