Tíminn - 06.05.1978, Qupperneq 2
2
Laugardagur 6. mai 1978
Gengið fellt í
Portúgal
— óvist um áhrif á saltfisksölu
íslendinga
Lissabon/Reuter Portúgalsbanki
tilkynnti i gær, að gengi escudos-
ins hefði verið lækkað um 6%. Er
þessi ákvörðuntekin isamráði við
Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og er
liður i aö bæta bágan fjárhag
Portúgala. Samningaviðræður
hafa staðið milli Portúgalsstjórn-
ar og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins
um 50 milljón dollara lán og
náðist samkomulag að lokum i
fyrradag.
Taliðerað gengisfellingin muni
auka straum ferðamanna til
Portúgals i' sumar en Portúgalar
hafa hvaö mestar gjaldeyristekj-
ur af ferðamönnum. Aætlað er að
escudosinn muni falla um nær
16,5% á þessu ári. Ekki er vitað
hvaða áhrif þaö mun hafa á salt-
fisksölu lslendinga til Portúgals
en Portúgalar hafa að jafnaði
keypt um 50% af allri saltfisk-
framleiðslu Islendinga.
Hóta að líf-
láta Moro
— stjórnin ófáanleg til fangaskipta
Róm/lteuter Rauða herdeildin
tilkynnti i gær að hún myndi láta
verða af hótunum sinum um að
taka fyrrum forsætisráðherra
ttaliu.Aldo Moro af li'fi, vegna
þess að stjórnin neitaði að verða
við kröfum þeirra. t orðsendingu
frá herdeildinni sagði: „Við ljúk-
um baráttunni er hófst 16. marz
með þvi að framkvæma dóminn
yfir Aldo Moro”.
Sfðasta myndin af Aldo Moro
Tilkynningin er hin niunda i
röðinni frá vinstrisinnuðum öfga-
mönnum er rændu Moro. Yfirlýs-
ing Rauðu herdeildarinnar var
send út skömmu eftir að innan-
rikismálaráðherra stjórnarinnar,
lýsti þvi yfir að stjórnin væri
ófáanleg til að láta 13 hryðju-
verkamenn lausa úr haldi i
skiptum fyrir Aldo Moro.
Skæruliðar Rauöu herdeildar-
innar lýstu þvi jafnframt yfir að
barátta þeirra gegn rikinu myndi
halda áfram og erlendir sér-
fræðingar, er sendir hafa verið til
Italiu til að vinna að skipulagn-
ingu herferðar gegn skæruliðum
hefðu engin áhrif. Skæruliðarnir
hyggjast nú birta niðurstöður
réttarhaldanna yfir Aldo Moro og
upplýsingar um stjórnmálalega
og hernaðarlega starfsemi her-
deildarinnar.
Núeruliðnir tuttugu dagar frá
þvi að skæruliðar tilkynntu að
Moro hefði verið dæmdur til
dauða. Liktu skæruliðar Moro i
siðustu tilkynningu sinni við
mafiuforingja eða „guðföður” og
kváðu hann hafa framið ýmsa
glæpi gegn itölsku þjöðinni á 30
ára stjórnmálaferli sinum.
Ekki hafa borizt neinar orð-
sendingar frá Moro sjálfum en
hannhefur skrifað bréf til vina og
flokksbræðra, þar sem hann hef-
ur beðið um að fangaskiptunum
yrði komið á.
Suður-afriskir hermenn á verði við tandamæri Namibiu
Angóla.
tillögur fimm Vesturvelda um
framtið Namibiu myndu fara
fram eins og áætlaö hafði verið.
Nujoma sagði i viðtali við Reuter,
að SWAPO myndi halda áfram aö
reyna samningaleiðina, en þar
sem það reyndist ómögulegt yrði
baráttu skæruliða haldiö áfram.
Viðræður Bandarikjamanna,
Breta, Kanadabúa, Frakka og
Vestur-Þjóðverja við SWAPO
munu hefjast á mánudag. All-
margir leiðtogar SWAPO hafa
komið til New York frá Lusaka i
Zambiu, og von er á enn fleiri.
Suður-Afrfkustjórn hefur lýst sig
samþykka tillögum þjóöanna
fimm, en i þeim er gert ráð fyrir
að þjóðaratkvæðagreiðsla fari
fram i Namibiu undir eftirliti
Sameinuðu þjóðanna, en landið
fái siðansjálfstæðii lok þessa árs.
Hermenn Suður-Afrikustjórnar
gerðu árás langt inn i Angóla i
fyrradag. Arásin stóð i einn dag
og var ætlunin með henni að
þurrka út bækistöðvar SWAPO I
Suður-Angóla. Utanrikisráðherra
Suður-Afriku kvað það skyldu
stjórnarinnar að vernda ibúa
landsins, en SWAPO skæruliðar
hefðu siaukið umsvif sfn undan-
farna daga. Talsmenn stjórnar
S-Afriku sögðufátt um innrásina,
S-Afríkuher gerir
innrás í Angóla
— viðræður um Namibiu halda áfram
Sameinuðu þjóðirnar/Reuter.
Sam Nujoma, forseti þjóðar-
hreyfingar Suövestur-Afriku,
(SWAPO) fordæmdi i gær árás
stjórnarhers Suður-Afriku inn i
Angola, en sagöi að viðræður um
engar tölur um dauðsföll voru
birtar, en milli 300 og 700 her-
menn tóku þátt i innrásinni.
Brésnjef:
Fækka ekki hermönnura i
Evrópu þó hætt verði
við smiði nevtrónusprengju
Bonn/Reuter Leonid Brésnjef
forsetiSovétrikjanna sagði i' ræðu
i gær að Carter Bandarikjaforseti
hefði rangt fyrir sér ef hann héldi
að fækkað yrði i herliði Sovét-
manna i Evrópu vegna þess að
Bandarikjamenn hafa frestað
framleiðslu nevtrónusprengjunn-
ar. Nevtrónusprengjan var mjög
til umræðu á fundum Brésnjefs og
Helmuts Schmidt kanslara Vest-
ur-Þýzkalands. Skriðdrekasveitir
Varsjárbandalagsins i Evrópu
eru taldar mun öflugri en sam-
bærilegar sveitir NATO , en
nevtrónusprengjunni hefur m.a.
verið ætlað að koma i veg fyrir
stórfellda framsókn skriðdreka-
sveita i Mið-Evrópu.
Talsmaður sovézku stjórnar-
innar gerði fréttamönnum stutt-
lega grein fyrir viðhorfum er
Brésnjef hefur kynnt á fundunum
með Schmidt i Bonn og sagði að
Sovétmenn myndu ekki leyfa að
nevtrónusprengjan yrði notuð til
að fá fram tilslakanir við af-
vopnunarviðræðurnar i Genf.
Talsmenn stjórna beggja land-
annaer þátt eiga i viðræðunum i
Bonn telja að litill árangur hafi
verið af fundum leiðtoganna.
Vestur-þýzkir ráðamenn eru þess
albúnir að leyfa að nevtrónu-
sjyengjur verði staðsettar f Vest-
ur-Þýzkalandi nema Sovétmenn
fækki mjög i'herliði sinu.þá eink-
um við landamæri V-Þýzkalands i
austri.
Brésnjef sagði á einkafundi
með Schmidt að nevtró.nu-
sprengjan yki mjög hættuna á
kjarnorkustriði vegna eiginleika
sprengjunnar en hún veldur litl-
um skaða á byggingum en eyðir
lifi á stóru svæði.
Danir óákveðnir í
kj arnorkumálum
— hætta er stafar frá
kj arnorkuverum
nú talin meiri en
áður
Umræðu um að taka kjarn-
orku i' notkun sem orkugjafa i
Danmörku hefur nú verið frest-
að um tima, þvi vandamálin i
sambandi við geislavirkan úr-
gang eruenn óleyst, og einnig er
fjárhagslegur grundvöllur
kjarnorkuvers ekki enn kunnur.
Aö undanförnu hefur nokkuð
verið rætt um sænska kjarn-
orkuveriö Barseback, og við þá
umræöu hafa komið fram nýjar
upplýsingar um atriði, sem
ýmsir töldu að búið væri að
rannsaka til hlitar.
Ef slys veröur i' kjarnorkuveri
er ekki vitað hvaöa áhrif það
kann að hafa fyrir ibúa i ná-
grenni við orkuveriö, og einnig
er allt á huldu um það hverjar
likurnar á slysi eru. Niðurstöður
varöandi Barseback sýna, að
likurnar á alvarlegu slysi eru
litlar en óvissuþátturinn i út-
reikningum visindamannanna
er stærri en áður var gert ráð
íyrir. Visindamenn hafa sagt
sem svo: ,,Við vitum ekki
hversu litlar likurnar eru”.
Nú þykir vist að verstu afleið-
ingarnaraf geislavirkum efnum
frá kjarnorkuveri, koma ekki
fram strax eftir að slysið verð-
ur. Fimmtiu árum eftir að
geislavirk efni sleppa út i and-
rúmsloftið getaenn komið fram
sjúkdómstilfelli og dauðsföll,
sem rekja má til geislavirkni.
Mjög stórt landsvæði mengast
og hættuleg efni geta borizt viða
með drykkjarvatni. 1 sænskum
og bandariskum skýrslum hefúr
að undanförnu verið bent á
þessa hættu.
Danskir sérfræðingar hafa
samþykkt niðurstöður starfe-
bræðra sinna i Sviþjóð og
Bandarikjunum og afstaða
danskra stjórnvalda til notkun-
ar kjarnorku sem orkugjafa
hefur breytzt stórlega. t banda-
risku Rasmussen-skýrslunni er
talið, að skaði af völdum geisl-
unar verði undir flestum kring-
umstæðum lítill, en þó litlar
likur séu á stórslysi, er mögu-
leikinn alltaf fyrir hendi og slikt
gæti haft óskaplegar afleiðing-
ar.
I Danmörku hefur verið bent
á fimmtán staði, þar sem mögu-
legt væri að setja niður kjarn-
orkuver, en engar rannsóknir
hafa ennfarið fram á þvi hverj-
ar afleiðingarnar yrðu ef stór-
slys yrði i kjarnorkuverunum.
Unnið hefur verið að skipulagn-
ingu hjálparstarfs ef geisla-
virkni yrði mikil i Kaupmanna-
höfn. Rannsakað hefur verið
hvernig vernda má ibúana
fyrstu klukkutimana eftir að
geislavirk efni komast út i and-
rúmsloftið, en ekki er vitað
hvernigbregðastætti við geisla-
virkni sem varað gæti i mörg ár
og mengað stór landsvæði.
Opinberir aðilar i Kaup-
mannahöfn, er átt hafa að fjalla
um kjarnorkuver i Danmörku,
hafa verið mjög óákveðnir i af-
stöðu sinni til byggingu kjarn-
orkuvers, en sú staðreynd, að
visindamenn um viða veröld eru
númjög ósammála um hætturn-
ar sem stafa af kjarnorku, hefur
enn veikt grundvöllinn fyrir
byggingu orkuversins. Fulltrú-
ar i umhverfismálanefnd Dan-
merkur telja, að enn vanti upp-
lýsingar til að nefndin geti lagt
niðurstöður sinar fyrir stjórn-
málamenn landsins. Að áliti
nefndarmanna þarf að biða þar
til visindamenn og sérfræðingar
i kjarnorkumálum hafa gert
frekari rannsóknir og niðurstöð-
ur eru kunngjörðar. Heil-
brigðismálanefnd Danmerkur
hefur einnig látið i ljósi það álit,
aðekki verði hægt að dæma um
afleiðingar slyss i kjarnorku-
veri fyrr en að undangengnum
frekari rannsóknum.
Talsmaður heilbrigðsmála-
nefndarinnar sagði, að óskað
væri eftir frekari rannsóknum,
en ekkertgerðisti málinu. Hann
vildi ekki svara spurningunni —
hvort Danir vissu i dag meira
um kjarnorkuver en fyrir tveim
árum, þegar miklar deilururðu
um byggingu kjarnorkuvers.
Deilurnar um málið hafa þó
orðið til þess að ýmsar upplýs-
ingar hafa komið fram i dags-
ljósið og pólit isk öfl vinna nú að
þvi að breyta viðhorfum til
áætlana um byggingu kjarn-
orkuvera i Danmörku.