Tíminn - 22.04.1978, Side 5

Tíminn - 22.04.1978, Side 5
Laugardagur 22 aprfl 1978 5 Vortónleikar Aðrir vortónleikar Tónlistar- skóla Kópavogs verða haldnir miðvikudaginn 3. mai kl. 9.00 e.h. Þar munu aðallega koma fram þeir nemendur skólans sem lengra eru komnir i námi. Þá mun Berglind Bjarnadóttir halda sjálfstæða tónleika 17. mai kl. 9.00 e.h. Hún lýkur burtfarar- prófi i einsöng á þessu vori og er Elisabet Erlingsdóttir kennari hennar. Berglind verður fimmti nemandinn sem útskrifast frá skólanum. Kennarar við Tónlistarskóla Kópavogs eru 24,'Nemendur voru i vetur 353 talsins, þar af 91 i for- skóladeildum fyrir 6 og 7 ára börn. Vornámskeið fyrir börn á þessum aldri hefst nú i byrjun mai og mun standa yfir i þrjár vikur. Skólastjóri er Fjölnir Stef- ánsson. Ber lyfjalagafrumvarpið vott um þröngsýni? FI — Nú liggur fyrir Alþingi frumvarptil lyfjalagasem m.a. felur i sér þá breytingu, að vita- min og náttúrulækningaefni verða tekin úr frjálsri sölu og afhent apótekunum til yfirráða. Að sögn Lofts Guðmundssonar rithöfundar, sem sæti á i stjórn „Heils uhringsins ”, gengur þetta írumvarp i berhögg við iyfjalög i öðrum löndum, svo sein i Norður-Ameriku allri, Bretlandi, Þýzkalandi, Sviss, Sviþjóð og Danmörku, en i þess- um löndum eru vitamin og náttúrulækningaefni seld á frjálsum markaði. „Heilsuhringurinn” hefur með bréfi til alþingismanna óskað eftir þvi að þeir sæju svo um, aðfrumvarp þetta yrðiekki keyrt i gegnum þingið fyrir þinglok, enda sýni frumvarpið furðulega þröngsýni og óbilgirni i tilraunum sinum til aðgeraal- mennar neyzluvörur að bann- vöru utan apóteka. Einnig er bent á að apótekin hafi aldrei sýnt áhuga á að selja þau fæðu- bótaefni sem reynt hefur verið að banna öðrum að flytja inn, og erueftirsótt af þeim, sem notað hafa. Loftur nefndi i samtali við Timann sem dæmi um fæðu- bótaefni, „rússnesku rótina”, sem kölluð er og notuð hefur verið af unnendum náttúru- lækninga á Norðurlöndum til þess að lækka blóðþrýsting og það með góðum árangri. Nái frumvarpið óbreytt fram að ganga, þýðir litið að ætla sér að styðjast við „rússnesku rótina” eða önnur fæðubótarefni, þvi að þau verða væntanlega ófáanleg. Skilgreining á lyfjahugtakinu er á reiki i lyfjafrumvarpinu að sögn Lofts, og þar segir á einum stað að ,,lyf séu efni, sem ætluð séu til lækninga” o.s.frv. en á öðrum er lyfjahugtakið nánast ofurselt geðþóttaákvörðunum, og þar gert ráð fyrir reglugerð til nánari skilgreiningar á hug- takinu og undanþágum frá þvi. Loftur kvað það skoplegt og mótsagnakennt, ef banna ætti frjálsan aðgang að vitaminum og mikilvægum hollefnum, en leyfa sölu heilsuskaðlegra efna að vild. Bannstefna sú, sem kæmi fram i frumvarpinu væri brot á almennum mannréttind- um, og þess vegna yrði umræða um lyfjalögin að fara fram fyrir opnum tjöldum. Ný síma- skrá gengur í gildi 7. maí Lummur um land allt HH—MS — A sumardaginn fyrsta kom nýja Lummuþlatan á mark- aðinn. Þetta er önnur plata þeirra og ber hún nafnið Lummur um land allt. Á þessari plötu eru, eins og þeirri fyrri, einungis gömul lög, eins og Lummunafnið gefur reyndar til kynna. Aðspucðar kváöust Lummurnar vera mjög ánægðar með plötuna, og undir- strikuðu þær að platan væri ekki listaverk', heldur til að koma þessum gömlu, góðu lögum yfir á eina, þannigaðfólkfenginú betra tækifæri til að hlusta á þau. Ekk- ert kváðust Lummurnar vera farnar að hugsaum framtiðina en sögðust þó liklega ekki gefa út aðra slíka. Þetta þarf þó ekki að vera það siðasta sem við heyrum frá Lummunum, þvi draumur þeirra er að fara út um land allt i sumar, og bjóða öllum lands- mönnum upp á gamlar lummur. Athygli skal vakin á skrá yfir- númer neyöar- og öryggissima,- sem birt er á forsiðu kápunnar innanverðri, einnig á baksiðu. Simaskráin verður send út um land næstu daga. Reisum Lum murnar Lummustuði Simaskráin 1978 verður afhent tilsfmnotenda i Reykjavik, Kópa- vogi og Hafnarfirði, frá og með mánudeginum 24. april n.k. og gengur hún i gildi sunnudaginn 7. mai 1978. Sjá nánar auglýs- ingu um afhendingu simaskrár- innar i dagblöðunum i dag. Timamynd: Gunnay. Upplag simaskrárinnar er um 100 þúsund eintök. Brot skrárinn- ar er óbreytt frá 1977. Lærið lífgun á einu kvöldi FI — Reykjavikurdeild Rauða kross islands mun gangast fyrir námskeiðum i bláslursaðferðinni frá og með mánudeginum 24. april n.k. Hvert náinskeið stendur yfir i eitt kvöld og verður hið fyrsta haldið næstkomandi mánu- dagskvöld kl. 20.00 i Heilsuvernd- arstöð Reykjavikur við Baróns- stig, gengið inn frá baklóð. Sýnd verður kvikmynd til skýringar og kennt verður tneð brúðum. Fjöldi námskeiðanna fer eftir aðsókn og ber að tilkynna þátt- töku strax i sima RKÍ 28222 Kennari á námskeiðunum verður Jón Oddgeir Jónsson. Formaður Reykjavikurdeildar RKl er Ragnheiður Guðmunds- dóttir læknir. Keflavík Vantar blaðbera strax i vesturbæinn. Upplýsingar i sima 1373. U thlutað úr Minningarsj óði Barböru Árnason SJ — Siðasta vetrardag var i fyrsta sinn úthlutað styrk úr Minningarsjóði Barböru Apnason listmálara. 20listamenn sóttu um styrkinn og var nafn styrkþegans dregið út og reyndist hann Hrólf- ur Sigurðsson listmálari. Minningarsjóð Barböru Árna- son stofnuðu eiginmaður hennar Magnús Arnason og sonur hennar Vifill Arnason, að lokinni yfirlits- sýningu á verkum Barböru heit- innar 1976. Stjórn sjóðsins skipa þeir feðgar ásamt Hjörleifi Sigurðssyni formanni Félags is- lenzkra myndlistarmanna. Að þessu sinni voru 300.000 kr. veitt- ar úr sjóðnum og er ætlunin að út- hluta þeirri upphæð árlega. Sonardætur Barböru,Brynja og Valdis drógu út nafn styrkþega og hér eru þær á mynd með Hrólfi Sigurðssyni listmálara ásamt körfunni sem nöfn umsækjenda voru i. Timamynd Róbert. íslenzka hestinum minnis- varða HH — 1 3. tölublaöi Eiðfaxa er sagt frá sjóði sem stofnaöur hefur verið til að reisa islenzka hestin- um mínnisvarða. Hugmyndina að stofnun sjóðsins áttu þau Öli M. tsaksson og Asta Þorsteinsdóttir, fyrrum kaupkona i Reykjavik. Þetta var upp úr 1940 og lagði Ásta fram fyrstu upphæðina kr. 300, sem var ekki svo litill pening- ur í þá daga. Sjóðnum hefur nú verið sett stjórn, að frumkvæði Þorláks Ottesen, sem formenn L.H. og Fáks og frú Margrét Johnsen skipa. Þar sem hérer um að ræða all- fjárfreka hugmynd, hyggst stjórnin gefa mönnum kost á að minnast fallinna hesta með gjöf i sjóðinn. Slikar gjafir yrðu. skráðar i sérstaka bók ásamt stuttri frásögn af hestinum og væntanlega einnig mynd. Einnig hugsarstjórnin sér að fá leyfi til að selja merki á mótum og mannfagnaði hestamanna og hefur Gerður Ragnarsdóttir teiknað merkið. Hér er á ferðinni verðugt verkefni, sem ekki ætti einungis að vera hestamönnum kappsmál. heldur landsmönnum ölium. Tökum þvi höndum saman og reisum þarfasta þjóni manns- ins voldugt minnismerki á Þing- völlum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.