Tíminn - 06.05.1978, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.05.1978, Blaðsíða 9
Laugardagur 6. mal 1978 9 QMhh á víðavangi Samræmt fornt Nú síöustu daga þingstarfa fyrir lok kjörtimabils eru að vonura miklar annir hjá þing- mönnum. Fjöldi máia, sem búið var að ræða en ekki höfðu hlotið endanlega og formlega afgreiðslu, hefur hlotið hana nú slðustu dagana, og má segja að fundað sé frá morgni til kvölds og jafnvel fram á nætur. Það er ástæða til að benda á það, að svo er ekki að skilja að hrapað sé að málum siðustu daga þingsins, heldur er meira um það að frumvörp og tillögur sem þegar hafa verið rædd og könnuð komi nú til endanlegrar afgreiðsiu. Þetta á t.d. vel við um frumvörpin urn eignarskatt og tekjuskatt. Enda þótt mönnum sýnist sitt hverjum—um efni þeirra og einstök ákvæði, hafa þessi frumvörp áðurhlotið mikla og vandaða vinnslu á þingi og meðal embættismanna rikis- ins og nefnda Alþingis. Svo sem vonlegt er fyllast sumir þingmenn miklum guð- móði siðustu dagana. Sumir telja sér tæplega afturkvæmt, aðrir varla og sumir vilja láta sin rækilega getið svona að ' siðustu. i hópi þeirra sem uppfyllzt hafa nú að siðustu eru þeir Sverrir Hermannsson og Gylfi Þ. Gislason. Hugsjónamál þeirra, núer setu þingsins lýk- ur, er að færa bókstafinn zetu inn I ritmál landsmanna með lagaboði. Núhafa þeir vinirnir upphafizt með ærslum um það að hjartansmál þeirra verði tekið til afgreiöslu, jafnvel þótt fjöldi þjóðþrifamála biði og næturfundi þurfti til að kosta. Sá sem þessi orð skrifar er ekki fjandniaður gamalgró- innar réttritunar islenzks máls, nema siður sé. Honum er þó ekki um frani allt eftir- sjá að einum bókstaf. Og það verður að segjast eins og það er, að ekki verður það talið framfaramál að fara að lög- bjóða fólki hvernig rita skuli það móðurmál sem við öll höf- uin sama rétt á að stafsetja, og höfum meira að segja rétt á að stafsetja svo að óskiljan- legt sé ef sá gállinn hleypur i okkur! Einkennileg er reyndar sú árátta að halda móðurmálinu betur borgið i lagaviðjum en án þeirra, — og þegar öllu er á botninn hvolft að halda að rit- háttur einn sé það sem úrslit- um ræður um framtíð móður- máls og þjóðernis. Fyrir allnokkru kvað Steinn heitinn Steinarr kvæði um þörfina á þvi, að mönnum yrði með lögum boðið að iðka „samræmt göngulag fornt”, og má leggja að jöfnu á sinn hátt við þá viðhöfn sem hvarfi zetunnar úr opinberri réttrit- un er helguð. Þegar þessi orð eru rituð er ekki enn vitað hvort hið háa Alþingi telur tima sinum bezt varið til umræðna um zetuna á slðasta kvöldi fyrir þingslit. En væri úr vegi, hvort sem af þessari umræðu verður eða ekki, að rætt yrði frekar um það h vort mögulegt sé að ætla Sverri Hermannssyni & Co hf. með lögboði nokkra skynsemi i hugsun og málflutnmgi, fyrst öðrum skal lögbjóða að skrifa eins og þéir vilja? js w. k:' ■<É n: t >.L. ", t V W* v<$ ,i>t. c-tr'i v»r- Vinnuskóli Reykjavíkur %} Wð If Vinnuskóli Reykjavikur tekur til starfa um mánaðamótin mai-júni n.k. í skólann verða teknir unglingar fæddir 1963 og 1964 og/eða voru nemendur i 7. eða 8. bekk grunnskóla Reykjavikur skólaárið 1977-1978. Umsóknareyðublöð fást i Ráðningarstofu « Reykjavikurborgar, Borgartúni 1, og skal umsóknum skilað þangað eigi siðar en 19. mai n.k. Nemendum, sem siðar sækja um, er ekki fr. hægt að tryggja skólavist. f Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar. i I w í\*Y- \ r*i >'*> ► jí,- ÍVVI Ú ■ XVv>5 jfe M 'V y~’ VM I C- Hvítasunnu- kappreiðar verða haldnar eins og venjulega 2. hvita- sunnudag. Keppnisgreinar eru sem hér segir: 2S0 m. skeið. Stökk, 250m. 350m og 800m. 800nt. brokk. Gæðingakeppni á a og b flokki. Lokaskráning fer fram mánudaginn 8. mai, á skrifstofu félagsins, frá kl. 13-18, simi 3-01-78. ATH. gæðingar verða dæmdir laugardag- inn 13. mai kl. 14-17. Hestamannafélagið Fókur Firmakeppni Fáks i dag Selfossi — Hestaiþróttin er mjög vinsæl hér á Selfossi og hafa verið i byggingu mörg hesthús á þvi svæði sem úthlutað var af hrepps- nefndinni á sinum tima. Þann 6. mai kl. 14.00 verður firmakeppni,sú fjölmennasta sem haldin hefur verið hér eða um 80- 90 firmu héðan úr byggðarlaginu og viðar. Keppnin fer fram á nýjum 300 m hringvelli en hann hefur verið i byggingu fram á þennan dag. 1 sumar verður á þessum velli Islandsmót i hestaíþróttum á sama tima og Landbúnaðarsýn- ingin eða 19. og 20. ágúst. Firma- keppni Sleipnis verður þannig háttað i ár,að knapar mæta til þátttöku kl. 13.00 við Félagshest- húsið við Engjaveg, og siðan verður riðið um götur bæjarins og útá hringvöllinn. Verðlaun verða vegleg að vanda. Efsti hestur fær farandbikar svo og firmað sem hann keppir fyrir. Einnig fær hann verðlaunapening. Hestar númer tvö og þrjú fá verðlauna- pening. Unglingakeppni er haldin i tengslum við firmakeppnina en þá keppa unglingar 15 ára og yngri. Þeir eru einnig heiðraðir með verðlaunapeningum. Þá hef- ur það verið ákveðið að tiu efstu firmun fá áritað skjal með mynd af hestinum sem keppti fyrir það. Það þarf ekki að draga það i efa að þarna verður um skemmtilega keppni að ræða á nýbyrjuðu sumri þar sem ungir og aldnir bregða á leik til styrktar starf- semi félagsins. Sveit 15 ára drengur óskar eftir að komast í sveit. Upplýsingar í sima 7-13- 25, Reykjavík. Kaupakona óskast í sveit, ekki yngri en 20 ára. Má hafa með sér barn. Upplýsingar i sima 7-48-62. Lionsklúbburirm Fjö/nir I ÍVIIMNINGAR drætti j I I 1) Nr. 23.911 26" Luxor litsjónvarpstæki. 1978 2) Nr. 11.739 20" Sharp litsjónvarpstæki. 3) Nr. 18.249 20" Sharp litsjónvarpstæki. 4) Nr. 10.809 20" Sharp litsjónvarpstæki. 15) Nr. 14.074 Sólarlandaferð með Sunnu á kr. 150.0001 6) Nr. 12.578 Sólarlandaferð með Sunnu á kr. 150.0001 17) Nr. 926 Sólarlandaferð með Sunnu á kr. 100.0001 8) Nr. 20.068 Sólarlandaf erð með Sunnu á kr. 100.0001 ■ 9) Nr. 18.208 Sharp ferðaútvarpstæki. 110) Nr. 9.303 Sharp ferðaútvarpstæki. ____) Tilkynning til símnotenda SÍMASKRÁIN 1978 Athygli skal vakin á því að símaskráin 1978 gengur i gildi frá og með sunnudegin- um 7. mai n.k. Ennfremur er athygli simnotenda vakin á fjölmörgun númerabreytingum á Reykjavikursvæðinu og hinum sér- stöku númerabreytingum á Akureyri, sem framkvæmdar verða þar mánudaginn 8. mai n.k. Aríðandi er þvl að simnotendur noti nýju simaskrána strax og hún gengur I gildi, enda er slmaskráin frá 1977 þar með úr gildi fallin. Póst- og simamálastofnunin. Borgartún 29 Hjólbarðaskiptingar, hjólbarðasala. Flestar stærðir af Atlas og Yokohama hjólbörðum á góðu verði. Véladeild Sambandsins HJÓLBARÐAR BORGARTÚNI 29 SÍMAR 16740 OG 38900 Þjónusta fyrir landsbyggðina Sendið okkur (í ábyrgð) þá skartgripi sem þér þurfið að láta gera við, ásamt smálýsingu á því sem gera þarf, heimilisfangi og síma- númeri. Að af lokinni viðgerð, sem verður inn- an 5 daga frá sendingu, sendum við ykkur við- gerðina í póstkröfu. Allar viðgerðir eru verð- lagðar eftir viðgerðaskrá Félags ísl. gull- smiða. Stækkum og minnkum hringi (sendum mál- spjöld), gerum viö armbönd, nælur, hálsmen, þræðum periufestar. Gyllum. Hreinsum. Sendum einnig í póstkröfu allar gerðir skart- gripa. Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið og leitið upplýsinga. GULL HÖLLIN Laugavegi 26 — Reykjavík Simar (91) 1-50-07 & 1-77-42

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.