Tíminn - 14.04.1978, Síða 19
Föstudagur 14. april 1978
19
Wirnvm
Stórgjafir til
íþróttafélags fatlaðra
— sem sendir þátttakendur á NM i lyftingum
A blaðamannafundi, sem hald-
inn var til að kynna starfsemi
Iþróttafélags fatlaðra i Reykja-
vik, kom fram að Iþróttafélag
fatlaðra tekur þátt i borðtennis-
móti sem haldið verður I Roskilde
i Danmörku 15. og 16. april n.k.,
og NM i lyftingum, sem haldið
verður i Reykjavik 6. og 7. mai
n.k. Á fundinum mættu fulltrúar
frá Lionsklúbbi Reykjavikur og
afhentu félaginu 250 þús. kr. til
styrktar væntanlegri ferð á Stoke
Mandeville heimsleika fatlaðra,
sem haldnir verða i Englandi i
júli n.k. Þá.hafhentu félagar úr
Kiwanisklúbbnum Esju félaginu
búninga á þátttakendur i NM i
borðtennis, og Kvenfélag Dóm-
kirkjunnarafhenti75þús. kr.sem
renna eiga til eflingar iþrótta-
svæði Iþróttafélags fatlaðra.
Einnig var á þessum fundi kynnt
svokölluð trimmbönd, sem Lions-
klúbburinn Njörður er að hefja
sölu á, og munu þau verða til sölu
i Hagkaupi og i flestum sport-
vöruverzlunum. Hér á eftir
verður birt greinargerð frá
Iþróttafélagi fatlaðra i Reykja-
vik:
Upphaf og undirbúning-
ur
Að frumkvæði ISI var á miðju
ári 1973 sett á fót nefnd til að und-
irbúa þátttöku fatlaðra i iþrótt-
um. 1 þessari nefnd eru Sigurður
Magnússon frá 1S1, Guðmundur
Löve frá öryrkjabandalagi ts-
lands og Trausti Sigurlaugsson
frá Sjálfsbjörgu landssambandi
fatlaðra. Að frumkvæði þeirra og
ISI var IFR stofnað 30.5. ’74 og
IFA stofnan 7.12. ’74.
A undanförnum árum hefúr
verið unnið markvisst að upp-
byggingu og eflingu iþrótta fatl-
aðra auk mikillar kynningar-
starfsemi að frumkvæði ISI og
hefur IFR verið virkur þátttak-
andi i þvi starfi.
Frá starfsemi ÍFR
Sem fyrr segir var IFR stofnað
30.5 ’74 stofnfélagar voru um 40. 1
félagiriu eru i dag um 150 manns
ogeruum30 þeirra ófatlaðir en
i lögum félagsins segir: félags-
menn geta orðið allir þeir sem
áhuga hafa á iþróttum fatlaðra.
Hjá félaginu eru æfðar eftir-
taldar iþróttagreinar: Sund,
boccia, bogfimi, curling. borð-
tennis, lyftingar og litillega hafa
verið æfö köst. Þjálfarar félags-
ins eru Kristjana Jónsdóttir sund,
Sveinn Aki Lúðviksson borðtennis
og Júli'us Arnarson aðrar greinar,
en hann hefur verið hjá félaginu
frá upphafi. Einnig hefur Erling
Jóhannsson þjálfað þátttakendur
fyrir sundmót erlendis. Borðtenn-
is er æft 2-3 tima sex sinnum i
viku, lyftingar 2-3 tíma fimm
sinnum i viku, curling og boccia
2-3 tima þrisvar i viku. Þessar
greinar eru æfðar f tveimur söl-
um i húsi Sjálfsbjargar að Hátúni
12. Bogfimi er æfð 2 tima tvisvar i
viku i anddyri Laugardalshallar,
sömuleiðis sund i Skólalaug Ar-
bæjar, en séræfingar vegns sund-
mðta allt að sex sinnum i viku i
Sundlaug Vesturbæjar.
Nýtt íþróttasvæði
A siðasta ári fékk IFR leyfi
Sjálfsbjargar til að byggja upp
útiiþróttasvæði á lóðinni hér við
Hátún 12. Teiknistofan Armúla 6
s.f. hannaði iþróttasvæðið, sem
siðan var samþykkt af bæði
Iþróttaráði Reykjavikur og
Iþróttanefnd rikisins og end-
anlega samþykkt til fram-
kvæmda sem nýtt iþróttamann-
virki á sfðustu fjárlögum. Kostn-
aðaráætlun gerð i september s.l.
hljóðaði upp á rúmlega 30 millj-
ónir.
Akveðið er að hefja fram-
kvæmdir nú i vor og æskilegt er
aðhægt verðiaðljúkaþeim á sem
skemmstum tima, bæði vegna
mikillar þarfar og eftir þvi sem
verkið verður lengur i fram-
kvæmd verður það dýrara. For-
maður framkvæmdanefndar er
Rikharður Steinbergsson, en
hann er einnig félagi i Lions-
klúbbi Reykjavikur. Aðrir i
nefndinni eru Guðmundur Löve,
Vigfús Gunnarsson, Arnór Pét-
ursson og Július Arnarson.
Utankomandi stuðning-
ur.
Þetta er ekki i fyrsta sinn sem
klúbbar þessir koma við sögu
IFR. Er félagið var stofnað gaf
Lionsklúbburinn Freyr öii æf-
ingatæki til félagsins og hefur fé-
lagið óverulega þurft að endur-
nýja og bæta við þau. Á siðasta
ári gaf Lionsklúbbur Reykjavikur
félaginu 1 milljón kr. til fram-
kvæmda við væntanlegt úti-
iþróttasvæði var þessa fjár aflað
með happdrætti og sýndu þeir
einstakt fordæmi, þvi félaginu
gafst tækifæri til að taka þátt i
sölu happdrættismiðanna.
Kiwanisklúbburinn Esja gaf fé-
laginu stóra fjárupphæð er félag-
ið var stofnað og einnig hafa þeir
gefið félaginu alla bikara sem
keppt er um i innanfélagsmótum
félagsins. Lionsklúbburinn
Njörður hefur gefið verðlauna-
peninga i sömu mót auk stuðnings
i mörgum myndum. Lokst er að
geta 1 millj. króna gjafar frá
-starfsmannafélagi Sigöldu og
ýmsar minni gjafir hafa borizt fé-
lginu.
Stjórn IFR er þessum klúbbum
og öðrum, sem hafa sýnt félaginu
stuðning, þakklátari en orð fá
lýst, en þar sem þessir klúbbar
hafa allir komið við sögu féiags-
ins áður, litum við jafnframt á
þessar gjafir sem traustsyfirlýs-
ingu á það, sem við höfum verið
að gera undanfarin ár. Þvi þessir
aðilar hafa fylgzt með starfi fé-
lagsins og væru varla að veita þvi
slikan stuðning nema þeir hafi
séð, að fyrri gjafir þeirra hafa
komið sér vel og verið nýttar vel
og skynsamlega til eflingar
iþróttum fatlaðra. Það er von
okkar og trú að við séum þess
megnug að standa undir þvi
trausti sem okkur er auðsynt með
þessum gjöfum.
Pátttaka i mótum er-
lendis
NM I borðtennis
Um n.k. helgi fer fram i Ros-
kilde i Danmörku NM i borðtennis
fatlaðra. Af hálfu Islands verða 6
þátttakend-ir:
Elsa Stefánsdóttir,
Guðný Guðnadóttir,
Guðbjörg K. Eiriksdóttir
Arnór Pétursson,
Sævar Guðjó.nsr-=,
Viðar Guðnason.
Þjálfarar og fararstjóri verða
Sveinn Áki Lúðviksson og Július
Arnarson og Guðni Þór Árnason.
Þetta er i fjórða sinn sem fatl-
aðir iþróttamenn taka þátt i mót-
um erlendis. Fyrsta þátttakan
var á alþjóðlegum leikum i Svi-
þjóð i' nóv. 1976. Þar kepptu tveir
sundmenn og hlutu þriðja og
fjórða sæti i sinum flokkum, ann-
ÍR-Víkingur í kvöld
Ármann-KR frestað
I kvöld kl. 20.00 leika IR og Vik-
ingur i 1. deild Islandsmótsins 1
handknattleik. Ef Vikingur vinn-
ur þennan leik þurfa þeir að gera
jafntefli við Val i siðasta leik
mótsins til að tryggja sér
meistaratitilinn, en Valsmenn
koma til með að mæta sterkir til
þess leiks, þar sem þeir eiga
einnig möguleika á titlinum ef
þeir vinna. Leikur 1R og Vikings I
kvöld getur orðið skemmtilegur,
sérstaklega ef Jens Einarsson
markvörður IR-inga verður i eins
miklum ham og i undanförnum
leikjum. Leik Armanns og KR,
sem átti að vera seinni leikur
kvöldsins, er frestað vegna þátt-
töku unglingalandsliðsins I
Norðurlandamtotinu. Eftir leik
Þróttúr sigraði Val i
Reykjavikurmótinu Iknattspyrnu
i gærkvöldi með 2 mörkum gegn
1. öll mörkin voru gerð I fyrri
hálfleik, og voru Þróttarar fyrri
til að skora.
1R og Vikings verður leikur i 1.
deild kvenna milli Vikings og Ar-
manns.
Valsmenn hófu leikinn og var
boltinn varla búinn að ganga á
milli þriggja Valsmanna, er hinn
marksækni ÞróttariPáll Ólafsson
komst á milli og brunaði upp að
vitateig Valsmanna og skaut
hörkuskoti i bláhornið uppi, al-
gjörlega óverjandi fyrir Ólaf
Magnússon markvörð Vals. Atli
Eðvaldsson jafnaði á 22. minútu
með góðu skoti frá vitateig. Það
var siðan á 35. min, að Úlfar
Hróarsson skoraði sigurmark
Þróttara a f 18 metra færi i hornið
fjær. Þannig endaði leikurinn,
sannarlega óvæntur sigur Þrótt-
ara en þó sanngjarn. Mikið rok
var á vellinum og erfiti að hemja
boltann, þó sýndu liðin ágæta
knattspyrnu og þá sérstaklega i
fyrrihálfleik, en i þeim seinni var
of mikið af háspörkum.
— RP
Halldór Matthíasson
Reykj avíkur meistari
í 30 km. göngu
Um siðustu helgi fór fram
Reykjavikurmeistaramót i 30 km
sklðagöngu. Mótið var haldið I
Skálafelli, úrslit urðu þessi:
min.
Halldór Matthiass. Skiðafél.
Reykjav. 100,50
Páll Guðbjörnsson Fram 114,04
Bragi JónssonHrönn 122,12
Matthfas Sveinsson Skiðafél.
Reykjav. 124,21
Hermann Guðbjörnss.
Hrönn 130,41
AsmundurEiriksson Fram 132.43
Þróttur sigraði bikar-
meistara Vals
Lömuðu iþróttamennirnir sem keppa i Danmörku.
að skiptið var á heimsleikum fatl-
aðra i Stoke Mandeville i Eng-
landi s.l. sumar. Þar kepptu
fimm manns, i sundi, borðtennis,
lyftingum ogspjótkasti og unnust
þrenn bronsverðlaun, tvenn i
sundi og ein i lyftingum. Þriðja
mótið var svo NM i sundi i
'Þrándheimi i Noregi i nóv. s.l.
Þar keppti þrennt og unnust
tvenn silfurverðlaun og tvenn
bronsverðlaun
N.M. i lyftingum
6.-7. mai n.k. fer fram NM i
lyftingum fatlaðra hér i Reykja-
vik, ásamt norrænu kynningar-
móti i boccia, en það er litt þekkt
iþróttagrein hérlendis, sem hent-
ar einkar vel fötluðu fólki.
Þátttakendur verða frá öllum
Norðurlöndunum, samtals u.þ.b.
70-80 og meðal þeirra eru mestu
afreksmenn heimsins i lyftingum
(bekkpressu).
Þar sem ekkert sérsamband i
iþróttum fatlaðra er til hefur 1S1
haft allan veg og vanda af
keppnisferðum þessum.
Iþróttasamband fatlaðra á
Norðurlöndum var stofnað á Is-
landi I sept. 1976 og er ISI aðili að
þvi fyrir hönd fatlaðra iþrótta-
manna á tslandi.
Varla þarfað taka það fram að
iþróttir fatlaðra á tslandi hefðu
ekki þróazt svona hratt á stuttum
tima nema vegna þess að tíl kom
mikill skilningur almennigs og
forystumanna ISl, sem hafa veitt
i þetta fé og ómældri vinnu og
tima, einnig ber að þakka stuðn-
ing og skiining rikisvalds og borg-
arstjórnar.
Stjórnendur námskeiðsins, ólafur Oddsson t.v. og Jón Gunnar Grét-
arsson t.h.
F élagsmálanám -
skeið hjá Fylki
Nýlokið er félagsnámskeiði hjá
Iþróttafélaginu Fylki i Arbæ á
vegum félagsmálaskóla UMFI og
stóð námskeiðið frá 6. marztil 22.
marz. Leiðbeinendur á nám-
skeiðinu vor»a ólafur Oddsson og
Jón Gunnar Grétarsson. Nám-
skeiðið sóttu aðallega félagsmenn
Fylkis, alls 16 að tölu.
Þetta er annað námskeiðið sem
Iþróítafélagið Fylkir stendur
fyrir af þessu tagi,en það er eina
iþróttafélagið i Reykjavík sem
haldið hefur slikt námskeið.
Voru þátttakendur á einu máli
um ágæti slikrar félagsfræðslu,
sem vissulega stuðlar að auknum
félagsþroska þátttakenda. Vilja
þeir eindregið beina þvi til for-
ystumanna iþróttahreyfingarinn-
ar að gangast fyrir slikum nám-
skeiðum til ’að stuðla að auknu fé-
lagsstarfi á höfuðborgarsvæðinu.
Dr engj ahlaup
Ármanns
Hið árlega drengjahlaup
Armanns verður haldið fyrsta
sunnudag i sumri, þ.e. 23 april
n.k. Hlaupið byrjar og endar við
Laugardalsvöllinn og verður ca.
4km fy rir eldri flokkinn og um 2
km fyrir yngri flokkinn.
Flokkaskipting veröur þannig
að i yngri flokki eru þeir sem
fæddir eru 1966 og siðar.en i
eldri flokki þeir sem fæddir eru
1958 og siðar. Þátttökutilkynn-
ingum ber aö skila til Jóhanns
Jóhannesáonar i sima 19171.