Tíminn - 06.05.1978, Qupperneq 8

Tíminn - 06.05.1978, Qupperneq 8
SilISAlÍ Laugardagur 6. mal 1978 Hermann Haraldsson. Sjóður til styrktar löm- uðum og fötluðum börnum „Frá Styrktarfélagi lamaöra og fatlaðra: Nýlega var stofnaður sjóður til styrktar lömuðum og fötluðum börnum. Er sjóðurinn til minn- ingarum Hermann Haraldsson frá Heiöaseli i S.-Þingeyjarsýslu, en hann andaðist 15. nóvember 1977. Ber sjóðurinn nafn hans. Stofn- endur eru systkini hins látna en þau.eru: Sigurður Haraldsson, Sigrún Haraldsdóttir, Ingi Har- aldsson, Dagur Haraldsson og Valgerður Haraldsdóttir. Stofnfé er rúmlega 2 milljónir króna. Sjóðurinn er i vörzlu Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra, en hefur sérstaka stjórn. Forseti Islands hefur þann 19. april 1978 staðfest skipulags- skrána. Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra fagnar þessari sjóðsstofnun og þakkar þann hlýhug sem þarna kemur fram til styrktar málefnum félagsins”. Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Vona að kaupfélagið haldi áfram að eflast — segir Guðröður Jónsson, sem nú i vor lét af starfi kaupfélagsstjóra eftir að hafa gegnt þvi starfi i 40 ár Guðröður Jónsson hefur starf- að hjá Kaupfélaginu Fram á Norðfiröi i 46 ár. Þar af hefur hann veriö kaupfélagsstjóri i 40 ár. Nú i vor lét hann af þvi starfi, en við kaupfélagsstjóra- stöðúnni tók Gisli Haraldsson. Þegar Guðröður hóf störf sem kaupfélagsstjóri var salan i kaupfélaginu aðeins 62 þúsund kr. á ári. A fyrsta ári jókst salan um 50% og siðan hefur salan aukizt ár frá ári. Fyrsta árið vann aðeins ein stúlka i kaup- félaginu með Guðröði, en nú er starfsfólk 30-40 manns hjá félaginu. Auk verzlunar rekur félagiö bakari, frystihús fyrir kjöt og aðra matvöru, skipaaf- greiðslu og er með umboð fyrir Samvinnutryggingar og Oliu- félagið h.f. Nýltga spurði blaðamaður Guðröð hvað honum væri efst i huga nú þegar hann léti af störf- um. Hann kvaðst vonast til að Norðfirðingar héldu áfram að efla sitt kaupfélag, eins og þeir hefðu gert hingað til. Eignir kaupfélagsins væru orðnar miklar og aðstaða tíl verzlunar- reksturs væri mjög góð. Oll skíl- yrði hefði félagið þvi til þess að blómstra áfram. A siðasta ári var vörusala um 55 millj. kr. i verzlunum félags- ins og þvi til viðbótar var all- mikil umsetning i sambandi við slátrun sauðfjár. Nýleg við- bygging er við sláturhús kaup- félagsins og þar voru lagðir inn 4400 dilkar sl. haust. Þá lögðu bændur i' Norðfirði um 700 þús- und litra af mjólk. geröarmanna um fisk og vinnu- afl. Slik samkeppni hefði skemmt fyrir báðum aðilum. Betra væri þvi að einn aðili sæi um fiskverkunina, fyrst það var svo heppilegt að útgerðarmenn gátu myndað sterkt samvinnu- félag. A sama hátt væri það mjög heppilegt að annað sam- vinnufélag sæi um meginhluta verzlunarinnar. Kvaðst Guðröð- ur vona að þessi skipan héldist áfram. Nú þegar Guðröður lætur af starfi sem kaupfélagsstjóri ætl- ar hann að flytjast inn i sveit og búa i húsi, sem hann á á jörð- inni Miðbæ. Þar fæddist Guð- rööur og þar hyggst hann eyða ævikvöldinu. MÓ Guðröður sagði, að land- búnaðurinn i Norðfirði væri mikill styrkur fyrir kaupfélagið pg alla byggð á Neskaupstað. A samaháttværi það mikillstyrk- ur fyrir sveitina að bærinn væri öflugur. Um tfma rak kaupfélagiö frystihús og var með fiskverk- un. Siðan var ákveðið að h-.itta þvi. Guðröður sagði, að ákveðið hefði verið að hætta þessari starfsemi til þess að vera ekki að keppa við samvinnufélag út- Hluti af húsum Kaupfélagsins Fram á Neskaupstaö. Tlmamyndir MÓ. HvaðerLandssambandið gegn áfengisbölinu? Landssambandið gegn áfengis- bölinu var stofnað i október 1955. Aðildarfélög þess eru 30 talsins, allt frá hreinum bindindisfélög- um að fjöldasamtökum eins og Kvenfélagasambandi Islands, Slysavarnarfélagi Islands og Al- þýðusambandi íslands. Stjórn þessa landssambands boðaði fréttamenn til fundar við sig 27. april til að minna á tílveru sina. Tilgangur sambandsins Um tilgang sambandsins segir svo i 2. grein i lögum þess: „Tilgangur landssambandsins er að stuðla að bindindisstarf- semi, vinna gegn neyzlu áfengra drykkja og leitast við að skapa al- menningsálit, sem hagstætt er bindindi og reglusemi. Landssambandið starfar i sam- vinnu við Afengisvarnarráð. Landssambandið vill ná til- gangi sinum með þvi: a) að fá allar deildir sinar til þess að vinna að bindindi og reglu- semi inn á við og út á við á hvern hátt, sem hentast þykir hverju sinni og á hverjum stað. b) að vinna að þvi, að bindindis- samir hæfileikamenn veljist til opinberra trúnaðarstarfa i þjóðfélaginu. c) að vinna að þvi, að sett verði löggjöf, er miðar að þvi að draga sem mest má verða úr innflutningi, sölu og veitingum áfengra drykkja, og varðveita ákvörðunarrétt kjósenda um sölu og veitingar áfengis. d) að vinna af alefli gegn tilbún- ingi áfengra drykkja i landinu. e) að fá samkvæmisháttum og skemmtanalifi breytt, svo að það verði hvarvetna með menningarsniði”. Nokkuð kann það að vera mis- jafnt hversu fast aðildarfélögin fylgja þessari stefnuskrá sjálf, þó að hún sé vitanlega á engan hátt bindandi fyrir einstaka félags- menn þeirra. Félög, sem þarna eiga aðild, sýnast ekki geta staðið fyrir áfengisveitingum sjálf. Árlegur fundur Landssambandið heldur reglu- legt þing annað hvert ár með tveim fulltrúum frá hverri deild. Þar er kosið fulltrúaráð til tveggja ára og eiga fulltrúaráös- menn setu á þinginu svo að þar eiga þvi að vera þrir menn frá hverri deild. Arið sem verður milli jiinga er haldinn fundur i fulltruaráðinu. Og auðvitað geta fundir verið fleiri og jafnvel uukaþing ef ástæða þykir til. Núverandi formaður lands- sambandins er Páll V. Daniels- son. Með honum eru i stjórninni Eirikur Stefánsson, Guðsteinn Þengilsson, Garðar Óskar Pét- ursson, Hanna Kolbrún Jónasótt- ir, Jóhanna Steindórsdóttir og Ólafur Haukur Arnason. auðvitað hvergi gert nema á und- an færi fræðsla og áróður fyrir bindindissemi. I öðru lagi bentu þeir á aðsúfrjálshyggja sem viða einkenndi sjötta tug aldarinnar væri nú hvarvetna á undanhaldi. Þá þótti viða ráðlegt að hafa frjálslega sölu áfengis og einkum að auðvelda fólki aðgang að létt- ara áfengi svo sem öli.Bæði Sviar og Finnar reyndu þetta. Sú til- raun stendur enn yfir i Finnlandi og hefur gefizt hörmulega. Sviar hafa hinsvegar tekið aðra stefnu. Stefna i áfengismálum Meira vitað en áður Landssambandið stendur þann- ig fyrir árlegri samkomu um á- fengismál. Þar ættu að koma fram hugmyndir manna um við- horf og stefnu i áfengismálum. Þegar áiyktanir og samþykktir þessara funda eru athugaðar kemur i ljós að þær eru mjög i ætt við það sem bindindismenn álykta. Þar er gjarnan mælt með hömlum og aðhaldi. Þegar stjórnarmenn voru inntir eftir þvi hvort sambandið tryði á boð og bönn var þvi svarað til.að -yfirleitt væri alltaf og alls staðar beitthömlum og lögbönnum þeg- ar eitthvað væri reynt til að vinna gegn drykkjuskap, þó að það væri A síðustu áratugum hafa verið gerðar miklar athuganir ijifeng- ismálum. Fræðsla um þær rann- sóknir og niðurstöðurþeirra mætti verameiriog ná betur tilalmenn- ings en er hér á landi. í Noregi, Sviþjóð, Finnlandi og Kanada hafa slik rannsóknarstörf verið unnin. Alþjóðleg samtök hafa fyllilega gert sér grein fyrir þvi að áfengi á heima i flokki þeirra vimugjafa sem mest hætta stafar frá. Bæði Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna og Evrópu- ráðiðhafa gert ályktanir þar sem bent er á það ægilega böl sem af drykkjuskap stafar og þing og þjóðir hvött til að vinna gegn þvi fári. Stjórnarmenn sambandsins virtust lita svo á að almenn fræðsla um högun og atferli þess- ara meinsemda mætti vera við- tækari. Fjölmiðlar okkar mættu lika gefa meiri gaum starfi is- lenzkra lækna á þvi sviði. Eina leiðin Stjórnarmennsambandsins eru greinilega þeirrar skoðunar að „eina leiðin til þess að verulegur árangur náist i baráttunni við á- fengisbölið er aukin bindindis- semi” eins og segir i ályktun sið- asta fulltrúafundar þess. Eins og réttingaverk stæði -Verulegur áhugi virðist vera á ýmiss konar hjálparstöðvum fyrir þá sem lækninga þurfa vegna drykkjusýki. Guðsteinn Þengilsson sagði að vist væri það nauðsynlegt og allra góðra gjalda vert. En það er engan veginn nóg. Við viljum ekki láta slysin verða. Viðhöfum slysavarðstofu og rétt- ingaverkstæði til að reyna að bæta og laga það sem misferst i umferðinni Það eru ómissandi stofnanir. Ensamterum við allt- af að reyna að koma i veg fyrir umferðarslysin. Við nefnum þá umferðarmenningu. En hvað gerum við til að koma i veg fyrir drykkjusýkina?

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.