Tíminn - 14.04.1978, Side 16
16
Föstudagur 14. april 1978
Skíðaráð fær tekjustofn
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti að greiða því
10% af tekjum af skiðalyftum
JG— Á fundi i borgarstjórn 6.
april siðastliðinn var samhljóða
samþykkt i borgarstjórn Reykja-
vikur tillaga um að styðja Skiða-
ráð Reykjavikur fjárhagslega.
Tillöguna fluttu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins og var hún
svohljóðandi:
Borgarstjórn Reykjavikur
samþykkir, að upphæð sem
svarar 10% af hlut Reykjavikur-
borgar vegna tekna af skiðalyft-
um i skiðalöndum Reykvikinga
skuli renna til Skiðaráðs Reykja-
víkur, aðallega til að halda uppi
kennsiu fyrir almenning.
Samþykkt þessi komi til fram-
kvæmda þannig, að i fjárhags-
áætlun ársins 1979 verði tekin upp
fjárveiting sem svarar 10% af
tekjum ársins 1978 og þannig
áfram frá ári tii árs.”
Tillaga þessi hlaut góðan
hljómgrunn meðal borgarfull-
trúa, þvi áhugi hefur verið og er
mikill á skiðaiþróttum i borginni.
Það kom fram að tekjur af
skiðalyftum námu um 5 milljón-
um króna á siðasta ári, og verða
þær væntanlega enn hærri á þessu
ári, sem nú er að liða, þannig að
Skiðaráð Reykjavikur fær í sinn
hlut um 500 þúsund krónur fyrir
árið 1977, og ergotttilþessað vita
að ráðið mun beita sér fyrir
skiðakennslu á móti, þvi það eyk-
ur öryggi skiðaferða og gerir þær
ánægjulegri fyrir byrjendur.
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi, tók til máls og ræddi um
vegamál skiðastaðanna og taldi
að átak þyrfti að gera i vegamál-
um til þess að tryggja góða að-
komu i skiðalöndin.
Skiðaráð Reykjavikur er sam-
band þeirra iþróttafélaga, sem
hafa skiðaiþróttina á stefnuskrá
sinni. Það hefur til þessa verið
mjög fjárvana, þvi jafnvel þótt
um almenningsiþrótt sé að ræða,
er örðugt um tekjustofna, eða
sambærilega tekjustofna og önn-
ur iþróttafélög hafa til starfsemi
sinnar, t.d. innákeypta kappleiki
og fl.
Reykjavík Ensemble á
Háskólatónleikum
Kvartettinntekur þátt í alþjóðlegrikeppniíFrakklandi
Attundu og siðustu Háskólatón-
leikar vetrarins verða i Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut á
morgun, laugardaginn 15. april,
kl. 17.
Reykjavik Ensemble leikur
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför
föður okkar, tengdaföður og afa
Sigurðar Þórðarsonar
frá Egg.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Sigurðardóttir, Unnur Jóhannesdóttir,
Jónina Siguröardóttir, Jóhannes Hannesson
og barnabörn.
Elsku litli drengurinn okkar og bróðir
Chas
lézt að heimili okkar Eureca, Kaliforniu, aöfaranótt 12.
aprll.
str engjakvartett op. 95 eftir Beet-
hoven og kvartett nr. 6 eftir Bar-
tok.
Reykjavik Ensemble var stofn-
að 1975 og er kjarni þess strengja-
kvartett. Með hópnum hafa leikið
klarinettuleikari, flautuleikari og
pianóleikari og hafa þau þannig
flutt hina fjölbreytilegustu
kammertónlist. Reykjavik En-
semble hefur jafnt leikið klassisk
verk sem nútimaverk og einnig
islenzkar tónsmiðar. Hópurinn
hefur oft komið fram erlendis og
þrisvar sinnum farið til Þýzka-
lands til tónleikahalds.
Reykjavik Ensemble skipa:
Guðný Guðmundsdóttir, fiðla, Ás-
dis Þorsteinsdóttir Stross, fiðla,
Mark Reedman, Lágfiðla og Nina
G. Flyer, knéfiðla.
Þau eru nú á fórum til Frakk-
lands þar sem þau munu taka
þátt i alþjóðlegri kvartettakeppni
i Colmar 20.-23. april en 34 kvart-
ettar frá 10 löndum koma þar
fram. Meðaldómara verða heim-
þekktir tónlistarmenn t.d. Tibor
Varga og Jean Fournier.
Elisabet og Walther C. Peper og dætur.
Kveðjuathöfn um
Þórarinn Helgason
frá Þykkvabæ
fer fram i Fossvogskirkju föstudaginn 14. april kl. 13.30.
Jarösett veröur i heimagrafreit i Þykkvabæ, laugardag-
inn 15. april kl. 14.
Halldóra Eyjólfsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi
Sigurður Jónasson
skógarvörður,
Laugabrekku, Skagafirði
lézt þriðjudaginn 11. april.
Innbrot
ESE—Á þriðjud. var brotizt inn i
hús viö Grettisgötu og var stolið
þaðan um 200 þúsund krónum i
peningum. Seinna um daginn
hafðist svo upp á þeim sem að
innbrotinu stóðu, tveim ungum
mönnum, og voru þeir þá komnir
til Stykkishólms. Þá voru þeir
búnir aö eyða rúmlega helmingn-
um af peningunum og höfðu að-
eins um 80 þúsund krónur með-
ferðis, auk nokkurra vinflaskna.
Lögreglan i Stykkishólmi tók þaö
að sér að senda mennina til
Reykjavikur.
Sama dag var svo brotizt inn i
hús viö Reynimel og var stoliö
þaðan 65 þúsund krónum og u.þ.b.
100 dollurum. Ekki hefur hafzt
upp á þeim sem að þvi innbroti
stóöu.
Sigrún Jóhannsdóttir,
Svanhildur Sigurðardóttir, Hilmar Þór Björnsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Jón Adólf Guöjónsson,
Jóhann Sigurðsson, Margrét Valdimarsdóttir,
Siguröur Sigurðsson, Erla Kristjónsdóttir
...................
Tímínner
| peningar
f Auglýsicf
| íTimanum S
Tvær yfirlýsingar
t dagblöðum okkar birtist
grein þann 30. sept. s.l. með
undirskriftinni ,,Steypustöðin
Bjargh/f HÚsavik.” Þar sem ég
er nú i forsvari fyrir félag þetta,
tel ég mig tilneyddan aö bæta
ögn um hana og svara henni að
nokkru leyti.
1 fyrsta lagi við ég taka það
fram að ég var ekki kominn i
stjórn Bjargs f/f þegar steypu-
útboð það, sem um er rætt, fór
fram og var mér þvi ókunnugt
um það sem þar fór fram nema
það sem ég hef verið að reyna
aðafla mér vitneskju um siðan.
Þar stangast ýmis atriði tölu-
vert á og læt ég þeim, sem um
þetta f jölluðu eftir að komast tU
botns i þeim málum . En hitt
vil ég taka fram, að ég skil þá
afstöðu múrarameistara bygg-
ingarinnar aðkrefjast níöurlagn
ingamanna á steypu sem treyst-
andi væri, en hvort Bjarg h/f
hefði ekki getað útvegað þá læt
ég ósagt.
Um tilboð almennt vil ég
segja þetta. Það er min reynsla
að útboð eigi sér hæpnar for-
saidur nema horfur séu á at-
vinnuskorti, sem ég get ekki séð
að sé eða hafi verið til staðar á
Húsavik að undanförnu, að
minnsta kostieru alltaf að koma
til min menn með verkbeiðnir,
sem segjast vera búnir aö biða
2-4 ár hjá verktökum á Húsavik.
Hitt tel ég happadrýgra.ef hægt
er, að ráða hæfan og reyndan
mann sem framkvæmdastjóra,
eins og ég vil telja að núverandi
framkvæmdastjóri Dvalar-
heimilis aldraðra sé, sé þaö
æskilegasta lausnin.
Legg ég samt áherzlu á að
fenginni eigin reynslu, að ekki
er æskilegt fyrir framkvæmda-
stjóra verks sjálfan að hafa
mikinn atvinnurekstur á staðn-
um.
Það sem ég veit réttast um
ráðningu starfsmanna þarna á
hjá sér. Trésmiöir eru frá fyrir-
tækjunum Trésmiðju Jóns og
Haraldar og Trésmiðju Jóns Ár-
manns, rafverktakar frá Raf-
tækjavinnustofu Grims og Arna,
múrarameistari er Sigurjón
Parmesson og pipulagnir ann-
ast Vermir s/f.
öllum þessum aðilum treysti
ég fullkomlega og efast um aö
ég hefi valið öðruvisi ef á það
hefi reynt.
1 umræddri grein er drepið á
allháa upphæð úr reikningum
Dvalarheimilisins 1976og er þar
teiknikostnaður sem er þar
kominn á 5. milljón af 30,5 millj-
ona kr. framkvæmdakostnaði.
Vist er það, að þessi kostnaður
er hér, og yfirleitt alltof hár við
þessar stóru byggingar okkar,
en þetta er kostnaöur sem við
ráðum þvi miður litið við. Hitt
er lika að athuga að þessi kostn-
aður leggst alltaf tiltölulega
þyngst á fyrrihluta byggingar-
innar.
Aætlað var að framkvæma
fyrir 100 milljónir á yfirstarid-
andi ári og ljúka uppsteypu á
byggingunni. Af þeirri upphæð
var deiltniður á eigendur 31,340
þús. Annað er lánsfé sem aflað
hefur verið með miklum dugn-
aði. Oft hefur verið þörf á að
byggja hratt, en nú er það nauð-
syn, þar sem veröbólgan er
komin upp úr öllu valdi, og má
það undur heita ef sú áætlun
sem gerð var i hyrjun árs,
hækkar ekki um 20-30% á árinu
vegna verðbólgunnar.
Von min er sú að þeir aðilar
sem þarna hafa verið faldir
verkþættir, skili þeim þannigað
allir eignaraöilar geti vel við
unáð. Ritað idesember 1977
Stefán Óskarsson,
Rein, Reykjahverfi.
Husavik
15. janáar 1978
I tilefni af „Opnu bréfi til
byggingarnefndar Dvalarheim-/
ilis aldraðra s.f. á Húsavikv”
sem birtist i dagblöðum hinn^O.
september s.l. viljum við undir-
ritaðir taka eftirfarandi fram.
Þar sem i dagblaði þessu birt-
ist í dag leiðrétting og um leið
svar við áðurnefndri grein, sem
undirrituð var „Steypustöðin
Bjarg h.f. Húsavik”, sjáum við
ekki ástæðu til itarlegra svara.
Þ(í skal eftirfarandi tekið fram:
I grein Stefáns Öskarssonar á
Rein, oddviti Reykjahrepps,
sem er núverandi stjórnarfor-
maður Bjargs h.f., kemur fram
aðhann telur sig þurfa að „bæta
ögn um hana og svara henni að
nokkru leyti”. Þetta er drengi-
legta mælt af stjórnarformanni
Bjargs h.f og undirstrikar það
álit okkar að hann hafi ekki
verið höfundur greinarinnar frá
30. september s.l. En þar sem
„bréfið” var aðeins undirritað
„Steypustöðin Bjargh.f.”, varð
strax ljóst að.höfundur kaus að
láta nafns sins ekki getið af ein-
hverjum ástæðum og gat nánast
verið hver sem var. Abyrgðin á
skrifunum var hins vegar ótvi-
ræð svo lengi sem þau stóðu at-
hugasemdarlaus af hendi
stjórnar Bjargs h.f. Hver til-
gangur þessara skrifa hefir
verið, er ekki gott að segja með
vissu, en ljóst er að þau stuðla
ekki að sameiningu og samstöðu
héraðsbúa um þessa byggingar-
framkvæmd, en vekja hins veg-
ar tortryggni i garð þeirra sem
að framkvæmdinni standa. Það
skal þó upplýst að engin leynd
hvilir yfirhenni og til marksum
það má benda á að allar fundar-
gerðir trúnaðarráðs dvalar-
heimilisins eru sendar öllum
oddvitum aðildarhreppa. Það
eru þvi hæg heimatökin hjá hér-
aðsbúum að fá hjáoddvita sin-
um eða stjórnarmönnum allar
þær upplýsingarsem þeir þurfa,
áður en þeir hefja blaðaskrif
sem byggjast á getgátum. Ars-
reikningar fyrir 1976 hafa einnig
veriðsendiröllum eignaraðilum
og svo verður einnig um árs-
reikninga fyrir 1977 þegar þeir
hafa verið samþykktir af stjórn
og eignaraðilum dvalarheimil-
isins á næsta aðalfundi. Þar
mun væntanlega koma fram,
hvort illa hefir verið á fjármál-
um haldið, og þar með hvort illa
hefir tekizt með framkvæmdina
það sem af er.
Látum við svo útrætt um
„opið bréf” á vettvangi dag-
blaða, enda er hér um aö ræða
héraðsmál en ekki landsmál.
F.h. trúnaðarráðs Dvalar-
heimilis aldraðra s.f.
Formaður trúnaðarráðs
Egill Oigeirsson,
Framkvæmdst. byggingar,
Jón Ármann Árnason
Læknaritarastarf
er laust til umsóknar, við læknamóttökuna
á Selfossi.
Vélritunarhæfni og stúdentsprófs krafizt
eða sambærilegrar menntunnar.
Staðan laus frá 16. júni n.k.
Umsóknum skilað fyrir 30. mai.
Upplýsingar hjá héraðslækni eða yfir-
hjúkrunarkonu i sima (99)1767.
Héraðslæknir.