Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 28. mai 1978. Á Akureyri um aldamótin. Verzlunarhús „eldri bræöra” t.h. ........... ....... Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið i þjóðbúningum 1908, í gamla daga Gamla sýslumannshúsiö á Akureyri byggt 1902-1903. Hús Klemenzar Jónssonar sýslumanns 1903. Hér koma tvær myndir af gamla sýslumannshúsinu á mótum Aöalstrætis og Hafnar- strætis á Akureyri. Sú eldri, frá 1902 eöa 1903 sýnir húsiö ný- byggt en þaö reisti Klemenz Jónsson sýslumaöur. Til vinstri sér i Hótel Akureyri en i gamla barnaskólann t.h. Handvagn og timbur i forgrunni. Klemenz geristlandritari 1904 og flutti þá til Reykjavikur meö fjölskyldu sina. Frú Anna Klemenzdóttir léöi myndina i þáttinn. Yngri mynd af sama húsi tekin 1976 var birt i þættinum 23. april en fyrir misgáning talin vera af húsi „eldri bræöra” Hafnar- stræti 2. Há reynitré vaxa nú viö gamla sýslumannshúsiö. 1 þvi var langa hriö fyrsta simstöö á Akureyri sett á laggirnar 1906, þarna inni I Fjöru en þar var lengi kjarni bæjarins. Nú er aöalathafnasvæöiö upp af Torfunesi og úti á Oddeyri. Hér er birt aldamótamynd af Akureyri. Stóra hvita húsiö fast viö sjóinn til hægrier hús „eldri bræðra”, Friöriks og Magnúsar Kristjánssonar. Litla hvita hús- ið rétt hjá er Grundarskálinn, vörugeymsla Magnúsar á Grund. Stórt hús Sigtryggs Jónssonar snikkara (á miöri mynd) skammt frá. Akureyringar kannast eflaust viö flest húsin og gömlu bryggjurnar. Hús „eldri bræöra” varreistá uppfyllingu er tekin var i brekkunni fyrir of- an. Havsteen konsúll átti jarð- eplagarð efst i brekkunni og óttaöist aö hann myndi siga niöur ef efni i uppfyllinguna væri tekiö þar og lét leggja á lögbann gegn þvi, en sættum var náö I málinu. Myndina af konunum þrem i þjóðbúningum hefur frú Anna Klemenzdóttir léö úr safni sinu. Til vinstri á myndinni stendur Asta Magnúsdóttir siöar rikisfé- hiröir. i miðið Ingveldur Benedikta Lárusdóttir kona Magnúsar Jónssonar prófessors. Til hægri Anna Klemenzdóttir. Myndin er tekin viö Dómkirkjuna i Reykjavik áriö 1908 eða 1909. Myndina af Akureyri um 1900 hefur K. Einarsson SeyÖisfirði tekiö. „Waagen” skip Ottós Wathne eitt sér. V.________________________________J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.