Tíminn - 14.04.1978, Side 4
4
Föstudagur 14. april 1978
Bráðum giftist Georgina!
Viö höfum flestöll fylgzt vikum og mánuðum saman með þáttunum í sjónvarpinu, sem á ensku heita
„Upstairs, Downstairs”, en á islenzku hlutu þeir nafnið „Húsbændur og hjú”. Okkur finnst við vera ná-
kunnug þessu fólki, þó að hér á landi sé áhuginn ef til vill ekki eins mikill á málefnum og vandamálum
ibúanna í 165 Eaton Place (uppi og niðri) og almennings í Bretlandi. Ýmsar sögur ganga um viöbrögö
fólks þar í landi og simahringingar til sjónvarpsstoðva eftir sýningu sumra þáttanna. T.d. var mikið
spurt um líöan Hudsons yfirþjóns, eftir aö hann lék I þættinum, þar sem hann var látinn veikjast, og fá
hjartaáfall. Einn maður hringdi t.d. og sagðist vera nokkuð kominn til ára sinna, en hann hefði verið
yfirþjónn á árum áður, og hann gæti velhugsaðsér aöhlaupa iskarðið fyrir Hudson meöan hann væri að
ná sér: — Hvernig fer fólkið i Eaton Place aö án hans, það veröur að hafa almennilegan yfirþjón, sagði
þessi aldni heiðursmaður.
Einnig var hringt og kvartað yfir þvi, að hún Georgina, sem var svo dugleg viö hjúkrunina i striðinu
(1914-18) væri orðin svo léttúðug og drykki bara allt of mikið — af ungri lady að vera! Fólkið, sem kvart-
, aði um hegðun Georginu, var huggaö með þvi, að bráðum giftist hún prýðismanni og þá yrði mikil
breyting á hegðun hennar. Hún yrði regluleg hefðarkona og hagaði sér eftir þvi. Þetta þóttu gleðifréttir.
Hér sjáum við mynd frá brúðkaupinu (þessi þáttur hefur ekki enn verið sýndur i isl. sjónvarpinu).
Þarna er þjónustufólkið i 165 Eaton Place að óska brúðhjónunum til hamingju. Lesley-Anne Down leikur
Georginu og Anthony Andrews leikur brúðgumann, Robert Stockbridge markgreifa.
í spegli tímans
Að bjarga sér eins
og bezt gengur
Þegar gamanleikarinn Don Saunders bauð þessari
glæsilega vöxnu stúlku upp i dans úti i garði i Hamborg,
var honum svarað með steinþögn. Þá var ekki annað að
gera en að taka stjórnina i sinar hendur.
með morgunkaffinu
— Og mí er það alvara.
— Fg veit ekkert uin karlmenn. fcg veit bara
hvað þeir vilja.
HVELL-GEIRI
DREKI
SVALUR