Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 29. marz 1978 17 Danadrottning skoðar sýningarbás sambandsins íslenzk fyrirtæki sýna á tízkuviku í Kaupmannahöfn Dagana 16.-19. marz fór fram i Kaupmannahöfn kaupstefnan Scandinavian Fashion Week i Bella Center i Kaupmannahöfn. Þetta er í 25. skipti sem þessi sýning er haldin og alls tóku 788 fyrirtæki þátt i sýningunni þar af 8islenzk. Þau voru: Álafoss, Alis, Gráfeldur, Hilda, Les-Prjón, Prjónastofa Borgar- ness, Röskva og Iðnaðardeild Sambandsins. Ivar Nörgaard viðskiptaráð- herra Danmerkur opnaði sýn- inguna, og Margrét Dana- drottning skoðaði sýningar- deildirnar á sýningunni. Tvær islenzkar sýningar- stúlkur gengu um sýningar- svæðið í islenzkum fatnaði og dreifðu kynningarefni um is- lenzku sýningardeildina, sem var r.ú mjög vel staðsett á sýn- ingunni. Við inngang inn i nýja sýningarhöll sem nú var notuð i fyrsta skipti. Þessi sýning hefur tvimæla- laust mjög mikið kynningarlegt gildi fyrir islenzka Utfly tjendur. Sýninguna sóttu alls milli tvö og þrjú hundruð blaðamenn og mjög gott samstarf hefur tekizt við kynningardeild sýningar- innar. Sala islenzku fyrirtækjanna gekk vel á sýningunni þó liti út fyrir að gróft prjón og þjóðlegur fatnaður sé ekki eins mikið i tizku og verið hefur. Einnig er ljóst, að samkeppni við erlenda framleiðslu úr islenzku ullar- bandi fer nú vaxandi, oft þann- ig, að um nákvæmar eftirliking- ar islenzkra ullarvara er að ræða. Jakkar með og án hettu frá Álafossi Röndótt siá með loðinni áferð. Flikin er frá Röskva hf. Peysa ásamt trefli og húfu i sama stii, frá Les-prjóni hf. Eðlisfræðifélag Islands með fimm fræðsluerindi Á næstunni verða haldin á vegum Eðlisfræðifélags íslands, fimm fræðsluerindi um eðlisfræðileg efni. Verða þau vikulega á þriðju- dögum kl. 16.30 I kennslustofu 158 i húsi Verkfræði- og raunvisinda- deildar háskólans við Hjarðar- haga og hefjast i vikunni eftir páska. Svo segir i fréttatilkynn- mgu frá Eðlisfræðifélaginu. Erindi verða sem hér segir: 28. marz Jakob Yngvason: Þróun skammtasviðsfræðinnar. 4. april Einar Júliusson: Geim- geilsar. 11. april Jón Pétursson: Ljós i leiðslum og rásum. 18. april Rögnvaldur Ólafsson: Ofurleiðni. 25. april Sveinbjörn Björnsson: Aðferðir til virkjunar hraunhita i Vestmannaeyjum. Stjórn Eðlisfræðifélags Islands skipa: prófessor Þorbjörn Sigur- geirsson, dr. Guðmundur Pálma- son og Þórir Ólafsson, mennta- skólakennari. Ijósasamlokur 6 og 12 v. 7" og 5 3/4" Bílaperur — fjölbreytt úrval. Sendum gegn póstkröfu um allt land. "5T ÁRMÚLA 7 - SlMI 84450 Pípulagningaþjénusta Getum bætt við okkur verkefnum i ný- lögnum, viðgerðum og breytingum, ger- um verðtilboð ef óskað er. Vatnslagnir s/f simar 86947 og 76423 Skúli M. Gestsson.Löggiltur pipulagningameistari. fíafvörur og verkfæri Bygginga vörur ^SAMVIKKI VERZLUN Þverholti í Mosfellssveit Sími 6-66-90 Húsgögn og innréttingar Suðurlandsbraut 18 Sími 86-900 HIM BO-veggsamstæður fyrir hljómflutningstæki Tilvaldar fermingargjafir Pípulagnir — Ofnar Tek að mér nýlagnir og viðgerðir. Söluumboð fyrir Silrad-panelofna. Mjög hagstætt verð. Stefán H. Jónsson pipulagningameistari. simi 4-25-78 SBB Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.