Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 22

Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 22
22 Sunnudagur 28. mai 1978. Nútíminn ★ ★ ★ I stuttu máli Sandy Denny látin Fyrir skömmu lézt brezka söngkonan Sandy Denny 31 árs aö aldri af slysförum, en hún féll niöur stiga á heimili kunningja sinna. Sandy Denny haföi á sinum tima mikil áhrif á þjóölagatón- list i Bretlandi og var hún gift „Hef ekki rekið upp bofs síðan þá, ekki einu sinni í baði” Sandy Denny Trevor Lucas fyrrum meölimi hljómsveitarinnar Fairport C'onvention'. Segja má aö andlát Sandy Denny hafi komiö sem reiöar- slag yfir brezka poppheiminn og kunningja þeirra hjóna, þvi aö þau stefndu aö þvi ineö sumrinu aö fiytjast til Bandarikjanna þar sem ætlunin var aö freista gæfunnar innan skemmtana- iðnaðarins. Moody Blues Illjómsveitin Moody Blues sein átti sér marga aödáendur liér á landi áöur en hún lagöi upp laupana hefur nú veriö endurvakin og allar horfur á þvi að hljómsveitin haldi hljóm- leika i Bretlandi i sumar auk hljómleika I Bandrikjunum, Astraliu og Japan. Þeir Ray Tliomas og Justin Iiayward eru nú staddir f Bret- landi þar sem þeir vinna aö undirbúningi hljómleikaferöar- innar, en hinir meölimir hljóm- sveitarinnar, þeir John Lodge, Graeme Edge og Mike Pinder, eru væntanlegir þangaö til lands innan skamms. Nico Söngkonan Nico, sem m.a. var á sinum tima i hljómsveit- inni Velvet Underground meö þeim Lou Reed og John Cale, kom fyrir skömmu frain á hljómleikum meö ,,punk” hljómsveitinni The Adverts og var þaö í fyrsta skipti i þrjú ár sem hún kemur fram opinber- lega, en hún hefur búiö upp á siökastið i Fra.kklandi. Fyrir þrem árum sendi hún frá sér hljómplötuna „The Nico End”, en svo viröist aö hún hafi séð sig um hönd og að sú plata sé alls ekki endirinn á hennar ferli þvi að væntanleg er á markaö i Bretlandi innan skamms hljómplata meö henni. — rætt við Oðin //Blessaður vertu ég ætlaði að vera hættur þessu fyrir lifandi löngu en það hefur nú alltaf verið í maganum á mér að gefa út tólf laga plötu svo að þeg- ar Pálmi í Tónaútgáfunni impraði á því við mig að ég syngi inn á þessa plötu þá hreinlega stóðst ég ekki mátið en þú mátt hafa það eftir mér að þetta verður mín fyrsta og síðasta tólf endanlega hættur." I»að er Óöinn Valdimarsson, sem kunnur var hér fyrr á árum fyrir söng sinn,sem hefur oröiö,en hann er nú kominn heim frá út- löndum þar sem hann var I siglingum frá þvi aö hann hvarf liéðan af landi brott áriö 1965. Blaðamaöur Nútimans náöi tali af Óðni fyrir skömmu og fer viötaliö hérá eftir.en fyrir þá sem ekki kannast við Óöin Valdimars- son er rétt að geta þess að aö hann var ein skærasta popp stjarnan hérlendis og þótt vlðar væri leitaö á árunum frá 1956-1964, og á ferli sinum hefur hann sungið lög eins og „Utlaginn,”, „Ég er kominn heim” og „Einsi kaldi úr Eyjun- um”, sem ódauöleg eru á landi voru. Talið berst fyrst að þvi hvenær Óöinn byrjaöi i „bransanum”. — Þaö hefur verið ’53-’54, en þá varégi Atlantic kvartettnum sem lék i Alþýöuhúsinu á Akureyri og má segja aðþaðhafi veriö I fyrsta skipti sem ég kom nálægt þessu af einhverri alvöru. Sfðan kom fyrsta platan út 1956 og fram til ársins 1959 söng ég meö Atlantic en þá söölaöi ég um og fór i KK sextettinn. Ég var nú ekki lengi i KK þvf aö stuttu síöar hóf ég aö syngja með hljómsveit Karls Lilliendahls i Lidó sem nú heitir Tónabær. Nú fórst þú aftur norður stuttu siðar með hverjum söngst þú þá? — Já það var skömmu eftir 1960 að ég fór aftur norður til Akureyr- ar og þá meö mina eigin hljóm- sveit og spiluðum við i Alþýöu- húsinu allt þar til „Sjallinn” opnaði en þá gekk ég til liös viö Ingimar Eydal og sáurn viö Helena Eyjólfsdóttir um sönginn. A þessum árum má segja aö ég hafi orðiö sifellt leiðari meö hverjum deginum sem leið á þessu starfi en siðast söng ég svo hérlendis á Hótel Borg 1964, en hélt aö þvi búnu utan til Noregs 1965, hundleiöur á öllu þvi um- stangi sem fyigdi þessari spila- mennsku og fyrir utan þaö aö ég söng I átta mánuöi á norska skemmtiferðaskipinu Oslofjord hef ég ekki rekiö upp bofs þar til nú, ekki einu sinni i baði. Haföir þú einhverjar fyrir- ætlanir um aö reyna fyrir þér sem skemmtikraftur erlendis þegar þú hélzt utan? — Ég skal segja þér þaö aö þaö hvarfiaöi ekki einu sinni aö mér. Ég var eins og áöur segir oröinn hundleiður á þessu lifi og min eina hugsun var aö reyna aö skemmta mér nú einu simii eins og maöur i staö þess aö vera allt- af að skemmta öðrum. Þetta var sem sagt það sem ráðgert var en eftir mánaöardvöl i Noregi var buddan orðin anzi létt svo að ég sá aö ég varö eitthvað til bragðs að taka ef ég átti ekki hreinlega aö svelta. Það má segja aö það hafi oröiö mér til bjargar aö ég hitti norskan þjón sem unniö haföi á Borginni enhann kynntimig fyrir brytanum á Oslofjord og á ein- hvern furöulegan hátt æxlaöist þaö svo aö ég var ráöinn I starfið. A Oslofjord liföi ég eins og blóm i eggi. Ég söng meö tveim hljóm- laga plata því að nú er ég sveitum i þetta rúinan klukku- tima á kvöldi en þess á milli lá ég i sólbaöi eöa lét mér liða vel á ein- hvern annan máta. Og „rútan” var ekki amaleg, Osio — Dan- mörk — New York — Casablanca og fleirihafnir i Karabiska hafinu og siöan aftur til Noregs. Þetta var sældarlif i þessa átta mánuöi sem ég var á skipinu. Eftir aö ég hætti á Oslofjord má segja aö ég hafi staðið í sömu sporum og þeg- ar ég fór að heiman nema að ég haföi náö valdi á norskunni sem hafði vitaskuld mikiö aö segja. Þaö varö svo úr aö ég réðist sem kokkur á norskt oliuskip, Poly Star, en á Poly Star og systurskipi þess Poly Queen varégi fimm ár og vitaskuld byrjaöi ég sem sá al- neösti þvi aö segja má aö ég heföi aldrei migið i saltan sjó áöur en ég réði mig á oliuskipin þó aö ég hafi verið aö gutla þetta sem skemmtikraftur á skemmtiferöa- skipi. Þessiár sem ég var á sjón- um eru mér ógleymanlegur timi og ég held hreinlega aö ég hafi komiö til allra landa heims sem að s jó liggja á þessum árum ef ég undanskil Grænland. Þú hefur ekkert veriö aö syngja á þessum árum? — Nei það veit guð og það er eins gott að ég segi þér frá þvi að ein aöalástæðan fyrir þvi aö ég fór frá tslandi á sinum tima var sú aö ég var búinn aö fá ofnæmi fyrir þvi aö heyra í mér i út- varpinu á hverjum einasta degi og ég var lengi aö manna mig upp i aö þora aö koma heim aftur en nú tel ég vist að búið sé aö spila gömlu plöturnar minar I gegn og þvi eigi ég ekki eins mikið á hættu og ella — segir óöiim kiminn. Nei, ef ég á aö tala i alvöru þá kom ég ekkert nálægt músik á þessum árum og þaö er ekki fyrr en nú aö ég féll i þessa freistni. Svo við vikjum nú aftur aö nýju plötunni þinni, „Blátt oni blátt”, hvernig lög eru á henni? — Það má segja að lögin á plöt- unni séu eins konar þverskuröur af þeim lögum sem voru vinsæl á árunum frá 1956-1964, það er að segja frá þeim árum er ég var og hét eitthvað i þessum bransa. Annars verð ég nú aö viöur- kenna það að þrátt fyrir aðég hafi ekki verið neitt spenntur fyrir þessu fyrst þá hafði ég virkilega gaman af aö vinna aö þessari plötu. Þetta er sérstök upplifun eftir öll þessi ár. Þá veröur og gaman að sjá hverjar viðtökur platan fær og þá einkum hjá þeim sem sóttu böllin sem ég söng á og keyptu plöturnar minar þvi að það fólk er það eina seni getur lagt rétt mat á það.hvort hljóöin i inér hafa breytzt eitthvaö og þá á hvern hátt. Ég vil einnig taka þaö fram, aö ég er öllum þeim sem gerðu þess- ari tólf laga plötu minni kleift aö komast út úr maganum á mér ákaflega þakklátur, þvi aö þú get- ur rétt imyndað þér að það cr ekki rétt þægilegt þegar meögöngu- timinn er orðinn svona langur. Og þegar á heildina er litið þá er ég injög ánægöur meðþað sem hefur Valdimarsson Óöinn Valdimarsson orðið úr þessu. Ég vU og nefna það að ég er sérstaklega ánægurmeö umslagiö utan um plötuna sem vinur minn Hall- grimur Tryggvason hannaöi og tel aö þar hafi hann unnið mjög gott starf. Svo aö viö vikjum nú að fram- tiðinni hvað er framundan hjá þér? — Ja.ég er nú lærður prentari og kokkur og í haust lýk ég námi i pipulögnum svo aö ég ætti aö finna mér eitthvað viö hæfi. Ann- ars segja gárungarnir að ég sé farinn aö safna aö mér starfsheit- unum og einn vina minna sagöi við mig að ég ætti aö láta skrá mig i simaskrána sem Ó. ValdPrentSöngPipKokkur segir Óöinn og glottir um leiö og hann kastar kveðju á blm. Nútimans og segist ekki mega vera aö þessu lengur nóg sé aö gera viö aö kynna þjóðinni plötuna og uin leiö og hann smeygir sér út um dyrn- ar segir hann: „Ég vona svo aö þú hafir gaman af plötunni eöa getir a.m.k. hlegið aö henni.” —ESE Blátt Oní blátt - Óðinn Valdimarsson Tónaútgáfan - T 18 Undirleikur: Árni Friðriksson (trommur) Brynleifur Hallsson (gítar) Finnur Eydal (klarinett, bassaklari- nett, baritonsax) Gunnar Ringsted (gitar) Ingimar Eydal (píanó, raf magnspíanó, klarinett, ELKA rhapsody) Sævar Benediktsson (bassi) Þorleifur Jó- hannesson (tamborina). Raddir: Brynleifur Hallsson, Erla Stefánsdóttir, Finnur Eydal, Helena Eyjólfsdótt- ir, Ingimar Eydal, Óli Ólafsson, Sævar Benediktsson. Pressun: Soundtek INC. Hönnun og Ijósmynd: Hall- grímur Tryggvason. Prentun: Valprent.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.