Tíminn - 06.05.1978, Síða 3
Laugardagur 6. mal 1978
3
Dagbjört Höskuldsdóttir
Bernt H. Sigurösson
Hrafnkell Alexandersson
Listi Framsóknarmanna í
Birtur hefur verið framboðslisti
Framsóknarmanna til hrepps-
nefndarkosninga i Stykkishólmi i
vor og er hann þannig skipaður:
1. Dagbjört Höskuldsdóttir,
skrifstofumaöur
2. Bernt H. Sigurðsson, hvls-
gagnasmiður
3. Hrafnkell Alexandersson,
hiisasmiður
4. Elin Sigurðardóttir, ljósmóðir
5. Ina H. Jónasdóttir, skrifstofu-
maður
6. Ólafur Ellertsson, húsasmiöa-
meistari
7. Magndis Alexandersdóttir,
húsfreyja
Elln Siguröardóttir
8. Skúli Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri
9. Jón Guðmundsson, sjómaöur
10. Þórður Sigurjónsson, ráðu-
nautur
11. Bergur Hjaltalin, húsasmiður
tna H. Jónasdóttir
12. Jóhannes Björgvinsson, bif-
reiöastjóri
13. Hermann Bragason,
sjómaður
14. Kristinn B. Gislason, bú-
stjóri
Akstur um þjóðveginn noröur I land er takmarkaöur viö 7 tonna öxulþunga frá Borgarnesi og noröur um. Tlmamynd GV.
Framkvæmd þungatakmarkana á þjóðvegum:
Húnvetningar telja þær
tilvilj anakenndar
GV — Þungatakmörkunum á
vegum upp i Borgarnes hefur nú
veriö aflétt og okkur finnst þaö
undarlegt meö tilliti til þess, aö
veikasti kaflinn á leiðinni frá
Reykjavik til Biönduóss er á
Ilvalfjaröarströnd, sagöi Ole
Aadnegard, bilstjóri Kaup-
félags Húnvetninga, íviötali viö
Timann.
Burðarþungi á vegum norður
i Húnavatnssýslu hefur verið
takmarkaður við 7 tonna öxul-
þunga frá þvi um miðjan april,
eða 11 tonna heildarþunga fyrir
minni gerð flutningabila og 16
tonna heildarþunga fyrir stærri
bilana. Fullur heildarþungi á
sömu gerðum bila eru 15 tonn
annars vegar og 23 tonn hins
vegar. — ,,A milli 16 tonna og 23
tonna heildarþunga er ekkert
millistig i þungatakmörkunum,
en það þýðir, að i stað 12 tonna
getum við nú aðeins flutt 4 tonn.
Þarna þarf að vera millistig,
annað er ekki réttmætt, sagði
Ragnar Þórarinsson, bifreiöa-
stjóri hjá KH.
Flutningabilstjórar kaup-
félagsins eru sammála um, að
þungatakmarkanir á vegum séu
nauðsynlegar sem fyrirbyggj-
andi aðgerð, en sveigjanleika
skorti i framkvæmd þeirra. 1
framkvæmd þungatakmarkana
þarf að vera meiri hreyfanleiki
eftir þvi, i hvernig ástandi veg-
irnir eru og hvort þetta eru góð-
ir vegir eða nýuppbyggðir, eins
og vegir eru nú nær allir orðnir
hér norðan heiða, sagði Ole.
Flutningurinn verður minni, en
það verður þungaskatturinn
ekki. Við bárum þetta undir
Arna Jóhannsson kaupfélags-
stjóra og sagði hann, að við nú-
verandiaðstæður þurfi að borga
tvöfaldan- þungaskatt af hverri
flutningseiningu miðað við full-'
an þunga.
Viðhald 50% af þörf
— Þaðersannastsagna, að fé
það, sem ætlað er til viðhalds á
vegunum, er ekki nema sem
svarar hálfri þörfinni, sagði
Þormóður Pétursson, vega-
verkstjóri á Blönduósi, þegar
viðræddum við hann. Vitaskuld
hlýtur þess viða að sjá stað.
Um þungatakmarkánirnar nú
er það að segja, aö ég er ráðgef-
andi um þær, en aðeins hér
innan Austur-Húnavatnssýslu.
Kaupfélag Borgfirðinga:
Hagur bænda batnaði
á síðasta ári ' — gagnvart félaginu
HEI — A aðalfundi Kaupfélags
Borgfirðinga sem haldinn var
dagana 2. til 3. mai kom fram að
afkoman árið 1977 var frekar góð.
Heildarvelta félagsins var rúmir
5 milljarðar og tekjuafgangur
11.6 millj. aö frádregnum af-
skriftum að upphæð 77 millj.
Að sögn Olafs Sverrissonar
kaupfélagsstjóra verður tekjuaf-
gangnum variðá þann hátt að um
10.7 millj. verða greiddar til
félagsmanna / helmingurinn i
stofnsjóð en hinn greiddur út.600
þús. er ráðstafað til Menningar-
sjóðs Kaupfélagsins og 324 þús. til
Byggðasafnsins.
Mjólkursamlagið tók á móti
10,5 milljónum litra og var það
5,1% aukning frá fyrra ári. Fyrir
mjólkurlitrann voru greiddar
84.31 kr., sem er nokkru yfir
grundvallarverð og var þar með
hluta bætt það sem á vantaði árið
áður. Sláturhúsið tók á móti 77
þús. fjár sem var 2 þús. færra en
ári áður.
A heildina litið sagði Ólafur að
hagur bænda gagnvart Kaup-
félaginu hefði batnað á siðasta ári
og mætti efalaust fyrst og fremst
þakka það góðu árferði.
Helztu framkvæmdir i fyrra og
i ár er nýtt mjólkursamlag og
standa vonir til að hægt verði að
taka það i notkun —að hluta til —
seint á árinu, þótt tæpast veröi
framkvæmdum lokið fyrr en í
fyrsta lagi 1980.
Þá sagði Olafur að félagsmönn-
um þyki stofnsjóður félagsins
verða að litlu á verðbólgutimum
og hafi þvi á fundinum verið sam-
þykkt ályktun um að athuga
möguleika á verðtryggingu sjóðs-
ins.
Aðalfundinn sátu 76 fulltrúar
frá hinum 18 deildum Kaup-
félagsins.
Rannsókn á
eldsvoðanum
í Breka að
ljúka
Ekkert
skýrt frá
niðnr-
stöðum
að svo
stöddu
ESE — Lögreglurannsókn vegna
brunans á Breka VE 61 i Slipp-
stöðinni á Akureyri er nú nær þvi
lokið. Að sögn Asgeirs Þ. Asgeirs-
sonar fulltrúa bæjarfógetans á
Akureyri sem stjórnar rannsókn-
inni þá er þetta allt að koma
saman en þó sagði hann að væru
nokkur atriði sem þörfnuðust
frekari athugunar við. T.d. væri
skýrsla skoðunarmanna ekki
komin en talið var að i skýrslunni
væru upplýsingar sem m.a. gætu
varpað ljósi á þau atriði sem ekki
voru full könnuð. Asgeir sagði að i
sjálfu sér væri orðið nokkuð ljóst
um eldsupptök,en sökum þess að
nokkur atriði vantaöi i myndina
þá taldi hann ekki rétt aö skýra
frá niðurstöðum rannsóknarinnar
að svo stöddu.
Ýmsar hugmyndir hafa verið
uppi um á hvern hátt eldurinn
breiddist út á svo skömmum tima
sem raun bar vitni og hefur verið
nefrit i þvi sambandi að ein-
angrun hafi ekki verið sem
skyldi. Þetta atriði var borið
undir Asgeir i gær og sagði hann
aöeins að skipið hefði verið
einangrað með glerull og hefði
öllum öryggisreglum i þvi sam-
bandi veriö fylgt. Annars sagöi
Asgeir P. Asgeirsson að öll kurl
yrðutrúlega komin til grafar eftir
helgi og þá yrði tekin afstaöa til
þess hvaö yrði gert i ljósi þeirra
upplýsinga sem þá lægju fyrir.
Timinnhafðii gær samband viö
Þorstein Sigurðsson fram-
kvæmdastjóra Fiskimjölsverk-
smiðjunnar i Vestmannaeyjum
en verksmiðjan er eins og kunn-
ugt er eigandi Breka og var hann
spurður aö þvi hvort eitthvað
hefði veriö ákveðið um hvort gert
yrði við togarann.
Þorsteinn sagði aö allt væri
óráðið enn hvað gert yrði i þeim
málum en málið væri i athugun.
Matsmenn tryggingafélagsins
hefðu enn ekki skilað áliti en
ákvörðun yrði ekki tekin fyrr en
álit þeirra lægi fyrir.
Ekki vissi Þorsteinn hvað tjóniö
á Breka væri mikið en þó væri
ljóst að það skipti hundruöum
milljóna króna.