Tíminn - 22.04.1978, Qupperneq 10

Tíminn - 22.04.1978, Qupperneq 10
10 Laugardagur 22aprÐ 1978 l’ersónur i Laugardagur, sunnudagur, mánudagur seztir að helgarmáitiðinni Matarlyktin fyllir salinn á frumsýningu Þjóðleikhússins í kvöld SJ — i kvöld veður frumsýnt leikrit i l>jóðleikhúsinu, sem kemur áhorfendum til aðsleikja úl um. A sviðinu er nefnilega matreitt 4 kiló af gómsætu i- tölsku ragú og matarilmurinn fyllir salinn. Leikrit þetta er eft- ir aldinn italskan leikhúsmann, Kduardo de Filippo. l>að var sýnt fyrir fullu húsi i Konung- lega leikhúsinu i Kaupmanna- höfn i fyrra og var aftur sett á verkefnaskrá i vetur þegar önn- ur leikrit brugöust. Annað leik- rit de Kilippos Filúmena hefur gengió i nokkur ár við mikla að- sókn i London. Ofan á þetta bæt- isl að leikritiö er svo nýtizku- legt, að i því er ekkert klám, hcldur er það afbragðsskemint- un fyrir alla fjölskylduna. Klám er nefnilega komið úr tizkul bessar upplýsingar gaf Gunn- ar Eyjólfsson, sem leikstýrir sýningu Þjóðleikhússins á Laugardagur, sunnudagur, mánudagur, en svo heitir leik- ritið. Þýðingin er eftir Sonju Diego. Leikmynd gerir Sigurjón Jóhannsson. Leikritið gerist á okkar dög- um á heimili italskrar fjöl- skyldu i Napóli og hefst á laug- ardegi, þegar húsmóðirin er að undirbúa helgarmáltiðina, ragú-iðsitt viðkunna. Við fylgj- umst siðanmeðþvi sem gerist á heimilinu þessa helgi og koma þarfjöldi pesóna við sögu: hjón- in og börn þeirra þrjú, tengda- börn og væntanleg tengdabörn, afinn, frændurog frænkur, þjón- ustufólk og nágrannar. Er óhætt að segja að leikritið sé gaman- söm, litrik og lifleg mannlifslýs- ing, þar sem hver atburðurinn rekur annan bæði hversdagsleg- ir og óvenjulegir. Alls kom 17 leikarar fram i sýningunni. Með stærstu hlut- verkfara Herdis Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson, sem leika hjónin, Rósu og Peppino, Valur Gislason.sem leikur af- ann, Antonio: Milly frændku leikur Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir og Þórhallur Sigurösson Attilio, son hennar. Gisli Al- freðssonleikur Raffaele, bróður húsbóndans og Steinunn Jó- ha nnesdóttir Virginiu vinnu- konu. brjú börn þeirra Priore-hjóna eru leikin af Sig- mundi Erni Arngriinssyni, Sig- urði Skúlasyni Og Lilju Þór- isdóttur. Ilelgi Skúlason og Bryndfs Pétursdóttir leika ná- grannahjón og aðrir leikendur eru llelga Jónsdóttir. Gunnar Magnússon, Flosi 1 Ólafsson, Eyvindur Erlendsson, Jón Gunnarsson. Eduardo de Filippo er ekki bara einn kunnasti leikritahöf- undur Itala, heldur einnig meðal þeirra fremstu leikara og leikstjóra. Hann fæddist i. Napoli'árið 1900og hefur starfað þar lengst af. Upp Ur 1930 stofn- aði hann eigin dansflokk ásamt systkinum sinum Titaniu og Peppino og hóf hann þá strax að semja verk handa flokknum. Arið 1948 keypti hann leikhús- byggingu i Napoli og hefur verið þar leikhússtjóri, leikstjóri, leikari og höfundur siðan. Heitir leikhús hans San Ferdinando-leikhúsið. Eduardo hefur samið milli 20 og 30 leikrit auk fjölmargra gamanþátta og sjónvarpsleikrita. Hann hefur samið á þriðja tug kvikmynda- handritaog leikið i fjölmörgum kvikmyndum. Hann leikstýrir öllum verkum sínum sjálfur og hefur leikið i þeim flestum. Laugardagur, sunnudagur, inánudagur var samið sumarið 1959 og frumsýnt i Teatro Quirino i Róm sama haust undir stjórn höfundar. Hann lék sjálfur hlutverk Peppinos og hin kunna leikkona Pupella Maggio lék Rósu. Sýningin varð mjög vinsæl, var sýnd viða um Italiu i leikför leikflokksins og loks i italska sjónvarpinu. Arið 1962 var leikritið tekið til sýningar i Jermolovaleikhúsinu i Moskvu og var sýnt þar enn, er siðast var vitað. 1973 var leikritið frumsýnt i brezka þjóðleikhús- inu á Old Vic undir stjórn Ital- ans Franco Zeffirelli. Laurence Olivier vakti mikla hrifningu i hlutverki afans en Priore-hjónin voruleikinaf Joan Plowrightog Frank Finley. Enska gerð leiks- ins sömdu leikritahöfundarnir Keith Waterhouse og Willis Hall og hefur verið höfð hliðsjón af þeirri gerð verksins við svið- setninguna hér. A siðustu árum hefur verkið ma. verið sýnt á hinum Norðurlöndunum við miklar vinsældir. Aður hefur aðeins eitt leikrita Eduardo de Filippo verið sýnt hérlendis. Það var Nótt yfir Napoli, sem Leikfélag Reykja- vikur sýndi 1958 undir stjórn Jóns Sigurbjörnssonar. Kóbert Arnfinnsson, Steinunn Jóhannesdóttir og Herdls Þorvaldsdóttir I hlutverkum sinum. Valur Glslason ásamt ungum kollega i leikriti Eduardos de Filippo. — Timamyndir Róbert.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.