Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 2
7 Sunnudagur 28. mál 1978. Sækjum fram til si§ Mikill sóknarhugur hvarvetna ráðandi Rætt við efstu menn B-listans í Garðabæ, Hafnarfirði og Keflavik á SSt — t dag ganga menn að kjör- borði i bæjar- og sveitarstjórnar- kosningum um land ailt, og gera upp hug sinn til margvislegustu málefna, byggðarlaga sinna og áreiðanlega ekki siður manna. Timinn tók tali efstu menn B-listans í þremur stórbyggðar- lögum i næsta nágrenni Reykja- vikur, i Garöabæ.Hafnarfirði og Keflavik og spurði þá hvað þeim væri efst i huga á kjördegi. Allir tóku þeir undir, að hvar vetna væri mikill sóknarhugur i mönn- um og allir legðust á eitt við að gera veg Framsóknarflokksins sem mestan i þeim kosningum, sem i hönd fara. Fyrstan hittum við að máli Markús Á.Eínarsson, efsta mann B-Ustans i Hafnarfirði og spurð- um hann hvað honum væri efst i huga a kjördegi. Markús sagði: A kjördag leitum við stuðnings Hafnfirðinga við stefnumál Framsóknarflokksins f málefnum Iiafnarfjarðar. Ég vona að menn haf veitt þvi eftirtekt, að fram- bjóöendur B-listans hafa leitazt við aö afla sér fylgis með mál- efnalegum málflutningi fremur en persónulegu hnútukasti. Við höfum lýstyfir ánægjuokkar með það sem vel hefur verið gert, svo sem lagningu hitaveitu i bæinn og gatnagerö tengda henni. En við höfum einnig bent á ýmsa mála- Markús A.Einarsson efsti maöur B-listans I Hafnarfirði, Hafnarfjörður I baksýn. Mynd: G.E. flokka, þar sem illa hefur verið á málum haldið, og ber þar hæst skólamálin. Siðan sagði Markús: Mörg að- kallandi verkefni bíða nú úr- lausnar. A komandi kjörtímabili þarf að cndurskoða áætlun um skólabyggingar og fylgja henni eftir. Framtiöar-ibúðarhverfi í Ás- landi og Setbergshverfi veröa skipulögð, byggja þarf sundlaug i Suðurbæ, leikskóla og hefja fram- kvæmdir viö heilsugæzlustöð. Bæta verður aðstöðu við höfnina ogloks verður stigið lokaskrefið i lagningu varanlegs slitlags á göt- ur bæjarins. Að endingu vil ég aðeins segja þetta: Hafnfirðingar! Við vænt- um þess að þið gerið okkur kleift að vinna að hugöarefnum okkar svo um munarmeðþvi að tryggja okkur tvo menn i bæjarstjórn. Einar Geir Þorsteinsson, efsti maöur B-listans I Garöabæ Engin ástæða til annars en bjartsýni um úrslit Næstan hittum við að máli Ein- ar Geir Þorsteinsson efsta mann á lista Framsóknarmanna i Garðabæ. 1 siðustu kosn. ingum misstu þeir bæjarfull- trúa sinn og hafa nú fullan hug á að vinna hann aftur. Þeir fram- sóknarmenn i Garðabæ hafa starfað duglega að undanförnu. Við spurðum Einar Geir hvað honum væriefst i huga á kjördag. Einar Geir sagöi: Þaö er af mörgu að taka, en ég ætla ekki að fara að þylja öll mál.sem við Framsóknarmenn i Garöabæ höf- um á stefnuskrá okkar. En til að ncfna helztu mál teljum við veigamikiðatriði, að öll mál, sem hljóta afgreiðslu bæjarstjórnar, verði afgreidd án flokkspólitisks hugarfars, og að réttlætis verði i hvivetna gætt og að nauðsyn sé á traustri f jármálastjórn, þvi undir henni er farsæld hvers bæjar- félags komin. — Attu þér eitthvert sérstakt baráttumál ef þú kemst i bæjar- stjórn? Einar Geir: Já, ég tcl, að gera þurfi stórátak i gatnagerö og ef ég næ kjöri mun ég beita mér fyrir þvi að lagningu varanlegs slitlags á allar götur bæjarins verði lokiö innan þriggja ára, þvi satt að segja hafa ýmsir hlutar bæjarins orðið illa úti i þeim efnum, þar er þvi mikið verk að vinna. — Að lokum ertu bjartsýnn á úrslitin hér i Garðabæ? — Já, auövitað er ég bjartsýnn, og sé reyndar enga ástæðu til annars. Þvi er ekki aö leyna aö þetta verða tvisýnar kosningar, og vil ég þvi ekki spá um niður- stöður þeirra, sagði Einar Geir Þorsteinsson að lokum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.