Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 23
Sunnudagur 28. mai 1978.
l'llí'lH '!'l 1
23
H1 j ómplötudómar
Jethro Tull - Heavy
Horses Chrysalis -
CHR 1175 /Fálkinn
Fyrir rúmu ári þegar hljóm-
platan „Songs from the wood”
með Jethro Tull kom út, hristu
margir Tull aðdáendur höfuðið
fullir vandlætingar, þvi að eins
og mörgum öðrum fundust þeim
breytingarnar frá fyrri plötum
full miklar. Og ekki er vist að
þeir hinir sömu sem tigna
gömlu Tull plöturnar sætti sig
við nýjasta framlag Ian Ander-
son og félaga, „Heavey Hors-
es”, sem kom út fyrir skömmu.
En þó að margir séu ekki hrifnir .
af Jethro Tull i dag, verður
undirritaður að lýsa sig annarr-
ar skoðunar, þvi að minu mati
þá standa ofangreindar plötur
hinum fyrri jafnfætis, ef ekki
framar. Það er erfitt að lýsa I
orðum áhrifum þeim sem
„Songs from the wood” og
„Heavy Horses” hafa á mann.
Það er einhver kynngimagnað-
ur kraftur sem dylst I lögum og
textum.sem gerir það að verk-
um að maður sér það sem lögin
fjalla um ljóslifandi fyrir sér.
En hvaðum þaðá Heavy Horses
syngur Anderson m.a. um þarf-
asta þjóninn en platan er til-
einkuð öllum brezkum hestum
stórum og smáum sem með
vinnu sinni frá aldaöðli hafa
áskilið sér að kallast „Heavy
Horses”. Trúlega lýsa eftirfar-
andi llnur úr titillagi plötunnar
þvi seiðmagnaða andrúmslofti
sem á henni rfkir betur en flest
★ ★★★★ +
orð: Heavy Horses move the
land under me/ Behind the
plough gliding — slipping and
sliding free/ Now you are down
to the few and there’s no work to
do/ The tractor’s on its way ....
And one day when the oil Barons
have all dripped dry/ and the
nights are seen to draw colder/
They’U beg for your strength,
your gentie power ...
— ESE
The Band - The last
waltz W.B. -
3WS 3146 /Fálkinn
„Siðasti valsinn” byrjar og
endar á kiassik. Þrjár skifur I
einu albúmi og þú hefur sjaldan
hlustað á álika fágaða og þrosk-
aða rokktónlist. Ein skifa af
þremur hreinlega stórkostleg.
Hinar tvær hafa að bjóða m.a.
The Band ásamt Joni Mitchell,
Paul Butterfield, Muddy Wat-
ers, Neil Diamond, Ronnie
Hawkins, Neil Young, Dr. John,
Van Morrison og Eric Clapton.
Og The Band er I virkilegu stuði
þó hinum takist misjafnlega.
Á þriðju og beztu skifunni
koma svo fram Bob Dylan,
Ringo Starr, Emmyiou Harris
og The Staples ásamt The Band.
The last Waltz” er að 5/6
hluta lifupptaka frá lokahljóm-
leikum hljómsveitarinnar „The
Band” sem i rúman áratug hef-
ur staðið i sviðsljósinu og lagt
rokkinu tii ýmislegt það bezta I
fórum þess. Þessir lokahljóm-
leikar The Band voru kvik-
myndaðir vel að merkja, og ber
myndin hið sama nafn og al-
búmið: „The las Waltz”.
Eins og fyrr segir er þetta al-
búm þrefalt og sýna tvær platn-
anna a.m.k. glögglega fram á
aðThe Band á margt merkilegt
I pokahorninu auk þess að vera
óumdeilanlega éinhver hin al-
bezta undirle ikshljómsveit sem
um getur. A þriðju skifunni-ara
þeir á kostum ásamt Bob Dylan
og seinni hlið þessarar skifu
geymir „stúdióhljóðritun” á
★ ★ ★ ★ ★
splúnkunýju tónverki eftir
Robbie Robertson: „The last
waltz suite”. Þetta verk er i alla
staði frábært og flutningurinn
einnig.
„Siðasti valsinn” er kjörið al-
búm tQ að kynnast hljómsveit-
inni The Band og margumrædd
3. skifa ber einnig upp útgáfu
þess eins og sér. Til að létta
undir er rúmur tugur heims-
frægra listamanna. Óneitanlega
tignarlegur siðasti valsinn.
KEJ
Nemendur
Húsmæðraskólans
á Blönduósi
veturinn 1947-48
Nemendamót verður haldið i Reykjavik
10. júni, ef næg þátttaka fæst.
Hafið samband helzt fyrir 4. júni við önnu
Árnadóttur simi 95-4159 eða Guðrúnu
Hafsteinsdóttur simi 91-66187
Tæknifræðingur -
Verkfræðingur
Hafrannsóknarstofnin óskar að ráða veik-
straumstæknifræðing eða verkfræðing nú
þegar.
Umsóknir sendist tæknideild Hafrann-
sóknarstofnunarinnar, Skúlagötu 4.
Hafrannsóknarstofnun rikisins.
Iðnskólinn í Reykjavík
Móttaka umsókna um skóiavist í eftirtald-
ar deildir fer fram i skóianum, dagana 31.
mai til 6. júni, kl. 9.00-16.00.
öllum umsóknum skal fylgja ljósrit eða
staðfest afrit af prófskirteini.
Inntökuskilyrði eru samkvæmt reglum
Menntamálaráðuneytisins um nám i
framhaldsskólum.
Upplýsingar verða veittar af starfsmönn-
um skólans við móttöku umsókna.
1. Samningsbundnir iðnnemar:
Nemendur hafi með sér staðfestan
námssamning ásamt ljósriti af próf-
gögnum.
2. Verknámsskóii iðnaðarins:
a. Bókagerðardeild: Offsetiðnir, prent-
iðnir og bókband.
b. Fataiðndeild: Kjólasaumur og
klæðskurður.
c. Hársnyrtideild: Æárgreiðsla og
hárskurður.
d. Málmiðnadeild: Bifreiðasmiði,
bifvélavirkjun, blikksmiði, ketil og
plötusmiði, pipulagningar, rennismiði
og vélvirkjun.
e. Rafiðnadeild: Rafvirkjun, rafvéla-
virkjun, útvarpsvirkjun og skriftvéla-
virkjun.
f. Tréiðnadeild: Húsasmiði, húsgagna-
smiði, húsgagnabólstrun,
myndskurður, skipa og bátasmiði.
3. Framhaldsdeildir verknámsskóla
iðnaðarins.
a. Bifvélavirkjun.
b. Húsgagnasmiði
c. Rafvirkjun og rafvélavirkjun.
d. Útvarpsvirkjun.
e. Vélvirkjun og rennismiði.
f. Húsasmiði (með fyrirvara um leyfi
fræðsluyfirvalda)
g. Blikksmiði (með fyrirvara um leyfi
fræðsluyfirvalda)
4. 1. áfangi:
Nám fyrir nemendur sem ekki uppfylla
skilyrði um inngöngu i 2. áfanga eða
verknámsskóla iðnaðarins. Innritun fer
fram i Vörðuskóla.
5. Tækniteiknun. Væntanlegir nemendur
2. bekkjar sæki einnig um skólavist.
Skólastjóri