Tíminn - 01.04.1978, Page 9
Laugardagur 1. april 1978
9
Söngur
og
hlátur
laga svo
ótrúlega
marga
hluti
Einn af fulltrúum á flokks-
þingi Framsóknarmanna var
Ingibjörg Indriðadóttir, Höfða-
brekku i' Kelduhverfi.
Hvernig finnst þér að koma á
flokksþing, Ingibjörg?
Mér finnst það afskaplega
gaman. Þetta er svo vel skipu-
lagt að það er eins og finasti
félagsmálaskóli. öllu er skipt
niður i viðráðanlega umræðu-
hópaog þá fær maður svo mikla
innsýn i málin bæði félags- og
stjórnmálin. Einnig kynnist
maður svo mörgu indælis fólki
og hlakkar til að hitta það aftur
á naesta þingi, eins og gamla
skólafélaga. Þá hefur maður
hér tækifæri gil að bera saman
bækur sinar um vandamálin hér
og þar á landinu.
Mig langar lika að taka það
fram að éger alveg á móti þess-
ari togstreitu á milli ibúa þétt-
býlis og dreifbýlis sem gætir of
mikið með þjóðinni og er mein-
illa við þær raddir sem eru að
ýta undir þessa óvild á milli
landsbyggðarinnar og þéttbýlis-
ins. Það er mikill misskilningur
á bakvið þetta, auðvitað þarf aö
vera þarna eðlilegur skilningur
á milli og þann skilning þarf að
auka.
Hvernig eigum við aö gera
það?
Með þvi að upplýsa fólk
meira. Skýra betur viðhorfin,
við hvaða vanda hver hefur að
striða. Einnig hefi ég áhyggjur
af þvi hvað mér finnst fólk
heimtufrekt. Mérverður hugsað
til þess þegar f jöldi ungra hjóna
áður fyrr var að byggja upp I
sveitinni með tvær hendur tóm-
ar en þau voru full af bjartsýni.
Allt fór svo undarlega vel, af þvi
að fólk var svo nægjusamt.
Unga fólkið nú sem hefur búið
við allt önnur kjör, skilur ekki
þessa nægjusemi, finnst hún
bara undarleg.
Kjck’in þurfa að vera
jafnari
Einnig er ég viss um að það
væri betra fyrir landið i heild ef
kjörin væru sambærilegri. Tog-
streitan myndast af þvi að sum-
ir hafa of litið en aðrir of mikið á
milli handanna. Af þvi myndast
eilifur samanburður sem kemur
mjög illa við þá sem minna
hafa. Þetta þarf með einhverju
móti að jafna.
Hvernig vilt þú leysa þessi
mál?
Ég verð að viðurkenna að -
auðvitað hef ég ekki á reiðum
höndum svör við þvi fremur en
aðrir. Hins vegar er númer eitt
Ingibjörg Indriðadóttir,
Höfðabrekku. Tímamynd G.E.
að minnka heimtufrekjuna og
þá ekkert siður hjá einum hópi
en öðrum. Við krefjumst of mik-
ils og hugsum ekki um hvar á að
taka alla þessa fjármuni. Auð-
vitað vita allir i hjarta sinu, að
ef við tökum lán, þarf einhvern
timann að greiða þau. Þvi þurf-
um við smátt og smátt að fara
að lækka okkar miklu erlendu
skuldir til að fá þaö ekki allt á
okkur i einu.
Of langur skólatími
veldur námsleiða
Hvað vilt þú sem kennari
segja um skólakerfið?
Ég var mjög hrifin af grunn-
skólalögunum þegar þau komu
til umræðu, og kynnti mér þau
rækilega, þvi ég var kennari i
tuttugu ár. Ég er bara hrædd
um aðþettaséað verða ofmikið
bákn. Ekki vegna fram-
kvæmdarinnar, hún tekur eðli-
lega sinn tima, heldur vegna
kostnaðarins og vegna þess að
skólatiminn er of langur. I
mörgum tilfellum eru nem-
endurnir orðnir hundleiðir löngu
áður en þessiniu mánaða skóla-
timi er liðinn og leiður nemandi
lærir ekki að gagni. Skólaárið
má heldur ekki verða svo langt
að nemendurnir kippist út úr
þjóðlifinu. Égmeina t.d. að börn
i sveit verða að fá að taka þátt i
mestu annastörfunum vor og
haust. Þetta er nauðsynlegt
fvrir heimilin, og börnin læra
mikið af þvi. Þetta er hagnýtt
nám sem ekki er hægt að læra af
bókum.
Er hægt að komast yfir náms-
efnið á styttri tima?
Ekki allt það námsefni sem nú
er sett fyrir. Það þarf að
minnka og gera það raunhæf-
ara. Enda heldég að það sé ekki
allt jafn nauðsynlegt svo að
sumt mætti minnka. Það væri
t.d. betra að læra vel eitt erlent
tungumál heldur en að grauta I
tveim til þrem. Og eitt er vist að
sá nemandi sem aldrei sér út úr
námsefninu verður aldrei
ánægður. Ég er ekki að halda i
það gamla nema að vissu leyti,
en ég vil ekki að nemendur séu
ofkeyrðir. Einnig vil ég að það
komi fram að ég er hrifin af
hvað búið er að byggja upp
marga glæsilega skóla.
Agavandamál stafa af
öryggisleysi
Hvað vilt þú segja um
unglingavandamálin sem mikið
er rætt um?
Ég hef brennandi áhuga á
vernd barna og unglinga ekki
bara i skólum heldur hka á
heimilunum. Fólk.þarf að átta
sig betur á þvi að það eru fá at-
riði sem þarf til þess að börn
verði viðráðanleg. Það er að
setja nógu snemma reglur fáar
og einfaldar. Reglur um hlýðni
á vissan hátt um virðingu fyrir
annarra eigum og tillitssemi við
aðra. Börn vilja reglur og fylgi
þeim næg gæði og bliða, verða
engin vandamál i'uppeldi. Unga
fólkið er elskulegir foreldrar en
sumt af þvi vantar að vita þetta.
Finnst þér þá unga fólkið of
hrætt viö að setja reglur?
Einmitt mér finnst það. En
það þarf það ekki að vera hrætt
við.þvi börn erusvo vitur að þau
finna hvað er réttlátt i þessum
efnum. Staðreyndin er sú að þó
sumum finnist það kannski
skritið að barn sem haldið er
einhvers konar skemmdarfýsn
þarfnast meiri bliðu en ávitur
verka þveröfugt. Þetta er
öryggisleysi sem kemur svona
fram.
Ég hef heldur aldrei skilið
kennara sem eru lafhræddir i
timum og þora ekki að leyfa
börnum að brosa eða hlægja af
ótta viðaðmissa tökin á kennsl-
unni. Þetta er alger mis-
skilningur. Ef fólki liður vel i
timum, kemur agi af sjálfu sér.
Agi má heldur aldrei verða of
mikill fólk þarf að njóta sin. Og*
söngur og hlátur leysir svo ótrú-
lega marga hluti.
Fólkinu má ekki fækka
i sveitinni
Hvað vilt þú segja mér úr
þinni heimabyggð?
Þaðeinasem ég hef áhyggjur
af er hvað fólkinu i sveitinni
fækkar. Þvi hefur fækkað um
helming á 20 árum. Það er in-
dælisfólk sem eftir er og við
höldum uppi blómlegu félags-
lifi. En fækki fólki meira, þola
hinir ekki við. Það verður Fka
svo mikið að gera fyrir þessa
fáu sem eftir eru, við ýmis sam-
eiginleg verkefni t.d. smölun og
fleira sem ekki er hægt að kom-
ast hjá. Þetta eru min einu
áhyggjuefni að öðru leyti er ég
bjartsýn á framtiðina.
HEI
SHURE
pick-upar og náiar
SKIPHOLTI 19 R.
SIMI 29800 (5 LINUR)
27 ÁR í FARARBRODDI
Sölu-
Óskað er eftir tilboðum i eftirfarandi sölu-
aðstöðu, á Landsmóti hestamanna að
Skógarhólum i Þingvallasveit 13.-16. júli
1978.
1. Veitingasölu.
2. Sölu á matvörum.
3. Sölu á minjagripum.
4. Sölu á vörum viðkomandi hestum
og hestamennsku.
Tilboð berist Pétri Hjálmssyni, Búnaðar-
félagi íslands, Bændahöllinni við Haga-
torg. Pósthófl 7080, 107 Reykjavik, fyrir 1.
mai n.k.
Framkvæmdastjórn.
Rafvörur og verkfæri
Bygginga vörur
<E?SAMVIRKI
VERZLUN
Þverholti í Mosfellssveit Sími 6-66-90
BÍLAPARTA-
SALAN
auglýsir
NYKOMNIR VARAHLUTIR í:
Fiat 128 Árg.
Fiat 850 Sport —
Vo/vo Amason —
Land Rover _
Voikswagen _
'71
'71
'64
'67
'68
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Simi 1-13-97
Pípulagningaþjónusta
Getum bætt við okkur verkefnum i ný-
lögnum, viðgerðum og breytingum, ger-
um verðtilboð ef óskað er.
Vatnslagnir s/f
simar 86947 og 76423
Skúli M. Gestsson.Löggiltur pipulagningameistari.