Tíminn - 22.04.1978, Síða 11
Laugardagur 22-apríl 1978
11
Kynning á ungnm framsóknarmönnum
Hörmungar „Viðreisnar” vill
enginn Austfirðingur
— en hvað gerist ef Halldór Ásgrimsson fellur í komandi
þingkosningum? spyr Einar Baldursson á Reyðarfirði
Eiuar Baldursson kennari á
Reyðarfirði er formaður kjör-
dæmissambands framsóknar-
manna á Austurlandi. Hann
hefur tekið mikinn þátt i félags-
málum, og auk þess að vera for-
maður kjördæmissambandsins
er hann formaður Framsóknar-
félags Reyðarfjarðar og situr i
stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna. Hann fluttist til
Reyðarfjarðar fyrir þremur ár-
um, en áður hafði hann kennt á
Fáskrúðsfirði i tvo vetur. Einar
er kvæntur Onnu Ingvarsdóttur
úr Hafnarfirði og eiga þau þrjú
börn.
Nýlega ræddi blaðamaður
SUF siðunnar við Einar og
spurði hann fyrst hver væru
brýnustu úrlausnarefnin á
Reyðarfirði.
— Atvinnumálin eru mál mál-
anna hér á Reyðarfirði. Hér
þarf sitthvað að gera til þess að
efla atvinnulifið. Að minu mati
eru hér of margir aðilar að vas-
ast i sömu verkefnunum og þvi
enginn sterkur aðili til þess að
gera verulegt átak á sviði at-
vinnuuppbyggingar.
A stöðunum hér i kringum
okkur er þessu öfugt farið. Þar
er bæði útgerð og fiskvinnsla á
sömu hendinni — að meginhluta
til, og þvi hefur þeim verið ger-
legt að ráðast i stórar fram-
kvæmdir. Þessir staðir standa
nú framar okkur i atvinnuupp-
byggingunni, og verðum við þvi
aðgera stórtátak. Reyðarfjröð-
ur á frá náttúrunnar hendi sizt
minni möguleika á að verða öfl-
ugur bær. Hér eru úrvals skil-
yrði til hafnargerðar og mikið
landrými fyrir byggingar. Þá
liggur staðurinn mjög vel við
samgöngum á sjó og landi.
Nú er meginuppistaða i at-
vinnulifinu einshvers konar
þjónusta. Hér er miklu vöru-
magni skipað á land og hér er
aðsetur ýmiss konar opinberrar
þjónustu. Hér er t.d. aðsetur
vegagerðrinnar á Austurlandi.
Ef hér væri jafn öflug útgerð og
á mörgum stöðum hér i ná-
grenninu, eins og t.d. Fáskrúðs-
firði og Neskaupstað, þá væri
hér fjölþætt og traust atvinna.
Ég er sannfærður um að ein-
hæft atvinnulif stendur vexti
staða fyrir þrifum. T.a. likar
ekki öllum að vinna i fiski. En
það er nauðsynlegt fyrir þétt-
býlisstaði að hafa öfluga Utgerð,
þvi að þar getur fólk fengið
miklar tekjur með þvi að leggja
hart að sér við vinnu. Slikt getur
verið hagstætt fyrir ungt fólk,
sem er að koma undir sig fótun-
um.
Telur þú unnt að efla iðnað
hér á Reyðarfirði?
— Já, hér eru mjög góð skil-
yrði til þess. T.d. væri mjög
æskilegt að koma hér á fót fyrir-
tæki, sem smiðaði einingarhús.
Nú er verið að kanna möguleika
á að stofna slikt fyrirtæki og
vona ég að sú könnun verði hag-
stæð.
En hver telur þú brýnust úr-
lausnarefnin i þjóðmálunum?
— Efnahagsmálin eru mál
málanna og leggja verður
áherzlu á að finna leiðir til að
slá á þá miklu verðbólgu, sem
hér geisar. Þessar aðgerðir
verða að vera róttækar, en þó er
nauðsynlegt að gæta þess að
þær komi ekki of harkalega við
þá sem minnst mega sin i þjóð-
félaginu.
I annan stað er þörf á að efla
allt atvinnulff i landinu sérstak-
lega er nauðsyn á að gera at-
vinnulif úti á landi fjölþættara
en það er nú. Þá þarf að vinna
að því að bæta samgöngurnar
enn frekar en orðið er.
Hvað með by ggðastefnuna,
sem rekin hefur verið að for-
göngu Framsóknarflokksins?
— Framhald þarf að verða á
þeirri þróttmiklu byggðastefnu,
sem Framsóknarflokkurinn
hefur beitt sér fyrir á undan-
förnum árum. Ég tel að sú
mikla byggðaröskun sem hér
varð á árabili sé undirrótin að
þeim mikla efnahagsvanda,
sem við höfum átt við að glima.
Við þess.amiklu byggðarröskun
og miklu fólksflutninga til
Reykjavikursvæðisins minnk-
aði framleiðslan i landinu og
fleiriog fleiri fóru að hafa fram-
færi sitt af einhvers konar þjón-
ustu. Undirstaða efnahagslegr-
ar afkomu þjóðarbúsins er hins
vegar þróttmikil framleiðsla, en
meginhluti hennar hefur farið
fram viðs vegar út um dreifðar
byggðir landsins.
Er mikið starf að vera for-
maður kjördæmasambandsins?
— Okkar starf er aðallega
fólgið i kosningaundirbúningi á
hverjum tima. Þvi er starfið i
algerulágmarki árin milli kosn-
inga.
Nú er kosningaundirbúning-
urinn I fullum gangi og vinnum
við framsóknarmenn skipulega
að þvi að halda hlut okkar i
komandi kosningum.
Framsóknarþingmennirnir
hafa allir unnið vel þetta kjör-
timabil og þörfnust við þess að
þeir verði allir á þingi næsta
kjörtímabil. Hér hefur orðið
mikil uppbygging siðustu árin
oger fólksfjölgun hér á Austur-
landi meiri en að meðaltali á
landinu öllu. Þetta er mikil
breyting frá því sem var á tim-
um viðreisnarstjórnarinnar, en
þá var örbirgð og atvinnuleysi
á flestum stöðum hér austan-
lands.
— Verður kosningabaráttan
hörð á Austurlandi að þessu
sinni?
Já, hér verður mjög hörð
kosningabarátta. Alþýðubanda-
lagsmenn vinna nú leynt og ljóst
að þvi að koma öðrum manni á
lista sinum inn sem kjördæma-
kosnum þingmanni, og fella þar
með Halldór Asgrimsson. Ef
þetta ætlunarverk þeirra tekst
hefur það mjög afdrifarlkar af-
leiðingar.
I fyrsta lagi missir kjördæmið
sinn yngsta þingmann, sem
þegar hefur sannað með vinnu
Einar Baldursson.
sinni þetta kjörtimabl, að hann
er verðugur fulltrúi Austfirð-
inga á Alþingi.
I öðru lagi fækkar þingmönn-
um kjördæmisins um einn, þvi
að öruggt má telja að annar
maður á lista Alþýðubandalags-
ins Helgi F. Seljan yrði uppbót-
arþingmaður, ef hann verður
ekki kjördæmakosinn.
1 þriðja lagi gætu Austfirðing-
ar kosið yfir signýja „viðreisn-
arstjórn” með þvi að fella Hall-
dór Asgrimsson. Þetta byggist á
þvi, að ef kjördæmakosnum
þingmönnum Alþýðubandalags-
ins fjölgar um einn, er liklegt að
Alþýðuflokkur, eða Sjálfstæðis-
flokkur fái viðbótarsæti fyrir
uppbótarmann. Með þessu móti
gæti skapazt nýr meirhluti fyrir
Sjálfstæðisflokk og Alþýðuflokk
til þess aðmynda nýja viðreisn-
arstjórn, og vona ég að sllka
hörmung vilji Austfirðingar
ekki kjósa yfir sig á ný. M.ó.
Eflum Reyðarfjörð sem
þjónustu- og iðnaðarbæ
— rætt við Jón Guðmundsson, kjötiðnaðarmann á Reyðarfirði
Jón Guðmundsson.
—Við eigum að leggja áherzlu
á að byggja Reyðarfjörð upp,
sem þjónustu- og iðnaðarbæ,
sagði Jón Guðmundsson á
Reyðarfirði i samtali við SUF
siðuna nýlega. Staðurinn liggur
vel við samgöngum á landi og
sjó og hefur þvi öll skilyrði til
þess að eflast og dafna. Hér er
öllum vörum til uppsveita
Austurlands skipað á land og
með þvi að bæta hér hafnarskil-
yrði enn frekar en nú er mætti
auka þennan þátt atvinnulifsins
verulega.
Auk þessa er þorpið £vo vel
sett, að hér er mikið landrými
og auðvelt um byggingarsvæði.
Þvi þurfum við ekki að óttast
landþrengsli á komandi árum
og er það vel.
Vilt þú fremur að Reyðfirð-
ingar leggi áherzlu á að byggja
upp iðnað en fiskvinnsiu?
— Já ég tel það vera okkur
hagstæðara. Staðreynd er að
aðrir staðir á Austurlandi hafa
aðallega byggzt upp á útgerð og
fiskvinnslu. Þeir hafa á undan-
förnum árum fengið mikla
fyrirgreiðslu til að endurskipu-
leggja og byggja upp sin at-
vinnutæki. A sama tima höfum
við meira staðið i stað.
Nú tel ég að komin sé röðin að
okkur Reyðfirðingum og við
þurfum að fara að fá okkar
skuttogara. Hér á líka að byggja
upp öflugan iðnað, þar sem yrðu
framleidd verðmæti fyrir þjóð-
arbúið. Þessi iðnaður ásamt
margháttaðri þjónustustarf-
semi ætti að geta eflt þennan
stað verulega.
— Hvernig er heilbrigðisþjón-
ustu háttað hér á Reyðarfirði?
— Við erum í sama læknishér-
aði og Eskifjörður. Þar situr
læknir, sem kemur hingað tvis-
ar i viku. Ekkert legurými er þó
á þessum stöðum og verður þvi
að senda alla sjúklinga til Norð-
fjarðar. Hingað til hefur það oft
verið erfitt, enda yfir erfiðan
fjallgarð að fara. Tel ég þvi að
eðlilegra hefði verið að við
hefðum byggt sjúkrahús i sam-
vinnu við Egilsstaðabúa.
Annars hefur ástandið I heil-
brigðismáium batnað hér eftir
að hingað flutti héraðshjúkrun-
arkona, en það gerðist á þessu
ári. Siðar þegar okkur vex
fiskur um hrygg eigum við að
stefna að þvi að fá okkar eigin
lækni, með búsetu hér á stað.
— Hefur Kaupfe'lag Héraðs-
búa uinfangsmikla starfsemi
hér á Reyðarfirði?
— Reyðarfjarðardeild Kaup-
félags Héraðsbúa er stærsta
deildin innan Kaupfélagsins.
Hér rekur félagið umfangs-
mikla starfsemi, þótt vissulega
vildum við að starfsemi þess
væri hér enn meiri.
Kaupfélagið er meö verzlun
hér á stað og frystihús. Þá er
hér kjötvinnsla, fóðurblöndun-
arstöð og afgreiðsla skipa.
Einnig eru allir vörubilar fé-
lagsins gerðir út héðan, og fjöl-
margt fleira mætti telja, enda
er kaupfélagið stærsti atvinnu-
rekandi hér á staö.
M.Ó.
SujzISN
llliillliiiiuiilí lli kiiiiiiiiiii]|||iiiiaiiiiiiillllllllliiiiiiiiiiiiiiiiiiiillliiiiinij)|||iiii
Umsjónarmenn: Magnús Ólafsson
ómar Kristjónsson
Reyðarfjörður.