Tíminn - 29.03.1978, Blaðsíða 24
W 18-300
Auglýsingadeild
Tímans.
Ökukennsl
Greiðsluk jör
Gunnar
Jónasson
Sími
Sýrð eík
er sigild
eign
TRÉSMIDJAN MEIDUR -
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Atvinnuþátttaka háskólamenntaðra kvenna mjög mikill
KARLAH HÆKKA LÚMSKT í STÖÐUM
— segir í niöurstöðum skoðanakönnunar BHM
FI — Ég gæti trúað, aö þessi
könnun gæfi nokkuð rétta heild-
armynd af atvinnuþátttökunni,
og raunar kom fátt i niðurstöð-
unum okkur á óvart: Niutiu og
fimm prósentaf konunum, sem
svöruöu, vinna utan heimilis, en
aðeins helmingur þeirra vinnur
fullan vinnudag. Litið virðist
um barneignir hjá þessum hópi
miðað við ýmsa aðra, og af 143
konum voru 110 þeirra mæður
163 barna. Hvað launin varöar,
þá telja 94% sig njóta jafnréttis
á við karla. Hins vegar telja
konurnar jafnréttið fyrir borö
boriö, þegar um stöðuhækkanir
er að ræða. Það væru fyrst og
fremst karlmenn, sem fengju
stöður deildarstjóra, 'yfirkenn-
ara, skólastjóra og annarra for-
stöðumanna.
A þessa leið fórust MagnUsi
Skúlasyni hjá Bandalagi há-
skólamanna orð i gær, þegar
hann var inntur eftir niðurstöð-
um úr skoöanakönnun BHM á
atvinnuþátttöku háskólamennt-
aðrakvenna, sem fram fór á sl.
ári og nýlega hefur veriö unnið
úr. Reynt var að ná til 270
kvenna i þessari könnun, en að-
eins 143 tóku þátt, eða 16% af
háskólagengnum konum á þeim
tima.
Af þeim 143 konum, sem svör-
uðu, haföi rúmlega þriðjungur
lokið B.A. prófi frá H.Í., eða
hliðstæðu prófi frá erlendum
háskólum. Er þetta langstærsti
hópur háskólamenntaöra
kvenna. Næst koma konur meö
B.Sc. próf og konur með próf i
læknisfræðum, en hvor hópur
um sig er aðeins 8% af þeim,
sem svöruðu. Aörir hópar eru
mun minni og er dreifingin
nokkuð jöfn eftir prófgráðum.
Fjörutiu og fimm prósent
þeirra kvenna sem þátt tóku,
eru 32 ára og yngri, og tæplega
70% kvennanna eru 37 ára og
yngri, en 82% þeirra 42 ára og
yngri.
Hundrað þessara kvenna telja
sig hafa lokiö námi á „eðlileg-
um” tima en 43 kváðu svo ekki
hafa verið. Langflestum nýtist
menntunin vel i starfi. Eftir-
vinnu utan heimilis vinna 51%.
Konunum var gefinn kostur á
aðnefna þau tvö atriði, sem þær
teldu að helzt þyrftu að breyt-
ast, til að atvinnuþátttaka
kvenna ykist. 49% nefndu fleiri
barnaheimili, 40% frjálsari til-
högun vinnutima og 39% aukin
heimilisstörf karla. Fleiri atriði
voru á dagskrá, svo sem auknir
möguleikar á endurmenntun
kvenna, almenn stytting dag-
vinnutima og minni eftirvinna.
Aðeins 64 konur svöruðu
þeirrkspurningu hvort foreidrið
tæki sér oftar fri i vinnu, ef barn
veiktist. Fjörutiu og ein kona
(64%) taldi að móðirin tæki sér
oftar fri frá vinnu, 17 konur
(27%) töldu, að þaö skiptist
jafnt á bæði foreldrin, og 6 kon-
ur (9%) töldu föðurinn oftar
heima. (
Þessi könnun á atvinnuþátt-
töku háskólamenntaðra kvenna
er fyrsta skoðanakönnunin, sem
BHM ræðst i. Nú eru i gangi
tvær aðrar kannanir á vegum
BHM, könnun á notkun rann-
sóknabókasafna og trygginga-
þörf sjálfstætt starfandi há-
skólamanna, svo sem verkfræð-
inga, arkitekta, lækna og lög-
manna.
Fimm innbrot
á Skagaströnd
ESE — Um páskana var brotizt
inn á fimm stöðum á Skaga-
strönd. Brotizt var inn I Shell-
skálann, ibúðarhús við Höfðatún,
Hafnarhúsiö, útibú kaupfélagsins
og bii sem stóð fyrir utan útibúið.
Litlu sem engu var stolið i þess-
um innbrotum og skemmdir voru
litlar unnar á mannvirkjum.
Þegar eru þrjú innbrotanna
upplýst, og var um sömu aðila að
ræða I tveim tilvikanna, þ.e. I inn-
brotunum I Shell-skálann og ibúö-'
arhúsið, en einnig er búið að upp-
lýsa innbrotiö I Hafnarhúsið.
Rúðubrjótar
ESE — Um siðustu helgi voru
brotnar rúður i Alþingishúsinu og
i sendiráði Bandarikjanna hér i
bæ. Þetta gerðist um kl. 06 að
morgni laugardagsins. Fljótlega
barst lögreglunni lýsing á mönn-
um þeim sem hér höfðu verið að
verki, en þeir fundust svo siðar
um morguninn á hóteli hér i bæ og
voru allölvaöir.
Aöfaranótt skirdags var brotizt inn hjá Ldftrasveit Reykjavikur f Hljómskálanum og kveikt þar i á
fyrstu hæft. Brann allt sem brunnift gat á hæftinni, en sem betur fór voru engin hljóftfæri efta nótur þar
fyrir. A sl. ári var átta sinnum brotizt inn I Hljómskálann, en keyrir um þverbak meft þessari Ikveikju.
Engin vitni voru að atburðinum, en útlendingur nokkur ber aft hafa séft tvo unglingspilta á óvenjulegri
hraftferð upp Skothúsveginn um likt leyti og Ikveikjunnar varft vart. Hdsift er tryggt. Timamynd: G.E.
Ungri stúlku
nauðgað á
Seltjarnar-
nesi
ESE — Um kl. 06 að morgni föstu-
dagsins langa barst lögreglunni i
Reykjavík nauðgunarkæra. Ung
stúlka kom á lögreglustöðina og
bar fram kæruna, og sagðist
henni svo til, að hún hefði verið á
gangi á Hringbrautinni, þegar
ungur maöur kom þar að og bauð
henni far I bil sinum, sem hún
þáði. Maðurinn ók siöan út á Sel-
tjarnarnes, þar sem hann kom
fram vilja sinum við stúlkuna, en
ók á brott að svo búnu. Stúlkan
náði númerinu á bilnum og gat
skýrt frá þvi og leiddi það til þess
að billinn fannst skömmu siðar
fyrir
utan hús eitt I vesturbænum.
ökumaðurinn var staddur i hús-
inu og kom hann mótþróalaust
meö lögreglunni á slysadeild
Borgarspitalans, en þar var tekiö
blóösýnishorn, þar sem grunur
lék á að hann hefði verið undir
áhrifum áfengis.
Kona ferst
í húsbruna
JB — Sá hörmulegi atburður átti
sér stað aðfaranótt páskadags, er
bærinn aö Ljárskógum i Dala-
sýslu, brann til grunna, að Astrið-
ur Hansdóttir, húsfrú þar, brann
inni. Astriöur var fædd þann 17.
ágúst 1927, en hún var ættuð frá
Fifvesdali Noregi. Hún var ekkja
Guðmundar Jónssonar bónda á
Ljárskógum og lætur eftir sig
þr jú uppkomin börn. Astriður var
ein f bænum er hann brann.
Að sögn Jóns Péturssonar,
varaslökkvistjóra I Búðardal var
slökkviliðið kvatt að Ljárskógum
kl. 6.10 aö morgni páskadags. Var
slökkviliðiö komið á staðinn
rúmlega hálftima siðar, en húsið
var þá alelda og að mestu fallið.
Ljárskógar eru 10-12 km frá
Búðardal. Þetta var gamalt hús á
tveim hæðum auk riss, með
steypta veggi og járnklætt
timburþak. Ekki mun enn ljóst að
sögn Jöns, hver voru upptök elds-
ins, en likur benda til að hannhafi
komið upp á efri hæðinni. Húsið
brann mjrig fljótt og brann allt
sem brunnið gat. Veður var
hvasst er þetta geröist, átta til niu
vindstig.
Hvar eru Fríkirkju
höklarr.ir mðurkomnir?
FI — Leiðinlegt atvik átti sér staft
nóttina eftir pálmasunnudag,
þegar brotizt var inn I Frikirkj-
una i Reykjavik og stolift þaöan
þremur höklum og rykkiiini.Tjón-
iö er tilfinnaniegt og litlr vonir nú
til þess aft messuklæöin finnist.
Ekki komst upp um þjófnaöinn
fyrr en á þriöjudeginum, og eru
ýmsar getgátur uppi um, hvaft
orðið hefur um klæðin. ómögu-
legt er aft koma þeim i verð hér-
lendis og sumir óttast aö þeim
hafi verið fleygt I rusl.
Þarna á meöal var geysilega
dýr gripur, föstuhökkull með
balderaðan gullkross á baki, há-
tiðahökkull og gamall hökull, sem
að sögn séra Þorsteins Björns-
sonar Frikirkjuprests er sárast
að missa, en þann hökul munu
allir prestar Frikirkjunnar hafa
boriö.