Tíminn - 22.04.1978, Síða 13
12
Laugardagur 22aprfl 1978
Laugardagur22aprfl 1978
SHSlUIMiLi
13
Séö yfir deild Ingvars Helgasonar, Trabantar fremst á myndinni sfðan SUBARU. Fremst er TRABANT
jeppi.
CITROEN — deildin frá Globusi hf. Flotti billinn sem talað er um I greininni, er stationbíllinn undir
innra Citroen merkinu.
@ VOLKSWAGEN
B/LASYN/NG
Á BÍLDSHÖFÐA
Það var mannþröng á bilasýn-
ingunni Auto 78 þegar við komum
á þriöjudaginn eftir hádegiö, og
fánarnir blöktu fyrir volgri gol-
unni. lllyir loftstraumar sunnan
úr Evrópu sigldu Ijúflega inn yfir
iandiö, og dauft mistur seig á
Breiöholtiö og Smáibúöahverfiö.
Þetta var táknrænt veöur, þvi
inni i stóra húsinu voru hundraö
bflar komnir eins og Ijufsár
draumur yfir hafiö og mistur seig
á sálina. VOLVO SAAB, FORD,
CHEVOLET, MERCEDES
BENS, VOLKSWAGEN og
SIMCA og hvaöþeir nú allir heita.
Þaö var hér allt og tilveran
brosti.
1 fljótu bragöi yiröist venjuleg-
um manni ekki vera nein sérstök
þörf á opinberri bilasýningu. Ný
model koma á götuna og maöur
snýr sér viö. Hvað var nú þetta,
og i kaffistofunni er stundum tal-
að um athyglisverða bila, góða
prisa, lfka hátt verö og ég hygg
að karlpeningur landsins fylgist
nokkuö vel með veröi og gæöum,
og sumar konur gera þaö sjálf-
sagt iika.
En maöur sér þaö fljótt þegar
inn á bilasýninguna Auto ’78 er
komiö, aö máliö er ekki alveg
svona einfalt. Bilaumboöin eru
mörg, tegundirnar eru margar og
hver tegund býöur upp á fjölda af-
brigöa. Þarna getur maöur skoö-
aö farkostina i góöu næöi, rætt við
sölumenn og ókunnugt fólk, og yf-
ir staðnum er sú einstæða upp-
hafning i sálinni, sem ávallt fylgir
vörusýningum af sj;ærri sortinni.
— En hverjir kaupa bilana. Viö
þekktum marga bilamenn þarna,
þótt viö nefnum engin nöfn, og
þeir bókstaflega átu finu modelin
upp til agna, en smekkurinn er
misjafn eins og verðiö, sem er frá
einni milljón króna upp i aö
minnsta kosti átta milljónir, ef
ekki niu.
Chervolet og GM.
Stóru bilaumboöin hafa mikiö
um sig á sýningunni i stóra húsinu
við Bildshöfða. Ég skil ekki
hvernig þeir hafa komið bilunum
upp alla þessa stiga sagði konan,
já og hvernig þeir ætla niöur meö
þá aftur, sagöi vinkona hennar.
— Jepparnir komast þetta auö-
vitaö, en hinir,,,,,,, en ég heyröi
ekki meira, þvi þær hurfu bak við
skitugan bil frá Sambandinu og
General Motors, en þeir höföu
ekki timt aö þvo hann eftir aö
hann vann einhverja kappakst-
urskeppni og fjölda verölauna-
bikara úr silfri, sem nægt heföu
undir nægjanlegt vatn til þess að
þvo hann rækilega.
— Viö timdum ekki að þvo
hann, og vildum sýna hann eins
og hann var þegar hann kom úr
rallinu, sagöi einhver sem þarna
var i forsvari, og það er liklega
rétt. Það hlýtur að vera mikið
atriði fyrir bilategund, að standa
sig bezt á hinum vondu vegum Is-
lands, þar sem menn hafa ekki
vegina aöeins undir hjólunum,
heldur yfir sér lika og allt um-
hverfis i sullandi aurnum og jafn-
vel upp i sér lika, þegar þannig
viðrar og viö bryöjum vegina
milli tannanna i rykinu, en nóg
um það.
Véladeild Sambandsins selur
bila frá General Motors, en þeir
eru þó ekki allir þarna, —en flest-
FYRRI
GREIN
ir. Þarna er einn eins og Albert á,
sagði litill strákur og benti á
stjórnarfarslegan Chervolet, og
þarna var lika Öpel og Vauxhall.
Það er eitthvað notalegt og vél-
fræðilegt viö nafnið OPEL, en bil-
ar frá honum Opel hafa verið hér
á landi siðan fyrir striö og yfir
þeim var vélfræðilegur þokki.
Upphafsmaður Opelbilanna hét
Adam. Adam Opel og nú er Adam
aftur i paradis, þvi hann er kom-
inn i slagtog viö General Motor,
risann mikla i bilaheiminum.
Þegar ég var barn, skiptist
bilaheimurinn aöeins i tvennt,
Chervolet og Ford, og ég sá, aö
þótt linurnar væru ekki jafn skýr-
ar nú og þá, þá voru þeir enn ris-
ar.
Vauxhall Chevette hét hann sá
sem sigraði i Skeifurallinu, og við
sáum að þetta var traustur bill,
sem hentaði á vondum vegum.
Chervolettarnir virtust vekja
mesta athygli i deild Sambands-
ins og General Motor, og einhver
sagði aö þeir væru nú á sérlega
hagstæðu verði — það gerir
dollarinn sögðu þeir og Chervolet
Nova kostar innan viö fjórar
milljónir, en Blazer er dýrastur á
6,2 milljónir.
Volkswagen frá Braziiiu
Það virtist vera mikið um aö
vera hjá Heklu, en þeir selja
Volkswagen bila. Anton Axelsson,
flugstjóri horföi dulráðum augum
á daufgrænan Passat meö gátt aö
aftan, sem er vinsælt núna, þvi þá
geta menn flutt allan fjandann i
bflum. Audi var lika kominn meö
gátt, Audi AVANT hét hann.
Menn leggja aðeins sætin fram
og þá er billinn oröinn aö vörubil.
Mesta athygli vakti samt
„Bjallan” VW 1200, en hann er nú
framleiddur i aðeins einu landi,
Brasiliu, þar sem Þjóöverjar
hafa miklar verksmiðjur.
Hitler fann upp fólksvagninn,
eða lét búa hann til handa verka-
mönnum og þjóðin fylltist eld-
móöi. Hitler tapaöi sinu striöi, en
það gerði Volkswagen ekki. Hann
lagði undir sig heiminn.
En nú er hann aðeins fram-
leiddur i Braziliu, þvi nýjar gerö-
ir hafa komið fram á sjónarsviö-
iö, DERBY, GOLF, PASSAT og
AUDI:
Gamla bjallan kostar nú 2.3
millj., en Audi er dýrastur á 4.5
milljónir króna, þvi þaö er fleira
sterkt en þýzkir bilar. Þýzka
markið er lika sterkt — og dýrt.
Samt seljast þýzkir bilar vel á
Islandi, þvi framleiðslan hefur
gott orð á sér og þykir vönduö.
I Heklu deildinni heyrðum við á
tal manna, sem fullyrtu að hvergi
i heiminum væri dýrara aö kaupa
bila en á íslandi, þar sem stjórn-
völd litu á bila sem tekjustofn,
fremur en samgöngutæki, og það
er kannski þess vegna sem þeir
héldu sýninguna i Bildshöföa, en
„bfldur” er gamalt orö yfir blóð-
tökutæki, og kannski er billinn
það, fyrst og fremst i hagfræöinni
á tslandi.
Franskir bilar
Franskir bilar vekja ávallt dá-
litla athygli, þvi þeir eru sér á
parti.
Viö litum viö á horninu hjá
CITROEN og Glóbusi hf.
Þar var nú aldeilis makalaus
bfll. CX 2400 FAMILIA, átta sæta
með einni vinnukonu. Hann kost-
aði 5.7.
Hann minnti svolitið á hjarta-
bfl, og maðurinn frá Globusi var
harður á þvi aö þetta væri i raun
og veru gjöf. Sjáöu, sagði hann.
Þessi bill er eitt furðuverk.
Vökvafjöðrun. Billinn hleöst ekki
niöur, heldur hækkar sig sjálf-
krafa við þyngsli og aksturseigin-
leikarnir eru i sérklassa og svo
sýndi hann okkur einnig minni
bfla, GS gerðirnar, sem kosta um
3 milljónir króna.
Frá CITROEN gengum viö yfir
til RENAULT, sem er erkióvinur-
inn i Frakklandi.
Það er Kristinn Guönason h.f.,
sem flyturinn RENAULT bilana,
og virtist okkur Renault 14 vekja
mesta athygli hjá þeim. Samt er
hann ekki mjög franskur i útliti,
— og þó. Við nánari skoöun virðist
þetta sérlega vel heppnaöur bili,
og hann kostar rétt um tvær
milljónir króna.
„Bragginn” sem er sjálfsagöur
sigurvegari i öllum sparaksturs-
keppnum (FIB 76) kostar nú tvær
Kristinn Guönason sýnir Renault og BMW
milljónir,en smábillinn Renault 5
kostar nú 2.5 milljónir.
Renault 20 TL, sem minnir á
þýzka bila, kostar tæpar fjórar
milljónir króna.
Kristinn Guðnason viröist ekki
flytja inn stóra Renault bila, en
þeir eru lika með BMW forstjóra-
bfla, sem Frans Jósep Strauss
lætur framleiða suður i Bæjara-
landi:
— Alveg æöi! sögöu tvær ungar
konur, sem framhjá gengu.
Trabant og Subaru
Bfll fyrir milljón.
— Hvað er milljón, sagði pen-
ingamaðurinn og þaö eru liklega
liönir tveir áratugir siöan, og viö
finnum aö þá var milljónin
milljón.
Ég veit ekki hvaö bilar kostuöu
þá,en þaðhlýtur aðvekja dálitila
undrun að enn skuli unnt að
kaupa nýjan bil fyrir eina
milljón, eöa reyndar minna en
það, 940.000 kostar TRABANT
STATION, fólksbill af sömu gerö
kostar aðeins 900.000 krónur hjá
Ingvari Helgasyni.
Fyrr má nú aldeilis fyrrvera!
sagði maðurinn, og viö tökum
undir það.
Trabant verksmiöjurnar eru
með þeim elztu i Þýzkalandi, en
þær framleiddu AUDI bila fyrir
strið. Verksmiðjurnar lentu aust-
anmegin viö landamærin þegar
Þýzkalandi var skipt i lok sein-
ustu heimsstyrjaldar. Pólitiskt
séö hefur bfllinn þróazt á annan
hátt þar, en t.d. i Vestur-Þýzka-
landi, þar sem samkeppnin er
hrikaleg. Austur-Þjóöverjar
kepptu aöeins við sjálfa sig, og
þvi varö bfllinn einfaldur, ódýr og
hann mátti ekki ryðga.
Þrátt fyrir að ekki sé nú mikil
stæll á Trabant á hann vissan hóp
aðdáenda. Frægastur þeirra er
liklega forstjóri landhelgisgæzl-
unnar. Og hefur hann vafalaust
fallið i upphafi fyrir hinum varö-
skipagráa lit, sem er á Trabant
bflunum.
Nóg um þaö.
Annar merkilegur bill frá Ingv-
ari Helgasyni heitir SUBARU.
Þessi bill er þó ekki alveg óþekkt-
ur, ýmsir skólastjórar hafa komið
fram i auglýsingum þar sem þeir
segjast hafa komizt þetta og hitt á
bflnum, sem hefur útlit fólksbila
en innvols úr jeppa. SUBARU er
fjórhjóladrifinn eins og jeppi.
Samt kostar hann ekki nema 3.2
milljónir króna.
Vont vegakerfi, snjóþyngsli og
fleira, gerir fjórhjóladrifna bila
og jeppa að nauðsyn, fremur en
munaði, og sagt er að menn hafi
vel kunnað að meta SUBARU-
Chrysler
Rétt við útganginn, eða anddyr-
ið standa nokkrir gamlir bilar,
þar á meðal brunaliösbill, og hin
hörmulegu mistök veröa okkur
ljós i einu vetfangi. I gamla daga
kunnu menn nefnilega að teikna
bfla, og hvergi hefur afturförin i
teikningu og hönnun orðiö jafn
auðsæ og i bilnum.
Gömlu bilarnir voru traust-
vekjandi og þaö var ekki verið að
spara stáliö eða látúnið og leöur-
lyktin blandaðist ilmi frá heitum
smurningi og bensini. Þetta var
samruni fegurðar og vélfræði.
En svo kom straumlinan, bilar
sem litu út eins og harðsoðið egg á
hjólum: og það vill svo til aö
maöurinn sem i raun og veru ber
alla ábyrgöina, sýnir á sama
stað, en það er Walter Percy
Chrysler (1875-1940)
Chrysler er einn af þessum
dæmigerðu Amerikönum alda-
mótanna sem snéru sér frá blaða-
sölu yfir I þungaiðnaðinn.
Hann minnir á Ford og Edison.
Chrysler byrjaði sem vélamað-
ur á járnbrautum og hann vann
sig upp. Strax árið 1912 var hann
orðinn forstjóri járnbrautar-
félagsins. Svo varð hann forstjóri
Buick og hátt settur hjá GM, en
árið 1925 byrjaði hann að fram-
leiða bila sjálfur og sló strax i
gegn. Hann varð fyrstur til þess
að framleiða straumlinulagaöan
bfl i fjöldaframleiðslu, það var
árið 1934. Hann hét Chrysler Air-
flow: — hinir komu á eftir.
Þetta sagði Jón Hákon Magnús-
son (fréttamaður),
framkvæmdastjóri Vökuls okkur,
og lika margt annað.
Það var dálitil þröng um einn
SIMCA-bilinn, Crysler Horizon,
en hann er framleiddur bæði i
Bandarikjunum og i Frakklandi.
Hann er mjög franskur þessi bill,
en innvolsið er ekta ameriskt, —
framdrif, og það merkilega er
hann kostar aðeins 2.6-3.1
milljónir króna.
Meðal þeirra sem voru aö skoða
var Guðmundur Pétursson, yfir-
vélstjóri og fyrrum forseti Far-
mannasambandsins. Kannski var
hann að leita að nýjum forseta-
bfl?
Jón Hákon lagði mikla áherzlu
á PLYMOUTH VOLARE, dæmi-
gerðan ameriskan bil, sem kostar
rúmar fjórar milljónir, og af þvi
að Jón Hákon var nú einu sinni
fréttamaður, þá áræddum við aö
spyrja: Hvers vegna eru bilar
svona dýrir á íslandi? Hann svar-
aði, að það stafaði af grimmri
fjártöku stjórnvalda af innflutn-
ingi bifreiða.
Af bfl sem kostar, kominn á
götuna 2.5 milljónir króna, tekur
rikið eina og hálfa milljón króna i
sinn hlut, eða 60% af andvirðinu.
Þeir taka þvi meira en bilverö
fyrir hvern bil, sem leyft er að
flytja til landsins.
Hvað fá innflytjendur?
Þeir fá 6% á sama tima og rikið
fær 60% — fyrir ekkert.
JG
Vökull hf. sýnir nýjan fransk-amerískan bil, sem hér sést fremst á myndinni. Það eru Chrysler og
Simca sem framleiða hann. Auk þess eru Plymouth Volare, sem eru mjög vinsælir hér á landi.
Rall-blllinn með bikarasafnið á toppnum. Fjær sjást Chevrolettar og fleiri luxusbilar frá Véladeild
Sambandsins.
Audi bilarnir fást nii gáttaðir, þ.e. að segja með lyftanlegum afturhluta. Skottlok og afturráða eru eitt
lokog leggja má sætin fram. Þá geta menn flutt varning I bilunum. Derby lengst til hægri, en fjær sést I
brasilisku bjölluna VW 1200.
General Motors vekur feikna athygli á bflasýningunni, enda meö breiða llnu f bflum. Chervolet, Blazer,
Ópel og Vauxhall. Hér sjást nokkrir bilar og áhugasamir áhorfendur.