Tíminn - 23.04.1978, Síða 29
Sunnudagur 23. april 1978
29
Kynning Fóstrufélags íslands:
Skapandi starf
öllum börnum er það nauð-
synlegt að tjá sig á einn eða
annan hátt. Rannsóknarhvöt og
starfeþrá leiðir barnið til þess
að kanna umhverfi sitt og afla
sér þekkingar á hlutum og fólki.
Fjölbreytt og örvandi umhverfi
eykur þroskamöguleika barns-
ins en fábreytt og einhæft um-
hverfi dregur úr þeim.
Þess vegna þarf að búa svo i
haginn fyrir barnið, að það öðl-
ist sem fjölbreyttasta reynslu.
Barnið þarfnast ástúðar, festu
og reglu. Foreldrar og aðrir
uppalendur verða að þekkja
þarfir barnsins og stuðla að þvi
að það fái athafnaþörf sinni full-
nægt.
Hrósið barninu fyrir
verk sin.
Nauðsynlegt er að barnið fái
uppörvun og stuðning t.d. með
þvi að hrósa þvi fyrir myndina
sem það var að lita eða eitthvað
sem það vill sýna að það geti.
Við slika jákvæða afstöðu vex
öryggistilfinning barnsins. Það
öðlastfremur trú á getu sina og
verður sjálfstæðara.
Barnið er ávallt að
skapa.
A dagvistarheimilum er reynt
að sjá til þess að barnið þroskist
á jákvæðan hátt i leik og skap-
andi starfi.
Þeear talaö er um skapandi
starf, er erfitt að draga mörk.
Barnið er ávallt að skapa eitt-
hvað einungis á mismunandi
hátt. Þegar barnið byggir úr
kubbum, myndar ný orð og leyf-
ir imyndunaraflinu að leika,þá
er það að skapa. Þegar það
teiknar, málar, mótar i leir eða
saumar er það einnig að skapa.
Fyrir barn undir skólaaldri er
það athöfnin sjálf sem hefur
gildi en ekki árangurinn.
Barnið þroskar með sér ýmsa
eiginleika og öðlast nýja reynslu
Hugkvæmni þess og imyndun-
arafl eykst. Skapandi starf
hjálpar barninu við að þroska
hugsun og tilfinningar. Barnið
öðlast meiri þekkingu og upplif-
ir gleði og ánægju i félagsskap
annarra. Það fær tilfinninga-
lega útrás og losnar við innri
spennu. Frumkvæði og sjálfs-
traust eykst. Smám saman vex
einnig skilningur þess á orsök
og afleiðingu.
Virðið rétt barnsins til
þess að skapa að eigin
vild.
Foreldrar og aðrir uppalend-
ur ættu að sjá um að barnið hafi
nógan efnivið til skapandi starfs
og varast að eyðileggja sköpun-
argleði þess (barnsins) með þvi
að gagnrýna verk þess með þvi
aðtala um hvernig þetta „eigi”
að vera. Hestar eru ekki bláir,
fólk hefur ekki margar fætur
o.sírv... Slik gagnrýni getur
dregið ur kjarki barnsins og trú-
in á eigin getu. Sem dæmi um
efni, -sem veita barninu mikla
möguleika á að tjá sig i skap-
andi starfi, má nefna: sand,
leir, vatn og ýmiss konar liti.
Þessi efniviður er aðgengilegur
og barnið uppgötvar eiginleika
hans. Það vinnur einnig með
pappir, garn, efnisafganga, deig
og pappamassa. Barnið fær að
sauma.vefa, klippa,lima, smiða
og mála. Ymislegt má nota
sem hægt er að finna úti i
náttúrúnni t.d. skeljar, steina,
lauf.fræ og ber.
Það er mjög mismunandi
hvernig hinir ýmsu aldurshópar
nota efniviðinn. Yngstu börnin
eru ánægð að fá að kynnast hon-
um, koma við, þreifa á, kreista,
klipa og smakka. Snertingin við
efnið er aðalatriðið. Stærri
börnin ráða yfir fingerðari
hreyfingum, meiri einbeitingu
og úthaldi. Þau nota imyndun-
araflið og hafa oft ákveðið
markmið i huga i sköpunar-
starfi sinu. Uppalendur verða
að reyna að skilja og virða
athafnaþrá barnsins og beina
henni á þá leið, sem vænlegust
er til þess að það vaxi upp sem
sjálfstæður einstaklingur með
jákvætt viðhorf til lifsins.
Leikvöllurinn er kannski ekki sem allra hreinlegastur. En þarna eru þó krakkarnir i glöðum leik og
við mikilvæg störf.
Félag íslenzkra
landslagsarkitekta
Þann 24. febrúar s.l. var stofnað i
Reykjavik „Félag islenzkra
landslagsarkitekta”, skammstaf-
að F.Í.L: Markmiö félagsins er
að stuðla að þróun landslags- og
garðsbygginarlistar með þvi að
vinna að réttri meðferð og notkun
lands, sem og mótun þess. Auk
þess skal félagið gæta hagsmuna
félagsmanna.
Starfsheitið „landslangs-
arkitekt” er hér með tekið udd i
staðgarðarkitekt eða skrúðgarð-
arkitekt, sem notað hefur verið
fram að þessu. Þykir nýja starfs-
heitið ná betur starfssviðinu, auk
þess sem þessi þróun er i sam-
ræmi við þá breytingu, sem átt
hefur sér stað á starfsheitinu i ná-
grannalöndunum á siðustu árum.
T.d. er starfsheitið á norsku og
sænsku landskapsarkitekt, á
dönsku landskabsarkitekt á
þýzku landschatarchitekt og á
ensku landscape architect.
Hið sérstæða lifræna viðfangs-
efni landslagsarkitektsins er:
a) Varðveizla núverandi verð-
mæta lands og lifrikis þess.
b) Mótun nýs lands i samræmi
við nútima lifnaðarhætti og vax-
andi kröfur um bætt umhverfi.
Stærsta verkefni félagsins á
þessu ári er undirbúningur undir
ráðstefnu norrænna landslags-
arkitekta, sem haldin verður hér
á landi sumarið 1979. Undir-
búningur ráðstefnunnar er mikið
starf fyrir litið félag, en stofn-
félagar eru aðeins 5 talsins. Þeir
eru: Auður Sveinsdótúr, Einar E.
Sæmundsen, Jón H. Björnsson,
Reynir Helgason og Reynir Vil-
hjálmsson, sem jafnframt er for-
maður félagsins.
Hreinsun kostar 210 millj.
Ilaag/Reutcr. Kostnaður Shell
oliuféiagsins vegna strandsins á
Amoco Cadiz mun nema 20 millj-
ónum dollara en tryggingafélög
munu ekki taka neinn þátt i að
greiða þann kostnað. Það er
aðeins farmurinn, sem félagið
tapar, en skipið, sem skráð var i
Liberiu, hafði félagið tekið á
leigu.
Skipið, sem talið er að
verðmæti 12 milljónirdollara, var
tryggt, og fæst skipstapinn bætt-
ur.
Eigendur oliuskipsins munu
þurfa að greiða skaðabætur
vegna mengunarinnar af oliunni,
sem þekur 350 kilómetra af
strandlengju Bretange-skaga. Að
sögn munu skaðabæturnar, sem
skipseigendurnir þurfa að greiða,
nema 16,4 milljónum dollara.
Skaðabætur þessar má þó
skammt til að greiða kostnaðinn
við að hreinsa fjörurnar, sem
mengast hafa, en áætlað er að
hreinsunin kosti 210 milljónir
dollara.
Áður kaffi-
húsamúsikant
nú
með
fremstu
tónskáldum
Þriðjudaginn 25. april kl. 20:30
flytur sænska tónskáldið ‘Ake
Hermanson erindi sem hann
nefnir „Verket och upphovs-
mannens identitet” I samkomu-
sal Norræna hússins.
Ake Hermanson dvelst hér á
landi i þrjár vikur i boði Norræna
hússins. Hann er fæddur 1923 i
Bohusléni, var við tónlistarnám i
Stokkhólmi og kom fyrst fram
þar 1951. Árum saman lék hann á
kaffihúsum, en frá 1960 hefur
hann eingöngu starfað sem tón-
skáld, og er nú talinneitt fremsta
og sérstæðasta tónskáld Svia.
Verk hans eru ekki mikið fyrir-
ferðar, en þykja þvi betri að gæð-
um. Hann hefur valið að vinna i
einangrun, án tengsla við tizku-
stefnur samtimans og þykir hafa
náðsérstæðum persónulegum stil
i tónsmiðum sinum.
öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
Aftur
til
prýði
Garðhús Thors Jensen að
Frikirkjuvegi 11 er aftur til
prýði i borginni eins og sést á
þessari mynd. Það var upp-
haflega teiknað af Einari Er-
lendssyni árið 1908 og hugsað
sem eins konar skemmtihús.
Mjög óvenjulegt bindingsverk
er á hliðum hússins og þakið
allt skrautlegt. Alls óvist er ,
hver verður tilgangur þessa
garðhúss i framtíðinni, en
vonandi fær þaö veröugt verk-
efni.
Tímamynd: Róbert.
Husqvarna
ELDAVÉLAR
Tveir ofnar
Hröð upphitun
Sjálfhreinsandi
Sparneytin
Verð: Hvít 60 cm
Kr. 123.200
Lit 60 cm
Kr. 127.000
Hækkun
væntanleg
vegna nýs
innflutningsgja/ds
KAUPIÐ ÞESS
VEGNA í DAG
Husqvarna
Er heimilisprýði
(yjó^eiuóon Lf.
Suðurlondsbraut 16
Reykjavik - Sími (91) 35-200