Tíminn - 08.04.1978, Side 15

Tíminn - 08.04.1978, Side 15
Laugardagur 8. aprll 1978 Uli'IillII 15 Pressuleikur í körfu — Hockenos, Dunbar og Cristiansen leika með pressuliðinu Á morgun sunnudag verður háður pressuleikur í körfuknattleik i Hagaskólanum. Landsliðsnefnd hefur valið lið sitt i leikinn, en það er þó ekki endanlegt val fyrir Pol- ar Cup-keppnina, sem háð verður hér á landi dagana 21.-23. april n.k. Leikurinn á morgun gæti orð- ið mjög skemmtilegur, þar sem þrir af Bandarikjamönnunum, sem leikið hafa hér i vetur, leika með pressuliðinu — þeir Rick Hockenos, Dirk Dunbar og Mark Atli Eðvaldsson. Tekst eyja- mönnum að stöðva hann i dag ? Cristiansen. Leikurinn á morgun hefst kl. 15.00 og verður örugg- lega gaman að fylgjast með Bandarikjamönnunum á móti landsliðinu, þar sem Jón Sigurðs- son og Pétur Guðmundsson, hinn hái miðherji landsliðsins, leika stærstu hlutverkin. Liðin á morgun eru þannig skipuð. Landsliðið: Bakverðir Jón Sigurðsson KR Kári Marisson UMFN Kolbeinn Kristinsson 1S Framherjar Þorsteinn Bjarnason UMFN Gunnar Þorvarðarson UMFN Kristján Agiístsson Val Torfi Magnússon Val Simon Ólafsson Fram Pressuliðið: Bakverðir Dirk Dunbar 1S Rick Hockenos Val Kristinn Jörundsson 1R Steinn Sveinsson IS Framherjar Bjarni Jóhannesson KR Geir Þorsteinsson UMFN Ingi Stefánsson IS Einar Bollason KR Miðherjar Mark Christiansen Þór Jónas Jóhannesson UMFN SJÓ. Jón Sigurðsson landsliðsmaður. Handbolti um helgina Þrír leikir verða í 1. deild íslandsmótsins i hand- knattleik um helgina. I dag kl. 15,30 leika 1R og KR i iþróttahöllinni i Laugardal. Ann- að kvöld heldur mótið áfram með leikjum Vikings og Fram, sem byrjar kl. 20,10. Armann — KR leika seinni leikinn, sem hefst kl. 21,25. Vikingar eru nálægt þvi að vera búnir að tryggja sér tslands- meistaratitilinn i ár, en þeir þurfa 4 stig úr þremur siöustu leikjum sinum, sem eru á móti Fram, 1R og Val. Armann og KR eru enn i fallbaráttunni, og verður Ármann að vinna þá leiki, sem þeir eiga eftir ef þeir ætla að halda sér i deildinni. ÍBV mætir Val í meistarakeppninni Valsmenn halda til Eyja i dag og leika við Vestmannaeyinga i meistarakeppni KSÍ kl. 14,00. Valsmenn gerðu jafntefli við Akurnesina um siðastliðna helgi i mjög góðum leik af beggja hálfu, og verður forvitnilegt að vita hvernig Vestmannaeyingum gengur að eiga við Valsmenn, ef þeim tekst eins vel upp og á móti ÍA. Rey kj avíkurmótið í knattspyrnu hefst um helgina Reykjavikurmótið i knattspyrnu hefst i dag kl. 14.00 með leik Þróttar og KR. A morgun sunnudag leika kl. 14.00 Vikingur — Armann. Þriðji leikur mótsins verður siðan á mánudagskvöld kl. 20,00 þá leika Fylkir og Valur. Allir leikirnir verða á Melavellinum, þar sem miklar framkvæmdir hafa verið undanfarið við að færa völlinn til vegna byggingar þjóðarbókhlöðunnar. Fáar sýningar eftir á Öskubusku Sýningum fer nú að fækka á leikritinu OSKUBUSKU i Þjóð- leikhúsinu en leikritið hefur verið sýnt frá þvi skömmu eftir áramót og verður 20. sýning verksins á sunnudaginn kemur. Þessi sýning er byggð á ævintýrinu gamla. Höfundur leikgerðar er Eyvindur Erlendsson en leikstjóri Stefán Baldursson. Titilhlutverkið, Öskubusku leikurEdda Þórarins- dóttir, kónginn káta og loft- hrædda leikur Arni Tryggvason ogprinsinn Þórhallur Sigurðsson. Ýmsir gagnrýnenda hafa lokið miklu lofsorði á sýninguna og töldu einn helzta kost hennar, að bæði börn og fullorðnir gætu haft af henni góða skemmtun. Leik- mynd og búningar Messiönu Tómasdóttur hafa vakið verð- skuldaða athygli svo og smellnir söngtextar Þórarins Eldjárn og fjörleg tónlist Sigurðar Rúnars Jónasonar, en þess má geta að hún er öll væntanleg á hljómplötu innan skamms. Næsta sýning á öskubusku verður sem fyrr segir á sunnudaginn kl. 15 og eru þá að- eins eftir örfáar sýningar. Heilladisin (Sigriður Þorvalds- dóttir) hefur ráð undir rifi hverju og beitir töfrasprotasinum óspart til þéss að gleðja og kæta. HIM BO-veggsamstæður fyrir hljómflutningstæki Tilvaldar fermingargjafir Húsgögn og innréttingar Suðurlandsbraut 18 Sími 86-900 FREEPORTKLÚBBURINN boðar til RAÐSTEFNU með DR. FRANK 'HERZLIN eiganda og yfírlækni . FREEPORT HOSPITAL ý um efnið 1 THE FREEPORT PHILpSOPHY FOR SUCCESSFUL LIVING að HÓTEL SÖGU laugardaginn 8. og sunnudaginn 9. apríl 1978 kl. 10-12 og 13.30-16.00 báða dagana Ráðstefnan er öllum opin oÞátttökugjald kr. 3.000.00 greiðist við innganginn Meistaramót Reykjavíkur í lyftingum Sunnudaginn 9. april n.k. landameistaramótinu í lyftingum verður haldið Reykjavikurmeist- sem fram fer i Kotka i Finnlandi aramót i lyftingum. Mótið verður dagana 15. og 16. aprfl n.k., en þaö haldið i naddyri Laugardalshall- eru Kári Eliasson A, Már Vil- arinnar og hefst kl. 14. Mót þetta hjálmsson A, Birgir Þór Borg- er siðasta þolraun þeirra lyft- þórsson KR, Agúst Kárason KR ingamanna, sem keppa á Norður- og Gústaf Agnarsson KR. Sjómannablaðið Víkingur: Fjölmargar greinar í nýútkomnu tölublaði Annað tölublað þessa árgangs af Sjómannablaöinu Vikingi er nýkomið út. Blaðið er rúmar fimmtiu siður á stærð og kennir þar ýmissa grasa. Meðal efnis sem i blaðinu er er eftirfarandi: Félagsmálaopnan er Ingólfur Stefánsson skrifar. Jónas Guðmundsson skrifar um Slysavarnafélag Islands og fimmtiu ára sögu þess. Þá eru greinar um jólaferð M.S. Helga- fells. Útgerðarfélag Akureyringa, frystitogaraflota Spánverja, sild veiðiskip um siðustu aldamót og um Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar á Akureyri. Þar birtist og skýrsla Hafrannsóknastofnun- ar. Auk þess sem hér er talið er margar fleiri greinar að finna i blaðinu um margvisleg málefni, sem kynnu að vekja áhuga margra. Jónas Guðmundsson og Guð- mundur Jensson eru ritstjórar Vikings En blaðið er gefið út af FFSl.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.