Tíminn - 22.04.1978, Page 8

Tíminn - 22.04.1978, Page 8
8 Laugardagur 22 aprQ 1978 Teikning af fyrirhuguöu verslunarhúsi Kaupfélags Skagfiröinga. NY VERKEFNI eru ætíð fyrir hendi Þaö hefur verið minnt á að verzlunarþjónustan er einn frumþáttur reksturs kaupfélag- anna en vegna þess að „margs þarf búið við” hafa félögin fengið það hlutverk hvert á sin- um stað i æ rikara mæli að vera i fararbroddi eða stuðla að framkvæmdum og uppbyggingu sem nauðsynleg erhinu daglega lifi i nútima þjóöfélagi. Það er augljóst að til þess að þetta sé unnt þarf stöðugt að koma upp nýrri aðstöðu, byggja og endur- býggja i takt við tækniframfarir og þróun til þess auðið sé að sinna verkefnum á viðeigandi hátt. Kaupfélögin gera það i rik- um mæli og verður hér minnt á nokkur atriði þvi til staðfesting- ar. Teiknistofa Sambands- ins Teiknistofa Sambandsins hef- ir þýðingarmiklu hlutverki að gegna i þessu efni. Til hennar var stofnað árið 1947. Verkefnin sem hún hefir haft með höndum á þessu timabili eru yfir 1000 og er þar um fjölbreytileg og ólik mannvirki að ræða. Teiknistof- an hefir safnað þekkingu og reynslu sem nauðsynleg er við lausn fjölþætta verkefna. Þar hafa starfað hæfir og farsælir menn sem eru til ráðuneytis kaupfélögunum frá þvi fyrst er til framkvæmda hugsaö þar til byggingu er lokið. Ef sögð yrði saga Teiknistofu Sambandsins frá liönu 30 ára b'mabili og rakin megin verk- efni þau sem hún hefir unnið að yrði um alllanga frásögn aö ræða. Væri það að ýmsu leyti fróðlegt verkefni sem varpa myndi ljósi á framkvæmda- og framfarasögu samvinnustarfs á nýjan hátt. Kæmi þá i ljós að nokkur sveiflugangur hefir orðið á hinum ýmsu fimum i verkefnum og framkvæmda- hraða og þar endurspeglast á vissan hátt ýmsir þættir efna- hagslifsins. En hér verður ekki frekar litið til baka heldur minnt á nokkur verkefni liðandi stundar. Frá Borgarnesi 1 Borgarnesi er miðstöð myndarlegrar samvinnubyggð- ar. Þar hefir verkefnum verið raðað og reynt að sniða stakk eftir vexti. Fyrir skömmu var að mestu lokið við byggingu myndarlegs sláturhúss. Það var stórframkvæmd ognú er i gangi annað verkefni sizt minna. Þar er átt viö byggingu nýrrar mjólkurstöðvar, sem búin verð- ur bestu fáanlegum tækjum. A siðasta ári voru lagðar 105 milljónir til þeirrar fram- kvæmdar og áformað er aö 120 milljónum verði bætt við á þessu ári. Þess er vænzt að hluti mjólkurstöðvarinnar nýju verði tekinn i notkun fyrir lok ársins ogframkvæmdum að fullu lokið innan 3ja ára. Þá er i undirbúningi bygging nýs verzlunarhúss. Byggðin i Borgarnesi hefir vaxið mikiö á undanförnum árum og færzt ofar á nesið. Með nýju Borgar- fjarðarbrúnni skapast einnig breytt viðhorf og verzlunar- og þjónustumiðstöðvar er þörf i námunda við brúna. Kaup- félagið i Borgarnesi hefir á s.l. ári verið að ljúka stækkun og breytingu vélaverkstæðis sins og það hefir einnig komið upp vel búnu reykhúsi. Nú er verið að huga að byggingu fyrir fisk- verkun og fleiri verkefni eru i takinu. Þetta er lauslega dregin mynd af þvi sem er að gerast á slóðum eins kaupfélags. Litum tíl annarra átta. Frá Patreksfirði og Þingeyri. 1 báðum þessum vestfirzku byggðarlögum mótar framfara- hugur og athafnasemi hið dag- lega lif. Á Patreksfirði er staðið i byggingu nýs hraðfrystihúss og þeirri framkvæmd tengjast önnur mál sem eiga að bæta að- stöðu kaupfélagsins. Þar er mönnum ljós þörf fyrir bættri aðstöðu fyrir verzlunina en hins vegar er ekki hyggilegt að fær- ast of mikið i fang i einni lotu. Á Þingeyri hvilir mestur vandi athafnalifsins á herðum samvinnusamtakanna. Þau lögðu undirstöðu fyrir mörgum árum sem vel hefir gefizt. Og þau halda i horfinu og vel það. Þar er unnið að stækkun og endurbótum mannvirkja, eink- um frystihússins i eðlilegusam- ræmi við aukin umsvif og tækni- legar framfarir og endur- nýjunarþörf. Frá Sauðárkróki. Þar hefir kaupfélagið staðið fyrir margvislegum fram- kvæmdum á liðnum árum. Og félagið lætur ekki staðar numið. Það er nú um það bil að hefja byggingu stórhýsis sem væntanlega mun setjasvip á ört vaxandi bæ. 1 þessari byggingu mun verða alhliða verzlunar-og þjónustumiðstöð. Það mun vafalaust taka nokkur ár að fullgera þessa byggingu. Það er þó ekki aðalatriðið enda þótt langur framkvæmdatími sé mjög óæskilegur við núverandi vaxtakjör, verðbólgu og ýmsar aðrar þjóðfélagsaðstæður. Aðalatriðið er, að kyrstaða og stöðnun riki ekki á fram- kvæmdavettvangi samvinnu- starfsins. Auk þessa stórátaks er á dag- skrá hjá skagfirzkum sam- vinnumönnum að reisa myndarlegt húsfyrir verzlun og margvislega aðra starfsemi að Ketilási i Fljótum. Undir þvi þaki mun meðal annars verða póst- og simaþjónusta, greiða- sala og almenn verzlun. Þarna verður um nokkra nýbreytni að ræða og verður fróðlegt að sjá hvernig hún gefst. Til viðbótar er svo þess að geta að verið er að stækka og endurnýja vélakost fiskiðjuvers samvinnumanna. Þetta er ófullkomin skyndi- mynd frá skagfirzkum vett- vangi. Frá Eyfirðingum. Saga samvinnumanna úr Eyjafirði er ljóst dæmi um stööuga sókn og uppbyggingu. Þar hefir merki verið haldið hátt á loft og enn er stefnan mörkuð að stórhug og myndar- skap. Of langt mál yrði upp að telja öll þau verkefni sem að er unnið á þessum vigstöðvum. Mjólkurstöðin nýja, sem þar er að risa myndi þó mörgum finn- ast ærið átak eitt útaf fyrir sig. En sú framkvæmd er aðeins einn hlekkur i eyfirzkri fram- kvæmdakeðju að visu sá stærsti en margir aðrir væru umtals- verðir. Og framtakið miðar ekki við Akureyri eina. Inn i þeirra mynd og framkvæmdasvið falla DalvikjHrisey, Siglufjörður og Grimsey. Frá Austfjörðum. Þannig er hægt áfram að rifja upp hvernig stöðugt er verið að byggja upp viðsvegar undir merki samvinnumanna. Sé litið til Fáskrúðsfjarðar, Stöðvarfjarðar, Breiðdalsvikur og Djúpavogs mæta augum mannvirkijSum fullgerðjönnur i byggingu sem öll minna á hina stöðugu framkvæmda- og ný- skipunarþörf. Fléiri austfirzka staði má nefna i sömu andrá þótt ekki verði það hér gert. Ekki verða heldur tiundaðir þeir erfiðleikar sem á veginum verða hjá þeim sem til forystu- hlutverka eru valdir. Sfikt yrði löngogoftleiðsaga. Mestu máli skiptir að stefnt hefir verið i rétta átt og umtalsverður árangur náðst. Framkvæmdaféð Sitt er hvað að sjá þörf nýrra framkvæmda eða að ráða við að koma þeim i hörn Fram- kvæmdaféð markar hraðann og ræður jafnan ferðinni hjá sam- vinnumönnum. Kaupfélögin geta ekki vikizt undan þeirri skyldu sinni að láta hlut verzlunar og vöruþjónustu vera i fremstu röð. Sýnt hefir verið fram á að dýrtiðin og gengis- breytingarskeröa eigin fé kaup- félaganna um mörg hundruð milljónir króna árlega. A þaðað minnsta kosti við um siðastliðið ár og ljóst er að svo mun einnig verða á þessu ári. Fram- kvæmdafé og fjárfestingar- möguleikar félaganna rýrna þvi verulega eins og nú horfir. Það kann þvi svo að fara að nokkuð þurfi að hægja ferðina en það er sjónarmið samvinnumanna að forðast beri kyrrstöðu. Leita þarf þvi tiltækra ráða svo hægt verði að halda i horfinu og velþað.Þess ber að vænta að mjólkurstöðvar, frystihús og ýmsar iðnaðarstöðvar fái stofn- fjárlán hjá þeim sjóðum og stofnunum, sem fengið hafa það hlutverk að stuðla að og efla hagfellda og nauðsynlega upp- byggingu á þeim sviðum. Stofnlánadeild samvinnu- félaga er ung stofnun innan Samvinnubankans. Hún veitir kaupfélögunum stuðning við byggingu verzlunarhúsa og vörugeymslna. Lánveitingar stofnlánadeildarinnar voru um 400milljóniri árslok 1977. Þessa stofnun þarf að efla svo að hún geti i auknum mæli stutt fram- kvæmdir innan þess ramma sem henni er markaður. Við þurfum ekki að kviða þvi að verkefni þrjóti. Nýjir þættir bætast stöðugt við samvinnu- starfið og aukin tækni kallar á endurskipulagningu. Þótt i hönd kunni að fara erfiðir tímartil að ljúka þvi sem að er verið að vinna og nokkur óvissa riki um aðstæður til að ráðast i' ný verkefni gera sam- vinnumenn sér ljóst að i samtök þeirra þurfa af fremstá megni að forðast að láta timabundnar breyttar f jármálaaðstæður leiða til kyrrstöðu. Samvinnumaður Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið og nokkrar ógangfærar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 25. april, kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrif- stofu vorri kl. 5. SALA VARNARLIÐSEIGNA Iðja, félag verksmiðjufólks, Iðja félag verksmiðjufólks heldur árið- andi félagsfund i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu mánudaginn 24. april kl. 5, siðdegis. Dagskrá: 1. Kjaramálin 2. Heimild til verkfallsboðunar. TRÚNAÐARMENN Á VINNUSTÖÐUM EINDREGIÐ HVATTIR TIL AÐ MÆTA Á FUNDINN Félagar fjölmennið og mætið stundvis- lega. Sýnið félagsskirteini við innganginn. Stjórn Iðju. Lyfjatæknaskóli íslands auglýsir inntöku nema til þriggja ára náms við skólann. Lágmarksinntökuskilyrði eru gagnfræða- próf eða hliðstæð próf. Umsóknir um skólavist skal senda skóla- stjóra Lyfjatæknaskóla íslands, Suður- landsbraut 6,105 Reykjavik, fyrir 27. júni, 1978. Umsókninni skal fylgja: 1. Staðfest afrit af prófskirteini. 2. Almennt læknisvottorð. 3. Vottorð samkv. 37. grein lyfsölulaga (berklaskoðun). 4. Sakavottorð. 5. Meðmæli (vinnuveitenda og/eða skóla- stjóra). 21. april 1978 Skólastjóri

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.